Ferill 131. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 513 — 131. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Tryggva Mássyni um þjónustugjöld.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða þjónustugjöld hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess heimild til að innheimta, hver er fjárhæð hvers þjónustugjalds, hver er lagastoð fyrir hverju gjaldi og hvaða útreikningur eða áætlun á þeim kostnaði sem hlýst af því að veita umrædda þjónustu liggur til grundvallar hverju gjaldi? Svar óskast sundurliðað eftir stofnun.
Svarið nær til þjónustugjalda sem stofnanir innheimta vegna þjónustu sem veitt er einstaklingum og fyrirtækjum. Gjaldtaka og kostnaðarskipting vegna þjónustu milli stofnana fellur því utan við svarið.
Öllum stjórnvöldum er heimilt að innheimta þjónustugjöld vegna ljósrita eða afrita af gögnum samkvæmt gjaldskrá forsætisráðuneytisins, sbr. heimild í 3. málsl. 1. mgr. 15. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og 3. mgr. 18. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Ráðuneytið fer ekki með aðrar heimildir til töku þjónustugjalda og hið sama á við um undirstofnanir aðrar en Skattinn.
Hér fyrir neðan er gerð grein fyrir þjónustugjöldum sem Skatturinn hefur heimild til að innheimta. Rétt er að benda á að Skatturinn starfrækir fyrirtækjaskrá samkvæmt lögum nr. um ársreikninga, 3/2006, en samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta heyra þau lög undir málefnasvið atvinnuvegaráðherra og er því ekki gerð grein fyrir þjónustugjöldum er tilheyra henni í þessu svari.
Þjónustugjald Skattsins vegna bindandi álits samkvæmt gjaldskrá nr. 556/2019 byggist á lögum um bindandi álit í skattamálum, nr. 91/1998. Um er að ræða viðbótargjald vegna bindandi álita, að fjárhæð 15.000 kr. fyrir hverja klukkustund umfram 10 vinnustundir. Að baki fjárhæð gjaldsins liggur áætlun um vinnuframlag starfsfólks.
Þjónustugjöld Skattsins vegna tollafgreiðslu, tolleftirlits o.fl. byggjast á tollalögum, nr. 88/2005.
Að baki eftirfarandi gjöldum eru áætlanir um umfang. Sá kostnaður sem horft er til er launakostnaður, aksturskostnaður og annar kostnaður. Launakostnaður miðast við unnar vinnustundir eða sem fast gjald. Aksturskostnaður miðast við ákvörðun ferðakostnaðarnefndar ráðuneytisins um aksturskostnað.
Tollafgreiðsla skipa og flugvéla utan almenns tollafgreiðslutíma.
A. Almenn tollafgreiðslugjöld.
| Farþegavélar | 28.969 kr. |
| Frakt-, ferju- og einkavélar | 8.277 kr. |
| Skip, aðkomutollafgreiðsla | 24.831 kr. |
| Skip, brottfarartollafgreiðsla | 12.415 kr. |
B. Sérstök tollafgreiðslugjöld (stórhátíðardagar).
| Farþegavélar | 38.356 kr. |
| Frakt-, ferju- og einkavélar | 10.959 kr. |
| Skip, aðkomutollafgreiðsla | 32.877 kr. |
| Skip, brottfarartollafgreiðsla | 16.438 kr. |
Tollafgreiðsla skipa og flugvéla utan tollhafna.
A. Tollafgreiðslugjöld vegna tollafgreiðslu í dagvinnu tollvarða.
| Farþegavélar | 17.156 kr. |
| Frakt-, ferju- og einkavélar | 4.902 kr. |
| Skip, aðkomutollafgreiðsla | 14.705 kr. |
| Skip, brottfarartollafgreiðsla | 7.352 kr. |
B. Tollafgreiðslugjöld vegna tollafgreiðslu í yfirvinnu tollvarða.
| Farþegavélar | 28.969 kr. |
| Frakt-, ferju- og einkavélar | 8.277 kr. |
| Skip, aðkomutollafgreiðsla | 24.831 kr. |
| Skip, brottfarartollafgreiðsla | 12.415 kr. |
C. Tollafgreiðslugjöld vegna tollafgreiðslu á stórhátíðardögum.
| Farþegavélar | 38.356 kr. |
| Frakt-, ferju- og einkavélar | 10.959 kr. |
| Skip, aðkomutollafgreiðsla | 32.877 kr. |
| Skip, brottfarartollafgreiðsla | 16.438 kr. |
Að baki eftirfarandi gjöldum liggur útreiknað tímagjald, að undanskildu flösku- og vírinnsigli (110 og 130 kr.) sem byggist á innkaupsverði að viðbættu umsýslugjaldi.
– Bráðabirgðatollafgreiðsla.
– Neyðarleyfi.
– Mat á vörum vegna skemmda, vöntunar eða rýrnunar.
– Förgun vöru.
– Flutningur ótollafgreiddrar vöru á milli staða innan lands o.fl.
– Tímabundinn innflutningur og aðvinnsla landbúnaðarvara, sbr. 3 tölul. 1. mgr. 7. gr. tollalaga.
– Innsiglun: kostnaður við frarmverndarinnsigli.
– Varðstaða um borð í skemmtiferðaskipum.
– Starfsemi tollfrjálsra forðageymslna, tollfrjálsra verslana og tollfrjálsra birgðageymslna þeirra, frísvæða og umflutningsgeymslna.
– Námskeiðahald í Tollskóla ríkisins.
– Skrá yfir affermdar vörur.
– Tolleftirlit ef ótollafgreidd vara er geymd utan viðurkenndra geymslusvæða, sbr. 69. gr. tollalaga
– Förgun ótollagreiddrar vöru sem ekki verður seld nauðungarsölu eða á frjálsum markaði til lúkningar á gjaldföllnum aðflutningsgjöldum, sbr. 3. mgr. 128. gr. tollalaga.
– Kostnaður við tollskoðun, sbr. 167. gr. tollalaga.
– Kostnaður vegna atbeina þriðja aðila, sem tengist gjaldskyldri þjónustu tollstjóra, skal innheimtur samkvæmt framlögðum reikningi.