Ferill 307. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 428  —  307. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152.


Frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.



    Alþingi ályktar að eftirfarandi breytingar verði á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152:
     1.      Við A-lið (Vatnasvið) 1. tölul. (Orkunýtingarflokkur) bætist tveir nýir liðir á eftir liðnum Vestfirðir, Ófeigsfjörður, svohljóðandi:
                  a.      Vestfirðir, Vattardalsá og Tröllá, Tröllárvirkjun, R4163A.
                  b.      Vestfirðir, Skúfnavötn, Skúfnavatnavirkjun, R4103A.
     2.      Við B-lið (Háhitasvæði) 1. tölul. (Orkunýtingarflokkur) bætist nýr liður á eftir liðnum Reykjanesskagi, Krýsuvíkursvæði, Austurengjar, svohljóðandi: Suðurland, Hellisheiði, Bolaalda R4292A.
     3.      Við A-lið (Vatnasvið) 2. tölul. (Biðflokkur) bætist tveir nýir liðir á réttan stað miðað við landshluta, svohljóðandi:
                  a.      Vestfirðir, Glámuhálendi, Hvanneyradalsvirkjun, R4159A.
                  b.      Austfirðir, Hamarsá, Hamarsvirkjun, R4292A.

Greinargerð.

1. Almennt.
    Tillaga þessi til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152, er lögð fram í samræmi við 1. mgr. 3. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011. Um er að ræða fimm virkjunarkosti í vatnsafli og jarðvarma sem verkefnisstjórn 5. áfanga áætlunarinnar hefur fjallað um. Tillaga um flokkun þeirra barst ráðuneytinu 10. mars 2025 að loknu lögbundnu samráðsferli í samræmi við lög nr. 48/2011.
    Með bréfi, dags. 13. mars 2025, lýsti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sig vanhæfan til að fara með málið með hliðsjón af meginreglu stjórnsýsluréttar og óskaði eftir því við forsætisráðherra að settur yrði nýr ráðherra í málinu. Hinn 28. mars 2025 féllst forseti Íslands á tillögu forsætisráðherra um að setja menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra sem ráðherra í málinu og er tillagan því lögð fram af honum. Ekki var um undirmannavanhæfi að ræða og því var málið undirbúið af starfsmönnum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins fyrir hönd setts ráðherra.

2. Vinna verkefnisstjórnar við mat virkjunarkosta.
2.1. Virkjunarkostir til umfjöllunar hjá verkefnisstjórn og faghópum.
    Verkefnisstjórn 5. áfanga vann, á skipunartíma sínum, að hefðbundinni umfjöllun um virkjunarkosti sem sendir höfðu verið inn til umfjöllunar í 4. áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar sem gengu áfram til 5. áfanga.
    Í 2. mgr. 9. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011, kemur fram að beiðni um að verkefnisstjórn fjalli um virkjunarkosti skuli send Umhverfis- og orkustofnun. Í samráði við verkefnisstjórn 5. áfanga hefur sú breyting orðið á verklagi stofnunarinnar að ekki er einungis auglýst eftir tilteknum tillögum sem berast þurfi stofnuninni innan tiltekinna tímamarka heldur er alltaf opið fyrir umsækjendur að óska eftir að virkjunarkostir á þeirra vegum fari til umfjöllunar verkefnisstjórnarinnar Á undanförnum árum hefur Umhverfis- og orkustofnun unnið eftir þessari aðferðafræði og er ekki annað að sjá en að sú breyting hafi reynst farsæl.
    Tillögur verkefnisstjórnar 5. áfanga rammaáætlunar náðu til flokkunar fimm virkjunarkosta, eins í jarðvarma, Bolaöldu, og fjögurra í vatnsafli, Tröllárvirkjun, Hvanneyrardalsvirkjun, Skúfnavatnavirkjun og Hamarsvirkjun.

