Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 483 — 236. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla).
Frá meiri hluta velferðarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Landssambandi eldri borgara, ÖBÍ réttindasamtökum, Félagsráðgjafafélagi Íslands og Alþýðusambandi Íslands.
Nefndinni bárust sex umsagnir auk minnisblaða frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007. Lagt er til að þeir sem hafi fengið greiddan örorkulífeyri, hlutaörorkulífeyri eða ellilífeyri eða fengið sjúkra- og endurhæfingargreiðslur, sem og þeir einstaklingar sem fengu greiddan fullan endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, á árinu 2025 skuli fá eingreiðslu í desember að upphæð 73.390 kr. Samkvæmt greinargerð með frumvarpinu er eingreiðslunni ætlað að ná til tekjulægstu greiðsluþeganna samkvæmt lögum um almannatryggingar og tekjulægstu endurhæfingarlífeyrisþeganna samkvæmt lögum um félagslega aðstoð.
Umfjöllun nefndarinnar.
Fyrir nefndinni var fjallað um að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir að aðeins þeir sem hafi haft skráð lögheimili hér á landi 1. nóvember 2025 skuli fá eingreiðslu. Í umsögn Landssambands eldri borgara, Landssamtakanna Þroskahjálpar og ÖBÍ réttindasamtaka eru gerðar athugasemdir við þetta atriði. Í umsögn ASÍ koma m.a. fram þau sjónarmið að frumvarpið samræmist ekki því markmiði að lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega, í ljósi þess hve stórs hluta lífeyrisþega frumvarpið nær til.
Í minnisblaði frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti er vísað til þess að greiðslan sé ætluð tekjulægsta hópi lífeyrisþega sem búsettur er hér á landi, enda hafi verðbólga hér verið þrálát og húsnæðiskostnaður hár, og að þau skilyrði sem lögð eru til fyrir umræddri eingreiðslu miði að því að ráðstafa því fjármagni sem gert hafi verið ráð fyrir til eingreiðslunnar á sem sanngjarnastan hátt. Tekur meiri hlutinn undir þau sjónarmið sem fram koma í minnisblaði frá ráðuneytinu og telur ekki forsendur til þess að leggja til breytingar á frumvarpinu.
Í umsögn ÖBÍ eru einnig gerðar athugasemdir við að eingreiðslan taki ekki til einstaklinga sem fá greitt ráðstöfunarfé sem heimilt er að greiða þegar örorku- eða ellilífeyrisgreiðslur falla niður vegna dvalar á stofnun hér á landi, sbr. 38. og 39. gr. laga um almannatryggingar. Ráðstöfunarfé sé tekjutengt og eigi því einungis tekjulægsti hópurinn rétt á þessum greiðslum. Markmið frumvarpsins sé að tryggja tekjulægstu greiðsluþegunum eingreiðsluna en engin málefnaleg rök séu færð fyrir því að eingreiðslan sé ekki tryggð tekjulægstu greiðsluþegunum úr hópi þeirra sem hafa lögheimili utan Íslands eða þeirra sem fá greitt ráðstöfunarfé vegna dvalar á stofnunum.
Bent er á að fyrri frumvörp um eingreiðslur hafa ekki náð til þeirra sem fá greitt ráðstöfunarfé. Því er ekki um breytingu á milli ára að ræða að þessu leyti. Telur meiri hlutinn ekki tilefni til að gera breytingar vegna þessa.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Ingibjörg Isaksen, Sigríður Á. Andersen og Sigurður Örn Hilmarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 5. desember 2025.
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, form. |
Jónína Björk Óskarsdóttir, frsm. |
Grímur Grímsson. | |
| Kristján Þórður Snæbjarnarson. | Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. | ||