Ferill 321. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 456 — 321. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um dreifingu fréttaefnis hjá Ríkisútvarpinu.
Flm.: Snorri Másson, Karl Gauti Hjaltason.
Alþingi ályktar að fela menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að hefja vinnu í samstarfi við Ríkisútvarpið við að hætta dreifingu fréttaefnis á öðrum tungumálum en íslensku. Á þessu verði gerðar afmarkaðar undantekningar vegna almannavarnahagsmuna en almennri frétta- og menningarumfjöllun á erlendum málum skal hætt.
Greinargerð.
Í lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, segir að Ríkisútvarpið skuli sinna menningarlegu hlutverki sínu m.a. með því að leggja rækt við íslenska tungu. Ekki er fjallað þar um erlend tungumál þótt ákvörðun hafi verið tekin á síðari tímum um að veita slíka þjónustu.
Afkoma Ríkisútvarpsins hefur verið undir væntingum það sem af er ári og bráðabirgðatölur fyrir fyrstu sex mánuði gefa til kynna að 160 millj. kr. hallarekstur verði á fyrri hluta ársins.
Með tillögunni er brugðist við þeim halla sem hefur myndast hjá Ríkisútvarpinu með því að minnka umfang og verkefni stofnunarinnar, auk þess sem bent skal á að frjálsir fjölmiðlar sinna nú þegar fréttaflutningi á öðrum tungumálum um íslensk málefni. Vélþýðingar eru líka orðnar það þróaðar að hægt er að reiða sig á þær að nokkru leyti til þess að glöggva sig á íslensku efni Ríkisútvarpsins. Flutningsmenn binda vonir við að tillaga þessi geti unnið að nokkru leyti á þeim halla sem myndast hefur í rekstri stofnunarinnar.
Beita ber fullum þunga ríkisvaldsins til að senda skýr skilaboð um að íslenska sé og verði eina almenna og viðurkennda samskiptamálið í okkar þjóðfélagi, ekki síst á vegum hins opinbera. Ekki er stuðlað að aðlögun þeirra sem hingað flytja með því að gefa til kynna af hálfu hins opinbera kerfis að ekki þurfi að læra íslensku til að taka þátt í samfélaginu.