Ferill 140. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 447 — 140. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um afplánun erlendra fanga.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvað líður vinnu við að fjölga í hópi erlendra fanga sem afplána dóma í heimalandi?
Í dómsmálaráðuneytinu hefur verið unnið að því á þessu ári að greina stöðuna hér á landi varðandi þennan málaflokk. Í því skyni hefur ráðuneytið meðal annars unnið að því í samvinnu við Fangelsismálastofnun og Útlendingastofnun að samræma og einfalda verkferla og verða fyrstu beiðnir um slíkan flutning sendar út á næstunni.
Ísland er aðili að samningi Evrópuráðsins um flutning dæmdra manna frá 21. mars 1983 ásamt viðauka við samninginn frá 18. desember 1997. Samkvæmt samningnum þarf einstaklingur almennt að samþykkja flutning til heimalands, en samkvæmt viðauka sem Ísland fullgilti árið 2000 er samþykki dómþola þó ekki áskilið ef fyrir liggur brottvísun viðkomandi úr landi og gilda þær reglur milli Íslands og þeirra ríkja sem hafa fullgilt viðaukann.
Þessi samningur hefur ekki verið nýttur síðan árið 2014. Vinna er núna í gangi um hvernig Ísland getur nýtt þennan samning til þess að flytja dómþola í afplánun til síns heimalands, hvort sem samþykki liggur fyrir eða ekki. Það er dómsmálaráðuneytið sem fer þess á leit við erlend stjórnvöld að þau fullnægi viðurlögum samkvæmt samningnum í samstarfi við Fangelsismálastofnun.