Ferill 299. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 540  —  299. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til fjáraukalaga IV fyrir árið 2025.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti sem komu og kynntu frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Ekki var talin þörf á að kalla eftir umsögnum um málið frekar en oftast áður um hefðbundin frumvörp til fjáraukalaga.
    Frumvarpið er fjórða fjáraukalagafrumvarp ársins. Fyrstu fjáraukalög ársins fólu í sér breytingu á 5. gr. fjárlaga vegna uppgjörs ÍL-sjóðs. Önnur fjáraukalögin fólu í sér flutning fjárheimilda vegna breyttrar skipunar Stjórnarráðsins í kjölfar ríkisstjórnarskipta. Þriðju lögin fólu í sér breytingar sem endurspegluðu forgangsmál nýrrar ríkisstjórnar. Samtals nam nettó útgjaldaaukning 1,2 ma.kr. vegna frumvarpanna, eða aðeins 0,1% af fjárheimildum.

Efni frumvarpsins.
    Lagt er til að auka fjárheimildir um 97,7 ma.kr. eða sem nemur 6,3% hækkun frá fjárlögum ársins. Það er miklu hærri fjárhæð heldur en algengt hefur verið á sl. árum. Tvær meginskýringar eru á þessu:
     –      Annars vegar 43,6 ma.kr. hækkun lífeyrisskuldbindinga ríkisstarfsmanna. Þar af eru 36 ma.kr. vegna B-deildar LSR og 7,6 ma.kr. vegna A-deildar sjóðsins. Mestan hluta hækkunarinnar, eða 35,9 ma.kr., má rekja til hækkunar launa opinberra starfsmanna þar sem vísitala skuldbindinga hækkar um 9,3% á árinu. Framlagið vegna A-deildarinnar er tilkomið vegna fjármögnunar lífeyrisaukasjóðs sem stofnaður var í tengslum við samkomulag frá árinu 2016.
     –      Hins vegar hækka vaxtagjöld um 23,9 ma.kr. vegna aukinnar skuldsetningar í A1-hluta ríkisreiknings. Uppgjör ÍL-sjóðs hækkaði skuldir A1-hluta ríkissjóðs um 300 ma.kr. en heildarskuldir samstæðu ríkissjóðs (A-hluta í heild) lækka hins vegar vegna uppgjörsins um nærri 6% af vergri landsframleiðslu. Hækkun vaxtagjalda í fjárauka skýrist annars vegar af áðurnefndu uppgjöri vegna ÍL-sjóðs og hins vegar vegna erlendrar lántöku á árinu, sem áður var áætluð árið 2026.
    Aðrar gjaldaheimildir vega samtals rúmum 30 ma.kr. af fjölmörgum ástæðum. Nokkrar þær veigamestu verða skýrðar hér í álitinu en að öðru leyti vísast til ítarlegrar greinargerðar frumvarpsins.

Helstu breytingar fjárheimilda í frumvarpinu.
    Tillögur um hækkun gjalda um 30,2 ma.kr. eru af fjölmörgum tilefnum. Mest vegur 4,8 ma.kr. vegna mikillar fjölgunar endurhæfingarlífeyrisþega, 3 ma.kr. vegna endurgreiðslu fyrir kvikmyndagerð, 2 ma.kr. vegna desembereingreiðslu til lífeyrisþega, 1,7 ma.kr. vegna skuldbindinga Fæðingarorlofssjóðs og sama fjárhæð vegna samkomulags um úrræði vegna barna með fjölþættan vanda.
    Um önnur útgjaldatilefni vísast til greinargerðar frumvarpsins. Á bls. 48 í greinargerðinni er birt tafla þar sem helstu útgjaldamál eru sundurliðuð eftir tilefnum og þau sett í samhengi við heildarfjárheimildir fjárlaga og fyrri fjáraukalaga ársins 2025.

Endurmetnar afkomuhorfur 2025 eftir framlagningu frumvarpsins.
    Endurmetnar afkomuhorfur gera ráð fyrir að halli á rekstri ríkissjóðs verði 38 ma.kr. eða 0,8% af vergri landsframleiðslu (VLF) á yfirstandandi ári í stað um 63 ma.kr. halla eða 1,3% af VLF samkvæmt því sem áætlað var í fjárlögum ársins.
    Frumjöfnuður batnar um 32,2 ma.kr. frá fjárlögum og munar öllu um auknar tekjur ríkissjóðs eða sem nemur 56 ma.kr. meðan að gjöldin hækka um 24 ma.kr. Á móti vegur að vaxtajöfnuður er lakari sem nemur 8 ma.kr.

Tekjur.
    Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að heildartekjur ársins eru áætlaðar 1.493 ma.kr. sem er 73 ma.kr. hærra en áætlun fjárlaga ársins. Hækkunina má rekja til meiri efnahagsumsvifa en ætlað var auk hærri tekjugrunns fyrra árs. Við framlagningu fjárlagafrumvarps 2026 var áætlað að tekjurnar yrðu enn hærri, eða 1.500 ma.kr., en nú hefur sú spá verið endurmetin og lækkuð um 7 ma.kr.