2.2. Störf faghópa í 5. áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar.
    Faghópar voru skipaðir eftir að verkefnisstjórn tók til starfa. Verkefnisstjórn fól öllum fjórum faghópum sínum að vinna greiningar og leggja mat á áhrif þeirra virkjunarkosta sem liggja fyrir í tillögu þessari. Jafnframt lágu fyrir ýmis gögn og greiningar frá vinnu verkefnisstjórnar 4. áfanga rammaáætlunar sem gengu áfram til 5. áfanga og voru þau tekin til skoðunar.

2.3. Tillögur verkefnisstjórnar og samráð.
    Á grunni greiningarvinnu faghópa gerði verkefnisstjórn drög að flokkun þessara virkjunarkosta. Drögin voru sett í lögbundið samráð í samráðsgátt 7. júní 2024 og bárust 27 umsagnir, sbr. mál nr. S-114/2024. Í framhaldinu var tillaga að flokkun virkjunarkostanna sett í 12 vikna lögbundið samráð og barst þá 21 umsögn til viðbótar, sbr. mál nr. S-139/2024.

2.4. Umhverfismat áætlunarinnar.
    Samkvæmt skýrslu verkefnisstjórnar fór umhverfismat verndar- og orkunýtingaráætlunar fram samhliða gerð áætlunarinnar, en samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, skulu tillögur verkefnisstjórnar fara í umhverfismat. Haft var samráð við Skipulagsstofnun í maí 2024 varðandi umfang og nákvæmni matsins, sbr. 5. gr. reglugerðar um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 1381/2021. Verkefnisstjórn leitaði til ráðgjafa um gerð umhverfismats áætlunarinnar. Skýrslan með mati á umhverfisáhrifum áætlunarinnar var sett fram til umsagnar samhliða samráðsferli um tillögurnar. Ekki bárust neinar athugasemdir við umhverfismatsskýrsluna í samráðsferlinu.

2.5. Rökstuðningur fyrir flokkun hvers virkjunarkosts.
    Eftirfarandi er lýsing á virkjunarkostum sem er að finna í tillögu þessari og rökstuðningur úr skýrslu verkefnisstjórnar um flokkun hvers virkjunarkosts fyrir sig. Skýrslu verkefnisstjórnar er að finna í fylgiskjali við tillögu þessa.

2.5.1. Tröllárvirkjun – nýtingarflokkur.
    Lýsing og rökstuðningur: Virkjunarkosturinn er inn af Vattarfirði í Reykhólahreppi. Fyrirhuguð virkjun byggist á því að virkja rennsli Vattardalsár, einkum þverár hennar, Tröllár, með niðurgröfnum þrýstipípum frá um 500 m.y.s. niður í 50 m.y.s. innarlega í botni Vattarfjarðar og að uppsett afl vatnsaflsvirkjunarinnar verði um 13,7 MW. Virkjunarkosturinn er byggður á því að virkja rennsli Tröllár og Vattardalsár á Glámuhálendinu. Miðlun yrði gerð í Tröllárvatni en einnig yrði veitt til hennar frá Nýrnavötnum, sem eru á vatnasviði Hvanneyrardalsár í Ísafirði. Þetta eru því að hluta til sömu vatnasvið og framkvæmdaraðili Hvanneyrardalsvirkjunar hyggst nýta. Tröllárvirkjun liggur nær núverandi tengivirkjum en Hvanneyrardalsvirkjun, þannig að gera má ráð fyrir að hún sé hagkvæmari orkukostur. Annar stofnkostnaður fyrir virkjunarkostina tvo er metinn áþekkur. Báðar virkjanirnar eru á mörkum þess að teljast hagkvæmar, sbr. greiningar faghóps 4. Niðurstaða verkefnisstjórnar er að leggja til að virkjunarkosturinn Tröllárvirkjun verði valinn til nýtingar. Þar sem áhrif á náttúru, menningarminjar og aðra hagsmuni eru áþekk, telur verkefnisstjórn rétt að mæla með þeim kosti sem telst hagkvæmari, þar sem nálægð við tengivirki skiptir mestu. Það er hins vegar mikilvægt að vel takist til við samningagerð virkjunaraðila og landeigenda, sem hafa lýst andstöðu við virkjunina á landi sínu. Að öðrum kosti er Hvanneyrardalsvirkjun augljós valkostur og flokkast því í biðflokk. Komi fram önnur sjónarmið í meðferð ráðherra eða Alþingis er hægt að gera breytingu á þessari tillögu um forgangsröðun virkjananna. Komi til samþykktar Alþingis á öðrum virkjunarkostinum í nýtingarflokk fellur hinn væntanlega sjálfkrafa úr áætluninni, því þá er virkjun 10 MW eða stærri ekki raunhæf. Komi til virkjunar Tröllárvirkjunar, eða eftir atvikum Hvanneyrardalsvirkjunar, skiptir miklu að tryggt sé að virkjunarframkvæmdirnar gangi ekki yfir á vatnasvið Vatnsdals sem er friðlýstur.

