Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 450  —  1. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2026.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar.


    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið á fjölmörgum fundum og fengið á sinn fund ráðherra og fulltrúa ráðuneyta. Margir umsagnaraðilar komu einnig fyrir nefndina. Umsagnir þar sem fjallað var um veigamikla þætti frumvarpsins bárust frá samtals 44 aðilum: ASÍ, BHM, BSRB, Byggðastofnun, Bændasamtökum Íslands, Femínískum fjármálum, Fjórðungssambandi Vestfirðinga og Vestfjarðastofu, Geðhjálp, heilbrigðisstofnunum, Landspítala, Landssambandi eldri borgara, Landssamtökunum Þroskahjálp, Reykjavíkurborg, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, Samtökum iðnaðarins, Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Norðurlandi eystra og Suðurlandi, Seðlabanka Íslands, Sjúkrahúsinu á Akureyri, Sjúkraliðafélagi Íslands, SVÞ – Samtökum verslunar og þjónustu, Viðskiptaráði Íslands, Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, Visku – stéttarfélagi, VR og ÖBÍ réttindasamtökum.
    Flestir af fyrrgreindum umsagnaraðilum komu á fund nefndarinnar. Að auki bárust nefndinni fjölmörg önnur erindi þar sem gerðar voru athugasemdir við einstök framlög og eftir atvikum óskað eftir hækkun framlaga til tiltekinna verkefna. Einnig hafa ráðuneyti og umsagnaraðilar svarað fjölmörgum spurningum nefndarmanna með minnisblöðum sem birt eru á vef Alþingis.

Verklag nefndarinnar – breyting á næsta ári.
    Ráðherrar komu á fund nefndarinnar og gerðu grein fyrir helstu fjárhagsstærðum í tengslum við þau málefnasvið og málaflokka sem undir þá heyra. Í kjölfarið tók nefndin á móti fjölmörgum af þeim umsagnaraðilum sem fjölluðu um veigamikil málefnasvið fjárlaganna.
    Á undanförnum árum hefur fest í sessi verklag sem núverandi fjárlaganefnd fylgdi eins og fyrri nefndir varðandi beiðnir um fjárstuðning. Í því felst að kallað er eftir afstöðu og rökstuðningi ráðuneyta vegna einstakra fjárbeiðna sem beint er til nefndarinnar. Lög um opinber fjármál, nr. 123/2015, gera ekki sérstaklega ráð fyrir því að fjárlaganefnd veiti framlög til einstakra félagasamtaka eða lögaðila.
    Meiri hluti nefndarinnar telur fullt tilefni til að breyta verklaginu og koma slíkum framlögum í góðan farveg í landshlutasamtökum sveitarfélaga og eftir atvikum viðkomandi fagráðuneytum.
    Efnahagslegar forsendur frumvarpsins byggjast á þjóðhagsspá Hagstofu Íslands frá því í sumar en ný spá var birt 14. nóvember. Í kjölfarið hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið endurmetið tekjustofna og einstaka gjaldaliði sem byggjast á spánni. Breytingar á tekjuhlið fjárlaga sem meiri hlutinn leggur til byggjast alfarið á þessu endurmati ráðuneytisins.

Helstu markmið frumvarpsins.
    Frumvarpið grundvallast á II. kafla laga um opinber fjármál þar sem fjallað er um frumvarp til fjárlaga og fjárheimildir. Í 16. gr. laganna er tilgreint hvernig tölugrunnur frumvarpsins skuli byggður upp og settur fram. Í 14. gr. kemur fram að frumvarpið skuli vera í samræmi við markmið gildandi fjármálaáætlunar.
    Ríkisfjármálastefna ríkisstjórnarinnar kemur fram í fjármálastefnu og fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 sem samþykktar voru á Alþingi sl. vor. Þar komu fram skýr markmið um stöðvun hallareksturs ríkissjóðs árið 2027 og markmið um niðurgreiðslu skulda ríkissjóðs, samhliða því sem forgangsraðað var í þágu innviðafjárfestingar. Meginmarkmiðið var þó að tryggja sjálfbærni ríkisfjármála og ný meginregla sem innleidd var með breytingum á lögum um opinber fjármál var svokölluð stöðugleikaregla sem kom í stað afkomureglu. Einnig var skuldareglu breytt.

Afkoma ríkissjóðs.
    Í frumvarpinu er áætlað að afkoman verði neikvæð um rúma 15 ma.kr. á næsta ári sem er 48 ma.kr. betri afkoma heldur en áætlað er í fjárlögum yfirstandandi árs. Áætlaður halli nemur 0,3% af vergri landsframleiðslu (VLF). Frumjöfnuður (þ.e. afkoman án fjármagnstekna og gjalda) er áætluð jákvæð um 77 ma.kr. sem er 59 ma.kr. bæting frá fjárlögum fyrir árið 2025.

Tekjuáætlun.
    Í tekjuáætlun frumvarpsins er áætlað að heildartekjur verði 1.591,2 ma.kr. sem er 170,6 ma.kr. hækkun frá fjárlögum yfirstandandi árs. Þar af eru 28 ma.kr. sem tengjast skattabreytingum, bæði þeim sem eru nú þegar lögfestar sem og þeim sem gert er ráð fyrir að lögfestar verði fyrir jól. Mestu frávik milli ára koma fram vegna virðisaukaskatts, eða hækkun um 45 ma.kr., enda nemur skatturinn um þriðjungi af heildarskatttekjum ríkissjóðs. Tekjur af kílómetragjaldi hækka um 32 ma.kr. milli ára en á móti vega lækkanir vegna olíugjalda og niðurfelling vörugjalda af bensíni.

Heildargjöld ríkissjóðs.
    Heildargjöld ríkissjóðs eru áætluð 1.606,6 ma.kr. í frumvarpinu. Þegar frá eru taldar launa- og verðlagsbreytingar upp á 43,5 ma.kr. aukast gjöldin um tæplega 80 ma.kr. milli ára. Það er 5,4% raunaukning heildargjalda. Í breytingum milli ára vegur einna þyngst 20 ma.kr. hækkun vegna nýs greiðslukerfis örorkulífeyris sem gerbyltir fyrra kerfi.

Stöðugleikaregla.
    Með breytingum á lögum um opinber fjármál sl. vor varð sem fyrr segir breyting á fjármálareglum laganna. Stöðugleikaregla kom í stað eldri afkomureglu. Einnig var reglu um niðurgreiðslu skulda breytt. Nýju reglunni er m.a. ætlað að hafa þau áhrif að útgjöld ríkisins vaxi jafnar en áður og ekki umfram það svigrúm sem leiðir af langtímavexti hagkerfisins og ákvörðunum um tekjuöflun. Útlit er fyrir að aðhaldsstig ríkisfjármálanna verði því sem næst hlutlaust gagnvart hagsveiflunni á næsta ári.

Breytingar á efnahagshorfum frá því að frumvarpið var lagt fram.
    Efnahagsforsendur frumvarpsins grundvallast á þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Miðað við áætlaðan hagvöxt í fyrra og horfur á hagvexti í ár er ljóst að hægst hefur á vexti í efnahagslífinu eftir kröftugan hagvöxt á árunum 2021–2023. Þegar frumvarpið var lagt fram var gert ráð fyrir 2,2% hagvexti í ár og 2,6% árið 2026. Aftur á móti hafa hagvaxtarhorfur versnað nokkuð frá framlagningu frumvarpsins en í uppfærðri spá er nú gert ráð fyrir 1,8% hagvexti árið 2026. Ýmsir erfiðleikar í atvinnulífinu hafa valdið því að hagvaxtarhorfur hafa versnað, sem birtist fyrst og fremst í minni vexti í útflutningi. Í upphaflegu hagspánni var reiknað með að útflutningur myndi aukast um 2,5% á næsta ári en nú er reiknað með að nánast enginn vöxtur verði í útflutningi á næsta ári.
    Uppfærða hagvaxtarspáin frá Hagstofu Íslands fyrir árið 2026 er nokkuð undir meðaltali þegar litið er til efnahagsspár helstu greiningaraðila, en meðaltalið er um 2,1% hagvöxtur. Þrátt fyrir að hagvaxtarspáin hafi lækkað þá er ekki gert ráð fyrir lækkun á vergri landsframleiðslu á næsta ári í milljörðum króna en áætlað er að landsframleiðslan á næsta ári muni nema um 5.287 ma.kr. Ástæðan fyrir því að landsframleiðslan lækkar ekki miðað við fyrri spá, þrátt fyrir lækkun á hagvexti, er að teknar eru inn endurskoðaðar verðlagsbreytingar til hækkunar sem vega þar á móti. Það skýrir m.a. óverulega breytingu á áætluðum tekjum ársins 2026 frá því að frumvarpið var lagt fram.
    Þrátt fyrir hóflegan hagvöxt á næsta ári er enn reiknað með aukningu í einkaneyslu um 2,4%. Aukin einkaneysla skilar sér í auknum tekjum ríkissjóðs og þá sérstaklega í virðisaukaskatti.
    Í eftirfarandi töflu eru efnahagsforsendur frumvarpsins bornar saman við nýjustu spá Seðlabanka Íslands og uppfærða spá Hagstofu Íslands fyrir árið 2026.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Gangi spáin um hagvöxt eftir er útlit fyrir að meðalhagvöxtur á árunum 2024–2026 verði einungis um 0,8% en á árunum 2021–2023 var meðalhagvöxtur 6,4%. Með miklum vexti og umsvifum í hagkerfinu fylgir oft verðbólga en á árunum 2021–2023 var ársverðbólga að meðaltali um 7,2% en áætlað er að ársverðbólga á tímabilinu 2024–2026 verði að meðaltali um 4,5%. Hagkerfið leitar því í jafnvægi þar sem verðbólga fer lækkandi. Þó hefur verðbólgan lækkað hægar en gert hefur verið ráð fyrir þrátt fyrir mjög aðhaldssamt taumhald Seðlabanka Íslands í peningastefnunni. Spá Hagstofunnar um verðbólgu hækkar eilítið eða úr 3,2% í 3,5%. Hagkerfið stefnir nú í betra jafnvægi. Hagstofan spáir því að á næstu árum eftir árið 2026 verði hagvöxtur á bilinu 2–3% og að verðbólgan fari niður við verðbólgumarkmið, sem er 2,5%. Nýjasta verðbólgumæling Hagstofunnar frá því í lok nóvember, þar sem ársverðbólgan lækkar úr 4,3% í 3,7%, bendir til þess að þróunin sé í átt að verðbólgumarkmiðinu. Það samrýmist einnig greiningu Seðlabanka Íslands um að dregið hafi úr spennu í þjóðarbúinu og lækkaði bankinn meginvexti lítillega við síðustu vaxtaákvörðun.
    Þá bendir Hagstofan á að hægst hefur á fólksfjölgun og fjölda starfandi á vinnumarkaði. Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað sem bendir til þess að vinnumarkaðurinn sé að færast nær jafnvægi eftir tímabil mikillar spennu. Þó er ekki gert ráð fyrir því að atvinnuleysi aukist verulega á næsta ári miðað við yfirstandandi ár.
    Helstu óvissuþættir í efnahagsspánni samkvæmt Hagstofunni eru eftirfarandi:
     –      Spenna í alþjóðasamskiptum og stríðsátök.
     –      Alþjóðlegar efnahagshorfur og viðskiptastríð.
     –      Verðlagsþróun.
     –      Náttúruhamfarir á Reykjanesi.

