Ferill 144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
2. uppprentun.

Þingskjal 487  —  144. mál.
Lagfæring. Brottfall stafliðar.

2. umræða.



Breytingartillaga


við frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (ArnaJ, PawB, ÁLÞ, SER, SSB).


     1.      Við 2. gr.
                  a.      Í stað orðanna „vanskráningargjaldi og sektum“ í 3. mgr. komi: vanskráningargjalds og sekta.
                  b.      Í stað orðanna „gjaldskyldur er af ökutæki“ í 5. mgr. komi: er gjaldskyldur vegna ökutækisins.
     2.      Við 4. gr.
                  a.      Í stað orðanna „samkvæmt lögum um virðisaukaskatt“ í 4. tölul. komi: skv. 10. mgr. 42. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
                  b.      5. tölul. orðist svo: Dráttarvél og eftirvagn hennar. Það skilyrði skal vera uppfyllt að dráttarvél og eftirvagn hennar séu til nota í landbúnaði hjá aðila sem skráður er á landbúnaðarskrá hjá ríkisskattstjóra vegna skila á virðisaukaskatti. Starfsemi sem fellur undir flokk 1 í atvinnugreinaflokkun Hagstofu Íslands, önnur en þjónusta við búrekstur, telst landbúnaður í skilningi 1. málsl.
     3.      Við 7. gr.
                  a.      Í stað orðanna „1. eða 2. mgr.“ í 6. mgr. komi: 1.–5., 7., 9. og 10. mgr.
                  b.      Við 9. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Upplýsingar um mælieiningu skulu vistaðar í ökutækjaskrá.
     4.      Í stað orðsins „margfaldaðanur“ í 3. mgr. 8. gr. komi: margfaldaður.
     5.      Við 11. gr.
                  a.      Í stað orðanna „–30 dagar“ í töflu í 2. mgr. komi: dagur eða lengur.
                  b.      Í stað orðanna „–30 daga“ í 2. málsl. 2. mgr. komi: dag eða lengur.
                  c.      Í stað 2. og 3. málsl. 3. mgr. komi nýr málsliður, svohljóðandi: Ef fast akstursgjald skv. 2. mgr. hefur verið greitt vegna ökutækis skal það koma til frádráttar kílómetragjaldi allt að þeirri fjárhæð sem ákvörðuð er skv. 1. málsl.
                  d.      Í stað 4. málsl. 3. mgr. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Kílómetragjald samkvæmt þessari málsgrein skal þó aldrei ákvarðað lægra en sem nemur föstu akstursgjaldi vegna ökutækis sem hefur verið 21 dag eða lengur hér á landi skv. 2. mgr. Gjaldskyldur aðili skal skila upplýsingum á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður til grundvallar gjaldtöku við brottför.
                  e.      Í stað orðanna „við komu ökutækis til landsins skv. 2. málsl. 1. mgr. ekki farið fram skal gjaldskyldur aðili greiða kílómetragjald út frá eftirfarandi forsendum“ í 5. mgr. komi: ökutækis sem verið hefur lengur en 30 daga samfellt hér á landi ekki verið skráð við komu og/eða brottför skal gjaldskyldur aðili greiða kílómetragjald sem hér segir.
                  f.      A-liður 5. mgr. orðist svo: Sé ökutæki innan við 10.000 kg að leyfðri heildarþyngd skal gjaldskyldur aðili greiða fast akstursgjald skv. 2. mgr. eftir því sem hæst getur orðið og að auki 500 kr. fyrir hvern dag umfram 30 daga.
     6.      Við 12. gr.
                  a.      Í stað orðsins „og“ síðara sinni í d-lið 1. mgr. 12. gr. komi: eða.
                  b.      Í stað orðanna „einn almanaksmánuður“ í 2. mgr. 12. gr. komi: 15 dagar.
     7.      15. gr. falli brott.
     8.      Við 16. gr.
                  a.      Í stað orðsins „umráðamanni“ þrisvar sinnum í 3. og 4. mgr. komi: skráningu umráðamanns.
                  b.      Við 4. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þrátt fyrir 1. málsl. skal heimilt að skrá eigendaskipti eða breytingu á skráningu umráðamanns ökutækis ef kílómetragjald, þ.m.t. bráðabirgðagreiðsla þess og eftir atvikum vanskráningargjald og annar afleiddur kostnaður, svo sem dráttarvextir, er jafnt eða lægra en 100 kr.
     9.      Í stað orðsins „útbúið“ í 2. mgr. 18. gr. komi: búið.
     10.      Við 21. gr.
                  a.      Orðin „eða Vegagerðinni“ í 1. mgr. falli brott.
                  b.      Í stað 2.–4. málsl. 3. mgr. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Fái ríkisskattstjóri innan tiltekins tíma fullnægjandi skýringar og gögn ákvarðar hann eða endurákvarðar gjald í samræmi við þær upplýsingar. Ef ekki eru lögð fram fullnægjandi gögn eða upplýsingar skal áætla ekna vegalengd til grundvallar gjaldtöku í samræmi við 3. mgr. 8. gr., þó þannig að tryggt sé að áætlun sé svo rífleg að ekki sé hætt við að akstur sé áætlaður minni en ætla mætti að hann hafi í raun verið.
     11.      Við 25. gr.
                  a.      Á undan orðunum „gjaldþyngd ökutækis“ í 1. mgr. komi: mæld.
                  b.      Í stað orðsins „leyfilega“ í 1. mgr. komi: skráða.
                  c.      Í stað orðanna „Gjald- eða skilaskyldum“ í 1. mgr. komi: Gjaldskyldum.
                  d.      Í stað orðanna „vangreidds gjalds“ í 2. mgr. komi: gjalds vegna vantalins aksturs sem upplýstur er eða áætlaður, sbr. 3. mgr. 20. gr.
     12.      Í stað orðsins „póstlagningu“ í 3. mgr. 26. gr. komi: dagsetningu.
     13.      Á eftir orðunum „bráðabirgða I–V“ í 3. mgr. 29. gr. komi: og 4. mgr. 7. gr.
     14.      Við 30. gr.
                  a.      Fyrirsögn efnisgreinar b-liðar 2. tölul. orðist svo: Endurgreiðsla vegna sjóflutninga.
                  b.      Á eftir orðinu „sjóflutningum“ fjórum sinnum og „sjóflutninga“ í b-lið 2. tölul. komi: á vörum.
                  c.      Á eftir orðunum „losunarskýrslu fyrir skip“ í b-lið 1. efnismgr. b-liðar 2. tölul. komi: upplýsingar um þær sjóferðir sem farnar voru milli hafna hér á landi.
                  d.      Við 1. efnismgr. b-liðar 2. tölul. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Skipafélag hafi fyrir 30. september ár hvert staðið skil á fjölda losunarheimilda í samræmi við 2. mgr. 12. gr. laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023, vegna losunar á því almanaksári sem umsókn um endurgreiðslu tekur til.
                  e.      Við bætist tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
     4.      Lög um bifreiðagjald, nr. 39/1988: 2. mgr. 5. gr. laganna orðast svo:
             Óheimilt er að skrá eigendaskipti að bifreið nema gjaldfallið bifreiðagjald hafi áður verið greitt. Þrátt fyrir 1. málsl. skal heimilt að skrá eigendaskipti að bifreið ef bifreiðagjald og annar afleiddur kostnaður, svo sem dráttarvextir, er jafnt eða lægra en 100 kr.
     5.      Lög um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála, nr. 120/2012: Á eftir 13. gr. laganna kemur ný grein, 13. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

        Þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá.

                     Vegagerðinni er heimilt að innheimta þjónustugjald vegna álesturs ökumæla skv. 2. mgr. 7. gr. laga um kílómetragjald á ökutæki.
                     Gjaldtaka skv. 1. mgr. skal ákveðin í gjaldskrá sem Vegagerðin setur. Við ákvörðun gjalda skal leggja til grundvallar kostnað vegna launa og launatengdra gjalda, aksturs, þjálfunar, endurmenntunar, aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, húsnæðis, starfsaðstöðu, fjarskiptabúnaðar og tækja og stjórnunar- og stoðþjónustu. Fjárhæð gjalda tekur mið af þeim kostnaði sem almennt hlýst af þjónustunni.
                     Gjaldskráin skal staðfest af ráðherra og birt í B-deild Stjórnartíðinda.
     15.      Í stað orðanna „þessari grein“ í 4. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I komi: þessu ákvæði.
     16.      Við 2. málsl. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða V bætist: og hve mikið hlutfall af þeim birgðum er endurnýjanlegt eldsneyti, sbr. lög um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi, nr. 40/2013.
     17.      Á eftir orðunum„leyfðri heildarþyngd“ og „hlutaðeigandi bifreiðar“ í 5. tölul. ákvæðis til bráðabirgða VI komi: þ.m.t. slíks samtengds ökutækis, þ.e. vagnlestar; og: eða eftir atvikum samtengds ökutækis.
     18.      Viðauki orðist svo:

    Hámark gjaldþyngdar.

Kafli
Lýsing Hámarksgjaldþyngd í kg
1 Bifreið
1.1 Tvíása bifreið 18.000
1.2 Þríása bifreið 26.000
1.3 Fjórása bifreið eða meira 32.000
2 Eftirvagn
2.1 Einása eftirvagn 10.000
2.2 Tvíása eftirvagn 18.000
2.3 Þríása eftirvagn eða meira 24.000
3 Vagnlest
3.1 Þríása vagnlest 28.000
3.2 Fjórása vagnlest 36.000
3.3 Fimmása vagnlest 40.000
3.4 Sexása vagnlest eða meira 44.000