Ferill 126. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 518 — 126. mál.
Svar
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Tryggva Mássyni um þjónustugjöld.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða þjónustugjöld hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess heimild til að innheimta, hver er fjárhæð hvers þjónustugjalds, hver er lagastoð fyrir hverju gjaldi og hvaða útreikningur eða áætlun á þeim kostnaði sem hlýst af því að veita umrædda þjónustu liggur til grundvallar hverju gjaldi? Svar óskast sundurliðað eftir stofnun.
Um gjaldtökuheimildir stofnana ráðuneytisins er mælt fyrir í sérlögum. Að jafnaði er gert ráð fyrir að stofnanir afli sértekna sem dragast frá ríkisframlagi í fjárlögum.
1. Opinberir háskólar.
Opinberir háskólar hafa, auk sjálfstæðrar fjárveitingar til að mæta útgjöldum til kennslu, rannsókna og annarra verkefna á grundvelli fjárheimilda í fjárlögum hvers árs, heimild til að afla sér viðbótartekna í samræmi við 24. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, með:
a. skrásetningargjöldum sem nemendur greiða við skráningu í nám, allt að 75.000 kr. fyrir hvern nemanda á ársgrundvelli; álögð skrásetningargjöld skulu eigi skila háskóla hærri tekjum en sem nemur samanlögðum útgjöldum háskólans vegna nemendaskráningar og þjónustu við nemendur sem ekki telst til kostnaðar við kennslu og rannsóknastarfsemi,
b. gjöldum til að standa undir útgáfu staðfestra vottorða, gerð, fyrirlögn og yfirferð stöðu-, inntöku-, upptöku- og fjarprófa,
c. gjöldum fyrir þjónustu sem telst utan þeirrar þjónustu sem háskóla er skylt að veita,
d. gjöldum fyrir þjónustu sem háskóli veitir og grundvölluð er á samningi við ráðuneytið, sbr. d-lið 2. mgr. 21. gr. laga um háskóla,
e. gjöldum fyrir endurmenntun skv. 23. gr. a,
f. gjöldum fyrir fræðslu fyrir almenning,
g. umsýslu- og afgreiðslugjöldum umsókna nemenda með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins, að undanskildum Færeyjum og Grænlandi.
Í fjárlögum fyrir árið 2025 er ráðgert að opinberir háskólar afli sértekna að fjárhæð 15,4 milljarða kr. samanlagt. Þar af eru áætlaðar tekjur af skrásetningargjöldum um 1,2 milljarðar kr.
Samkvæmt 4. mgr. 24. gr. laga um opinbera háskóla setur háskólaráð nánari reglur um gjaldtöku og ráðstöfun gjalda, sbr. yfirlit að aftan.
| Gjaldtaka | Háskólinn á Akureyri | Háskólinn á Hólum | Háskóli Íslands | Landbúnaðarháskóli Íslands |
| Gjaldskrá | Reglur um gjaldskrá Háskólans á Akureyri vegna þjónustu við stúdenta og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds, nr. 1211/2020, sbr. reglur nr. 721/2023 og 300/2024. | Reglur Háskólans á Hólum um gjaldskrá vegna þjónustu við nemendur og innheimtu og ráðstöfun innritunargjalda, nr. 898/202. | Reglur um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur o.fl. og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds, nr. 244/2014, ásamt viðaukum, með síðari breytingum. | Reglur um gjaldskrá Landbúnaðarháskóla Íslands, nr. 1100/2025. |
| Skrásetningargjald* | ||||
| Skráning í nám | 75.000 kr. | 75.000 kr. | 75.000 kr. | 75.000 kr. |
| Nýskráning á vorönn | 55.000 kr. | |||
| Leyfi til skrásetningar utan skrásetningartímabils | 11.250 kr. | 10.000 kr. | ||
| Skrásetningargjald öryrkja | 37.500 kr. | 37.500 kr. | 55.000 kr. | 55.000 kr. |
| Skrásetningargjald öryrkja með álagi | 65.000 kr. | |||
| Gestanemandi á samningi | 10.000 kr. | |||
| Gestanemandi án samnings | 20.000 kr. | |||
| Skrásetningargjald, í leyfi | 10.000 kr. | |||
| Skrásetningargjald, úr leyfi | 65.000 kr. | |||
| Erlendar umsóknir | ||||
| Umsýslugjald utan EES | 50 evrur | 135 evrur | 8.000 kr. | |
| Aðgangur að húsnæði | ||||
| Gjald vegna aðgangs að húsnæði HA | 2.000 kr. | |||
| Þjónusta bókasafns | ||||
| Lánþegaréttindi | 2.500 kr. | |||
| Dagsektir | ||||
| Dagsektir, mánaðarlán og hálfsmánaðarlán | 70 kr. | |||
| Skammtímalán | 300 kr. | |||
| Millisafnalán | ||||
| Millisafnalán frá innlendum söfnum | 2.000 kr. | |||
| Millisafnalán frá Norðurlöndum | 3.000 kr. | |||
| Millisafnalán, bækur frá erlendum söfnum utan Norðurlanda | 4.000 kr. | |||
| Ljósrit greina, 1–20 bls. | 2.000 kr. | |||
| Ljósrit greina, 21 bls. eða fleiri | 3.000 kr. | |||
| Glatað rit | 8.000 kr. | |||
| Plöstun á blað | 100 kr. | 80 kr. | ||
| Gormur og glæra | 250 kr. | |||
| Skönnun | ||||
| Skönnun, einstök blöð, duplex | 2 kr. | |||
| Þjónustugjald vegna skönnunar | 1.000 kr. | |||
| Símbréf, fax | 70 kr. | |||
| Ljósritun og prentun | ||||
| A4, einstök blöð öðrum megin, svarthvítt | 10 kr. | 25 kr. | ||
| A4, einstök blöð báðum megin, svarthvítt | 15 kr. | |||
| A3, einstök blöð öðrum megin, svarthvítt | 20 kr. | |||
| A3, einstök blöð báðum megin, svarthvítt | 30 kr. | |||
| A4, einstök blöð öðrum megin | 20 kr. | 50 kr. | ||
| A4, einstök blöð báðum megin, í lit | 30 kr. | |||
| A3, einstök blöð öðrum megin, í lit | 40 kr. | |||
| A3, einstök blöð báðum megin, í lit | 60 kr. | |||
| Ljósrit | 25 kr. | |||
| Ljósrit báðum megin | ||||
| Ljósrit, löggiltur skjalapappír | 125 kr. | |||
| Þjónustuborð nemendaskrár | ||||
| Stúdentakort, rafrænt | 1.500 kr. | 1.500 kr. | ||
| Stúdentakort, rafrænt skilagjald | –1.000 kr. | |||
| Vottorð | 450 kr. | 350 kr. | 350 kr. | 500 kr. |
| Afrit brautskráningarskírteinis | 350 kr. | 350 kr. | 2.500 kr. | |
| Námsferilsyfirlit | 450 kr. | 350 kr. | 350 kr. | 2.000 kr. |
| Staðfesting á skírteini | 350 kr. | 350 kr. | ||
| Skjal sem sent er í símbréfi | 350 kr. | |||
| Þýðing eldra brautskráningarskírteinis | 2.500 kr. | |||
| Aukaafrit af staðfestu vottorði á blaðsíðu | 7 kr. | |||
| Innsiglun gagna á umslag | 50 kr. | |||
| Afrit af gögnum fyrir árið 2007 | 5.000 kr. | |||
| Námskeiðslýsing á blaðsíðu, allt að 1.800 kr. | 450 kr. | 450 kr. | ||