Hagvöxtur, atvinnustefna og framleiðni.
    Þegar horft er til framtíðar hvað varðar velmegun og hagvöxt er mikilvægt að huga að atvinnustefnu og framleiðni. Hagvöxtur er aukning á verðmætasköpun í hagkerfinu yfir tíma og er oftast mældur sem breyting á vergri landsframleiðslu. Framleiðni lýsir hins vegar hversu mikið magn framleiðslu næst úr hverri einingu aðfanga, t.d. vinnuafli, fjármagni eða tækni. Þegar framleiðni eykst getur hagkerfið skapað aukin verðmæti án þess að auka samsvarandi magn aðfanga, sem gerir framleiðnivöxt að undirstöðu fyrir sjálfbæran hagvöxt til lengri tíma litið. Það undirbyggir einnig sjálfbærni í ríkisfjármálum er varðar afkomu og skuldir.
    Eftir fjármálahrunið hefur einn helsti drifkraftur í hagvexti á Íslandi verið sífellt stærri hlutur ferðaþjónustu og hugverkaiðnaðar. Eftirfarandi mynd sýnir skýrt samband á milli hagvaxtar og vísitölu á fjölda erlendra ferðamanna sem komu til Íslands á tímabilinu 2010–2025.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Þótt framlag ferðaþjónustu til hagvaxtar hafi verið umtalsvert skal því haldið til haga að aðrar atvinnugreinar hafa þar einnig komið til, svo sem fiskeldi og hugverkaiðnaður, t.d. lyfjaiðnaður og ýmsar tæknigreinar. Sé litið til fjölda ferðamanna hefur í raun ekki verið neinn verulegur vöxtur í ferðaþjónustu frá árinu 2018. Horfur eru á að vöxtur í ferðaþjónustu sé hóflegri en á árunum 2010–2018 og því þarf að horfa til annarra atvinnugreina sem gætu undirbyggt hagvöxt á Íslandi til framtíðar.
    Til lengri tíma litið eru það fyrst og fremst fjárfestingar og útflutningur sem þurfa að vera undirstaða hagvaxtar en ekki til að mynda einkaneysla. Með styrkri atvinnustefnu sem hefur það að leiðarljósi eru ýmis tækifæri til staðar. Styðja má við atvinnulífið með vönduðum innviðafjárfestingum og vel útfærðu vísinda- og nýsköpunarstarfi ásamt öflugu menntakerfi.
    Mikilvægt er að líta til framleiðni þar sem framleiðslugeta íslenska hagkerfisins nýtist einna best til að undirbyggja hagvöxt. Ein vísbending um framleiðniþróun er hagvöxtur á mann. Sérstaklega er vert að líta á hagvöxt á mann þar sem undanfarin ár hefur verið mikil fólksfjölgun á Íslandi, en árleg fólksfjölgun hefur sum undanfarin ár verið um og yfir 2%. Það er mun meiri fólksfjölgun en miðað við önnur vestræn ríki á sama tímabili og er það helst vegna fjölda aðfluttra af Evrópska efnahagssvæðinu til Íslands.
    Eftirfarandi mynd sýnir hagvöxt á mann ásamt árlegri hlutfallslegri fólksfjölgun undanfarin 10 ár. Á umræddu tímabili 2015–2024 var umtalsverður hagvöxtur þrátt fyrir bakslag vegna kórónuveirufaraldurs, eða um 3,1% að meðaltali. Aftur á móti ef litið er til hagvaxtar á mann er meðaltalið mun lægra, um 1,2%, en fólksfjölgun á tímabilinu var talsverð eða að meðaltali um 1,9% á ári. Til samanburðar hefur annars staðar á Norðurlöndunum á sama tímabili einungis í Danmörku verið meiri hagvöxtur á mann. Var hann að meðaltali um 1,9% en hagvöxtur annarra Norðurlanda á mann var lægri eða um og undir 1%.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Ljóst er að við aðstæður þar sem vinnumarkaður á Íslandi hefur mikla þörf á aðfluttu vinnuafli er mikilvægt að hagvöxtur sé verulegur til að halda í við fólksfjölgun. Samkvæmt tölum frá Hagstofunni hefur dregið nokkuð úr fjölda aðfluttra umfram brottfluttra sem styður við forsendur í efnahagsspánni um að tekið sé að hægjast á fjölgun á vinnumarkaði.
    Með góðri atvinnustefnu sem byggist á hugvitsdrifnum hagvexti ásamt aukinni framleiðni eru þó tækifæri til að viðhalda ágætum hagvexti og framleiðslugetu þjóðarbúsins. Það mun áfram undirbyggja svigrúm ríkissjóðs til að viðhalda og bæta almannaþjónustu en það svigrúm raungerist m.a. í nýrri stöðugleikareglu í lögum um opinber fjármál. Í stöðugleikareglunni er kveðið á um að útgjöld A1-hluta ríkissjóðs megi vaxa að hámarki um 2% að raunvirði á ári. Þetta hámark byggist á mati á horfum í framleiðslugetu þjóðarinnar að jafnaði til lengri tíma litið en gert er ráð fyrir að endurskoða þetta viðmið fyrir hámark útgjaldavaxtar á fimm ára fresti, ef tilefni er til þess, á grundvelli opinberrar spár um meðalvöxt framleiðslugetu þjóðarbúsins til lengri tíma litið.

Heildaráhrif breytingartillagna á afkomu ríkissjóðs.
    Gerðar eru breytingartillögur við sundurliðun 1, þ.e. tekjuáætlun frumvarpsins, um 7.519,9 m.kr. hækkun tekna og við sundurliðun 2, sem eru gjaldaheimildir málefnasviða og málaflokka, um samtals 19.633,4 m.kr. til hækkunar gjalda.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Í töflunni koma fram heildarstærðir í 1. gr. frumvarpsins þar sem gjöld og tekjur eru sett fram samkvæmt alþjóðlegum hagskýrslustaðli.

Breytingartillögur á tekjuhlið fjárlaga.
    Fjármála- og efnahagsráðuneyti hefur endurmetið tekjuáætlun fjárlaga í kjölfar nýrrar þjóðhagsspár Hagstofu Íslands sem birt var 14. nóvember. Eins og fram kemur í kaflanum um breyttar efnahagshorfur er nú gert ráð fyrir 0,8 prósentustiga lægri hagvexti heldur en í frumvarpinu.
    Heildarhækkun tekna er áætluð 7,5 ma.kr. sem skiptist þannig að frumtekjur hækka um 6,4 ma.kr. og vaxtatekjur um 1,1 ma.kr. Hækkunin er innan við 0,5% af áætlun frumvarpsins og í hlutfalli við VLF eru tekjur ríkissjóðs áætlaðar 30,2%. Hlutfallið lækkar örlítið frá frumvarpinu þegar það var áætlað 30,4%.
    Í fjárhæðum talið munar mest um virðisaukaskatt, 2,6 ma.kr., sem er þó aðeins 0,5% hækkun frá frumvarpinu. Þrátt fyrir neikvæðar endurmetnar efnahagshorfur vegur spá um aukna verðbólgu það upp í áætlun um innheimtu virðisaukaskatts.
    Tekjuskattur einstaklinga lækkar um 1,6 ma.kr. vegna minni umsvifa á vinnumarkaði, auk þess sem hækkun verðbólguspár leiðir til hækkunar persónuafsláttar og þrepamarka tekjuskatts. Á móti vegur að ætla má að afnám samnýtingar skattþrepa muni auka tekjur um 2,8 ma.kr. Endurmat á innheimtu erfðafjárskatts í ljósi þróunar á þessu ári leiðir til 2,1 ma.kr. hækkunar á innheimtu á næsta ári. Einnig er áætlað að tekjuskattur lögaðila hækki um 1,5 ma.kr. en aðrar tekjubreytingar vega minna.
    Öll frumvörp sem tengjast forsendum fjárlaga og þeim tekjutillögum sem lagðar eru til í sérstöku skjali um breytingar á sundurliðun 1 eru komin fram á Alþingi. Meiri hlutinn hefur aflað upplýsinga um stöðu mála hjá efnahags- og viðskiptanefnd og byggjast tillögur um breytingar tekna og hækkun sóknargjalda á þeim upplýsingum. Ef í ljós kemur að endanlegar tillögur nefndarinnar víkja frá fyrri fyrirætlunum mun meiri hlutinn bregðast við því fyrir 3. umræðu frumvarpsins.

