Ferill 212. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 417 — 212. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Pétri Zimsen um íslenskukunnáttu leikskólastarfsmanna.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hve margir starfsmenn leikskóla sem vinna með börnum eru ekki með íslensku sem móðurmál og hversu margir uppfylla ekki viðmið B2 í færni í íslensku samkvæmt samevrópska tungumálarammanum (CEFR), og hvert er hlutfall þeirra miðað við þá sem uppfylla viðmið B2? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
Starfsfólk með annað móðurmál en íslensku.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um móðurmál starfsfólks sem sinnir uppeldi og menntun barna í leikskólum. Hagstofa Íslands safnar hins vegar upplýsingum um bakgrunn starfsfólks og skiptir þeim í sex hópa: einstaklingar 1) með engan erlendan bakgrunn, 2) fæddir erlendis og eiga foreldra sem einnig eru fæddir erlendis (innflytjendur), 3) fæddir á Íslandi og báðir foreldrar fæddir erlendis (annarrar kynslóðar innflytjendur), 4) fæddir á Íslandi en eiga annað erlent foreldri, 5) fæddir erlendis og eiga annað erlent foreldri 6) fæddir erlendis en eiga foreldra sem báðir eru fæddir hér á landi.
Árið 2024 óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum frá Hagstofu Íslands um fjölda leikskólastarfsfólks sem sinnir uppeldi og menntun og er innflytjendur. Með innflytjanda er átt við einstakling fæddan erlendis og á foreldra sem báðir eru fæddir erlendis. Að einhverju leyti gefa gögnin vísbendingar um fjölda leikskólastarfsfólks með annað móðurmál en íslensku en gögnin afmarkast aðeins við framangreinda skilgreiningu á hugtakinu innflytjendur. Þannig nær umfjöllunin t.d. ekki til leikskólastarfsfólks sem er af annarri kynslóð innflytjenda eða til annarra hópa sem Hagstofa Íslands skilgreinir með erlendan bakgrunn. Þá sýna gögnin ekki hver raunveruleg færni innflytjenda er í íslensku.
Í töflu 1 má sjá fjölda og hlutfall stöðugilda sem sinna uppeldi og menntun barna í leikskólum og mönnuð eru af innflytjendum á árinu 2023, sundurliðað eftir landshlutum og stærstu sveitarfélögunum landsins. Í Reykjavík eru upplýsingarnar settar fram eftir miðstöðvum sem þjónusta íbúa í viðkomandi borgarhluta.
Tafla 1. Fjöldi og hlutfall stöðugilda fyrstu kynslóðar innflytjenda sem sinna uppeldi og menntun barna í leikskólum eftir landshlutum og stærstu sveitarfélögum landsins, árið 2023.
| Sveitarfélag/landshlutar | Fjöldi | Hlutfall (%) |
| Landið allt | 1230,4 | 21,1 |
| Akranes | 7,8 | 6,0 |
| Akureyri | 29,4 | 10,1 |
| Árborg | 26,2 | 13,0 |
| Fjarðabyggð | 20,3 | 25,4 |
| Garðabær og Seltjarnarnes1 | 104,1 | 24,8 |
| Hafnarfjörður | 97,7 | 19,9 |
| Ísafjarðarbær | 16,4 | 22,5 |
| Kópavogur | 100,7 | 16,7 |
| Mosfellsbær | 43,9 | 21,1 |
| Múlaþing og Vopnafjörður | 14,9 | 15,3 |
| Norðurland eystra án Akureyrar | 25,0 | 13,1 |
| Norðurland vestra án Skagafjarðar | 3,0 | 5,9 |
| Reykjanesbær | 52,3 | 18,0 |
| Reykjavík – Austurmiðstöð | 135,0 | 22,9 |
| Reykjavík – Norðurmiðstöð | 119,9 | 23,9 |
| Reykjavík – Suðurmiðstöð | 113,1 | 36,6 |
| Reykjavík – Vesturmiðstöð | 177,8 | 30,1 |
| Skagafjörður | 3,8 | 4,9 |
| Suðurland án Árborgar | 81,9 | 22,5 |
| Suðurnes | 15,0 | 20,4 |
| Vestfirðir án Ísafjarðarbæjar | 17,1 | 32,7 |
| Vesturland án Akraness | 25,4 | 18,2 |
| 1 Seltjarnarnes og Garðabær eru talin saman þar sem leikskólar voru færri en þrír í sveitarfélaginu. | ||
Íslenskukunnátta starfsfólks með annað móðurmál en íslensku.