2.5.2. Skúfnavatnavirkjun – nýtingarflokkur.
    Lýsing og rökstuðningur: Virkjunarkosturinn er syðst á Langadalsströnd innst í Ísafjarðardjúpi í Strandabyggð. Gert er ráð fyrir að virkjunarframkvæmdir í Skúfnavötnum við Ísafjarðardjúp, hefjist ofan Rauðamýrarfjalls norður af Hvannadalsá og að leidd verði saman þrjú vatnasvið í Skúfnavötnum með Hvannadalsárveitu og Austurmannagilsveitu og að uppsett afl vatnsaflsvirkjunarinnar verði 16 MW. Skúfnavötn eru sunnarlega á Ófeigsfjarðarheiði, á vatnasviði Þverár á Langadalsströnd. Hlutfallslega stór miðlun er fyrirhuguð með gerð stíflu við útrennsli Skúfnavatna. Jafnframt verði vatni af vatnasviði Hvannadalsár veitt til Skúfnavatna, og komi ríflega helmingur rennslis til virkjunarinnar úr þeirri á. Stöðvarhúsið verði í Hvannadal neðan við vötnin. Verkefnisstjórn leggur til að Skúfnavatnavirkjun verði flokkuð í nýtingarflokk. Líkt og á við um virkjunarkostina tvo á Glámuhálendinu eru gæði náttúrufarsgagna betri en tilgreint er í skýrslu faghóps 1. Einnig skiptir miklu að mat faghópa 2, 3 og 4 kemur ágætlega út fyrir þennan virkjunarkost, en hann telst sá hagkvæmasti af þeim fimm sem hér eru til umfjöllunar.

2.5.3. Bolaalda – nýtingarflokkur.
    Lýsing og rökstuðningur: Virkjunarkosturinn er við Bolaöldu á Hellisheiði í Sveitar-félaginu Ölfusi. Gert er ráð fyrir að virkja háhitakerfi við Bolaöldu og að uppsett afl jarðvarmavirkjunarinnar verði allt að 100 MW. Virkjunarkosturinn er að mestu á Ölfusafrétti. Engin yfirborðsvirkni er þekkt á svæðinu, en þær upplýsingar sem til eru frá viðnámsmælingum gefa til kynna að mögulegt háhitakerfi sé djúpstæðara en kerfin á Hellisheiði og Hengli til austurs og í Brennisteinsfjöllum til vesturs. Verkefnisstjórn leggur til að virkjunarkosturinn Bolaalda skuli flokkast í nýtingarflokk. Í ljósi þeirra greininga sem hafa verið unnar í rammaáætlun og athugasemda sem bárust, vill verkefnisstjórn benda á mikilvægi þess að nokkrir þættir verði skoðaðir betur, gangi áform um virkjun lengra. Það getur gerst annað hvort samhliða mati á umhverfisáhrifum eða í tengslum við leyfisveitingar. Mikilvægt er að leiða í ljós möguleg áhrif virkjunarinnar á aðra nýtingu jarðhita á svæðinu og hvort virkjunin kunni mögulega að hafa áhrif á vatnsvernd en nærliggjandi eru mikilvægar ferskvatnsnauðlindir. Þá þarf að hafa í huga að áhrif á aðra nýtingu er háð því hver endanleg tillaga að staðsetningu virkjunarmannvirkja á svæðinu verður.