Breytingartillögur á gjaldahlið fjárlaga.
    Áætlað er að heildargjöld ríkissjóðs verði 1.626.216,3 ma.kr. og hækki um 19,6 ma.kr. frá frumvarpinu. Frumgjöld ríkissjóðs aukast um 15,7 ma.kr. Vaxtagjöld aukast um 4 ma.kr. frá frumvarpinu. Hækkun vaxtagjalda má að mestu rekja til hærri verðbóta þar sem uppfærð þjóðhagsspá gerir ráð fyrir hærri verðbólgu en í forsendum frumvarpsins.
    Frumgjöldin aukast um 15.653 m.kr. Annars vegar er tilefni til endurmats á forsendum frumvarpsins vegna nýrrar þjóðhagsspár og hins vegar eru ný útgjaldatilefni. Endurmat á launa- og verðlagsforsendum leiðir til 6,6 ma.kr. hækkunar gjalda. Þar af er 3 ma.kr. hækkun á bótum almannatrygginga sem skýrist af hækkun launavísitölunnar um eitt prósentustig.
    Ný útgjaldatilefni og endurmat til lækkunar á nokkrum liðum leiðir til um 15,3 ma.kr. hækkunar en því er að hluta til mætt með lækkun almenns varasjóðs á móti. Lögbundið lágmark sjóðsins er 1% af fjárheimildum. Því er mögulegt að draga úr fjárveitingunni um 6,2 ma.kr.
    Af nýjum útgjaldatilefnum vegur langþyngst að fallið er frá niðurfellingu framlags til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða og hækka gjöld vegna þess um 4,9 ma.kr. Næstmest vegur endurmat á almannatryggingum vegna endurhæfingar um 3 ma.kr. Lögð er til 2 ma.kr. hækkun vegna öryggisvistunar en sett verður á fót ný stofnun um öryggisráðstafanir. Einnig er veitt sérstök fjárveiting vegna endurbóta og uppbyggingar á neyðarvistun Stuðla upp á 1,1 ma.kr. Gert er ráð fyrir rúmlega 1 ma.kr. tímabundinni fjárveitingu til að efla stofnanir sem vinna gegn fíknivanda og til að auka endurhæfingu.
    Veittar eru rúmlega 600 m.kr. vegna málefna Grindavíkur og fjárheimildir Rannsóknasjóðs og Tækniþróunarsjóðs eru auknar um samtals 1 ma.kr. Tækjakaup í nýbyggingu endurhæfingardeildar á Grensásvegi fá 1 ma.kr. og aðgerðarþjarki á Landspítala 400 m.kr.
    Þessar tillögur sem og nær allar tillögur á gjaldahlið eru skýrðar í sérstökum kafla í álitinu.
    Undantekning frá því eru allmargar millifærslur milli málaflokka og málefnasviða og tillögur um breytingar á svokallaðri hagrænni skiptingu gjalda en ekki er gerð sérstaklega grein fyrir þeim í álitinu. Með hagrænni skiptingu er átt við að millifært er á milli ólíkra gjaldategunda eins og t.d. á milli rekstrarkostnaðar og stofnkostnaðar. Tillögur sem eingöngu skýrast af áætlun um hærri verðbólgu eru ekki heldur skýrðar sérstaklega.

Ábendingar meiri hluta nefndarinnar.
    Meiri hlutinn vekur athygli á nokkrum málum sem fengið hafa umfjöllun á vettvangi nefndarinnar og umsagnaraðilar hafa eftir atvikum vakið sérstaklega máls á.

Varnartengd verkefni.
    Meiri hlutinn hvetur til að áætlanagerð um varnartengda innviði og varnartengd verkefni verði flýtt þannig að meginlínur um þá aukningu til næstu ára sem stjórnvöld hafa kynnt liggi fyrir við undirbúning fjármálaáætlunar til næstu ára. Vandaður undirbúningur tryggir að fjármunir nýtist sem best til að styrkja lykilþætti og innviði, sem styrkir áfallaþol og varnartengdan viðbúnað, svo sem heilbrigðisþjónustu, löggæslu, almannavarnir, Landhelgisgæslu o.fl. Nokkur aukning er í fyrirliggjandi frumvarpi til öryggis- og varnarmála en ljóst er að frekari útgjöld og uppbygging þarf að byggjast á vandaðri áætlanagerð, markmiðum um öryggi þjóðarinnar og þeim skuldbindingum sem Ísland hefur undirgengist á vettvangi NATO.

Leyfisskyld lyf og lækningatæki.
    Í frumvarpinu eru leyfisskyld lyf hækkuð um 700 m.kr. vegna raunvaxtar og fjölgunar krabbameinstilfella. Lyfjanefnd Landspítala hefur bent á tíu ný lyf sem nú bíða innleiðingar hér á landi. Hér er einkum um að ræða ný krabbameinslyf sem hafa verið innleidd annars staðar á Norðurlöndunum. Þessi lyf geta skipt sköpum fyrir þá einstaklinga sem þau nýta. Ljóst er að hvorki er svigrúm til að taka upp ný lyf né samþykkja nýjar ábendingar nema frekari breytingar verði á fjárheimildum. Er því beint til heilbrigðisráðuneytisins og ríkisstjórnarinnar að rýna framkomin gögn og leggja mat á nauðsyn frekari fjárveitinga vegna þessa.
    Í vinnu nefndarinnar kom einnig fram að umtalsverð endurnýjunarþörf er á spítölum og heilbrigðisstofnunum vegna tækjakaupa. Þarfir Landspítala eru þar mestar, m.a. stærðar starfseminnar vegna, og ljóst er að flutningur starfseminnar í nýtt húsnæði kallar einnig á endurnýjun tækja. Umtalsverð uppsöfnuð þörf er einnig á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þörf fyrir endurnýjun er umfangsminni annars staðar þótt hún sé einnig fyrir hendi. Hvetur meiri hluti nefndarinnar til þess að gerð verði áætlun til næstu ára um úrbætur á þessu sviði til undirbúnings tillögugerð í fjármálaáætlun.

Stafræn heilsa og stafræn umbreyting.
    Meðal þess sem er millifært eru fjárveitingar innan málefnasviða heilbrigðisráðuneytisins vegna nýrrar miðlægrar einingar undir heitinu Stafræn heilsa. Einingin verður hluti af ráðuneytinu en tekur við verkefnum sem áður hafa verið dreifð í því skyni að styrkja stjórnun stafrænnar heilbrigðisþjónustu. Samtals eru 1.680 m.kr. millifærðar af Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og embætti landlæknis og mynda þær fjárheimild verkefnisins um stafræna heilsu.
    Meiri hluti nefndarinnar vill hvetja til þess að stafræn umbreyting á þjónustu ríkisins verði gerð markvissari og samræmdari, m.a. að þessari fyrirmynd. Verkefni þessu tengd og innkaup á upplýsingatækni eru dreifð víða en mikilvægt er að ná slagkrafti og hagræðingu og auka sérhæfingu og fagmennsku við undirbúning og innleiðingu á þróun verkefna og innkaupa á þessu sviði.

Kjarasamningar lækna og annarra heilbrigðisstétta.
    Á fundum nefndarinnar hefur umsagnaraðilum verið tíðrætt um kostnaðaráhrif af kjarasamningum lækna. Áhrifin koma bæði fram sem beinn kostnaðarauki stofnana en einnig sem skortur á starfsfólki sem myndast ekki síst með verkefninu um styttingu vinnutíma. Heilbrigðisstofnanir og Sjúkrahúsið á Akureyri reyna að fylla stöður lækna bæði með aukavinnu lækna af höfuðborgarsvæðinu sem og læknum sem koma erlendis frá. Útgjöld vegna þessa eru langt umfram hefðbundnar launa- og verðlagshækkanir. Laun heilbrigðisstétta og sérstaklega lækna eru nú orðin mjög samkeppnishæf við laun lækna t.d. í Svíþjóð en eigi að síður sér ekki fyrir endann á mönnunarvanda. Nám á heilbrigðissviðum verður stöðugt sérhæfðara og skortur á starfsfólki er að miklu leyti alþjóðlegt vandamál.
    Meiri hlutinn bendir á nauðsyn þess að fyrirkomulag á samningagerð og útfærslu kjarasamninga við heilbrigðisstéttir verði tekið til gagngerrar endurskoðunar. Brýnt er að bæði fjármála- og efnahagsráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti setji þessi mál í algeran forgang.
    Nefndin hefur óskað eftir ítarlegum upplýsingum um kostnaðarmat vegna kjarasamnings ríkisins við lækna sem skrifað var undir í nóvember 2024 og hvernig því er mætt í fjárreiðum heilbrigðisstofnana.