| Námskeiðslýsing umfram 5 bls. | 2.000 kr. | |||
| Próftaka | ||||
| Endurtökupróf | 6.000 kr. | 6.000 kr. | 6.000 kr. | |
| Próftökugjald, seinni prófatíð | 6.000 kr. | |||
| Inntökupróf í Læknadeild og Tannlæknadeild | 35.000 kr. | |||
| Inntökupróf í íslensku sem annað mál, hagnýtt nám | 15.000 kr. | |||
| Inntökupróf í íslensku fyrir nemendur með erlent stúdentspróf | 35.000 kr. | |||
| Fjarpróf utan skipulagðs fjarnáms | ||||
| Próf við HÍ sem haldið er á Íslandi | 3.000 kr. | 6.000 kr. | ||
| Hálft gjald ef próf eru fleiri en eitt | 1.500 kr. | |||
| Próf við HÍ sem haldið er erlendis | 5.000 kr. | |||
| Hálft gjald ef próf eru fleiri en eitt | 2.500 kr. | |||
| Próf annarra sem þreytt eru við HÍ utan prófatíma | 8.000 kr. | |||
| Hálft gjald ef próf eru fleiri en eitt | 4.000 kr. | |||
| Próf annarra sem þreytt eru við HÍ á prófatíma | 5.000 kr. | |||
| Hálft gjald ef próf eru fleiri en eitt | 2.500 kr. | |||
| Verklegt endurtökupróf á hesti | 10.000 kr. | |||
| Náms- og starfsráðgjöf | ||||
| Áhugakönnun Strong | 12.000 kr. | |||
| Bendill, áhugakönnun | 6.000 kr. | 6.000 kr. | ||
| Námskeið, vinnustofur, 2 stundir | ||||
| Námskeið, vinnustofur, 4 stundir | ||||
| Námskeið, vinnustofur, 6 stundir | ||||
| Námskeið, vinnustofur, 8–10 stundir | ||||
| Handbækur í lausasölu | 2.000 kr. | |||
| Prófkvíðanámskeið | 5.000 kr. | |||
| Hugræn atferlismeðferð | 6.000 kr. | |||
| Sálfræðiráðgjöf háskólanema | 2.000 kr. | |||
| Verknámsgjald | ||||
| Verknámsgjald fiskeldis innan lands | 50.000 kr. | |||
| Verknámsgjald fiskeldis erlendis | 180.000 kr. | |||
| Búfræðigjald á önn | 20.000 kr. | |||
| Þjónusta fyrir nemendahesta | ||||
| Nemendahestur, mánaðargjald | 17.500 kr. | 36.000 kr. | ||
| Sólarhringsgjald, hesthús | 2.000 kr. | |||
| Skammtímavistun án gjafar | 1.400 kr. | |||
| Hagaganga hrossa | 8.600 kr. | |||
| Hagaganga hrossa í júní–nóvember, mánaðargjald | 3.500 kr. | |||
| Hagaganga hrossa í desember–maí, mánaðargjald | 11.700 kr. | |||
| Aðgangur að reiðhöll á klst. | 1.400 kr. | |||
| Leiga á reiðhöll á klst. | 10.600 kr. | |||
| Leiga á reiðhöll, 8–12 klst. | 60.000 kr. | |||
| Upptökur á ráðstefnum og eMission | ||||
| Upptökur á ráðstefnum, fyrsta klukkustund | 10.000 kr. | |||
| Hver klukkustund eftir fyrstu klukkustund | 5.000 kr. | |||
| Fast viðbótargjald ef upptaka er utan dagvinnutíma | 20.000 kr. | |||
| eMission, hýsing og umsýsla, árgjald að lágmarki | 30.000 kr. | |||
| Tölfræðiráðgjöf við Heilbrigðisvísindasvið | ||||
| Útseld klst., 3–9 klst., nemendur HÍ og aðrir háskólar | 5.000 kr. | |||
| Útseld klst., >10 klst., nemendur HÍ og aðrir háskólar | 5.000 kr. | |||
| Útseld klst., >10 klst. og samstarfssamn., nem. HÍ og aðrir hásk. | 5.000 kr. | |||
| Kennarar og starfsfólk HÍ, 3–9 klst. | 9.500 kr. | |||
| Kennarar og starfsfólk HÍ, >10 klst. | 8.750 kr. | |||
| Kennarar og starfsfólk HÍ, >10 klst. og samstarfssamningur | 5.000 kr. | |||
| Aðrir, 3–9 klst. | 15.525 kr. | |||
| Aðrir, >10 klst. | 14.375 kr. | |||
| Aðgangseyrir að sýningunni Ljáðu mér vængi | ||||
| Almennur aðgöngumiði | 1.500 kr. | |||
| Námsmenn | 1.100 kr. | |||
| Eldri borgarar | 950 kr. | |||
| 15 manna hópur | 1.100 kr. | |||
| Hópur eldri borgara | 750 kr. | |||
| Mælingar Rannsóknastofu í íþrótta- og heilsufræði við Menntavísindasvið á líkamlegu atgervi | ||||
| Mælingar á styrk, hraða og liðleika | 15.000 kr. | |||
| Mælingar á þoli (VO2max + lactates) | 20.000 kr. | |||
| Mælingar á styrk, hraða, liðleika og þoli | 30.000 kr. | |||
| Leiga og aðstaða í Landbúnaðarháskólanum | ||||
| Ársalur á Hvanneyri, 60 sæti | 26.000 kr. | |||
| Skólastofur, 20–40 sæti | 20.000 kr. | |||
| Skólastofur, 12–18 sæti | 14.000 kr. | |||
| Salur, 100 sæti | 35.000 kr. | |||
| Rannsóknastofur á dag | 6.000 kr. | |||
| Rannsóknastofur á dag, ytri aðilar | 12.000 kr. | |||
| Kúlumölunartæki á sýni | 100 kr. | |||
| CN-efnagreining, innan skóla | 4.000 kr. | |||
| CN-efnagreining, ytri aðilar | 6.500 kr. | |||
| pH-mæling á sýni, innan skóla | 100 kr. | |||
| Aðkeypt pH-mæling | 100 kr. | |||
| Aðkeypt pH-mæling, ytri aðilar | 170 kr. | |||
| Licor-ljóstillífunartæki á dag | 25.000 kr. | |||
| Myndavél á dróna á dag | 5.000 kr. | |||
| Gasmæling á dag | 10.000 kr. |
*) Skrásetningargjald er bókfært hjá sameiginlegum rekstri hvers háskóla. Háskólaráð hvers háskóla ráðstafar skrásetningargjaldi meðal kostnaðarliða sem falla undir gjaldið lögum samkvæmt. Skrásetningargjaldi er ráðstafað meðal kostnaðarliða vegna annarrar þjónustu við nemendur sem telst ekki til kostnaðar við kennslu og rannsóknarstarfsemi, og vegna kynningarstarfs, nýnemadaga, alþjóðasviðs, þjónustu skrifstofustjóra, aðgangs að tölvukerfi og annarrar upplýsingaþjónustu. Heimilt er að ráðstafa hlutfalli innheimtra skrásetningargjalda til stúdentafélaga og stofnana stúdenta í samræmi við gerða samninga við viðkomandi félög. Samkvæmt rauntölum úr bókhaldi Háskóla Íslands hefði skrásetningargjald þurft að vera um 180.000 kr. á árinu 2024 til að standa undir skilgreindum útgjöldum. Samkvæmt rauntölum úr bókhaldi Háskólans á Akureyri árið 2024 námu sömu kostnaðarliðir 160.000 kr. og hjá Landbúnaðarháskóla Íslands nam kostnaðurinn um 232.000 kr. fyrir árið 2024. Önnur gjöld í gjaldskrám opinberra háskóla eru reiknuð á kostnaðargrunni.
2. Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Ráðherra setur að fengnum tillögum stjórnar Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum gjaldskrá fyrir stofnunina, sbr. 8. gr. laga um Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, nr. 67/1990. Gjaldskrá fyrir þjónusturannsóknir sem Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum annast var birt í B-deild Stjórnartíðinda sem auglýsing nr. 1589/2024 og er svohljóðandi:
„1. gr.
