Ferill 247. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 458 — 247. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um upplýsingafulltrúa.
1. Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi í ráðuneytinu? Ef svo er, hversu margir eru þeir?
Hjá ráðuneytinu er starfandi einn upplýsingafulltrúi.
2. Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi hjá undirstofnunum ráðuneytisins? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.
Byggðastofnun: Ekki er starfandi upplýsingafulltrúi eða samskiptastjóri.
Fjarskiptastofa: Hjá Fjarskiptastofu er einn starfsmaður sem sinnir starfi samskiptastjóra. Á verksviði viðkomandi er umsjón með vefjum stofnunarinnar, viðburðastjórnun, umsjón með útgáfu fréttabréfs, ársskýrslu og annars kynningarefnis.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa: Ekki er starfandi upplýsingafulltrúi eða samskiptastjóri.
Samgöngustofa: Hjá Samgöngustofu starfar einn samskiptastjóri. Sá einstaklingur gegnir hlutverki tengiliðs við fjölmiðla og annast viðbrögð og miðlun upplýsinga til þeirra. Auk þess ber samskiptastjóri ábyrgð á og kemur að ýmsum öðrum verkefnum, svo sem miðlun upplýsinga innan húss, umsjón með bæði ytri og innri vef Samgöngustofu, kynningum á vegum Samgöngustofu og gerð stefnumótandi skjala og kynningarefnis, þar á meðal ársskýrslu og annarra lykilgagna.
Vegagerðin: Hjá Vegagerðinni eru starfandi upplýsingafulltrúar og forstöðumaður samskiptadeildar.
3. Er upplýsinga- eða samskiptadeild starfrækt í ráðuneytinu eða undirstofnunum þess? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um fjölda starfsmanna á deildunum undanfarin tíu ár, sundurliðað eftir árum og stofnunum.
Innviðaráðuneytið: Nei, ekki er starfandi upplýsinga- eða samskiptadeild.
Byggðastofnun: Nei, ekki er starfandi upplýsinga- eða samskiptadeild.
Fjarskiptastofa: Nei, ekki er starfandi upplýsinga- eða samskiptadeild.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa: Nei, ekki er starfandi upplýsinga- eða samskiptadeild. Samgöngustofa: Nei. Hjá Samgöngustofu eru samskiptamál á hendi samskiptastjóra sem annast þau verkefni sem falla undir starfssviðið. Um er að ræða eitt stöðugildi og hefur þessi skipan verið óbreytt síðastliðin tíu ár.
Vegagerðin: Á samskiptadeild Vegagerðarinnar er eitt og hálft stöðugildi upplýsingafulltrúa auk stöðu forstöðumanns, alls tvö og hálft stöðugildi. Síðastliðin tíu ár var eitt stöðugildi sem kalla má upplýsingafulltrúa hjá Vegagerðinni fram til apríl 2019 er hálft stöðugildi bættist við. Frá því í ágúst 2021 hafa stöðugildin verið tvö og hálft.