Sóknaráætlanir landshluta – styrkir til safna- og menningarmála.
    Reynsla af sóknaráætlunum landshluta spannar 12 ár og er góð að mati fjölda umsagnaraðila og meiri hlutans. Almenn sátt ríkir um verklagið sem færir aukin völd og aukna ábyrgð heim í hérað. Í sóknaráætlanasamningunum er kveðið á um að samningsaðilar (ríki og sveitarfélög) „skuldbind[i] sig til að vinna að því að auka ráðstöfunarfé til samningsins á samningstímanum“.
    Meiri hlutinn beinir því til landshlutanna að taka við hinum ýmsu minni beiðnum um styrkveitingar til einstakra verkefna, sem eðlilegra er að metin séu í héraði fremur en af fjárlaganefnd, að fengnum umsögnum ráðuneyta. Til að fjármagna þessi verkefni er gerð tillaga um 400 m.kr. tímabundið framlag til sóknaráætlana. Það er hækkun um 280 m.kr. milli ára.
    Framlag ríkisins ár hvert er í formi grunnframlags og jafnan eru gerðir viðaukasamningar. Þrjú ráðuneyti koma að samningum á yfirstandandi ári, þ.e. innviðaráðuneyti, menningar-, háskóla- og nýsköpunarráðuneyti og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. Framlag ráðuneytanna árið 2025 nemur samtals 871 m.kr.
    Mikilvægt er að reglur ráðuneyta og stýrihóps sóknaráætlana útiloki ekki borgarsvæði frá fjárveitingum fjárlaga til sóknaráætlana, líkt og brögð hafa verið að. Mótun þróunaráætlana borgarsvæðanna á grunni nýsamþykktrar borgarstefnu er eitt af mikilvægum verkefnum næstu ára. Ljóst er að þau verkefni kunna að verða fjármögnuð af fjármunum úr sóknaráætlun. Því er kallað eftir að mótaðar verði gegnsæjar reglur sem tryggi jafnræði allra landshluta.

Efling íslensku.
    Efling íslensku er stórt og mikilvægt mál. Efling tungumálsins kemur víða við sögu. Í erindum til fjárlaganefndar hefur lækkun á Bókasafnssjóði rithöfunda m.a. verið gagnrýnd og vill meiri hlutinn koma til móts við það með 80 m.kr. hækkun fjárveitingar til hans. Handritaútgáfa Hins íslenska fornritafélags er að hluta til einnig ófjármögnuð, líkt og undanfarin ár. Verður að beina því til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins að koma því í betra horf. Gerð er tillaga um að verkefnið fái tímabundið 14 m.kr. framlag en gert er ráð fyrir að ráðuneytið fjármagni verkefnið um 7 m.kr. og að framvegis verði föst framlög í ramma ráðuneytisins.
    Eitt af stóru samfélagslegu verkefnunum, sem jafnframt er vanrækt, er aðgengi innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd að íslenskukennslu. Hlutfall innflytjenda í ríkjum OECD sem telja sig hafa sæmilega færni í tungumáli landsins þar sem þeir búa er hvergi lægra en á Íslandi, eða innan við 20%, en er tæp 45% í Finnlandi, tæp 50% í Danmörku, um 55% í Noregi og um 60% í Svíþjóð. Meðaltalið í ríkjum OECD er tæp 60%. Kallar meiri hlutinn eftir ítarlegri og rökstuddri tillögugerð viðkomandi ráðuneyta í þessu efni en gerir tillögu að 284 m.kr. fjárveitingu til að taka markviss skref í að efla kennslu í íslensku sem öðru máli, m.a. með því að styrkja stoðir og umgjörð íslenskukennslu til framtíðar en einnig með námskeiðum og átaki sem beint verði að atvinnuleitendum af erlendum uppruna.

Ráðgjöf og réttindavernd leigjenda og heilbrigðari húsnæðismarkaður.
    Aukin stofnframlög til uppbyggingar óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga og aukin hlutdeildarlán voru hluti af fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og eru þessum áherslum tryggðir fjármunir í fjárlögum. Til að auka réttindavernd leigjenda er gerð tillaga um að veita 50 m.kr. til Neytendasamtakanna til að auka réttindavernd á leigumarkaði. Þá vill meiri hlutinn minna á að sérstakar fjárveitingar hafa verið veittar til sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu til að efla eftirlit með Airbnb samkvæmt sérstökum samningi. Er mikilvægt að því verkefni verði fylgt markvisst eftir og að þessum fjármunum sé ekki varið til annarra verkefna innan embættisins.

Meðferðarúrræði við fíknivanda.
    Fjármagn var aukið til meðferðarúrræða við fíknivanda í fjáraukalögum sl. vor um 350 m.kr. Þessi aukning fór til SÁÁ, Stuðla, Hlaðgerðarkots, Krýsuvíkursamtakanna, Rauða krossins og Landspítala. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að fjárheimild málaflokksins hækki um 425 m.kr. vegna eflingar meðferðarúrræða við fíknivanda. Á móti er gerð hagræðingarkrafa sem nemur um 100 m.kr. og tímabundnar fjárveitingar falla niður.
    Meiri hlutinn gerir tillögu um að bæta tímabundið 345 m.kr. við fjárlög næsta árs til þess að viðhalda og halda áfram uppbyggingu meðferðarúrræða við fíknivanda, einkum til að auka dag- og göngudeildarþjónustu SÁÁ og gera samninga við samtökin um meðferð við spilafíkn og sálfræðiþjónustu barna, en einnig til að styrkja áfram starf annarra meðferðarstofnana, svo sem Krýsuvíkursamtakanna og Hlaðgerðarkots. Gert er ráð fyrir að heilbrigðisráðuneytið forgangsraði og annist samninga við viðkomandi stofnanir til að fjármunirnir nýtist sem best, eftir atvikum með aðkomu Sjúkratrygginga.

Endurhæfingarstofnanir.
    Endurhæfingarþjónusta er mikilvæg fyrir samfélagið og sparar kostnað til lengri tíma. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að endurhæfingarstofnanir taki á sig almenna aðhaldskröfu ólíkt öðrum heilbrigðisstofnunum og fái ekki reiknaðan raunvöxt eins og sjúkrahús. Meiri hlutinn telur það vera órökrétt þar sem þörf fyrir endurhæfingu vex í takti við fjölgun íbúa og aukna sjúkdómabyrði. Í fjárlögum yfirstandandi árs var veitt tímabundið 245 m.kr. framlag til endurhæfingarstofnana.
    Meðal þessara endurhæfingarstofnana er Ljósið. Árið 2020 var samið við Ljósið til fjögurra ára. Það ár var fjárframlag til Ljóssins 220 m.kr. Á þessu fyrsta ári voru skjólstæðingar Ljóssins 1.317 talsins og komurnar 19.209 talsins. Árið 2021 var fjárframlagið 227,6 m.kr. en skjólstæðingum hafði fjölgað í 1.625 og komum í 29.006 á ári. Fjárframlög til Ljóssins í fjárlögum síðustu ára hafa hvorki tekið hækkunum til samræmis við vísitölu launa og neysluverðs né til samræmis við fjölgun skjólstæðinga en endurhæfingarstofnanir hafa ekki fengið reiknaðan raunvöxt. Aftur á móti hefur Ljósið tvívegis fengið tímabundið framlag frá fjárlaganefnd, annars vegar 40 m.kr. árið 2024 og hins vegar 195 m.kr. árið 2025. Ljósið er hér aðeins nefnt sem dæmi.
    Fjölmargir aðrir aðilar sem sinna árangursríkri endurhæfingarþjónustu og -meðferð af alúð beindu erindum til fjárlaganefndar. Þeirra á meðal eru NLFÍ, Reykjalundur – endurhæfing, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Alzheimersamtökin, og Parkinsonsamtökin. Umbeðin framlög eru talsvert umfram það svigrúm sem fjárlög ársins leyfa. Meiri hlutinn gerir tillögu um 700 m.kr. tímabundið framlag til að mæta aukinni þörf fyrir endurhæfingarþjónustu. Eðlilegt er að heilbrigðisráðuneytið forgangsraði þessari fjárhæð og geri samninga við viðkomandi aðila, eftir atvikum með aðkomu Sjúkratrygginga.

Styrking sjúkraflutninga og heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.
    Sjúkraflutningar eru mikilvægur og vaxandi hluti heilbrigðisþjónustu. Til að tryggja jafnara og öruggara aðgengi að heilbrigðisþjónustu um land allt þarf að efla sjúkraflutninga og endurskoða niðurgreiðslu ferðakostnaðar. Samþjöppun heilbrigðisþjónustu hefur aukið ferðakostnað og álag á íbúa í dreifbýli. Almenn aukning vegna raunvaxtar í sjúkraflutningum kallar á 37 m.kr. framlag til að efla almennt þann þátt heilbrigðisþjónustu. Nauðsyn er að styrkja sjúkraflutninga og menntun sjúkraflutningafólks auk hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í neyðarþjónustu, sérstaklega í dreifbýli þar sem fyrstu viðbrögð skipta mestu. Meiri hlutinn leggur til að auka tímabundið framlag um 100 m.kr. til að efla þjálfun og menntun. Til að styðja við lækna og annað starfsfólk á vettvangi verði haldið áfram að þróa þjónustu fjarskiptalæknis með 70 m.kr. árlegu framlagi til að tryggja læknisfræðilega ráðgjöf við bráðatilfelli um land allt frá 8.00 að morgni til miðnættis alla daga ársins. Úttekt verði gerð á reynslu af verkefninu í árslok 2026.
    Samtals verða settar 207 m.kr. í aukið aðgengi að öruggri heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni sem eykur þjónustu og jafnar aðstöðu um allt land.

Ferðasjóður ÍSÍ.
    Meiri hlutinn vill vekja sérstaklega athygli á því að gerð er tillaga um að ferðasjóður ÍSÍ verði hækkaður um 100 m.kr. til að koma til móts við hækkandi ferðakostnað félaga og fjölskyldna, einkum á landsbyggðinni, og jafna þannig aðstöðumun til þátttöku í íþróttum og keppni.

