Ferill 323. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 464  —  323. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (samræmd próf og einkunnagjöf).

Flm.: Jón Pétur Zimsen, Diljá Mist Einarsdóttir, Jón Gunnarsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Vilhjálmur Árnason, Ólafur Adolfsson, Sigurður Örn Hilmarsson, Rósa Guðbjartsdóttir.


1. gr.

    Í stað orðanna „er m.a.“ í 2. málsl. 1. mgr. 24. gr. laganna kemur: eru m.a. tilgreindar kjarnanámsgreinar og.

2. gr.

    39. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Samræmt námsmat.

    Samræmd próf í kjarnanámsgreinum skulu lögð samtímis fyrir alla nemendur í 3., 6. og 9. bekk.
    Grunnskólum skal jafnframt standa til boða samræmd könnunarpróf og stöðluð kunnáttupróf til greiningar á námsstöðu nemenda.
    Próf skv. 1. og 2. mgr. skulu taka breytingum á milli ára en þó þannig að prófin séu sambærileg. Einkunnir fyrir samræmd próf skulu gefnar með tölustöfum, frá 0–10.
    Mennta- og barnamálaráðuneyti leggur grunnskólum til samræmd próf og greiðir kostnað við störf trúnaðarmanna til eftirlits og umsjónar með framkvæmd þessara prófa.
    Skólastjóra er heimilt, ef gildar ástæður mæla með því og samþykki foreldra liggur fyrir, að veita nemendum undanþágu frá því að þreyta samræmd próf í einstaka námsgreinum.
    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu eða annar til þess bær aðili sem ráðherra ákveður hefur umsjón með gerð og framkvæmd samræmdra prófa samkvæmt grein þessari.
    Samræmd próf skv. 1. og 2. mgr. eru trúnaðargögn og er umsjónaraðila óheimilt að veita utanaðkomandi aðgang að prófunum áður en þau eru lögð fyrir nemendur.
    Niðurstöður samræmdra prófa skulu notaðar til að greina styrkleika og veikleika nemenda og skóla í kjarnanámsgreinum. Niðurstöður samræmdra prófa skulu vera ópersónugreinanlegar og aðgengilegar almenningi.
    Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra prófa og undanþágur nemenda frá samræmdu námsmati samkvæmt þessari grein.

3. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2026.
              

    Greinargerð.

Inngangur.
    Á þessu ári var tekið upp nýtt samræmt námsmat í grunnskólum hér á landi, svokallaður Matsferill. Það fyrirkomulag hefur þó sætt umtalsverðri gagnrýni, m.a. vegna þess hvernig framkvæmd námsmatsins er háttað. Menntun íslenskra grunnskólabarna hefur hrakað á síðastliðnum tveimur áratugum og kallað hefur verið eftir betrumbótum í menntakerfinu og sérstaklega útfærslu á samræmdu námsmati. Áreiðanlegar upplýsingar um námsárangur í grunnskólum eru afar takmarkaðar og hefur það hlotið mikla og réttmæta gagnrýni, bæði innan og utan lands.
    Í frumvarpi þessu er lagt til að komið verði á samræmdum prófum í anda þess sem tíðkaðist fyrir gildistöku laga um grunnskóla, nr. 91/2008. Að mati frumvarpshöfunda hefur reynslan sýnt að afnám samræmdu prófanna á sínum tíma hafi reynst óheillaspor og rétt sé að koma aftur á fót námsmati sem er sannarlega samræmt.