2.5.4. Hvanneyrardalsvirkjun – biðflokkur.
    Lýsing og rökstuðningur: Virkjunarkosturinn er í Hvanneyrardal inn af Ísafirði innst í Ísafjarðardjúpi í Súðavíkurhreppi. Virkjunarkosturinn byggist á miðlun vatns úr sjö vötnum á Glámuhálendinu og gert er ráð fyrir að uppsett afl vatnsaflsvirkjunarinnar verði 13,5 MW. Að hluta eru það sömu vötn og framkvæmdaraðili Tröllárvirkjunar hyggst nýta. Verkefnisstjórn leggur til að Hvanneyrardalsvirkjun verði flokkuð í biðflokk. Þar sem hún skarast við Tröllárvirkjun þarf þó að skoða flokkun þeirra í samhengi hvorrar við aðra og er það gert í skýrslu verkefnisstjórnarinnar sem fylgir tillögu þessari. Líkt og með Tröllárvirkjun kemur í ljós við yfirferð ábendinga um gæði gagna við greiningar faghóps 1 varðandi þennan virkjunarkost að ekki hafi verið uppfært yfirlit yfir þær rannsóknir sem unnar voru sérstaklega fyrir faghópinn og á vegum hans. Því eru gæði gagna meiri en tilgreint er í umfjöllun um gögn í skýrslu faghópsins.

2.5.5. Hamarsvirkjun – verndarflokkur.
    Lýsing og rökstuðningur: Virkjunarkosturinn er í Hamarsdal í Múlaþingi á Austfjörðum. Gert ráð fyrir að virkja Hamarsá sem rennur um Hamarsdal til austsuðausturs og út í Hamarsfjörð, og að uppsett afl vatnsaflsvirkjunarinnar verði 60 MW. Miðlun vatns yrði frá tveimur stöðum, annars vegar í Hamarsvatni og svo í inntakslóni í Vesturbót. Úr inntakslóninu yrði vatninu veitt um aðrennslisgöng niður í stöðvarhús neðan jarðar. Hamarsá á upptök sín í smávötnum og tjörnum á Sviðinhornahraunum í efstu drögum Hamarsdals. Áætluð miðlun í Hamarsvatni myndi stækka það úr 1 km2 í 3 km2. Þremur hliðarám yrði veitt inn í aðrennslisgöng að stöðvarhúsi sem yrði byggt inni í fjalli. Verkefnisstjórn leggur til að virkjunarkosturinn Hamarsvirkjun verði flokkaður í verndarflokk rammaáætlunar og byggir það mat að mestu á rökstuðningi úr greiningum faghóps 1 á verðmæti náttúru svæðisins og áhrifa virkjunar á þau. Einnig er rétt að benda á að þegar áhrif þessa virkjunarkosts eru borin saman við stærra mengi virkjunarkosta í fyrri áföngum kemur vel fram hversu háa verðmætaeinkunn þetta svæði fær og hversu mikil áhrif virkjunin hefði á þau verðmæti.