Fjármögnun framhaldsskóla- og háskólastigsins.
    Meiri hlutinn telur að huga þurfi að fjármögnun framhaldsskóla- og háskólastigsins. Framhaldsskólar hafa verið reknir með halla undanfarin ár án þess að ráðist hafi verið í endurskoðun á fjármálum þeirra. Hið sama má segja um háskólastigið og kallar meiri hlutinn eftir því að tekið verði sérstaklega á því í yfirstandandi vinnu við stefnumörkun fyrir háskóla á Íslandi.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga – framlög til tónlistarskóla á framhaldsskólastigi.
    Meiri hlutinn benti á það í tengslum við samþykkt fjármálaáætlunar sl. vor að fjárveitingar til tónlistarskóla á framhaldsstigi sem njóta stuðnings ríkisins hefðu dregist saman miðað við launaþróun frá því að samningur um skyldur ríkisins að þessu leyti var fyrst gerður árið 2012. Fyrir vikið hefur rekstur þeirra verið mjög erfiður, skólagjöld hafa stórhækkað og nemendum í þessu mikilvæga námi fækkað. Leiðréttingu á þessu er ekki að finna í frumvarpinu.
    Meiri hlutinn telur brýnt að huga að úrbótum í þessum efnum við undirbúning næstu fjármálaáætlunar og fjárlaga næstu ára þótt ekki sé gerð tillaga að beinum fjárveitingum að þessu sinni. Nauðsynlegt er að tryggja betur jafnrétti til náms um leið og fjárhagur skólanna er styrktur. Bandalag íslenskra listamanna og Rithöfundasambandið bentu á að listamannalaun og ritlaun virtust að einhverju leyti vera undir sömu sök seld og er því beint til viðkomandi ráðuneyta að huga að leiðréttingu í því efni.

Undirbúningur fjárfestinga og varnartengd verkefni.
    Samdráttur í hagkerfinu, uppbygging varnartengdra innviða og innviðaskuld kallar á auknar fjárfestingar ríkisins.
    Þjóðarhöll í innanhússíþróttum í Laugardal er í góðum farvegi og undirbúningi. Áætlun verkefnisstjórnar gerir ráð fyrir að fjárþörf verkefnisins lækki árið 2026 frá framlögðu fjárlagafrumvarpi. Meiri hlutinn leggur til að nýta svigrúm sem við það myndast á fjárfestingarlið til að undirbúa og hraða undirbúningi lykilverkefna á sviði opinberra fjárfestinga:
     a.      Sameiginlegt húsnæði viðbragðs- og löggæsluaðila ætti að vera forgangsverkefni til að viðhalda og auka áfallaþol samfélagsins. Eru það varnartengd útgjöld.
     b.      Stafræn umbreyting í ríkisrekstri er sömuleiðis lykilverkefni til að viðhalda og auka áfallaþol samfélagsins og skilvirkni og hagkvæmni hins opinbera. Meiri hlutinn kallar eftir heildstæðri og forgangsraðaðri áætlun í því efni.
     c.      Listaháskóli Íslands. Búið verður um Listaháskóla Íslands í fyrrverandi húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð, ásamt nauðsynlegum endurbótum og viðbyggingum.
     d.      Viðbygging við Þjóðleikhúsið.
     e.      Flutningur Þjóðskjalasafns. Fyrir liggja tillögur í húsnæðismálum Þjóðskjalasafns sem taka þarf afstöðu til og undirbúa framkvæmdir.
     f.      Húsnæðismál dómstóla. Tækifæri er til að gera gangskör í húsnæðismálum dómstóla eftir tilkomu Landsréttar og sameiningu héraðsdómstóla.
     g.      Sýning Náttúruminjasafns Íslands. Í undirbúningi hefur verið sýning Náttúruminjasafns Íslands, sem er eitt af höfuðsöfnum landsins, í nýju húsnæði á Seltjarnarnesi.

Samgöngumál, samgöngusáttmáli og nýtt innviðafélag.
    Þingsályktunartillaga að samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun verður lögð fyrir Alþingi í desember. Í henni mun birtast tillaga að forgangsröðun verkefna í samgöngumálum til næstu ára. Ekki er búist við því að tillagan verði afgreidd af Alþingi fyrir jól. Jafnframt verða lögð fram áform og síðar frumvarp um innviðafélag sem tryggja á framgang og fjármögnun mikilvægra samgönguinnviða um land allt.
    Sem stendur er samgönguáætlun fyrir árin 2020–2034 ( þingsályktun nr. 41/150), sem samþykkt var 29. júní 2020, enn í gildi en fimm ára aðgerðaáætlun hennar gilti fyrir árin 2020–2024 (þingsályktun nr. 40/150). Ný samgönguáætlun hefur ekki náð fram að ganga sl. fimm ár. Sama staða var því uppi á yfirstandandi ári fyrir utan að þá lá ekki fyrir þingsályktunartillaga að samgönguáætlun. Meiri hlutinn telur ekkert því til fyrirstöðu að Vegagerðin, í samráði við innviðaráðuneyti, geti gert samninga við verktaka eins og í hefðbundnu árferði um þau verkefni sem þegar eru á samþykktri áætlun. Heildarframlög til nýframkvæmda á vegakerfinu hækka milli ára, um 34,3 ma.kr. á næsta ári. Meðal stærstu framkvæmda í samgöngumálum verða framkvæmdir við Fossvogsbrú og aðra hluta fyrstu lotu Borgarlínu. Lokaáfangar Arnarnesvegar standa yfir og jafnframt umfangsmikil stígagerð á höfuðborgarsvæðinu. Þá stendur undirbúningur Sundabrautar sem hæst, en ráðgert er að framkvæmdin verði fjármögnuð með innheimtu veggjalda. Helstu framkvæmdir á vegakerfinu verða á Vestfjörðum, m.a. á Dynjandisheiði og í Gufudalssveit, og einnig verður byggð ný Ölfusárbrú. Helstu nýju framkvæmdir sem boðaðar eru á árinu verða framkvæmdir á Norðausturvegi um Skjálfandafljót, á Snæfellsvegi og á Bárðardalsvegi vestri (Hringvegur– Öxará). Þá hefjast framkvæmdir við næsta áfanga á Hringvegi um Kjalarnes.
    Þess má geta að ekki er einsdæmi að samgönguáætlanir til skamms tíma liggi ekki fyrir tímanlega. Það gerðist bæði árið 2015 og í skamman tíma árið 2019.

Arðgreiðslur og framsetning stöðugleikareglu.
    Meiri hlutinn fagnar því að fjármálaráðherra hafi lagt línur varðandi eðlilegar arðgreiðslur félaga í eigu ríkisins. Þær eru annars vegar að fylgja arðgreiðslustefnu þar sem hún er fyrir hendi að fullu og hins vegar að félög greiði að jafnaði 50% af hagnaði fyrra árs þegar arðgreiðslustefna er ekki fyrir hendi. Eðlilegt er að gera þá kröfu til félaga í ríkiseigu að þeim sé sett arðgreiðslustefna og eigendastefna í samræmi við góða stjórnarhætti. Í tengslum við undirbúning þess er jafnframt eðlilegt að marka skýra sýn á góða fjármagnsskipan og kröfu um arðsemi af eigin fé.
    Mikilvægt atriði í útfærslu stöðugleikareglunnar er að þar skuli taka tillit til tekjuráðstafana við útreikning á 2% hámarkinu á raunaukningu útgjalda. Það þýðir að ef ríkissjóður sækir nýjar og hærri tekjur þá eykst svigrúmið til útgjalda. Í frumvarpinu er sett fram tafla með slíkum tekjuráðstöfunum sem reiknaðar eru inn í stöðugleikaregluna. Athugandi er hvort þar eigi að bæta við áætlaðri hækkun á arðgreiðslum og hluta af tekjum B-hluta fyrirtækja. Samkvæmt frumvarpinu er þar um að ræða 3 ma.kr. sem skapa aukið útgjaldasvigrúm samkvæmt reglunni.
    Meiri hlutinn gerir þó ekki tillögu um að það svigrúm sé nýtt í þessum tillögum.

Breytingar á 5. og 6. gr.
    Gerð er ein tillaga um viðbót við lántökugrein frumvarpsins þar sem Byggðastofnun er heimilað að taka allt að 5 ma.kr. lán á árinu 2026.
    Gerðar eru samtals ellefu tillögur um viðbætur við 6. gr. frumvarpsins um heimildir ráðherra til að ráðstafa eignum ríkisins auk annarra heimilda. Þar af eru átta tillögur um að selja hús eða lóðir. Auk þess er heimild til að þiggja gjafir, tvær kirkjur og fasteignir til varðveislu hjá Þjóðminjasafni Íslands.
    Loks er annars vegar gerð tillaga um að heimila samruna Farice ehf., Öryggisfjarskipta og hluta Neyðarlínunnar, hins vegar að ganga til samninga við Kirkjugarða Reykjavíkur um rekstur nýrrar bálstofu til allt að 12 ára í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Skýringar við einstakar breytingartillögur á gjaldahlið fjárlaga.

01 Alþingi og eftirlitsstofnanir þess.
01.10 Alþingi.
    Gerð er tillaga um tímabundna 8,3 m.kr. lækkun til samræmis við ákvörðun um aukna og breytta öryggisgæslu Alþingis. Á móti vegur hækkun til ríkislögreglustjóra. Gert er ráð fyrir breyttu fyrirkomulagi frá og með septembermánuði árið 2026.

