Ferill 273. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 534  —  273. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um kostnað við starfslokasamninga.


     1.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir innan ráðuneytisins árlega frá árinu 2018?
    Á því tímabili sem spurt er um hefur verið gerður einn starfslokasamningur.


     2.      Hver hefur kostnaður ráðuneytisins verið vegna þessara samninga, sundurliðað eftir árum?
    
Kostnaður vegna framangreinds samnings var samtals 8,7 millj. kr. á árinu 2024 og 21 millj. kr. á árinu 2025, auk launatengdra gjalda.

     3.      Hversu margir embættismenn hafa verið fluttir til í starfi hjá ráðuneytinu frá árinu 2018, sundurliðað eftir árum og hvort það hafi verið gert á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eða á grundvelli annarra ákvæða laganna, svo sem 37. gr.?

    Á tímabilinu sem spurt er um hafa embættismenn í ráðuneytinu eingöngu verið fluttir milli staða eða starfa innan utanríkisþjónustunnar á grundvelli 10. gr. laga nr. 39/1971, um utanríkisþjónustu Íslands.