| Gjaldskrárnúmer | Lýsing | Gjald í kr. á klst. | Verð kr. með vsk. | ||
| 11 | Útseld vinna sérfræðings á klst. | 19.076 | 23.654 | ||
| 13 | Flutningskostnaður, vara send innan höfuðborgarsvæðisins, á sendingu | 2.749 | 3.409 | ||
| 17 | Umsýslugjald, undirbúningur sýna, skráning og svörun, á sýnaskráningu | 3.646 | 4.521 | ||
| 18 | Umsýslugjald vegna endurútgáfu vottorða á sýnaskráningu | 3.646 | 4.521 | ||
| 2. gr. | |||||
| Sala á eigin framleiðslu og umönnun tilraunadýra: | |||||
| Bóluefni | |||||
| Verð kr. | Verð kr. með vsk. | ||||
| 100 | Blandað bóluefni | / 50 ml | 1.892 | 2.346 | |
| 101 | Lungnapestarbóluefni | / 50 ml | 1.492 | 1.850 | |
| 102 | Lambablóðsóttarsermi | / 20 ml | 4.715 | 5.847 | |
| Blóð og blóðafurðir | Verð kr. | Verð kr. með vsk. | |||
| 110 | Hestablóð, defibrinerað | / 30 ml | 1.784 | 2.212 | |
| 111 | Hestablóð, defibrinerað | / 100 ml | 5.492 | 6.810 | |
| 112 | Kindablóð, alsever | / 100 ml | 9.507 | 11.788 | |
| 113 | Kindablóð í sitratlausn | / 30 ml | 2.998 | 3.717 | |
| 114 | Kindablóð í sitratlausn | / 100 ml | 9.058 | 11.232 | |
| 115 | Hrossasermi, hitainaktiverað | / 30 ml | 3.595 | 4.458 | |
| Önnur framleiðsla | Verð kr. | Verð kr. með vsk. | |||
| 120 | Þynningarvökvi fyrir hrútasæði | / 50 ml | 2.537 | 3.146 | |
| 130 | Blóðagar | / skál | 159 | 197 | |
| 131 | Blóðagar með salti | / skál | 159 | 197 | |
| 132 | Blóðagar með sýklalyfjum (aesculin-blóðagar með/án penicillins) | / skál | 237 | 294 | |
| 133 | Blóðagar, sérlagaðar (lágmarkspöntun 20 stk.) | / skál | 237 | 294 | |
| Sala og umönnun tilraunadýra | Verð kr. | Verð kr. með vsk. | |||
| 204 | Rottur í krufningu (frosnar) | / stk. | 12.566 | 15.581 | |
| 205 | Mýs í krufningu (frosnar) | / stk. | 3.142 | 3.896 | |
| 206 | Umhirða sauðfjár | Umhirða, 1 kind | Á dag | 697 | 864 |
| 207 | Umhirða hrossa | Innistaða, 1 hross | Á dag | 2.022 | 2.507 |
| 208 | Umhirða hrossa | Beit, 1 hross | Á dag | 171 | 213 |
| 3. gr. | |||||
| Gjald fyrir rannsóknir á innsendum sýnum sem stofnunin annast á dagvinnutíma er sem hér segir: | |||||
| Þjónusturannsóknir sameindalíffræðideildar | |||||
| Verð kr. | Verð kr. með vsk. | ||||
| 1100 | Greining og staðfesting á ætterni hesta | / sýni | 15.975 | 19.809 | |
| 1101 | Greining og staðfesting á ætterni hesta með forgangshraða | / sýni | 44.843 | 55.606 | |
| 1102 | Krufning í öryggisrannsóknahúsi P3 | 1 skipti | 32.780 | 40.648 | |
| Þjónusturannsóknir rannsóknadeildar fisksjúkdóma | |||||
| Verð kr. | Verð kr. með vsk. | ||||
| 1300 | Bakteríu-/svepparannsókn | / fisk | 4.114 | 5.102 | |
| 1301 | Bakteríu-/sveppagreining, PCR/raðgreining/úrvinnsla | / stofn | 14.741 | 18.279 | |
| 1302 | Lyfjanæmispróf | / stofn | 2.610 | 3.236 | |
| 1303 | Nýrnaveiki ELISA (einn fiskur / sýni) | / fisk | 5.217 | 6.469 | |
| 1304 | Nýrnaveiki ELISA (tveir fiskar / sýni) | / fisk | 3.482 | 4.317 | |
| 1305 | Veirurannsókn með frumurækt (allt að 5 fiskar í sýni) | / sýni | 27.019 | 33.504 | |
| 1306 | Veirugreining (skimað fyrir 4 veirutegundum) | / sýni | 12.571 | 15.588 | |
| 1307 | Vefjarannsókn, fiskar og skeldýr (fyrstu 5 sýni) | / kubb | 5.441 | 6.747 | |
| 1308 | Vefjarannsókn, fiskar og skeldýr (umfram 5 sýni) | / kubb | 3.265 | 4.048 | |
| 1309 | Vefjameinafræði, sérlitun og rannsókn, fiskar og skeldýr | / kubb | 3.273 | 4.058 | |
| 1401 | Rauntíma-PCR (One Step qPCR), ein greining | / sýni | 4.973 | 6.166 | |
| 1402 | Rauntíma-PCR (One Step qPCR), tvær greiningar | / sýni | 7.505 | 9.306 | |
| 1403 | Rauntíma-PCR (One Step qPCR), þrjár greiningar | / sýni | 10.056 | 12.470 | |
| 1404 | Rauntíma-PCR (One Step qPCR), fjórar greiningar | / sýni | 12.571 | 15.588 | |
| 1405 | Rauntíma-PCR (One Step qPCR), fimm greiningar | / sýni | 14.457 | 17.926 | |
| 1406 | Rauntíma-PCR (One Step qPCR), sex greiningar | / sýni | 15.902 | 19.718 | |
| 1407 | Rauntíma-PCR (One Step qPCR), sjö greiningar | / sýni | 17.493 | 21.691 | |
| 1408 | Rauntíma-PCR (One Step qPCR), átta greiningar | / sýni | 19.241 | 23.859 | |
| 1409 | Rauntíma-PCR (One Step qPCR), níu greiningar | / sýni | 21.165 | 26.245 | |
| 1410 | Rauntíma-PCR (One Step qPCR), tíu greiningar | / sýni | 23.282 | 28.870 | |
| 1411 | Rauntíma-PCR (One Step qPCR), ellefu greiningar | / sýni | 25.610 | 31.757 | |
| 1412 | Rauntíma-PCR (One Step qPCR), tólf greiningar | / sýni | 28.171 | 34.933 | |
| Þjónusturannsóknir sníkjudýrafræðideildar | |||||
| Saursýni | Verð kr. | Verð kr. með vsk. | |||
| 1200 | Almenn sníkjudýraleit (gæludýr) | Leit (ormaegg, frumdýr) | / sýni, safnsýni | 12.998 | 16.117 |
| 1201 | Lirfur Strongyloides-orma (gæludýr) | Leit | / sýni, safnsýni | 7.971 | 9.884 |
| 1202 | Ormaegg og hníslar (búfé) | Leit og talning | / sýni, safnsýni | 7.971 | 9.884 |
| 1203 | Ormaegg og hníslar (búfé) | Leit og talning | / næstu 5 sýni | 4.008 | 4.970 |
| 1204 | Lirfur lungnaorma (sauðfé o.fl.) | Leit og talning | / sýni, safnsýni | 7.933 | 9.837 |
| 1205 | Lirfur lungnaorma (sauðfé o.fl.) | Leit og talning | / næstu 5 sýni | 4.008 | 4.970 |
| Húðsýni | |||||
| 1210 | Kláðamítlar í húðskrapi | Leit | / sýni | 10.599 | 13.143 |
| 1211 | Kláðamítlar í húðskrapi | Leit | / næstu 5 sýni | 6.676 | 8.278 |
| 1212 | Kláðamítlar í húðskrapi | Leit | / fleiri en 5 sýni | 2.166 | 2.686 |
| Líffæri | |||||
| 1220 | Sníkjudýraleit og greining | Verðflokkur I | / sýni | 7.933 | 9.837 |
| 1221 | Sníkjudýraleit og greining | Verðflokkur II | / sýni | 11.873 | 14.722 |
| 1222 | Sníkjudýraleit og greining | Verðflokkur III | / sýni | 15.786 | 19.574 |
| Meindýr / sníkjudýr | |||||
| 1230 | Greining / leit | Verðflokkur I | / sýni | 3.937 | 4.882 |
| 1231 | Greining / leit | Verðflokkur II | / sýni | 7.850 | 9.734 |
| 1232 | Greining / leit | Verðflokkur III | / sýni | 15.701 | 19.470 |
| Trikínurannsóknir | |||||
| 1240 | Trikínuleit | Safnsýni (hámark 100 g) | / safnsýni | 17.321 | 21.478 |
| Þjónusturannsóknir sýkladeildar | |||||
| Sýklaræktanir og greiningar | Verð kr. | Verð kr. með vsk. | |||
| 1500 | Almenn sýklaræktun (sýklaræktun, greining, næmi) | / ræktun | 11.701 | 14.510 | |
| 1501 | Campylobacter-ræktun (greining og talning) | / ræktun | 10.969 | 13.601 | |
| 1502 | Salmonella-ræktun | / ræktun | 11.781 | 14.609 | |
| 1503 | RapidChek Salmonella (hraðpróf) | / sýni | 8.143 | 10.097 | |
| 1504 | Listeria-ræktun (greining og talning) | / sýni | 10.831 | 13.430 | |
| 1505 | Bendibakteríur (indicator E. coli) | / ræktun | 14.840 | 18.402 | |
| 1506 | ESBL-skimun (E. coli) | / ræktun | 9.706 | 12.036 | |