05 Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla.
05.10 Skattar og innheimta.
    Lagt er til að veita 250 m.kr. framlag til Skattsins til að bæta skattskil með auknu eftirliti. Verkefni sem lagt er til að verði lögð áhersla á er efling samtímaskatteftirlits með áframhaldandi þróun ábendinga í skattframtöl einstaklinga og lögaðila og auknum hlut rafrænnar virðisaukaskattsframkvæmdar, sem skapar forsendur og eykur svigrúm fyrir áhættumiðað samtímaeftirlit. Auk þess er lögð áhersla á eflingu skatteftirlits í almennu eftirliti, milliverðlagningareftirliti og stórfyrirtækjaeftirliti. Samhliða verður horft til eflingar skattrannsókna með áherslu á greiningar, áhættustýringu og styttri málsmeðferðartíma. Tillagan byggist á ábatagreiningu þar sem horft er til árangursmælinga undanfarinna ára og meðalkostnaðar. Virk eftirfylgni verður með árangri.
    Innleiðing kílómetragjalds á allar bifreiðar mun hafa í för með sér hækkun á innheimtukostnaði sem nemur 102 m.kr. á ársgrundvelli. Um er að ræða 250 þúsund bifreiðar sem mánaðarlegt seðilgjald sem nemur 34 kr. verður greitt af. Jafnframt er gert ráð fyrir 20 m.kr. aukningu kostnaðar við breytingar á tekju- og bókhaldskerfi ríkisins vegna samtengingar við Ísland.is, Reiknistofu bankanna o.fl.

05.40 Stjórnsýsla ríkisfjármála.
    Lögð er til 30 m.kr. fjárveiting vegna fyrirhugaðra umbóta og þróunar á fjárlagakerfi Stjórnarráðsins. Fjárlagakerfið er undirstaða vinnu við fjármálaáætlun, fjárlög og fjáraukalög og er mikilvægt að stuðlað sé að þróun kerfisins og betrumbótum.

06 Hagskýrslugerð og grunnskrár.
06.10 Hagskýrslugerð, grunnskrár og upplýsingamál.
    Lagt er til að auka fjárveitingu til Hagstofu Íslands um 113 m.kr. til þess að efla stofnunina í hagtölugerð um lífeyrismál.

07 Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar.
07.10 Vísindi og samkeppnissjóðir í rannsóknum.
    Gert er ráð fyrir 300 m.kr. hækkun framlaga í Tækniþróunarsjóð.
    Gert er ráð fyrir 700 m.kr. hækkun framlaga í Rannsóknasjóð.

07.20 Nýsköpun, samkeppni og þekkingargreinar.
    Gert er ráð fyrir að endurgreiðslur til nýsköpunarfyrirtækja lækki um 3,4 ma.kr. í samræmi við uppfærða áætlun. Miðað er við að samþykktarhlutfall verði 75% hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum og 80% hjá stórum fyrirtækjum.
    Gerð er tillaga um 500 m.kr. lækkun framlaga til styrkja nýsköpunarfyrirtækja. Tillagan byggist á endurmati á útgjaldaspá fyrir árið 2026 og kemur til viðbótar við lækkun sem ríkisstjórnin leggur til.

08 Sveitarfélög og byggðamál.
08.10 Framlög til sveitarfélaga.
    Gerð er tillaga um 218 m.kr. hækkun á lögbundnu framlagi í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga í samræmi við nýja þjóðhagsspá.

08.20 Byggðamál.
    Lagt er til að tímabundið verði veittar 224,4 m.kr. til reksturs slökkviliðs og öryggisgæslu í Grindavík. Í samræmi við kröfur HMS verði komið á sólarhringsvöktum hjá slökkviliði Grindavíkurbæjar ásamt því að slökkviliðinu verði falin aukin verkefni á sviði öryggisvöktunar í bænum. Mun það leiða til skilvirkari nýtingar fjármuna og mannauðs án þess að dregið sé úr öryggi eða þjónustu. Grindavíkurnefnd leggur til að ríkið greiði 70% kostnaðar við rekstur slökkviliðs og Grindavíkurbær 30%, sem er u.þ.b. sá kostnaður sem sveitarfélaginu bæri við venjubundnar aðstæður. Lagt er til að gerður verði samningur milli Grindavíkurbæjar og ríkisins. Þar verði m.a. kveðið á um að um leið og aðstæður leyfa verði hafinn undirbúningur að því að færa starfsemi slökkviliðsins á nýjan leik í form útkallsliðs og verði greiðsluþátttaka ríkissjóðs þá endurskoðuð í því ljósi.
    Gert er ráð fyrir að veita 419 m.kr. fjárfestingarframlag vegna verkefna í aðgerðaáætlun sökum viðgerða á innviðum innan þéttbýlis í Grindavík o.fl. Aðgerðir sem þarf að ráðast í snúa einkum að sprungufyllingum og tengdum verkefnum í Grindavík. Gert er ráð fyrir að ráðast í verkefni er snúa einkum að viðgerðum á opnum svæðum og viðgerðum á sprungum innan lóða, ásamt girðingum.
    Gerð er tillaga um 400 m.kr. tímabundið framlag til að styrkja verkefni um sóknaráætlanir landshluta. Þar af eru um 120 m.kr. til að koma til móts við niðurfellingu fjárheimildar og 280 m.kr. til að breyta verklagi er varðar einstakar styrkveitingar nefndarinnar. Meiri hlutinn beinir því til landshlutanna að taka við hinum ýmsu minni beiðnum um styrkveitingar til einstakra verkefna, sem eðlilegra er að metin séu í héraði fremur en af fjárlaganefnd, að fengnum umsögnum ráðuneyta. Mikilvægt er að reglur ráðuneyta og stýrihóps sóknaráætlana útiloki ekki borgarsvæði frá fjárveitingum til sóknaráætlana, líkt og brögð hafa verið að.
    Gerð er tillaga um 35 m.kr. tímabundið framlag til að styrkja atvinnuráðgjöf á landsbyggðinni.

09 Almanna- og réttaröryggi.
09.10 Löggæsla.
    Gerð er tillaga um 81,6 m.kr. framlag til ríkislögreglustjóra þar sem gert er ráð fyrir aukinni öryggisgæslu á Alþingi frá og með 1. september 2026.

10 Rétt. einstakl., trúmál og stjórnsýsla dómsmála.
10.20 Trúmál.
    Dómsmálaráðuneytið hefur gert samkomulag við Kirkjugarða Reykjavíkur um byggingu nýrrar bálstofu í Gufuneskirkjugarði. Núverandi bálstofa, sem rekin hefur verið frá árinu 1948, uppfyllir ekki nútímakröfur um mengunarvarnir og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur gert alvarlegar athugasemdir við rekstur hennar. Ný bálstofa verður allt að 700 fermetrar að stærð, staðsett í Gufuneskirkjugarði og búin tveimur umhverfisvænum líkbrennsluofnum í samræmi við ströngustu kröfur um mengunarvarnir. Gerð er tillaga um framlag úr ríkissjóði að fjárhæð 80 m.kr. á ári í 12 ár, með árlegri verðlagsuppfærslu, til að standa undir kostnaði við kaup á ofnum, viðbyggingu við núverandi húsnæði og nauðsynlegar breytingar. Fyrsta greiðsla fer fram árið 2026 og gert er ráð fyrir að ný bálstofa taki til starfa haustið 2026. Kirkjugarðar Reykjavíkur munu annast framkvæmdir og afla lánsfjár til að hefja byggingu.
    Gert er ráð fyrir að framlag til kirkjugarða hækki um 12,8 m.kr. á föstu verðlagi ársins 2025, í samræmi við samkomulag um reiknilíkan fyrir framlagið. Framlagið skiptist þannig að um 20% af því tekur mið af fjölda jarðsetninga og líkbrennslna á árinu 2024 en um 80% miðast við stærð svæða í umhirðu hjá görðunum í lok ársins 2024.
    Gerð er tillaga um 126,3 m.kr. tímabundið framlag til sóknargjalda. Tillagan byggist á tillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar um að krónutala sóknargjalda verði óbreytt frá árinu 2025 í stað þess að lækka eins og forsendur frumvarpsins gerðu ráð fyrir.

10.40 Stjórnsýsla dómsmálaráðuneytis.
    Gerð er tillaga um 3,3 m.kr. hækkun fjárheimildar vegna flutnings dómsmálaráðuneytis í húsnæði við Skúlagötu 4, í samræmi við grunnleiguverð fasteigna hjá FSRE.
    Gerð er tillaga um 40 m.kr. tímabundið framlag til Afstöðu, félags fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun.

11 Samgöngu- og fjarskiptamál.
11.10 Samgöngur.
    Gert er ráð fyrir 248 m.kr. fjárveitingu vegna innheimts varaflugvallargjalds sem sett var á með lögum nr. 65/2023 og átti að standa straum af uppbyggingu varaflugvalla á landinu. Áætlað var að innheimt varaflugvallargjald myndi verða allt að 1.200–1.500 m.kr. á ári. Innheimt varaflugvallargjald vegna ársins 2024 nam 1.557 m.kr. en fjárveiting til framkvæmda á flugvöllum vegna ársins 2025 nam 1.418 m.kr. Er því um 139 m.kr. mismun að ræða. Isavia gerir ráð fyrir að fjöldi farþega á árinu 2025 verði sambærilegur við fyrra ár og að áætluð innheimt gjöld verði allt að 1.500 m.kr. Fjárheimild vegna framkvæmda á flugvöllum fyrir árið 2026 nemur 1.391 m.kr. Má því gera ráð fyrir að mismunur á fjárheimildum og innheimtu varaflugvallargjaldi verði um 109 m.kr.

