Ferill 360. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 535 — 360. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um synjun á umsóknum barna um alþjóðlega vernd.
Frá Rósu Guðbjartsdóttur.
1. Hversu mörg börn hafa fengið synjun á umsókn um alþjóðlega vernd á árinu 2025, sundurliðað eftir mánuðum, þjóðerni og aldri?
2. Hversu mörgum börnum sem sótt hafa um alþjóðlega vernd hér á landi hefur verið vísað úr landi með aðkomu ríkislögreglustjóra á árinu 2025, sundurliðað eftir mánuðum, þjóðerni og aldri?
3. Hversu mörg börn sem sótt hafa um alþjóðlega vernd hér á landi hafa farið af landi brott í sjálfviljugri heimför í samvinnu við Útlendingastofnun á árinu 2025, sundurliðað eftir mánuðum, þjóðerni og aldri?
Skriflegt svar óskast.