| 1507 | Carba-skimun (E. coli) | / ræktun | 10.127 | 12.558 | |
| 1508 | MÓSA-skimun | / ræktun | 13.972 | 17.326 | |
| 1509 | E. coli (talning) | / sýni | 9.630 | 11.942 | |
| 1510 | Fjöldi loftháðra þyrpinga (líftala við 30°C) | / sýni | 10.831 | 13.430 | |
| 1511 | Týpugreining á hreinrækt (Salmonella o.fl.) | / stofn | 35.061 | 43.476 | |
| 1512 | Svepparæktun (ræktun, greining, næmi) | / ræktun | 22.944 | 28.451 | |
| 1513 | Næmispróf (MIC Sensititre) | / stofn | 16.004 | 19.845 | |
| 1514 | ESBL-staðfesting (MIC Sensititre) | / stofn | 21.545 | 26.715 | |
| 1515 | PCR, sýkladeild | / stofn | 13.404 | 16.621 | |
| 1516 | PCR og raðgreining, sýkladeild | / ræktun | 22.802 | 28.274 | |
| 1517 | Heilraðgreining (WGS), sýkladeild | / ræktun | 52.654 | 65.292 | |
| Mótefna- og vakagreiningar | |||||
| 1530 | Garnaveikipróf | / sýni | 2.291 | 2.841 | |
| 1531 | Salmonella, kjötsafapróf | / sýni | 2.989 | 3.707 | |
| 1532 | Toxoplasma-próf | / sýni | 6.390 | 7.923 | |
| 1533 | Plasmacytosis-próf | / sýni | 171 | 213 | |
| Þjónusturannsóknir meinafræðideildar | |||||
| Við rannsóknir á hræjum og líffærum eru aðrar nauðsynlegar rannsóknir innifaldar í gjaldinu. Ef annarra sértækra rannsókna er þörf, eða óskað er eftir þeim, er innheimt sérstaklega fyrir þær rannsóknir en þá í samráði við viðkomandi dýralækni. Í sumum tilfellum getur þurft að innheimta samkvæmt tímagjaldi. | |||||
| Krufningar | Verð kr. | Verð kr. með vsk. | |||
| 1600 | Alifuglar | Allir aldursflokkar | / 1–5 dýr | 11.738 | 14.555 |
| 1601 | Búrfuglar, nagdýr, kanínur | Allir aldursflokkar | / 1–2 dýr | 14.446 | 17.913 |
| 1602 | Hross | < 12 mánaða | / dýr | 36.114 | 44.781 |
| 1603 | Hross | > 12 mánaða | / dýr | 81.258 | 100.760 |
| 1604 | Hundar og kettir | < 3 mánaða | / 1–3 dýr | 14.446 | 17.913 |
| 1605 | Hundar og kettir | > 3 mánaða | / dýr | 36.114 | 44.781 |
| 1606 | Nautgripir | < 3 mánaða | / dýr | 12.640 | 15.674 |
| 1607 | Nautgripir | > 3 mánaða | / dýr | 18.056 | 22.389 |
| 1608 | Refir og minkar úr eldi | < 3 mánaða | / 1–3 dýr | 14.446 | 17.913 |
| 1609 | Refir og minkar úr eldi | > 3 mánaða | / dýr | 36.114 | 44.781 |
| 1610 | Sauðfé, geitur | < 7 mánaða | / 1–3 dýr | 9.029 | 11.196 |
| 1611 | Sauðfé, geitur | > 7 mánaða | / dýr | 10.834 | 13.434 |
| 1612 | Svín | < 2 vikna | / 1–5 dýr | 11.738 | 14.555 |
| 1613 | Svín | Undir 30 kg | / 1–2 dýr | 11.738 | 14.555 |
| 1614 | Svín | 30 kg og þyngri | / dýr | 11.738 | 14.555 |
| 1615 | Sýnataka úr hræjum | / hræ | 9.538 | 11.827 | |
| 1616 | Sýnataka úr líffærum | / líffæri | 4.769 | 5.914 | |
| 1617 | Sérbrennsla, umsýslugjald | / dýr | 4.769 | 5.914 | |
| 1618 | Önnur dýr, sérverkefni | Verksamningur | |||
| Líffærameinafræði | |||||
| 1630 | Vefjaskoðun | 1–3 vefjasýni/dýr | / 1–3 sýni | 18.097 | 22.441 |
| 1631 | Líffæraskoðun | 1–3 líffæri/dýr | / 1–3 sýni | 9.932 | 12.315 |
| 1632 | Mótefnalitun (þjónusta) | / sýni | 9.932 | 12.315 | |
| Vefjavinnsla og blóðmeinafræði | |||||
| 1640 | Vefjavinnsla og blóðmeinafræði | Verksamningur | |||
4. gr.
5. gr.
6. gr.
7. gr.
Í fjárlögum fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir því að Tilraunastöðin að Keldum afli 378,6 millj. kr. í sértekjur.
3. Hugverkastofan.
Í reglugerð sem ráðherra setur er kveðið á um gjöld og þóknun fyrir þjónustu sem Hugverkastofan veitir, sbr. 68. gr. laga um einkaleyfi, nr. 17/1991, 2. mgr. 53. gr. laga um hönnun, nr. 46/2001, og 65. gr. a laga um vörumerki, nr. 45/1997. Nánar er mælt fyrir um gjöldin í reglugerð um gjöld fyrir einkaleyfi, vörumerki, hönnun o.fl., nr. 1279/2024, svohljóðandi:
„I. KAFLI
Gildissvið.
1. gr.
Gjöld greiðast Hugverkastofunni nema annað sé tekið fram.
Gjöld samkvæmt reglugerð þessari eru ekki endurgreidd nema um sé að ræða ofgreidd gjöld eða árgjöld sem falla til eftir beiðni um endurveitingu réttinda, verði slíkri beiðni endanlega synjað.
II. KAFLI
Einkaleyfi.
2. gr.
Einkaleyfisumsóknir.
| Kr. | |||
| 1. | Gjald fyrir umsókn um einkaleyfi, yfirfærða alþjóðlega einkaleyfisumsókn eða beiðni um endurmat skv. 38. gr. ell.: | ||
| a. umsóknargjald | 76.000 | ||
| b. viðbótargjald fyrir hverja einkaleyfiskröfu umfram tíu | 4.900 | ||
| 2. | Gjald skv. 36. og 37. gr. ell. | 64.900 | |
| 3. | Viðbótargjald vegna viðbótarfrests til að leggja inn tilskilda þýðingu vegna yfirfærðrar umsóknar | 20.500 | |
| 4. | Umsýslugjald fyrir milligöngu við nýnæmisrannsókn hjá alþjóðlega viðurkenndri stofnun | 8.900 | |
3. gr.
Árgjöld.
| Gjaldár | Kr. | Gjaldár | Kr. | Gjaldár | Kr. |
| 1. | 13.000 | 8. | 39.000 | 15. | 79.000 |
| 2. | 13.000 | 9. | 45.000 | 16. | 85.000 |
| 3. | 13.000 | 10. | 50.000 | 17. | 92.000 |
| 4. | 24.000 | 11. | 56.000 | 18. | 98.000 |
| 5. | 27.000 | 12. | 61.000 | 19. | 105.000 |
| 6. | 30.000 | 13. | 67.000 | 20. | 111.000 |
| 7. | 35.000 | 14. | 72.000 |
Árgjald, sem greitt er innan sex mánaða frá gjalddaga skal hækka um 20%.
4. gr.
Útgáfa einkaleyfis.
| Kr. | ||
| 1. | Útgáfugjald fyrir fyrstu 40 blaðsíður einkaleyfisskjals (lýsing, einkaleyfiskröfur, teikningar og ágrip) | 40.000 |
| 2. | Viðbótargjald fyrir hverja síðu umfram 40 | 1.500 |
| 3. | Viðbótargjald fyrir hverja einkaleyfiskröfu sem bætt er við eftir innlögn umsóknar | 4.900 |
| 4. | Gjald fyrir endurútgáfu einkaleyfis | 40.000 |
| 5. | Gjald fyrir leiðréttingu á kröfum einkaleyfis og endurútgáfu | 40.000 |
5. gr.
Evrópsk einkaleyfi.
6. gr.
Viðbótarvottorð.
| Kr. | ||
| 1. | Umsóknargjald | 76.000 |
| 2. | Gjald fyrir framlengingu á viðbótarvottorði | 56.200 |
| 3. | Árgjald fyrir hvert byrjað gjaldár viðbótarvottorðs | 111.000 |
| 4. | Gjald fyrir meðhöndlun tilkynningar um nýtta undanþágu frá viðbótarvernd | 8.200 |
Árgjald skv. 3. tl. 1. mgr., sem greitt er innan sex mánaða frá gjalddaga, hækkar um 20%.
7. gr.
Takmörkun á verndarsviði.
| Kr. | ||
| Gjald fyrir beiðni um takmörkun á verndarsviði einkaleyfis | 40.000 |
8. gr.
Andmæli.
| Kr. | ||
| Tilkynning um andmæli gegn einkaleyfi | 50.000 |
9. gr.
Samtalsleit einkaleyfa.
| Kr. | |
| Þjónusta við forskoðun á nýnæmi og einkaleyfishæfi uppfinningar | 40.000 |
III. KAFLI
Vörumerki, félagamerki og ábyrgðar- og gæðamerki.
10. gr.
Umsókn eða endurnýjun merkis.
| Kr. | ||
| 1. | Umsóknar- eða endurnýjunargjald, einn vöru- eða þjónustuflokkur innifalinn | 40.600 |
| 2. | Viðbótargjald fyrir hvern vöru- og/eða þjónustuflokk umfram einn | 8.900 |
Gjöld fyrir tilnefningu á Íslandi í umsókn um alþjóðlega skráningu vörumerkis eða vegna endurnýjunar þeirra eru greidd til Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO).
11. gr.