Upplýsingum um íslenskukunnáttu starfsfólks leikskóla hefur ekki verið safnað, hvorki af Hagstofu Íslands, mennta- og barnamálaráðuneyti né sveitarfélögum. Aftur á móti liggur fyrir könnun sem mennta- og barnamálaráðuneytið sendi 245 leikskólastjórum á landinu í september 2025 þar sem spurt var um ýmsa þætti leikskólastarfsins. Þar var m.a. spurt um fjölda stöðugilda sem sinna uppeldi og menntun barna sem mönnuð eru af starfsfólki með íslenskukunnáttu undir stigi B1, með eftirfarandi skýringu: „Samkvæmt samevrópska tungumálarammanum felur hæfni á stigi B1 í sér að einstaklingur geti tekið þátt í óundirbúnum samræðum um daglegt líf og starf. Starfsfólk sem er undir þessu stigi hefur því ekki næga íslenskukunnáttu til að taka þátt í slíkum samræðum.“
Alls svöruðu 188 af 245 leikskólastjórum (77%) öllum spurningalistanum eða að hluta. Svarhlutfall fyrir hverja og eina spurningu er mismunandi. Alls svöruðu 162 af 188 leikskólastjórum bæði spurningunni um fjölda stöðugilda sem sinna uppeldi og menntun barna í leikskólanum og spurningunni um fjölda stöðugilda sem sinna uppeldi og menntun barna sem mönnuð eru af starfsfólki með íslenskukunnáttu undir stigi B1.
Tafla 2 sýnir hlutfall stöðugilda sem mönnuð eru starfsfólki með íslenskukunnáttu undir stigi B1 sundurliðað eftir landshlutum og stærstu sveitarfélögum landsins. Fjöldatölur eru ekki birtar vegna persónuverndarsjónarmiða. Við túlkun niðurstaðna verður að hafa til hliðsjónar framangreint svarhlutfall leikskólastjóra.
Byggt á þeim svörum sem bárust mennta- og barnamálaráðuneytinu eru á landsvísu 10% leikskólastarfsmanna sem sinna uppeldi og menntun með íslenskukunnáttu undir stigi B1. Hlutfallið er hæst á Vestfjörðum (án Ísafjarðarbæjar) og þar á eftir koma Reykjanesbær og Reykjavík. Hlutfallið er lægst á Akranesi og Akureyri.
Tafla 2. Hlutfall stöðugilda við uppeldi og menntun barna sem mönnuð eru starfsfólki með íslenskukunnáttu undir stigi B1, sundurliðað eftir landshlutum og stærstu sveitarfélögum landsins. Gögnum safnað haustið 2025.1
| Sveitarfélag/landshlutar | Hlutfall (%) |
| Landið allt | 10 |
| Akranes | 0 |
| Akureyri | 3 |
| Árborg | 8 |
| Fjarðabyggð | 8 |
| Garðabær og Seltjarnarnes | 6 |
| Hafnarfjörður | 6 |
| Ísafjarðarbær | 10 |
| Kópavogur | 4 |
| Mosfellsbær | 10 |
| Múlaþing og Vopnafjörður | 4 |
| Norðurland eystra án Akureyrar | 6 |
| Norðurland vestra án Skagafjarðar | 5 |
| Reykjanesbær | 15 |
| Reykjavík | 15 |
| Skagafjörður2 | – |
| Suðurland án Árborgar | 9 |
| Suðurnes2 | – |
| Vestfirðir án Ísafjarðarbæjar | 16 |
| Vesturland án Akraness | 14 |
| 1 Byggt á svörum 162 leikskólastjóra. Ekki bárust svör frá 83 leikskólastjórum á landinu. | |
| 2 Ekki er hægt að byggja á svörum leikskólastjóra í Skagafirði og á Suðurnesjum vegna lágs svarhlutfalls. | |