Ferill 310. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 434  —  310. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (frestur til endurskoðunar hafnarreglugerða og Hafnabótasjóður).

Frá umhverfis- og samgöngunefnd.


1. gr.

    Í stað ártalsins „2026“ í ákvæði til bráðabirgða II í lögunum kemur: 2027.

2. gr.

    Ákvæði til bráðabirgða III í lögunum orðast svo:
    Þrátt fyrir ákvæði 1. tölul. 3. mgr. 26. gr. er Hafnabótasjóði heimilt, fram að samþykkt nýrrar samgönguáætlunar en þó ekki lengur en til 1. janúar 2027, að fjármagna framkvæmdir ríkisins án þess að þær séu tilgreindar í samgönguáætlun.

3. gr.

    Ákvæði til bráðabirgða IV í lögunum fellur brott.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Umhverfis- og samgöngunefnd hafa borist upplýsingar þess efnis að gera þurfi breytingar á bráðabirgðaákvæðum í hafnalögum áður en árið er liðið. Er þar annars vegar um að ræða breytingu á ákvæði sem fjallar um frest eigenda hafna til endurskoðunar á hafnarreglugerðum og hins vegar breytingu á ákvæðum sem snúa að heimildum Hafnabótasjóðs til fjármögnunar á hafnarframkvæmdum sem ekki eru tilgreindar í samgönguáætlun.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Með ákvæði til bráðabirgða II var eigendum hafna gefinn frestur til 1. janúar 2026 til að senda innviðaráðuneytinu endurskoðuð ákvæði í hafnarreglugerðum um stærð og takmörk hafnarsvæða á sjó, með hliðsjón af nýjum viðmiðunum um hafnarsvæði sem komu inn í hafnalög sumarið 2024 með breytingalögum nr. 93/2024. Þar sem leiðbeiningar ráðuneytisins til eigenda hafna um afmörkun hafnarsvæðis samkvæmt hinum nýju viðmiðunum liggja enn ekki fyrir leggur nefndin til, að beiðni innviðaráðuneytisins, að fresturinn verði lengdur um eitt ár, til 1. janúar 2027.

Um 2. gr.

    Fyrir liggur að ráðast þarf í tilgreindar ríkisstyrktar framkvæmdir á höfnum á árinu 2026. Þar sem þær framkvæmdir koma ekki fram í samgönguáætlun sem samþykkt hefur verið á Alþingi, líkt og krafist er í 1. tölul. 3. mgr. 26. gr. hafnalaga, er Hafnabótasjóði óheimilt að óbreyttu að fjármagna þessar nauðsynlegu framkvæmdir. Alþingi samþykkti síðast þingsályktanir um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020–2024 og um samgönguáætlun fyrir árin 2020–2034 (nr. 40/150 og 41/150) í júní 2020 en gert er ráð fyrir að mælt verði fyrir tillögu til þingsályktunar um nýja samgönguáætlun áður en langt um líður.
    Til að nýta megi fjármagn úr Hafnabótasjóði sem Alþingi ráðstafar til hans er því lagt til að ákvæði til bráðabirgða III í lögunum verði breytt á þann veg að heimilað verði að ráðstafa fé úr sjóðnum til hinna nauðsynlegu framkvæmda án þess að framangreindu efnisskilyrði 1. tölul. 3. mgr. 26. gr. sé fullnægt. Verður þó áfram gert ráð fyrir því, í samræmi við 3. mgr. 26. gr., að samþykki ráðherra þurfi til og er lagt til að heimildin gildi þar til Alþingi hefur samþykkt nýja samgönguáætlun, þó ekki lengur en til 1. janúar 2027.

Um 3. gr.

    Þar sem ákvæði til bráðabirgða IV er um sama efni og ákvæði til bráðabirgða III er lagt til að það verði fellt brott.

Um 4. gr.

    Mikilvægt er að framangreindar breytingar nái fram að ganga fyrir áramót og er því lagt til að lögin taki þegar gildi.