Breyting á merki, reglum eða beiðni um hlutun.
| Kr. | |
| Beiðni um breytingu samkvæmt 1. eða 2. mgr. 24. gr. vml. | 10.000 |
| Beiðni um hlutun umsóknar eða skráningar | 29.900 |
12. gr.
Andmæli og afnám skráningar.
| Kr. | |
| Tilkynning um andmæli eða krafa um að skráning merkis verði felld niður eða felld úr gildi | 50.000 |
13. gr.
Samanburðarleit fyrir vörumerki.
| Kr. | |
| Leit í vörumerkjaskrá að sambærilegu merki | 8.000 |
Útheimti beiðni um leit skv. 1. mgr. verulega úrvinnslu gagna eða leit í skjalasafni reiknast að auki tímagjald samkvæmt 20. gr. eftir því sem við á.
IV. KAFLI
Hönnun.
14. gr.
Umsókn um skráningu eða endurnýjun hönnunar.
| Kr. | ||
| 1. | Umsóknargjald fyrir hvert fimm ára tímabil | 24.000 |
| 2. | Umsóknargjald fyrir hverja hönnun umfram eina í samskráningu fyrir hvert fimm ára tímabil | 6.000 |
| 3. | Gjald fyrir hverja mynd umfram eina | 4.900 |
| 4. | Rannsóknargjald | 20.000 |
Ef óskað er eftir því við innlagningu umsóknar að skráning hönnunar gildi í fleiri en eitt tímabil í senn skal greiða umsóknargjald fyrir hvert tímabil sem skráningunni er ætlað að ná yfir.
Fyrir endurnýjun á skráningu hönnunar skal greiða eftir því sem við á:
| Kr. | ||
| 1. | Endurnýjunargjald fyrir hvert fimm ára tímabil | 43.000 |
| 2. | Endurnýjunargjald fyrir hverja hönnun umfram eina í samskráningu fyrir hvert fimm ára tímabil | 14.800 |
15. gr.
Brottfall skráningar.
| Kr. | |
| Gjald vegna kröfu um að skráning verði felld úr gildi |
15.000
|
V. KAFLI
Ýmis ákvæði.
16. gr.
Umsýsla alþjóðlegra umsókna.
| Kr. | |
| Umsýslugjald fyrir móttöku og meðhöndlun alþjóðlegrar einkaleyfis-, vörumerkja- eða hönnunarumsóknar | 20.300 |
17. gr.
Endurupptaka og endurveiting réttinda.
| Kr. | |
| Gjald fyrir beiðni um endurupptöku | 13.000 |
| Gjald fyrir beiðni um endurveitingu réttinda til einkaleyfis eða hönnunar | 50.000 |
18. gr.
Innfærsla í málaskrá.
| Kr. | |
| Gjald fyrir beiðni um innfærslu upplýsinga um aðilaskipti, nytjaleyfi eða veðsetningu |
8.200
|
| Gjald fyrir beiðni um aðrar innfærslur í málaskrá, svo sem breyting á nafni eða heimilisfangi umsækjanda/eiganda, breyting á tegund merkis, tilgreiningu vöru og/eða þjónustu eða breytingar varðandi umboðsmann |
4.200
|
19. gr.
Afrit af gögnum í málaskrá.
| Kr. | ||
| 1. | Rafrænt afrit af umsókn eða af veittu einkaleyfi, skráðu merki eða hönnun eða öðrum skjölum úr skjalavistunarkerfi | 1.500 |
| 2. | Staðfest afrit af skjölum skv. 1. tl. eða útgáfa forgangsréttarskjals | 5.400 |
| 3. | Útprentun eða ljósritun gagna, hver síða í stærðinni A4 | 400 |
Ef beiðni um afrit skv. 1. mgr. útheimtir verulega úrvinnslu gagna eða leit í skjalasafni reiknast að auki tímagjald samkvæmt 20. gr. eftir því sem við á.
20. gr.
Þjónustuverkefni.
| Kr. | |
| Fyrir þjónustu sem verður ekki heimfærð undir einingarverð reglugerðarinnar, svo sem umfangsmikla leit, athuganir, úrvinnslu eða tölvuútskriftir, greiðist tímagjald | 8.200 |
21. gr.
Áfrýjun.
| Kr. | |
| Gjald vegna áfrýjunar á grundvelli laga um einkaleyfi, vörumerki, hönnun eða félagamerki | 120.000 |
Áfrýjunargjald greiðist ráðuneytinu við afhendingu bréfs um áfrýjun.
Sé mál afturkallað áður en áfrýjunarnefnd er fullskipuð, málinu vísað frá áfrýjunarnefnd eða það vinnst skal ráðuneytið endurgreiða 100.000 kr.“
Hugverkastofan þiggur ekki framlag úr ríkissjóði. Í fjárlögum fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir að Hugverkastofan afli 783 millj. kr. í sértekjur.
Gjaldtökuheimildir safna.
Samkvæmt 19. gr. safnalaga, nr. 141/2011, er öllum viðurkenndum söfnum, sem falla undir lögin, heimil taka aðgangseyris, auk gjalda fyrir þjónustu sína, svo sem lán á munum, ljósmyndun muna, afrit af ljósmyndum, sérunnar munaskrár og úttak tölvugagna, sérfræðilega heimildaþjónustu, fjölföldun og hvers konar aðra þjónustu til að standa straum af kostnaði. Söfnin setja gjaldskrá um framangreinda gjaldtöku. Ákvörðun um aðgangseyri og aðra gjaldtöku annarra safna er í höndum eigenda þeirra.
4. Þjóðskjalasafn Íslands.
Í lögum um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014, er mælt fyrir um gjaldtökuheimildir Þjóðskjalasafns Íslands í 48. gr. a, svohljóðandi:
„Þjóðskjalasafn Íslands skal setja sér gjaldskrá þar sem kveðið er á um gjald fyrir eftirfarandi þjónustu:
a. móttöku skjala, vörslu þeirra og meðferð þegar héraðsskjalasafn hættir starfsemi, sbr. 3. mgr. 10. gr.,
b. móttöku, vörslu, ráðgjöf um skjalahald og eftirlit vegna skjala sem sveitarfélög afhenda safninu, sbr. 4. mgr. 14. gr.,
c. móttöku, frágang og flutning skjala afhendingarskylds aðila sem hættir starfsemi eða er lagður niður, sbr. 5. mgr. 15. gr.,
d. geymslu skjala á pappír sem afhent eru safninu áður en þau hafa náð 30 ára aldri þar til þau ná þeim aldri, sbr. 8. mgr. 15. gr.,
e. varðveislu og eyðingu skjala frá þrotabúum, sbr. 9. mgr. 15. gr.,
f. miðlun efnis frá sveitarfélagi sem ekki starfrækir héraðsskjalasafn, sbr. 20. gr.,
g. vinnu við að veita aðgang að gögnum þrotabús eða öðrum óflokkuðum skjölum, svo og fyrir aukna rannsóknarvinnu, sbr. 3. mgr. 44. gr.,
h. ljósritun og afritun gagna sem afhent eru, sbr. 4. mgr. 44. gr.
Gjaldskrá Þjóðskjalasafns Íslands skal staðfest af ráðherra og birt í B-deild Stjórnartíðinda. Gjaldskráin skal einnig birt á vef Þjóðskjalasafns Íslands. Heimilt er að kveða á um árlega verðlagsuppfærslu í gjaldskránni og skal þá gildandi verð á hverjum tíma birtast á vef safnsins.
Héraðsskjalasöfnum er heimilt að setja sér gjaldskrá þar sem kveðið er á um gjaldtöku fyrir þjónustu skv. b-, c-, d-, g- og h-lið 1. mgr. Gjaldskrá héraðsskjalasafns skal sett af stjórn safns, sveitarstjórn eða stjórn byggðasamlags, eftir því sem við á, og birt á aðgengilegan hátt.
Gjaldskrár opinberra skjalasafna skulu miða við þann kostnað sem hlýst af varðveislu skjala með hliðsjón af eðli þeirra og magni. Gjöld skulu ekki vera hærri en raunkostnaður af þeim kostnaðarliðum sem þeim er ætlað að standa undir að teknu tilliti til húsnæðiskostnaðar, launa starfsfólks sem sinnir þjónustunni, sérstaks efniskostnaðar vegna þjónustunnar og eðlilegra afskrifta af þeim búnaði sem notaður er við veitingu þjónustunnar.“
Gjaldskrá Þjóðskjalasafns Íslands, sem hefur verið staðfest af ráðherra, er birt í B-deild Stjórnartíðinda sem auglýsing nr. 1360/2021, svohljóðandi:
„1. gr.
Gildissvið.
2. gr.
Ljósritun og afritun gagna úr safnkosti.
| Lýsing | Verð kr. |
| Ljósritun A3/A4 pr. bls. | 170 |
| Rafrænt afrit – lággæði pr. mynd | 150 |
| Rafrænt afrit – hágæði pr. mynd | 1.400 |
| Staðfest vottorð pr. bls. | 700 |
3. gr.