3. Skoðun ráðherra á tillögum verkefnisstjórnar.
    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ákvað að víkja sæti við meðferð þeirra virkjunarhugmynda sem fjallað er um í tillögu þessari, vegna tengsla við fyrirsvarmanns eins þeirra aðila sem óskað hafði eftir að verkefnisstjórn fjallaði um virkjunarkost á hans vegum, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 48/2011. Settur ráðherra tók því tillögur verkefnisstjórnar til skoðunar eins og lög kveða á um.
    Í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 48/2011 segir að ráðherra taki tillögur verkefnisstjórnar til skoðunar og gangi frá tillögu um verndar- og orkunýtingaráætlun í samræmi við 3. gr. laganna. Ef lagðar eru til breytingar á tillögu verkefnisstjórnar skal leita umsagna þeirra aðila sem greinir í 2. mgr. greinarinnar og þær kynntar almenningi með þeim hætti sem þar greinir áður en tillaga að verndar- og orkunýtingaráætlun er lögð fram á Alþingi. Í samræmi við ákvæðið var hinn 19. ágúst 2025 auglýst í samráðsgátt stjórnvalda tillaga um flokkun Hamarsvirkjunar í biðflokk áætlunarinnar, mál nr. S-150/2025, en ekki í verndarflokk eins og verkefnisstjórn hafði gert tillögu um. Í rökstuðningi ráðherra segir:
    Þann 10. mars 2025 skilaði verkefnisstjórn verndar- og orkunýtingaráætlunar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra tillögu að flokkun fimm nýrra virkjunarkosta. Um er að ræða virkjunarkostina Bolaöldu, Tröllárvirkjun, Hvanneyrardalsvirkjun, Skúfnavatnavirkjun og Hamarsvirkjun. Í tillögunni er lagt til að Hamarsvirkjun verði flokkuð í verndarflokk.
    Í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun, kemur fram að ráðherra taki tillögu verkefnisstjórnar til skoðunar og gangi frá tillögu um verndar- og orkunýtingaráætlun í samræmi við 3. gr. laganna. Ef lagðar eru til breytingar á tillögu verkefnisstjórnar skal leita umsagna og kynna almenningi breytingarnar áður en tillagan er lögð fram á Alþingi. Ekki er gerð krafa í lögum um sérstakan rökstuðning fyrir breytingum sem ráðherra kann að leggja til á tillögum verkefnisstjórnar, en verkefnisstjórnin fer með ráðgefandi hlutverk gagnvart ráðherra og hið endanlega ákvörðunarvald um flokkun virkjunarkosta liggur hjá Alþingi.
    Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem staðgengill umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra er varðar framangreindar tillögur, hefur ákveðið að hefja samráðsferli um breytingu á tillögu verkefnisstjórnar þess efnis að Hamarsvirkjun verði flutt í biðflokk.
    Af umsögnum umsagnaraðila við tillögu verkefnisstjórnar áætlunarinnar má sjá að sveitarfélög á svæðinu leggjast gegn flokkun Hamarsvirkjunar í verndarflokk. Meðal annars er vísað til þess að raforkukerfið á Austurlandi sé veikburða, skortur sé á framboði á raforku á svæðinu og slíkt hamli atvinnuuppbyggingu. Nú þegar hafi skortur á raforku áhrif á atvinnulíf á svæðinu og mikilvægt sé að fjölga virkjunarkostum innan þess, sérstaklega með hliðsjón af orkuspá og þörf fyrir græna sjálfbæra orku. Þá hefur efnahagslegur ávinningur virkjunarkostsins verið metinn nokkuð jákvæður.