11.20 Fjarskipti.
    Gert er ráð fyrir 90 m.kr. framlagi til að fjármagna lúkningu á samningsgerð við Farice ehf. og tryggja þar með varaleið fjarskipta um gervihnetti. Í ljósi aukinnar áherslu á þjóðaröryggismál í kjölfar stigmögnunar öryggisógna í Evrópu, þ.m.t. vaxandi fjölþáttaógna og skemmdarverka á sæstrengjum, og til eflingar fjarskipta- og netöryggis hér á landi, sbr. 7., 9. og 10. tölul. í þingsályktun um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland, nr. 26/145, er brýnt að komið verði á fót sérstakri varaleið fjarskipta um gervihnetti til þess að tryggja samskipti ómissandi samfélagsinnviða við umheiminn, fari svo að fjarskiptasamband um alla sæstrengi til útlanda verði rofið á sama tíma. Opinbera fyrirtækið Farice ehf. hefur tekið þátt í samráðshópi þjóðaröryggisráðs og unnið að þróun slíkrar varaleiðar fjarskipta um gervihnetti.

12 Landbúnaður.
12.10 Stjórnun landbúnaðarmála.
    Gert er ráð fyrir að veita 300 m.kr. tímabundið framlag í þrjú ár til að fjármagna rekstrarkostnað samræmds söfnunarkerfis fyrir dýraleifar. Frá árinu 2013 hefur ESA rekið mál gegn Íslandi vegna ófullnægjandi innviða til förgunar á aukaafurðum dýra og var Ísland dæmt brotlegt með dómi EFTA-dómstólsins vegna þessa hinn 29. júlí 2022. Nauðsynlegt er að íslensk stjórnvöld bregðist við hið fyrsta í ljósi athugasemda og úrskurðar ESA auk mikilvægis þess fyrir útflutning matvæla frá Íslandi. Atvinnuvegaráðuneytið vinnur um þessar mundir að því að útfæra og koma á samræmdu söfnunarkerfi fyrir dýraleifar, í samvinnu við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, með það að markmiði að þeim verði komið í lögmæta förgun sem verður brennslustöðin Kalka sf. á Suðurnesjum. Unnið er að útboði verkefnisins og er gert ráð fyrir að rekstrarkostnaður kerfisins verði um 300 m.kr. á ári. Í ljósi þess hve brýnt málið er þá er fyrirhugað að ríkið fjármagni söfnunarkerfið til næstu þriggja ára, þ.e. árin 2026–2028, sem þessi tillaga snýr að.

12.60 Stjórnsýsla atvinnuvegaráðuneytis.
    Gerð er tillaga um 28 m.kr. hækkun fjárheimildar vegna flutnings atvinnuvegaráðuneytisins í húsnæði við Skúlagötu 4, í samræmi við grunnleiguverð fasteigna hjá FSRE.

14 Ferðaþjónusta.
14.10 Ferðaþjónusta.
    Gerð er tillaga um 100 m.kr. tímabundið framlag til Flugþróunarsjóðs. Sjóðurinn vinnur að því að styðja uppbyggingu nýrra flugleiða og koma á reglulegu millilandaflugi um alþjóðaflugvellina á Akureyri og Egilsstöðum. Til þess að sækja ný verkefni og styrkja ferðaþjónustu á Norðausturlandi, heilsársferðaþjónustu og dreifingu ferðamanna um allt land er mikilvægt að Flugþróunarsjóður fái aukið fjármagn og er áætlað að um 100 m.kr. sé að ræða til þess að vinna að því að sækja ný verkefni og viðhalda þeim sem nú eru.

15 Orkumál.
15.10 Stjórnun og þróun orkumála.
    Jöfnunargjald á forgangsorku til almennra notenda hækkar úr 0,41 kr. í 0,82 kr. á hverja kílóvattstund og eykst framlag ríkissjóðs til málaflokksins um 1.498 m.kr., sem nemur tekjuauka ríkissjóðs af innheimtu gjaldsins.

16 Markaðseftirlit og neytendamál.
16.10 Markaðseftirlit og neytendamál.
    Gerð er tillaga um 50 m.kr. tímabundið framlag til Neytendasamtakanna til að styðja leigjendaaðstoð.

17 Umhverfismál.
17.10 Náttúruvernd, skógrækt og landgræðsla.
    Gert er ráð fyrir 18 m.kr. varanlegri aukningu fjárheimilda til Náttúruverndarstofnunar vegna flutnings gestastofa til Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna.

18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál.
18.10 Safnamál.
    Gerð er tillaga um 13 m.kr. tímabundið framlag til Hollvinasamtaka varðskipsins Óðins.

18.30 Menningarsjóðir.
    Gert er ráð fyrir að breyta árlegri 6 m.kr. fjárfestingarheimild húsafriðunarsjóðs í fjármagnstilfærslu þar sem sjóðurinn stendur ekki í neinum fjárfestingum.
    Gerð er tillaga um 80 m.kr. tímabundið framlag til Bókasafnssjóðs höfunda.
    Gerð er tillaga um 20 m.kr. tímabundið framlag til kvikmyndahátíðanna RIFF og UngRIFF.
    Gerð er tillaga um 14 m.kr. tímabundið framlag til Hins íslenska fornritafélags.

18.40 Íþrótta- og æskulýðsmál.
    Gerð er tillaga um 100 m.kr. tímabundið framlag til Ferðasjóðs íþróttafélaga.
    Gerð er tillaga um 50 m.kr. framlag til uppbyggingar á nýjum matskála í Vatnaskógi.
    Gerð er tillaga um 20 m.kr. tímabundið framlag til Landsmóts hestamanna á Hólum í Hjaltadal.
    Gerð er tillaga um 12 m.kr. tímabundið framlag til Rafíþróttasambands Íslands.
    Gerð er tillaga um 10 m.kr. framlag til Æskulýðssjóðs.
    Gerð er tillaga um 10 m.kr. tímabundið framlag til Bridgesambands Íslands. Gerð er tillaga um 8 m.kr. tímabundið framlag til reksturs UMFÍ.

19 Fjölmiðlun.
19.10 Fjölmiðlun.
    Gerð er tillaga um 50 m.kr. hækkun á framlagi til RÚV í samræmi við nýja tekjuáætlun um innheimtar tekjur af útvarpsgjaldi.

21 Háskólastig.
21.10 Háskólar og rannsóknastarfsemi.
    Gert er ráð fyrir 282 m.kr. sértekju- og gjaldaheimild til Háskóla Íslands til að taka við fjármunum frá Happdrætti Háskóla Íslands sem nemur vaxtatekjum af lánum frá Happdrætti Háskóla Íslands til Fasteignafélags Háskóla Íslands. Upphæðin skýrist af 4,7% vöxtum af 6 ma.kr. láni frá Happdrætti Háskóla Íslands.

21.30 Stuðningur við námsmenn.
    Gert er ráð fyrir að framlag til Menntasjóðs námsmanna lækki um 350 m.kr. í samræmi við endurmat á fjárþörf sjóðsins.

22 Önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála.
22.20 Framhaldsfræðsla og menntun óflokkuð á skólastig.
    Gerð er tillaga um 254 m.kr. tímabundið framlag til íslenskukennslu fyrir útlendinga sem verði nýtt til að styrkja stoðir og umgjörð íslenskukennslu til framtíðar, auka umfang hennar og bæta gæði.

23 Sjúkrahúsþjónusta.
23.10 Sérhæfð sjúkrahúsþjónusta.
    Gert er ráð fyrir að taka nýbyggingu Grensáss í notkun sumarið 2026. Verkþættir sem voru utan heildaráætlunar NLSH voru kaup á búnaði og tækjum og er mikilvægt að fá fjárveitingu vegna þess í fjárlögum fyrir árið 2026 til að geta opnað Grensás. Samkvæmt áætlun nemur kostnaður við tækjakaup 994 m.kr. og er gerð tillaga um fjárveitingu sem því nemur.
    Gert er ráð fyrir 408 m.kr. viðbótarfjárveitingu til Landspítala vegna nýs aðgerðarþjarka. Á undanförnum árum hefur notkun aðgerðarþjarka aukist verulega og þeir gegnt stærra og mikilvægara hlutverki í skurðlækningum úti um allan heim, en flestar aðgerðir sem framkvæmdar eru með þjarka eru vegna krabbameina. Þróunin hefur verið hröð og sífellt bætast við fleiri aðgerðir sem gerðar eru með slíku tæki. Eftirspurnin hefur aukist gríðarlega og mun aukast enn meira á næstu árum vegna fólksfjölgunar og fjölgunar krabbameinsgreininga. Rannsóknir hafa sýnt fram á styttri legutíma, færri blóðhlutagjafir og minni líkur á umbreytingu í opinni aðgerð þegar notast er við aðgerðarþjarka.
    Gerð er tillaga um 70 m.kr. tímabundið framlag til að haldið verði áfram að þróa þjónustu fjarskiptalæknis. Tillagan er hluti af 207 m.kr. tímabundinni heimild til að efla heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.

24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa.
24.10 Heilsugæsla.
    Gerð er tillaga um 100 m.kr. tímabundið framlag til menntunar sjúkraflutningafólks auk hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í neyðarþjónustu, sérstaklega í dreifbýli. Tillagan er hluti af 207 m.kr. heimild til að efla heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.

24.40 Sjúkraflutningar.
    Gerð er tillaga um 37 m.kr. tímabundið framlag til að styrkja sjúkraflutninga. Tillagan er hluti af 207 m.kr. heimild til að styrkja heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.