Vinna og kostnaður sem til fellur við að veita aðgang að þrotabúum
og öðrum óskráðum og óflokkuðum skjalasöfnum.
| Lýsing | Verð kr. |
| Tímavinna starfsmanns | 8.100 |
| Ljósritun A3/A4 pr. bls. | 170 |
| Rafrænt afrit – lággæði pr. mynd | 150 |
| Rafrænt afrit – hágæði pr. mynd | 1.400 |
| Staðfest vottorð pr. bls. | 700 |
4. gr.
Móttaka, frágangur og flutningur skjalasafna afhendingarskylds aðila
sem hefur hætt starfsemi eða verið lagður niður, skv. reglugerð nr. 1236/2021.
| Lýsing | Verð kr. |
| Tímavinna starfsmanns | 8.100 |
| Kostnaður við umbúðir á hillumetra | 8.800 |
5. gr.
Varðveisla pappírsskjala afhendingarskyldra aðila
sem eru yngri en 30 ára, skv. reglugerð nr. 1236/2021.
| Lýsing | Verð kr. |
| Varðveisla pappírsskjala pr. hillumetra á ári | 6.000 |
Vörslukostnaður fyrir pappírsskjöl sem eru yngri en 30 ára frá afhendingarskyldum aðilum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. 1.–4. tölulið 1. mgr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn sem hafa verið lagðir niður skal greiddur af því ráðuneyti eða sveitarfélagi sem viðkomandi aðili heyrði undir.
6. gr.
Varðveisla skjala sveitarfélaga sem eru afhendingarskyld til Þjóðskjalasafns.
| Lýsing | Verð kr. |
| Varðveisla pappírsskjala pr. hillumetra á ári | 6.000 |
| Varðveisla rafrænna gagna pr. gígabæt á ári | 1.200 |
7. gr.
Varðveisla skjala þrotabúa í sjö ár og eyðing þeirra, skv. reglugerð nr. 1236/2021.
Gjald fyrir varðveislu skjala þrotabúa í sjö ár og eyðingu þeirra skv. 9. mgr. 15. gr. laga um opinber skjalasöfn er sem hér segir:
| Lýsing | Verð kr. |
| Varðveisla pappírsskjala pr. hillumetra á ári | 4.720 |
| Varðveisla rafrænna gagna pr. gígabæt á ári | 950 |
| Eyðing skjala pr. kg | 34“ |
Í fjárlögum fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir 93,5 millj. kr. í sértekjur Þjóðskjalasafns Íslands.
5. Kvikmyndasafn Íslands.
Heimild Kvikmyndasafns Íslands til gjaldtöku er þannig lýst í 11. gr. kvikmyndalaga, nr. 137/2001: „Kvikmyndasafni Íslands er heimilt að taka gjald fyrir eftirtalið: Útlán á kvikmyndum, kvikmyndasýningar, afritun, skönnun og stafvæðingu hliðræns efnis og sérfræðilega heimildaþjónustu og launa- og efniskostnað vegna þessara þátta. Jafnframt er safninu heimilt að taka gjald fyrir sýningu, annan flutning og rétt til eintakagerðar í samræmi við ákvæði höfundalaga, nr. 73/1972. Kvikmyndasafnið skal setja sér gjaldskrá vegna þessarar þjónustu sem ráðherra staðfestir.“
Ekki verður séð að auglýsing hafi verið birt í Stjórnartíðindum með staðfestri gjaldskrá Kvikmyndasafns Íslands.
Í fjárlögum fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir 12,5 millj. kr. sértekjum Kvikmyndasafns Íslands.
6. Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn.
Kveðið er á um gjaldtökuheimildir Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns í 8. gr. laga um safnið, nr. 142/2011, svohljóðandi:
„Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni er heimilt að innheimta gjöld fyrir þjónustu sína, svo sem útlánastarfsemi, millisafnalán, afritun, fjölföldun, ljósmyndun, sérfræðilega heimildaþjónustu, heimildaleit í gagnagrunnum og útlán á sérstökum safnkosti.
Landsbókavörður setur gjaldskrá um alla gjaldtöku skv. 1. mgr. að fenginni umsögn stjórnar. Umrædd gjöld skulu ekki vera hærri en raunkostnaður safnsins vegna þjónustunnar og er ætlað að standa straum af eftirfarandi kostnaðarþáttum við hana:
a. launum starfsfólks sem sinnir þjónustunni,
b. sérstökum efniskostnaði vegna þjónustunnar.
Safninu er heimilt að innheimta dagsektir fyrir afnot safnefnis fram yfir skilafrest og bætur fyrir safnefni sem glatast eða skemmist í meðförum notenda. Landsbókavörður setur reglur um innheimtu dagsekta og bóta að fenginni umsögn stjórnar. Skal í þeim kveðið á um að dagsektir sem lagðar eru á hvern lánþega vegna tiltekins safnefnis, eða bætur sem innheimtar eru vegna þess, megi mest nema innkaupsverði viðkomandi efnis. Þá er heimilt að mæla fyrir um að sé safnefni ófáanlegt skuli verð metið að álitum og það mat lagt til grundvallar við ákvörðun bóta eða sekta, eftir atvikum með allt að 50% álagi á sektir eða bætur ef um mikilvægt efni er að ræða.
Gjaldskrá skv. 2. og 3. mgr. skal birta notendum á aðgengilegan hátt.“
Gjaldskrá Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns eins og hún er á hverjum tíma er birt á vef safnsins.
Í fjárlögum fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir 332,1 millj. kr. sértekjum Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
7. Listasafn Íslands.
Samkvæmt 9. gr. myndlistarlaga, nr. 64/2012, sbr. 8. mgr. 6. gr., 7. og 8. gr. reglugerðar nr. 171/2014, um Listasafn Íslands, er safninu heimil gjaldtaka: „Listasafni Íslands er heimilt að taka aðgangseyri. Þá er safninu heimilt að taka gjald fyrir þjónustu sína, svo sem lán á listaverkum, ljósmyndun þeirra, afnot af ljósmyndum, hvers konar sérunnar skrár og úttak tölvugagna, sérfræðilega heimildaþjónustu og fjölföldun hvers konar til þess að standa straum af kostnaði. Safnið setur gjaldskrá um framangreinda gjaldtöku.“
Gjaldskráin er svofelld:
| Gjaldskrá Listasafns Íslands 2025 | |
| Almennur aðgangseyrir | |
| Fullorðnir 18–66 ára | 2.400 kr. |
| 67 ára og eldri | 1.200 kr. |
| Námsfólk gegn framvísun skólaskírteinis | 1.200 kr. |
| Börn 0–17 ára | 0 kr. |
| Öryrkjar og fylgdarfólk fatlaðra | 0 kr. |
| Handhafar Menningarkorts Reykjavíkur, 50% afsláttur til 31.12.2025 | 1.200 kr. |
| Handhafar Reykjavík City Card, ICOM, FÍSOS, SÍM og fjölmiðlar | 0 kr. |
| Hópur, 10–20 manns, verð á mann | 2.160 kr. |
| Hópur, fleiri en 20 manns, verð á mann | 1.920 kr. |
| Annar aðgangseyrir getur gilt fyrir sérstakar sýningar. | |
| Einn aðgöngumiði gildir í bæði safnhús LÍ. | |
| Alltaf þarf að sýna skírteini til staðfestingar fyrir afslætti. | |
| Árskort | |
| Árskort 29–66 ára | 6.000 kr. |
| Árskort +1 (29–66 ára) | 9.000 kr. |
| Árskort 67 ára og eldri | 3.000 kr. |
| Árskort 18–28 ára | 3.000 kr. |
| Árskort fyrir námsfólk | 2.400 kr. |
| Listasafnsfélagið, Textílfélagið og leiðsögumenn | 4.800 kr. |
| Handhafar árskorta fá 10% afslátt í safnverslun. | |
| Alltaf þarf að sýna skírteini til staðfestingar fyrir afslætti. | |
| Reykjavík City Card (í samstarfi við Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins) | |
| Reykjavík City Card 24 hours | 5.500 kr. |
| Reykjavík City Card 48 hours | 7.700 kr. |
| Reykjavík City Card 72 hours | 9.500 kr. |
