Ferill 342. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 507  —  342. mál.




Fyrirspurn


til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um starfsmannamál háskóla.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hversu margir unnu hjá háskólum hérlendis á árunum 2015–2025? Svar óskast sundurliðað eftir árum, skólum, kennslustörfum, stjórnsýslustörfum og öðrum störfum.
     2.      Hver var launakostnaður háskólanna fyrir sama tímabil? Svar óskast sundurliðað eftir árum, skólum, kennslustörfum, stjórnsýslustörfum og öðrum störfum.


Skriflegt svar óskast.