Ferill 347. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 519  —  347. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um framlag til markaðssetningar Íslands sem áfangastaðar.


Flm.: Ingibjörg Isaksen.


    Alþingi ályktar að fela atvinnuvegaráðherra að tryggja, frá og með fjárlögum næsta árs, árlegt framlag að lágmarki 1.000 millj. kr. til markaðssetningar Íslands sem áfangastaðar yfir fimm ára tímabil. Ráðstöfun árlegs framlags skal koma fram í þjónustusamningi við Íslandsstofu með skýrum árangursmælikvörðum, byggðum á stefnumiðum gildandi ferðamálastefnu og aðgerðaáætlunar til 2030. Gætt skal samráðs við alla hlutaðeigandi hagaðila.

Greinargerð.


    Markmið tillögunnar er að styrkja samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar, jafna árstíðasveiflu og dreifa álagi á viðkvæma áfangastaði og stuðla að sjálfbærri verðmætasköpun um landið allt.
    Alþingi samþykkti árið 2024 ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til ársins 2030. Þar er lögð áhersla á að tryggja langtímasýn og samkeppnishæfni, með markvissri sókn á verðmæta markaði og með því að gera ráð fyrir aðgerðum og framkvæmdum í fjárlögum og fimm ára fjármálaáætlun. Áhersla er jafnframt lögð á að markaðssetning stuðli að meiri dreifingu ferðamanna og auki gæði upplifunar. Tillaga um árlegt framlag til markaðssetningar Íslands er í góðu samræmi við fyrrgreind markmið.
    Heildarfjöldi erlendra gesta var tæplega 2,3 milljónir árið 2024, sem er svipað og metárið 2018 (um 2,34 milljónir). Þetta þýðir að fjöldi erlendra ferðamanna hefur ekki aukist frá árinu 2018 þegar fjöldinn náði hámarki þrátt fyrir umtalsverða endurheimt eftir faraldur og eldsumbrot á Reykjanesi. Markviss og stöðug markaðssetning er nauðsynleg til að efla stöðu ferðaþjónustunnar, skapa verðmæti til lengri tíma og, umfram allt, tryggja að greinin haldi stöðu sinni sem burðarás íslensks atvinnulífs.
    Síðustu ár hafa einkennst af verulegri óvissu vegna endurtekinna eldgosa og jarðhræringa á Reykjanesi og neikvæðrar alþjóðlegrar umfjöllunar um áhrif þeirra. Með langtímafjármögnun til markaðssetningar er stuðlað að jákvæðri, stöðugri og upplýstri markaðssetningu sem tekur mið af þessum áskorunum.
    Ferðaþjónustan skapar verulegar gjaldeyristekjur sem voru yfir 600 milljarðar kr. á árinu 2025. Miklir hagsmunir eru því í húfi að viðhalda stöðu og styrkleika greinarinnar. Þá er ljóst að jöfn dreifing ferðamanna um landið allt árið um kring er þjóðhagslega mikilvægt markmið, sem langtímaframlag til markaðsmála styður vel við.