    Ójafnvægi er nú á milli framboðs og eftirspurnar á raforkumarkaði, sem hefur leitt til verulegra verðhækkana. Að mati Landsnets eru meiri líkur en minni á raforkuskorti á næstu árum, þar sem grípa gæti þurft til skömmtunar á rafmagni fyrir heimili og fyrirtæki. Framkvæmdir við stór og hagkvæm verkefni hafa tafist verulega og óvissa ríkir um marga virkjunarkosti vegna jarðhræringa. Í ljósi þessa er sérstaklega brýnt að forgangsraða skoðun og frekari rannsóknum á virkjunum sem staðsettar eru utan helstu umbrota- og hamfarasvæða, þar sem þær geta tryggt öruggt framboð raforku óháð náttúruvá á öðrum svæðum. Í þessu sambandi er vert að nefna að virkjanakostir á Austurlandi eins og Hamarsvirkjun, eru utan allra helstu umbrota- og hamfarasvæða Íslands og bjóða því upp á möguleika til að tryggja betur langtímaöryggi raforkuframleiðslu verði hamfarir annars staðar á landinu.
    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hyggst leggja fram frumvarp með breytingum á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, með það að markmiði að auka skilvirkni og bæta málsmeðferð. Jafnframt hefur ráðherra sett í samráðsgátt drög að frumvarpi til breytinga á raforkulögum, þar sem kveðið er á um að stjórnvöld skuli á fjögurra ára fresti leggja fram heildstæða stefnu um öflun raforku. Í þeirri stefnu verði skilgreind töluleg markmið um aukna raforkuframleiðslu sem verði höfð til hliðsjónar við gerð verndar- og orkunýtingaráætlunar hverju sinni.
    Fram undan er vinna við að afmarka og friðlýsa með lögformlegum hætti alla þá kosti í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar sem Alþingi hefur þegar samþykkt. Dómur Hæstaréttar frá 27. mars 2024 (mál nr. 36/2023) leiddi í ljós að engin svæði hafa í raun verið friðlýst gegn orkuvinnslu með bindandi hætti frá setningu laga um verndar- og orkunýtingaráætlun árið 2011. Þetta hefur orðið tilefni til sérstakrar endurskoðunar á friðlýsingarákvæði 53. gr. laga um náttúruvernd og samspili þeirra við lög um verndar- og orkunýtingaráætlun. Mikilvægt er að hafa í huga að flokkun virkjunarkosta hefur mismunandi réttaráhrif: Orkunýtingarflokkur veitir aðeins möguleika á að hefja leyfisferli, verndarflokkur skapar jákvæða skyldu til friðlýsingar og biðflokkur er aftur á móti hlutlaus flokkur og réttaráhrifin af slíkri flokkun í reynd þau sömu og ef aldrei hefðu komið fram hugmyndir um virkjun á viðkomandi svæði.
    Með hliðsjón af þessu leggur ráðherra til að Hamarsvirkjun fari biðflokki rammaáætlunar á meðan sú stefnumótunar- og löggjafarvinna sem greint var frá að framan stendur yfir og kosturinn verður skoðaður frekar. Ráðherra fagnar að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ætli að hraða vinnu við að friðlýsa svæði sem Alþingi hefur samþykkt að njóti verndar.
    Umsagnarferli um breytingu á tillögu um flokkun Hamarsvirkjunar í biðflokk í stað verndarflokks lauk 12. nóvember 2025. Alls bárust 20 umsagnir um tillöguna, sjá mál nr. S-150/2025. Við yfirferð umsagna er ljóst að skiptar skoðanir eru á því hvort virkjunarkosturinn Hamarsvirkjun eigi að flokkast í verndarflokk eða biðflokk. Hér á eftir er gerð grein fyrir helstu athugasemdunum sem bárust.
    Í umsögn Arctic Hydro hf., framkvæmdaraðila Hamarsvirkjunar, kemur fram að forsvarsmenn Hamarsvirkjunar telji að verkefnið eigi heima í nýtingarflokki. Í umsögnum bæjarráðs Fjarðabyggðar og bæjarráðs Múlaþings er lagst gegn því að virkjunarkosturinn flokkist í verndarflokk og áhersla lögð á mikilvægi hans fyrir orkuöryggi landsmanna og bætt aðgengi að orku á Austurlandi sem er grundvallarforsenda áframhaldandi verðmætasköpunar og uppbyggingu svæðisins. Í umsögn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi er tekið undir umsagnir Fjarðabyggðar og Múlaþings. Þá er vakin athygli á ósamræmi sem virðist vera í mati faghópsins milli virkjunarkosta á landinu sem dregur Hamarsvirkjun niður en ekki aðrar virkjanir. Þá telur sambandið furðu lítið horft til orkuöryggis og þarfar atvinnulífs á Austurlandi fyrir trygga orku auk þess sem lítið sé gert úr ávinningi til framtíðar þegar lagt sé mat á efnahagslegan ávinning og þá sérstaklega í ljósi þess að Hamarsvirkjun sé mikilvæg breyta í þeirri atvinnuuppbyggingu sem unnið hafi verið að á undanförnum árum og snúi m.a. að úrvinnslu sjávarafurða, fiskeldi og grænum iðngörðum á Reyðarfirði.