Þörf á samræmdum prófum.
    Í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) um efnahagshorfur á Íslandi er dregin dökk mynd af stöðu íslenska menntakerfisins. Í skýrslunni lýsir OECD sérstaklega yfir áhyggjum sínum af minnkandi grunnfærni íslenskra barna í PISA-könnunum, en meðaltalseinkunn Íslands hefur lækkað um yfir 40 sig á árabilinu 2006 til 2022, og varað er við því að dregið gæti úr framleiðni íslensks efnahags um yfir 5% af þeim sökum, eða um 300 milljarða kr. árlega.
    Þá gagnrýnir OECD að ekki sé notast við samræmd próf í íslenskum grunnskólum. Taka verður undir áhyggjur OECD í þessum efnum, enda eru samræmd próf lykillinn að því að meta hversu vel nemendum hefur tekist að tileinka sér viðmið aðalnámskrár. Skólapróf eru ekki samræmd og ólík milli skóla og geta jafnvel verið ólík á milli einstakra kennara innan sama skóla og gefa því ekki samræmda mynd af því hve vel nemendum hefur tekist að tileinka sér viðmið aðalnámskrár. Hvorki skólapróf né Matsferill tryggja því samræmingu, gæði, sanngirni, jafnræði eða jöfn tækifæri í menntun grunnskólabarna.
    OECD bendir einnig á að breytileiki námsárangurs á milli skóla sé lítill, hann sé almennt mjög slakur. Hins vegar er breytileiki innan skóla einn sá mesti innan OECD sem þýðir að við bregðumst mest þeim sem standa höllustum fæti. Þar sem staða nemenda er óljós alla skólagönguna vegna skorts á raunverulegum upplýsingum situr stór hluti nemenda eftir. Þá eru auknar upplýsingar með samræmdum prófum raunhæf leið til að koma til móts við þennan vanda.
    Íslenska skólakerfið er með þeim dreifstýrðustu í heimi og ábyrgðin hvað öll gæði varðar er á margra höndum. Þegar þannig háttar til er sérstaklega mikilvægt að aðalnámskrá sé skýr, samræmd próf séu regluleg og samræmd lokapróf séu framkvæmd. Það er mjög mikilvægt að allir hagaðilar, nemendur, kennarar, skólar, sveitarfélög og samfélagið allt, fái markvissa og áreiðanlega endurgjöf á hvernig nemendum gengur að tileinka sér inntak allra viðmiða aðalnámskrár. Á þetta hefur OECD ítrekað bent. Dreifstýrt menntakerfi með óljósum leiðbeiningum (aðalnámskrá) og engum markvissum, réttmætum og áreiðanlegum samræmdum prófum er dæmt til að mistakast.

Matsferill felur ekki í sér samræmt námsmat.
    Þrátt fyrir að hinn nýi Matsferill eigi að nafninu til að fela í sér samræmt námsmat er það ekki raunin þegar á hólminn er komið.
    Í fyrsta lagi hafa skólarnir mánuð til að leggja prófin fyrir nemendur sína, þ.e. skólarnir geta lagt prófin fyrir nemendur hvenær sem er á fyrirframákveðnu tímabili. Í því felst að nemendur taka þau ekki allir á sama tíma. Af því leiðir að þeir nemendur sem taka prófið seinna í prófglugganum geta orðið sér úti um upplýsingar um efni prófanna áður en þeir þreyta þau, ólíkt þeim sem taka prófið fyrstir. Hið nýja kerfi heimilar jafnvel að helmingur eins bekkjar taki prófið á öðrum degi en hinn helmingurinn. Leiðir þetta af sér að nemendur sitja ekki við sama borð við töku prófsins. Gengur fyrirkomulagið því gegn öllum sjónarmiðum um sanngirni og jafna stöðu nemenda. Samræming prófa snýst um að nemendur standi jafnfætis við próftökuna. Hafi sumir nemendur möguleika á því að fá upplýsingar um innihald prófa fyrir fram standa þeir bersýnilega betur að vígi þegar prófið er þreytt.
    Í öðru lagi hefur það komið fram í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis (MRN25010141) að sömu próf verði notuð ár eftir ár: „Notkun sama prófs í óbreyttri mynd á milli ára er nauðsynleg forsenda þess að hægt sé að meta breytingar á námsárangri yfir tíma með beinum hætti.“ Þetta fyrirkomulag kallar fram mikinn freistnivanda skóla þegar vitað er fyrir fram hvað er til prófs, sérstaklega vegna þess að verulega mikið er undir niðurstöðum Matsferils, nemendur, hópar, skólar, sveitarfélög og menntakerfið verða metin og vegin með tilliti til niðurstaðnanna.
    Í þriðja lagi eru einungis „valin“ viðmið metin í Matsferli, það „þrengir“ aðalnámskrá og rýrir réttmæti niðurstaðna verulega.
    Eins og reifað hefur verið hér að framan er hinn „samræmdi hluti“ Matsferils hvorki samræmdur né réttmætur, enda geta nemendur þreytt prófin á mismunandi tíma, einungis valin viðmið metin og vitað er fyrir fram hverjar prófspurningarnar eru þrátt fyrir að mikið sé undir niðurstöðum Matsferilsins. Hvorki Matsferill né skólapróf eru því ígildi samræmdra prófa eins og OECD og samfélagið hafa kallað eftir og því nauðsynlegt að þetta frumvarp verði að lögum sem allra fyrst, íslenskum nemendum til heilla.

