Ferill 86. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 407  —  86. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um áhafnir skipa, nr. 82/2022 (áhafnir björgunarskipa).

(Eftir 2. umræðu, 25. nóv.)


    1. gr.

    Við 37. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði laga þessara er ráðherra heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um menntun og þjálfun á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Slysavarnaskóla sjómanna til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem gegna sérhæfðu hlutverki, og um lágmarksréttindi til skipstjórnar og vélgæslu á þeim. Námskrá og listi yfir kennara eru háð samþykki Samgöngustofu sem hefur eftirlit með náminu. Nám samkvæmt þessari málsgrein skal eingöngu veita réttindi til starfa um borð í björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar samkvæmt skipaskrá.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.