    Í umsögn Samorku segir að samtökin telji mikilvægt að bíða með að flokka virkjunarkosti í verndarflokk áætlunarinnar á meðan unnið er að úrbótum á lagarammanum, til að tryggja að nægjanlegur fjöldi virkjunarkosta sé til skoðunar til að mæta raforkuöryggi þjóðarinnar, tryggja orkuskipti og viðnámsþrótt samfélagsins og leggja grunn að fjölbreyttri atvinnustarfsemi og jákvæðri byggðaþróun.
    Í umsögn Samtaka iðnaðarins kemur fram að samtökin fagni tillögu ráðherra og taki undir þau sjónarmið sem fram komi í samráðsskjalinu. Þá hvetja samtökin ráðherra til þess að skoða flokkun virkjunarkostsins í nýtingarflokk.
    Í umsögn Náttúrufræðistofnunar kemur fram það mat að mjög skýr og sterk rök séu fyrir því að virkjunarkosturinn flokkist í verndarflokk eins og verkefnisstjórn leggur til. Þá er á það bent að þrátt fyrir að tillagan um flokkun í biðflokk sé meðal annars rökstudd með tilliti til orkuöryggis á Austurlandi sé ekki fjallað um önnur orkunýtingaráform sem nú þegar séu til skoðunar í landshlutanum og hvaða áhrif þau gætu haft á forsendur ákvarðanatöku. Í umsögn Minjastofnunar Íslands er bent á að fornleifaskráning hafi farið fram á vettvangi vegna virkjunarkostsins og samkvæmt þeirri skráningu sé að finna friðaðar fornleifar innan áhrifasvæðisins. Áður en til framkvæmda komi þurfi því að endurskoða fornleifaskráninguna svo að Minjastofnun geti tekið afstöðu til framkvæmdarinnar og þá lagt til mótvægisaðgerðir eftir atvikum. Þá þurfi einnig að skoða hvort innan svæðisins séu friðuð eða friðlýst mannvirki sem þurfi að skrá. Í umsögn Náttúruverndarstofnunar er bent á að mat á virkjunarkostum samkvæmt verndar- og orkunýtingaráætlun þurfi að byggjast á faglegri greiningu á náttúrufari og verndargildum, í samræmi við markmið náttúruverndarlaga, nr. 60/2013, um vernd líffræðilegrar og jarðfræðilegrar fjölbreytni og íslenskrar náttúru til framtíðar. Stofnunin tekur undir þá niðurstöðu faghópa áætlunarinnar að virkjunarkosturinn eigi að flokkast í verndarflokk.
    Í umsögn Landverndar kemur fram að samtökin leggi áherslu á að ráðherra virði faglega niðurstöðu rammaáætlunar og hátt verndargildi áhrifasvæðis Hamarsvirkjunar, sem þar eru færð fram með óyggjandi rökum, hann dragi tillöguna til baka og komi í veg fyrir frekara uppnám en þegar hefur verið skapað um stjórntækið í rammaáætlun. Að mati samtakanna mun tillagan valda bakslagi þar sem farið er gegn staðreyndum gögnum og rökstuðningur setts ráðherra fyrir flokkun virkjunarkostsins í biðflokk er gagnrýndur. Niðurstöður á heildarmati séu svo afdráttarlausar og skýrar að ekki ætti að þurfa að rökstyðja verndina frekar. Þá er í umsögninni vikið að vanhæfni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í málinu vegna hagsmuna tengdaföður hans í tengslum við virkjunarkostinn Bolaöldu. Kemur fram í umsögninni að þrátt fyrir að settur ráðherra leggi málið fram veki vensl ráðherra grunsemdir um ástæður þess að sá kostur hafi verið flokkaður í nýtingu í fyrirliggjandi tillögu og jafnframt verið eini virkjunarkosturinn í jarðvarma sem var valinn til mats ásamt fjórum vatnsaflsvirkjunarkostum. Samtökunum