Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 454  —  1. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2026.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar (RÞI, ArnaJ, DBE, EBB, IngÞ).


     1.      Við 6. gr. Nýir liðir:
        2.37    Að selja Þingholtsstræti 29, Reykjavík.
         2.38    Að selja íbúðar- og útihús á leigulóð úr jörðinni Þórðarstöðum í Þingeyjarsveit.
         2.39    Að selja íbúðar- og útihús á leigulóð úr jörðinni Vöglum í Þingeyjarsveit.
         2.40    Að selja íbúðarhús á leigulóð að Kornbrekku í Rangárþingi ytra.
         2.41    Að selja íbúðar- og útihús á leigulóð úr jörðinni Hafursá í Múlaþingi.
         2.42    Að selja íbúðarhús við Launrétt 6 í Laugarási til yfirlæknis heilsugæslunnar á grundvelli óháðs verðmats.
     2.      Við 6. gr. Nýir liðir:
         3.29    Að selja landspildur úr jörðinni Straumi í Hafnarfirði.
         3.30    Að selja lóðina Sléttuhlíð F9 í Hafnarfirði.
     3.      Við 6. gr. Nýr liður:
         5.15    Að fallast á tillögu um samruna Farice ehf., Öryggisfjarskipta ehf. og hluta Neyðarlínunnar ohf. í sameinað félag sem og aðrar tilfærslur milli félaganna.
     4.      Við 6. gr. Nýr liður:
         6.5        Að ganga til samninga við Kirkjugarða Reykjavíkur um rekstur nýrrar bálstofu til allt að 12 ára í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga.
     5.      Við 6. gr. Liður 7.3 orðist svo: Að þiggja að gjöf Laufáskirkju í Eyjafirði, Keldnakirkju á Rangárvöllum, fasteignir á Litlabæ í Skötufirði og Hraunskirkju í Keldudal til varðveislu í húsasafni Þjóðminjasafns Íslands.