| Útseld vinna (kr./klst.) | |
| Sérfræðingar | 18.400 kr. |
| Aðrir en sérfræðingar | 12.600 kr. |
| Akstursgjald innan höfuðborgarsvæðisins* | 3.000 kr. |
| *Greitt sérstaklega fyrir annan akstur samkvæmt reikningi sendibíls. | |
| Leiðsögn | |
| Leiðsögn á opnunartíma, alla daga auk aðgangseyris | 27.600 kr. |
| Leiðsögn utan opnunartíma er samkvæmt samkomulagi. | |
| Leiga listaverka til stofnana ríkisins | |
| Stofnkostnaður, 1–5 verk | 92.000 kr. |
| Stofnkostnaður, 6–10 verk | 128.800 kr. |
| Stofnkostnaður, fleiri en 10 verk, að lágmarki | 184.000 kr. |
| Leiga á mánuði, stærri verk og þrívíð verk | 4.898 kr. |
| Leiga á mánuði, meðalstór og minni verk | 4.205 kr. |
| *Greitt sérstaklega fyrir annan akstur samkvæmt reikningi sendibíls. | |
| Myndalán – heimildasafn | |
| Myndalán, allar stærðir, hver mynd | 14.200 kr. |
| Myndalán, 10–20 myndir, 10% afsláttur, hver mynd | 12.780 kr. |
| Myndalán, 20–40 myndir, 20% afsláttur, hver mynd | 11.360 kr. |
| Myndalán, fleiri en 40 myndir, 30% afsláttur, hver mynd | 9.940 kr. |
| Myndir til einkanota | 2.000 kr. |
| Myndaafnot í kennslu eða fyrirlestra | 2.000 kr. |
| Ljósmyndun (klst. vinna ef mynd er ekki til) | 18.400 kr. |
| Innskönnun, lágmarksgjald | 330 kr. |
| Innskönnun, hver bls. | 100 kr. |
| Innskönnun, afnot gesta | 130 kr. |
| Ljósritun, hver síða | 150 kr. |
| Höfundarréttargjald (ÁJ, FJ, GSch)* | |
| Lánþegar snúa sér fyrst til Myndstefs vegna höfundarréttargjalda. | |
| Lán til safna innan lands | |
| Stór verk, öll þrívíð verk, tvívíð verk, hæð eða breidd í ramma 160 cm+ | 15.000 kr. |
| Meðalstór verk, hæð eða breidd í ramma 31–159 cm | 10.000 kr. |
| Lítil verk, hæð eða breidd í ramma 30 cm eða minna | 10.000 kr. |
| Kostnaður við heila sýningu (eða yfir 40 verk)* | 350.000 kr. |
| Sérfræðingar | 18.400 kr. |
| Aðrir en sérfræðingar | 12.600 kr. |
| Akstursgjald innan höfuðborgarsvæðisins* | 3.000 kr. |
| *Greitt sérstaklega fyrir annan akstur samkvæmt reikningi sendibíls. | |
| Leiga sala og fundarherbergja | Með vsk. |
| Lestrarsalur Safnahússins, heill dagur | 135.000 kr. |
| Lestrarsalur Safnahússins, hálfur dagur | 95.000 kr. |
| Fundarherbergi í Safnahúsinu, heill dagur | 55.000 kr. |
| Fundarherbergi í Safnahúsinu, hálfur dagur | 45.000 kr. |
| Hver byrjuð klst. eftir lokun safnsins (lágmark 2 stm.) | 31.248 kr. |
| Myndatökur í stiga Safnahússins (brúðkaupsmyndatökur) | 20.000 kr. |
| Fríkirkjuvegur, stakur salur | 125.000 kr. |
| Fríkirkjuvegur, glerskálinn (anddyri og 2. hæð, „marmarinn“) | 125.000 kr. |
| Fríkirkjuvegur, neðri hæð, salur 1 og 2 | 170.000 kr. |
| Fríkirkjuvegur, efri hæð, salur 3 og 4 | 170.000 kr. |
| Fríkirkjuvegur, allt safnið | 420.000 kr. |
| Ásgrímssafn, leiga á efri hæð ásamt leiðsögn | 70.000 kr. |
| Vinnutími tæknimanns á klst. | 22.816 kr. |
| Vinnutími annarra starfsmanna | 15.624 kr. |
| Kaffi, te | 0 kr. |
| *Gjaldskrá miðast við opnunartíma safnsins. | |
| Hljóðkerfi og skjávarpi er innifalið í leigu á aðstöðu ásamt uppröðun stóla. | |
| Viðbótargjald er lagt á ef fundir og viðburðir byrja fyrir kl. 9 eða standa lengur en til kl. 17. | |
| Önnur notkun safnhúsa LÍ er samkvæmt samkomulagi. | |
| Tónleikar | |
| Fríkirkjuvegur, einn salur án stillingar flygils | 80.000 kr. |
| Safnahúsið, lestrarsalur án stillingar flygils | 80.000 kr. |
| Æfing utan opnunartíma samkvæmt samkomulagi | 0 kr. |
| Vinnutími tæknimanns á klst. | 18.400 kr. |
| Vinnutími annarra starfsmanna | 12.600 kr. |
| Stilling flygils samkvæmt reikningi. | |
Eftirfarandi útreikningur eða áætlun liggur að baki sérhverju gjaldi:
a. Aðgangseyrir: Ekki hefur verið gerður formlegur útreikningur á grunni aðgangseyris en m.a. haft til hliðsjónar hver aðgangseyrir er á önnur söfn hér á landi og erlendis. Boðið er upp á fjölbreyttan afslátt til eldri borgara og námsmanna. Börn yngri en 18 ára fá frítt inn sem og öryrkjar. Sérstakur afsláttur er á árskortum og lögð áhersla á námsfólk, fólk 18–28 ára og eldri en 67 ára. Allir þessir hópar njóta sérkjara á árskortum. Aðgangseyrir skilar um 5% af heildartekjum safnsins. Ekki er ætlast til þess að aðgangseyrir standi undir rekstri sýninga eða sýningarrýmis.
b. Útseld vinna: Til grundvallar er meðallaunakostnaður hjá viðkomandi starfsstétt, þ.e. sérfræðingum og öðru starfsfólki, að viðbættum launatengdum gjöldum og umsýslu.
c. Leiðsögn: Þar er tímagjald til grundvallar að viðbættum kostnaði við undirbúning leiðsagnar.
d. Leiga listaverka: Safninu er heimilt að lána og leigja stofnunum ríkisins listaverk. Nær eingöngu eru það embætti forseta Íslands, Alþingi, ráðuneyti og sendiráð Íslands erlendis. Til grundvallar leigugjaldi er útlagður kostnaður, t.d. við val á listaverkum, ráðgjöf um staðsetningu, uppsetningu verka, forvörslu, ráðgjöf um umhirðu verka, eftirlit með verkunum af hálfu Listasafnsins o.fl. Ekki liggur fyrir formlegur útreikningur á útlögðum kostnaði enda erfitt að áætla hann nákvæmlega þar sem kostnaður getur verið mjög misjafn eftir listaverkum.
e. Myndalán – heimildasafn: Hér er átt við ljósmyndir af verkum en ekki verkin sjálf. Um er að ræða lágmarksgjald vegna þjónustu, svo sem að finna réttar myndir í gæðum sem hæfa viðkomandi tilviki. Þessi þjónusta er óverulegur þáttur í sértekjum safnsins.
f. Lán til safna innan lands: Hér er um grunngjald að ræða þar sem sækja getur þurft verk í fjargeymslu, sinna forvörslu fyrir lán, fylgja verki á lánsstað og sækja. Þetta er áætlaður meðalkostnaður. Tekjur af þessum lið eru óverulegar enda er Listasafnið gjarnan þátttakandi í sýningum. Einnig er lánað til safna erlendis og þá er gerður sérstakur samningur um það.
g. Leiga sala og fundarherbergja: Nær eingöngu er leigt til stofnana ríkisins. Verð er með virðisaukaskatti. Kostnaður safnsins felst í undirbúningi funda, yfirsetu starfsfólks, tæknibúnaði og frágangi á sal.
Í fjárlögum fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir 67,5 millj. kr. sértekjum Listasafns Íslands.
8. Þjóðminjasafn Íslands.
Mælt er fyrir um gjaldtökuheimildir Þjóðminjasafns Íslands í 4. gr. laga um safnið, nr. 140/2011. Safninu er heimilt að taka aðgangseyri. Þá er safninu heimilt að taka gjald fyrir þjónustu sína, svo sem lán á munum, ljósmyndun muna, afrit af ljósmyndum, sérunnar munaskrár og úttak tölvugagna, sérfræðilega heimildaþjónustu, fjölföldun og hvers konar aðra þjónustu til að standa straum af kostnaði. Safnið setur gjaldskrá um gjaldtökuna.
