Ferill 259. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 406 — 259. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Sæunni Gísladóttur um frádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu margir íslenskir ríkisborgarar hafa nýtt sér heimild um frádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga, sbr. reglugerð nr. 1202/2016?
Frádráttarheimild 6. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, sbr. reglugerð um frádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga, nr. 1202/2016, tók gildi 1. janúar 2017 og felur í sér að þeir erlendu sérfræðingar sem uppfylla skilyrði laganna greiða einungis tekjuskatt af 75% tekna sinna fyrstu þrjú árin í starfi. Rétt er að taka fram að í ákvæðinu er ekki gerð krafa um erlent ríkisfang og felst því m.a. í því hvati fyrir íslenska sérfræðinga, sem búsettir hafa verið erlendis síðustu 60 mánuði eða lengur, til að flytja aftur til Íslands.
Frá 1. janúar 2017 til loka árs 2024 hefur matsnefnd um frádráttarrétt erlendra sérfræðinga borist um 1.450 umsóknir. Af þeim hafa 1.180 umsóknir eða um 81% þeirra verið samþykktar og þar af eru 318 vegna íslenskra ríkisborgara.
Það sem af er ári 2025, sé miðað við 1. nóvember, hafa nefndinni borist 252 umsóknir, af þeim hafa 214 verið samþykktar eða um 85% og þar af eru 46 vegna íslenskra ríkisborgara.
Íslenskir ríkisborgarar sem hafa fengið samþykki sem erlendir sérfræðingar í skattalegu tilliti frá árinu 2017 eru því 364, miðað við 1. nóvember 2025, en heildarfjöldi umsókna af öllum þjóðernum miðað við sama tíma er 1.702 umsóknir.