Einkunnagjöf.
    Samkvæmt aðalnámskrá er skólum heimilt að ákveða sjálfir hvers konar matskvarði er notaður til að mæla árangur nemenda í 1.–9. bekk. Er skólum því heimilt að notast við m.a. tölustafi, bókstafi, tákn eða jafnvel liti við einkunnagjöf. Hjá nemendum í 10. bekk er gerð krafa um að einkunnir þeirra í samræmdu námsmati fyrir nemendur séu gefnar með bókstöfum. Matskvarðinn er skilgreindur sem sex einkunnir: A, B+, B, C+, C, og D. Einkunnirnar A, B, og C tákna viðmiðabundinn texta sem finna má í lok hvers greinarkafla í aðalnámskrá.
    Bókstafseinkunnirnar hafa sætt mikilli gagnrýni frá nemendum, foreldrum og sérfræðingum í menntamálum, en kerfið er af mörgum talið óskýrt og hafa margir foreldrar átt í erfiðleikum með að átta sig á því hvað einkunnirnar raunverulega þýða og hvernig börn þeirra standa í hverju fagi fyrir sig. Mikill misskilningur er t.d. um hvað bókstafirnir merkja og talað hefur verið um að þeir tákni eitthvert talnabil, t.d. að einkunnin C tákni 4–7, eða að bókstafirnir tákni ákveðið hlutfall nemenda, svo sem að A=10% efstu nemendur. Hvorugt er rétt enda tákna bókstafirnir viðmiðabundinn texta sem finna má í aðalnámskrá.
    Tilgangur samræmdra prófa er að meta hæfni nemenda. Séu mismunandi matskvarðar lagðir til grundvallar, líkt og er nú heimilt í 1.–9. bekk, er nær ógerningur að bera saman hæfni nemenda, enda erfitt að meta hvort munur sé á nemanda sem fær 7 í einkunn og þeim sem fær B eða bláan í einkunn. Mikilvægt er að í öllum samræmdum prófum sé sami matskvarðinn notaður til þess að tryggt sé að hæfnismatið sé það sama á milli einstakra skóla. Réttast er að notast við tölustafaeinkunnir frá 0 upp í 10 sem matskvarða, enda skýr, nákvæmur og um leið einfaldur og hefur ekki valdið neinum vandkvæðum svo vitað sé.
    Að auki skulu nemendur fá raðeinkunn sem sýnir hlutfallslega stöðu nemanda miðað við aðra sem þreyttu sama próf, merkt frá 1–100. Einnig skulu nemendur fá framfaraeinkunn sem mælir framfarir einstaklings milli ára eða prófa og sýnir hvernig nemandi hefur þróast miðað við sjálfan sig og jafnaldra sína á ákveðnu tímabili.