þyki ákvörðunin ekki gagnsæ og þau vilji sjá frekari gögn um verkefnavalið til að taka af allan vafa. Vegna þessarar umsagnar er bent á að tillögur verkefnisstjórnar um flokkun þeirra virkjunarkosta sem þessi tillaga til þingsályktunar fjallar um fór í 12 vikna lögbundið samráðsferli 24. júní 2024 og stóð til og með 27. september 2024, sbr. mál S-139/2024 í samráðsgátt stjórnvalda. Í þeirri tillögu var lagt til að virkjunarkosturinn Bolaalda yrði flokkaður í nýtingarflokk áætlunarinnar. Endanleg tillaga verkefnisstjórnar tók ekki breytingum og var niðurstaðan í skýrslu hennar, dags. 10. mars 2025, flokkun í nýtingarflokk. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra lýsti sig vanhæfan í kjölfar þess að skýrsla verkefnisstjórnar barst honum 10. mars 2025. Hann hafði því ekki neitt að segja um verkefnaval verkefnisstjórnar, enda vinnan við mat viðkomandi virkjunarkosta svo gott sem lokið þegar hann tók við embætti í desember 2024.
    Í umsögn Náttúruverndarsamtaka Austurlands er ákvörðun ráðherra um flokkun Hamarsvirkjunar fordæmd og leggjast samtökin eindregið gegn henni. Benda samtökin á að í mati verkefnisstjórnar rammaáætlunar skori svæðið sem um ræðir hæst í verðmætamati á viðfanginu landslag og víðerni og áhrifin á það viðfang séu einnig metin mest. Verðmætu landslagi og víðernum á Austurlandi hafi þegar verið raskað og víðerni sem eftir eru séu því verðmætari en áður á landslagskvarða þar sem þau séu nú fágætari. Hamarsvirkjun umturni í raun vatnasviði Hrauna og síðustu lítt snortnu víðernum hálendis Austurlands. Engir brýnir almannahagsmunir kalli á aukna orkuöflun á Austurlandi og vísa samtökin til orða fyrrum forstjóra Landsnets á vorfundi fyrirtækisins í mars 2025 þar sem fram kom að það væri ekki ávinningur af því að virkja frekar á Austurlandi vegna veikleika í byggðalínunni sem komi þá til með að leiða til enn frekari flutningstakmarkana.
    Í umsögn V-lista Vinstri grænna í Múlaþingi er lagst alfarið gegn því að virkjunarkosturinn Hamarsvirkjun verði færður úr verndarflokki í biðflokk. Að mati þeirra á virkjunarkosturinn skýlaust heima í verndarflokki í samræmi við niðurstöður faghópa og verkefnisstjórnar rammaáætlunar og fjölda sérfræðinga og hagsmunaaðila. Að lokum er í nokkrum umsögnum einstaklinga við tillöguna lagst gegn áformum um flokkun virkjunarkostsins í biðflokk og skorað á settan ráðherra að fara eftir skýrri niðurstöðu verkefnisstjórnar og faghópa og tryggja flokkun hans og viðkomandi svæðis í verndarflokk.
    Vakin er athygli á því að tillaga verkefnisstjórnar um flokkun virkjunarkostsins í verndarflokk er hvorki bindandi fyrir ráðherra né Alþingi og þýðir ekki að virkjunarkosturinn sé nú þegar flokkaður í þann flokk. Um virkjunarkostinn fer eins og hann sé í biðflokki áætlunarinnar þar sem hann er ekki að finna í gildandi áætlun. Flokkun í biðflokk hefur þau réttaráhrif að stjórnvöldum er ekki heimilt að veita nein leyfi tengd viðkomandi virkjunarkosti, svo sem virkjunarleyfi eða framkvæmdaleyfi. Með vísan til þess rökstuðnings sem lagður var fram þegar málið var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda er ekki talin ástæða til að falla frá þeirri tillögu að virkjunarkosturinn flokkist í biðflokk í stað verndarflokks.



Fylgiskjal.


Tillaga að flokkun virkjunarkostanna Bolaöldu, Tröllárvirkjunar,
Hvanneyrardalsvirkjunar, Skúfnavatnavirkjunar
og Hamarsvirkjunar.

Tillögur verkefnisstjórnar 5. áfanga til ráðherra.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0428-f_I.pdf