Aðgangseyrir er sem hér segir:
| Safnhús við Suðurgötu í Reykjavík | |
| Fullorðinn | 3.500 kr. |
| Börn 0–17 ára | 0 kr. |
| Eldri borgarar | 1.500 kr. |
| Öryrkjar | 1.500 kr. |
| Námsmenn | 1.500 kr. |
Aðgöngumiði gildir í eitt ár frá kaupum.
| Keldur á Rangárvöllum | |
| Fullorðinn | 2.500 kr. |
| Börn 0–17 ára | 0 kr. |
| Eldri borgarar | 0 kr. |
| Öryrkjar | 1.500 kr. |
| Námsmenn | 1.500 kr. |
| Ljósmyndir |
Verð á efni í höfundarrétti | Verð á efni utan höfundarréttar |
| Einkanot | 2.500 kr. | 2.500 kr. |
| Innskönnun | 2.500 kr. | 2.500 kr. |
| Ráðstefnur, fyrirlestrar | 6.000 kr. | 3.000 kr. |
| Vefsíða einstaklings | 6.000 kr. | 3.000 kr. |
| Nemendaritgerðir, allt að 5 myndir | 3.500 kr. | 1.750 kr. |
| Kennsla, fyrirlestrar, allt að 5 myndir | 3.500 kr. | 1.750 kr. |
| Bækur, endurútgáfa, forsíða og innsíða | 9.000 kr. | 4.500 kr. |
| Dagblöð og tímarit, færri en 300 eintök | 11.200 kr. | 5.600 kr. |
| Ráðstefnur, skýrslur | 11.200 kr. | 5.600 kr. |
| Ráðstefnur, upplýsingaskilti | 11.200 kr. | 5.600 kr. |
| Vefsíða félagasamtaka | 15.600 kr. | 7.800 kr. |
| Bækur, forsíða og innsíða | 22.400 kr. | 11.200 kr. |
| Sjónvarp, kvikmyndir | 22.400 kr. | 11.200 kr. |
| Dagblöð, tímarit | 22.400 kr. | 11.200 kr. |
| Vefsíða fyrirtækis | 29.800 kr. | 14.900 kr. |
| Myndir á sýningu | 22.400 kr. | 11.200 kr. |
| Skreytingar fyrirtækja og stofnana | 22.400 kr. | 11.200 kr. |
| Vörur, minjagripir | 14.800 kr. | 7.400 kr. |
| Auglýsing í prentmiðli, heil og hálf síða | 38.000 kr. | 19.000 kr. |
| Auglýsingaherferð | 89.200 kr. | 44.600 kr. |
| Leiga á sal | |
| Fyrirlestrasalur, virkur dagur, 1–4 klst. | 78.000 kr. |
| Fyrirlestrasalur, virkur dagur, 4+ klst. | 108.000 kr. |
| Fyrirlestrasalur, um helgi, 1–4 klst. | 90.000 kr. |
| Fyrirlestrasalur, um helgi, 4+ klst. | 126.000 kr. |
| Upptaka af fyrirlestri | 24.000 kr. |
| Fyrirlestrasalur, ef komast þarf í sal fyrir kl. 10 | 24.000 kr. |
| Móttaka í myndasal | 230.000 kr. |
| Safnfræðsla | |
| Almenn leiðsögn fyrir hópa, mest 25 manns | 36.000 kr. |
Sérfræðiráðgjöf.
Ekki hefur verið greitt fyrir vinnu við sérunna munaskrá. Ekki hefur verið greitt fyrir úttekt tölvugagna. Sérfræðileg heimildaþjónusta er veitt. Almennum fyrirspurnum er svarað án þess að gjald sé almennt tekið fyrir. Þjóðminjasafnið þjónustar fræðafólk yfirleitt án endurgjalds enda litið svo á að vinna þeirra gagnist safnkosti og menningarfi.
Við ákvörðun á þjónustugjöldum Þjóðminjasafnsins eru eftirfarandi þættir lagðir til grundvallar:
* Launakostnaður: Tími starfsmanna við að finna, skanna eða veita þjónustu.
* Tækjabúnaður: Afskriftir, viðhald og notkun á ljósmyndatækjum, skönnum o.fl.
* Efni og rekstrarvörur: Pappír, ljósmyndapappír, geymsluhylki, geymslupláss á netþjónum.
* Yfirstjórn og húsnæði: Hlutfall af kostnaði við húsnæði, rafmagn og skrifstofuhald.
* Annar beinn kostnaður: Til að mynda leyfisgjöld, hugbúnaður eða utanaðkomandi þjónusta.
Í fjárlögum fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir 221,3 millj. kr. sértekjum Þjóðminjasafns Íslands.
9. Náttúruminjasafn Íslands.
Samkvæmt 6. gr. laga um Náttúruminjasafn Íslands, nr. 35/2007, er safninu heimilt að taka aðgangseyri, taka gjald fyrir lán á munum, ljósmyndun muna, afrit af ljósmyndum, sérunnar munaskrár og úttak tölvugagna, sérfræðilega heimildaþjónustu og fjölföldun hvers konar til þess að standa straum af kostnaði samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra staðfestir.
Ekki verður séð að auglýsing hafi verið birt í Stjórnartíðindum með staðfestri gjaldskrá Náttúruminjasafns Íslands, enda hefur safnið ekki sýningaraðstöðu enn sem komið er.
10. Þjóðleikhúsið.
Heimild Þjóðleikhússins til töku aðgangseyris kemur fram í 8. gr. sviðslistalaga, nr. 165/2019, svohljóðandi: „Kostnaður af þjóðleikhúsráði og rekstri Þjóðleikhússins greiðist úr ríkissjóði. Þjóðleikhúsinu er heimilt að hafa tekjur af eigin starfsemi og taka aðgangseyri.“
Í fjárlögum fyrir árið 2025 eru áætlaðar sértekjur Þjóðleikhússins 465 millj. kr.
11. Íslenski dansflokkurinn.
Heimild Íslenska dansflokksins til töku aðgangseyris kemur fram í 14. gr. sviðslistalaga, nr. 165/2019, svohljóðandi: „Kostnaður af listdansráði og rekstri Íslenska dansflokksins greiðist úr ríkissjóði. Íslenska dansflokknum er heimilt að hafa tekjur af eigin starfsemi og taka aðgangseyri.“
Í fjárlögum fyrir árið 2025 eru áætlaðar sértekjur Íslenska dansflokksins 41,6 millj. kr.
12. Hljóðbókasafn Íslands.
Heimild Hljóðbókasafns Íslands til innheimtu aðgangseyris er sótt í 19. gr. bókasafnalaga, nr. 150/2012. Árgjald er 3.000 kr. fyrir fullorðna en frítt er fyrir börn undir 18 ára aldri.
13. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Innheimta þjónustugjalda og aðgangseyris byggist á 10 gr. laga um Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, nr. 40/2006. Þar er stofnuninni heimilað að innheimta gjöld vegna ýmiss konar starfsemi sem þar er upp talin, m.a. fyrir aðgang að sýningum á vegum stofnunarinnar.
Aðgangseyrir er sem hér segir:
| Fullorðnir | 2.500 kr. |
| Námsmenn | 1.200 kr. |
| Eldri borgarar | 1.200 kr. |
| Börn yngri en 18 ára | Ókeypis |
| Öryrkjar | Ókeypis |
| Árskort | 4.500 kr. |
Gert er ráð fyrir kostnaði vegna þessa í rekstraráætlun stofnunarinnar. Þar er fyrst og fremst um að ræða launakostnað þjónustufulltrúa sem sjá um daglega þjónustu við gesti sýningarinnar en einnig er ýmiss konar óbeinn kostnaður í formi vinnu fastráðinna starfsmanna sem snýr að sýningunni. Annar óbeinn kostnaður, svo sem vegna leigu og reksturs húsnæðis, öryggisvörslu eða stjórnsýslu, liggur ekki til grundvallar útreikningum. Miðaverð á sambærilegar sýningar liggur til grundvallar við ákvarðanatöku á verði miða.
14. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.
Heimild til innheimtu þjónustugjalda er byggð á 6. gr. laga um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, nr. 129/1990.
Fyrir þjónustu starfsmanns Samskiptamiðstöðvar skal innheimta eftirfarandi:
| Hefðbundið tímagjald | 10.500 kr. |
| Aukið tímagjald | 15.000 kr. |
Stofnunin innheimtir gjald fyrir að lágmarki þrjár klukkustundir fyrir þjónustu sem fer alfarið fram utan dagvinnutíma. Tímagjald samkvæmt nýrri gjaldskrá um útselda vinnu starfsfólks er nú 10.500 kr. á dagvinnutíma og aukið tímagjald utan dagvinnutíma er 15.000 kr.
Einnig hefur stofnunin nú heimild til að innheimta akstursgjald vegna þjónustu sem innt er af hendi utan aðseturs hennar og ferðakostnað og dagpeninga ef þjónusta er veitt utan höfuðborgarsvæðisins.
Gjaldliðir fyrir táknmálsnámskeið hafa einnig verið einfaldaðir og lagaðir að áætluðum tímafjölda í samræmi við samevrópska tungumálarammann (CEFR). Táknmálsfólk og nánustu aðstandendur þess er nú undanþegið greiðslu námskeiðsgjalda á öllum táknmálsnámskeiðum stofnunarinnar en ekki aðeins á fjölskyldunámskeiðum.
Vísað er til gjaldskrár Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra, nr. 790/2024, sem birt er á vefnum island.is.