Ferill 295. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 410 — 295. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga.
Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.
Hvaða skilyrðum er greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í kostnaði vegna fíknimeðferðar barna á stofnun utan aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, Bretlands og Sviss háð? Er greiðsluþátttaka sjúkratrygginga samþykkt ef tiltekið fíknimeðferðarúrræði utan nefndra ríkja þykir henta barni best og ef kostnaður við það er sambærilegur og almennt gerist um slík meðferðarúrræði?
Skriflegt svar óskast.