25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta.
25.10 Hjúkrunar- og dvalarrými.
    Gerð er tillaga um 250 m.kr. lækkun framlaga til samræmis við endurmat á útgjaldaspá vegna dvalarrýma.
    Gerð er tillaga um 20 m.kr. hækkun á framlagi til Framkvæmdasjóðs aldraðra sem samsvarar áætluðum tekjum af gjaldi til sjóðsins.
    Gert er ráð fyrir að lækka fjárheimild málaflokksins um 1.500 m.kr. til samræmis við raunútgjöld fyrri ára. Þar sem uppbygging hjúkrunarheimila hefur ekki verið í samræmi við hið stórfellda uppbyggingarátak sem ráðist var í fyrir nokkrum árum hafa safnast upp ónýttar fjárheimildir í málaflokknum. Á hverju ári hefur hluti þeirra verið færður yfir á næsta fjárlagaár en stærstur hluti hefur verið felldur niður. Þetta misræmi á fjárheimild málaflokksins og raunútgjöldum hans hefur gefið ranga mynd í fjárlögum um hvert umfang starfsemi daggjaldastofnana er í raun og veru. Með þessari tillögu er tekið fyrsta skrefið í leiðréttingu fjárheimildarinnar. Við undirbúning fjármálaáætlunar fyrir árin 2027–2031 munu félags- og húsnæðismálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið, en þau koma að rekstri daggjaldastofnana, yfirfara allar áætlanir um opnun nýrra rýma á tímabilinu og aðlaga fjárheimildir yfir tímabil áætlunarinnar að þeim forsendum sem uppfærslan gerir ráð fyrir.
    Gerð er tillaga um 350 m.kr. tímabundna lækkun til viðbótar við fyrrgreinda tillögu um 1.500 m.kr. lækkun til samræmis við nýja útgjaldaspá næsta árs. Samtals er því nú gert ráð fyrir 1.850 m.kr. lækkun frá frumvarpinu.

25.20 Endurhæfingarþjónusta.
    Gerð er tillaga um 700 m.kr. tímabundið framlag til endurhæfingarstofnana. Um er að ræða Ljósið, NLFÍ, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra (æfingastöð SLF), Alzheimersamtökin, Parkinsonsamtökin og Reykjalund – endurhæfingu. Eðlilegt er að heilbrigðisráðuneytið forgangsraði þessari fjárhæð og geri samninga við viðkomandi aðila, eftir atvikum með aðkomu Sjúkratrygginga.
    Gerð er tillaga um 344,5 m.kr. tímabundið framlag til að efla meðferðarúrræði. Markmiðið er að viðhalda og halda áfram uppbyggingu meðferðarúrræða við fíknivanda, einkum til að auka dag- og göngudeildarþjónustu SÁÁ og til að gera samninga við samtökin um meðferð við spilafíkn og sálfræðiþjónustu barna, en einnig til áframhaldandi styrkingar annarra meðferðarstofnana, Krýsuvíkursamtakanna og Hlaðgerðarkots.

27 Örorka og málefni fatlaðs fólks.
27.10 Bætur skv. lögum um almannatryggingar, örorkulífeyrir.
    Gerð er tillaga um 3 ma.kr. framlag í sjúkra- og endurhæfingargreiðslur á árinu 2026 vegna mikillar fjölgunar sem hófst á miðju ári 2023 sem og vegna lengingar endurhæfingartímabils. Vinna er hafin við greiningu á þróuninni svo bera megi kennsl á hvað valdi og hvort unnt sé að bregðast við þróuninni.

27.50 Jöfnun á örorkubyrði almennra lífeyrissjóða.
    Í fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 og fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2026 er ekki gert ráð fyrir jöfnunarframlagi úr ríkissjóði vegna örorkubyrðar lífeyrissjóða. Ákvörðunin byggist á batnandi fjárhagsstöðu sjóðanna og nýju örorkukerfi sem á að draga úr örorkubyrði til lengri tíma. Þrátt fyrir áralöng framlög úr ríkissjóði hefur markmið framlagsins ekki náðst. Í ljósi framkominnar gagnrýni og þar sem endurskoðun á fyrirkomulaginu er enn í vinnslu er gerð tillaga um 4,9 ma.kr. framlag á næsta ári og sambærilegt fyrirkomulag á jöfnun örorkubyrðar. Fjármögnun verði tímabundin fyrir árið 2026 á meðan niðurstaða fæst eftir viðræður aðila um þörf fyrir aðkomu ríkissjóðs til framtíðar, m.a. með hliðsjón af víxlverkun lífeyris úr almannatryggingakerfinu og greiðslna frá lífeyrissjóðum.

28 Málefni aldraðra.
28.10 Bætur skv. lögum um almannatryggingar, lífeyrir aldraðra.
    Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna ellilífeyris lækki um 800 m.kr. til samræmis við útkomuspá bótaliða fyrir árið 2026. Helsta ástæða fyrir lægri útgjöldum á málefnasviði aldraðra er hærri aðrar tekjur ellilífeyrisþega.
    Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna ráðstöfunarfjár ellilífeyrisþega lækki um 700 m.kr. til samræmis við útkomuspá bótaliða fyrir árið 2026. Helsta ástæða fyrir lægri útgjöldum á málefnasviði aldraðra er hærri aðrar tekjur ellilífeyrisþega.

28.20 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, öldrun.
    Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna heimilisuppbótar ellilífeyrisþega lækki um 1.500 m.kr. til samræmis við útkomuspá bótaliða fyrir árið 2026. Helsta ástæða fyrir lægri útgjöldum á málefnasviði aldraðra er hærri aðrar tekjur ellilífeyrisþega.

29 Fjölskyldumál.
29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn.
    Lagt er til að 2.000 m.kr. verði bætt við rekstrarheimild til öryggisúrræða. Sett verður á fót ný stofnun, Miðstöð um öryggisráðstafanir. Fjárhæðin var vistuð á almennum varasjóði í frumvarpinu en er nú færð á viðeigandi kostnaðarstað. Tillagan er unnin í samstarfi við önnur ráðuneyti sem hafa aðild að málinu.
    Lagt er til 1.057 m.kr. framlag til Barna- og fjölskyldustofu til endurbóta og uppbyggingar á húsnæði Stuðla eftir atvik sem þar átti sér stað haustið 2024. Hækkun á framlagi er til að koma til móts við áætlaðan kostnað við endurbætur og uppbyggingu húsnæðisins.
    Gerð er tillaga um 120 m.kr. tímabundið framlag til Samtaka um kvennaathvarf, Einhverfusamtakanna, Landssamtakanna Þroskahjálpar og málefna þolendamiðstöðva.

30 Vinnumarkaður og atvinnuleysi.
30.10 Vinnumál og atvinnuleysi.
    Gerð er tillaga um hækkun á framlagi til Atvinnuleysistryggingasjóðs um 1.800 m.kr. miðað við uppfærða þjóðhagsspá. Nú er spáð 4,2% atvinnuleysi sem er hækkun um 0,2 prósentustig frá fyrri spá.
    Lagt er til að veita 800 m.kr. aukið framlag til Ábyrgðasjóðs launa vegna endurmats á áætluðum útgjöldum á árinu 2026 með hliðsjón af þróun útgjalda á árinu 2025. Vega þar þyngst áhrif gjaldþrots flugfélagsins Play.
    Gerð er tillaga um 30 m.kr. tímabundið framlag sem nýtist til íslenskukennslu fyrir atvinnuleitendur af erlendum uppruna.
    Framlag til VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs, sem miðast við lögbundið 0,05% framlag af gjaldstofni tryggingagjaldsins fyrir næstliðið ár, hækkar um 2 m.kr.

32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála.
32.10 Lýðheilsa, forvarnir og eftirlit.
    Gert hafði verið ráð fyrir 200 m.kr. lækkun á sértekjum Lyfjastofnunar árið 2025. Uppfærð sértekjuáætlun stofnunarinnar gerir aftur á móti ráð fyrir að sértekjur verði óbreyttar á milli ára. Er því gerð tillaga um að afturkalla 200 m.kr. lækkun sem gert var ráð fyrir í frumvarpinu.

32.30 Stjórnsýsla heilbrigðismála.
    Gerð er tillaga um 5,1 m.kr. lækkun fjárheimildar vegna flutnings heilbrigðisráðuneytis í húsnæði við Skúlagötu 4, í samræmi við grunnleiguverð fasteigna hjá FSRE.

32.40 Stjórnsýsla félagsmála.
    Gerð er tillaga um 5,1 m.kr. lækkun fjárheimildar vegna flutnings félags- og húsnæðismálaráðuneytis í húsnæði við Skúlagötu 4, í samræmi við grunnleiguverð fasteigna hjá FSRE.

33 Fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar.
33.10 Fjármagnskostnaður.
    Vaxtagjöld hækka um 3.980,4 m.kr. vegna meiri verðbólgu en áður hafði verið áætluð.

34 Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir.
34.10 Almennur varasjóður.
    Lagt er til að veita 200 m.kr. til að styðja við stærri kerfisbreytingar í tengslum við hagræðingaraðgerðir ríkisstjórnarinnar. Ráðuneyti gætu sótt fjármagn til að standa undir ráðgjöf, tímabundnum ráðningum eða öðrum tilfallandi kostnaði í tengslum við stærri kerfisbreytingar, til að mynda vegna sameininga stofnana.
    Lagt er til að umfang almenns varasjóðs lækki um 6 ma.kr. til að vega upp á móti nokkrum útgjaldatilefnum.
    Gerð er tillaga um 167 m.kr. lækkun á almennum varasjóði til mótvægis við gjaldatillögur.

    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem skýrðar hafa verið og gerð er tillaga um í sérstökum þingskjölum.

Alþingi, 28. nóvember 2025.

Ragnar Þór Ingólfsson,
form., frsm.
Arna Lára Jónsdóttir. Dagur B. Eggertsson.
Eiríkur Björn Björgvinsson. Ingvar Þóroddsson.