Ferill 249. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 415  —  249. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um upplýsingafulltrúa.


     1.      Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi í ráðuneytinu? Ef svo er, hversu margir eru þeir?
    Já, einn upplýsingafulltrúi.

     2.      Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi hjá undirstofnunum ráðuneytisins? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.

Embætti landlæknis Nei
Landspítali Já, einn samskiptastjóri
Sjúkrahúsið á Akureyri Já, einn samskiptastjóri
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Já, einn samskiptastjóri
Heilbrigðisstofnun Austurlands Nei
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Nei
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Nei
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Nei
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Nei
Heilbrigðisstofnun Vesturlands Nei
Sjúkratryggingar Íslands Já, einn þróunar- og samskiptastjóri
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands Nei
Geislavarnir ríkisins Nei
Lyfjastofnun Nei

     3.      Er upplýsinga- eða samskiptadeild starfrækt í ráðuneytinu eða undirstofnunum þess? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um fjölda starfsmanna á deildunum undanfarin tíu ár, sundurliðað eftir árum og stofnunum.

Heilbrigðisráðuneytið Nei
Embætti landlæknis Nei
Landspítali Undanfarin tvö ár hafa fimm starfað í samskiptateymi spítalans. Árin þar á undan voru fjórir starfandi í teyminu.
Sjúkrahúsið á Akureyri Nei
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Nei
Heilbrigðisstofnun Austurlands Nei
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Nei
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Nei
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Nei
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Nei
Heilbrigðisstofnun Vesturlands Nei
Sjúkratryggingar Íslands Nei
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands Nei
Geislavarnir ríkisins Nei
Lyfjastofnun Sjá eftirfarandi töflu

Lyfjastofnun, deild Ár Fjöldi starfsmanna
Upplýsingadeild 2015 1
Upplýsingadeild 2016 2
Upplýsingadeild 2017 2
Upplýsingadeild 2018 3
Upplýsingadeild 2019 4
Upplýsingadeild 2020 4
Samskiptadeild 2021 4
Samskiptadeild 2022 4
Samskiptadeild 2023 4
Samskiptadeild 2024 4 (fram til 1.2.2024, var þá lögð niður)