Gjöld.
    Heildarútgjöld ársins 2025 eru áætluð 1.531 ma.kr. á þjóðhagsgrunni eða 48 ma.kr. hærri en áætlun fjárlaga. Um helming hækkunarinnar má rekja til gjaldfærslu vaxtagjalda eða 24 ma.kr. Sú hækkun skýrist annars vegar af aukinni verðbólgu sem leiðir t.d. til 7 ma.kr. hækkunar á verðtryggðum lánum ríkisins og hins vegar af uppgjöri vegna ÍL-sjóðs og erlendrar lántöku sem upphaflega var áætlað að yrði á næsta ári.
    Frávik gjalda frá fjárlögum vegna annarra tilefna eru mest vegna 8 ma.kr. einskiptisframlags til lífeyrisaukasjóðs A-deildar LSR og 5 ma.kr. aukinna útgjalda vegna endurhæfingarlífeyris. Fjöldi notenda hefur stóraukist auk þess sem meðallengd greiðslutímabils endurhæfingar hefur lengst. Í frumvarpinu er einnig óskað eftir fjárheimildum vegna nýrra ákvarðana, svo sem 1,5 ma.kr. vegna viðhalds vega og 1 ma.kr. vegna stuðnings við Úkraínu vegna áframhaldandi stríðsátaka.

Yfirlit um ráðstöfun úr almennum varasjóði.
    Almennur varasjóður fjárlaga byggist á 24. gr. laga um opinber fjármál. Þar kemur fram að hann skuli að lágmarki nema 1% af heildarfjárheimildum málefnasviða. Skilyrði fyrir úthlutun úr sjóðnum eru þau sömu og gilda um fjáraukalög, þ.e. að útgjöld skuli vera tímabundin, ófyrirsjáanleg og óhjákvæmileg.
    Varasjóðnum er einkum ætlað að mæta hækkunum launa og verðlags umfram forsendur fjárlaga hverju sinni, auk meiri háttar ófyrirséðra útgjalda, svo sem vegna náttúruhamfara. Ekki er ætlunin að nýta varasjóð til að mæta rekstrarvanda einstakra ríkisaðila.
    Nefndin kallaði eftir upplýsingum um notkunina allt frá samþykkt laga um opinber fjármál og hefur flokkað ráðstöfunina eftir tilefnum. Þá kemur í ljós að öll árin er ráðstafað af varasjóði vegna launa-, verðlags- og gengisbreytinga eins og gert var ráð fyrir í upphafi. Athygli vekur að langflest árin er líka ráðstafað vegna náttúruhamfara, þó er um mjög misháar fjárhæðir um að ræða. Einnig er ráðstafað vegna dómkrafna í 6 tilfellum á þessum 9 árum og bendir það til þess að ástæða sé til að endurmeta framlag í fjárlögum til dómkrafna.

Breytingartillögur.
    Á lið 07.20 Nýsköpun, samkeppni og þekkingargreinar er gerð tillaga um að fella niður 3.000 m.kr. heimild sem er í frumvarpinu vegna endurgreiðslu kvikmyndagerðar.
    Nefndin var upplýst um að tillaga í frumvarpinu þess efnis að veita 3.000 m.kr. til endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar á Íslandi hafi ekki byggst á réttum forsendum og því gerist ekki þörf á heimildinni á yfirstandandi ári. Uppfærðar áætlanir gera nú ráð fyrir að útgjöldin verði í samræmi við heimildir fjárlaga.
    Á lið 10.40 Stjórnsýsla dómstólaráðuneytis er gerð tillaga um 31,2 m.kr. framlag til fjármögnunar íslensku kosningarannsóknarinnar vegna alþingiskosninga 2024. Vegna skyndilegrar boðunar alþingiskosninga í nóvember 2024 tókst ekki að tryggja fjármögnun áður en gagnaöflun þurfti að hefjast.
    Á lið 11.30 Stjórnsýsla innviðaráðuneytis er gerð tillaga um 10 m.kr. framlag vegna leiðréttingar á flutningi stjórnarmálefna við uppskiptingu ráðuneyta fyrr á árinu. Um er að ræða verkefni Fjarskiptasjóðs sem var lagður niður um síðustu áramót en fjárheimildin er hugsuð til þess að ljúka yfirstandandi verkefnum á þessu ári. Ekki er gert ráð fyrir fjárheimild á næsta ári.
    Á lið 17.10 Náttúruvernd, skógrækt og landgræðsla er lögð til tæknileg leiðrétting sem felst í því að fallið er frá 100 m.kr. millifærslu af liðnum á 15.10 Stjórnun og þróun orkumála. Þess í stað er gerð millifærsla innan málaflokks 17.10 sem er tilfærsla af fjárfestingu yfir í rekstur hjá Náttúruverndarstofnun. Tillagan hefur ekki áhrif á heildargjöld.
    Á lið 20.10 Framhaldsskólar er gerð tillaga um 282 m.kr. framlag til viðbótar við þær 847,5 m.kr. sem fyrir eru í frumvarpinu. Talsverð aukning hefur orðið á fjölda nýnema í framhaldsskólakerfinu og sérstaklega þá fjölda starfsbrautarnema. Aukningin á starfsbrautum hefur að mestu verið í flokki 10 sem er dýrasti flokkurinn þar sem nemendur þurfa umtalsverða aðstoð. Einnig hefur orðið mikil aukning í verk- og iðnnámi sem er dýrasti flokkurinn í reiknilíkaninu fyrir utan starfsbrautir. Með þessari tillögu er fullfjármögnuð sú nemendaaukning sem raungerst hefur sl. haust.
    Á lið 20.20 Tónlistarfræðsla er gerð tillaga um 290 m.kr. framlag í framhaldi af ábendingu meiri hlutans sem fram kom í nefndaráliti fyrir 2. umr. fjárlagafrumvarps 2026. Þar var bent á að fjárveitingar til tónlistarskóla á framhaldsstigi sem njóta stuðnings ríkisins hefðu dregist saman miðað við launaþróun frá því að samningur um skyldur ríkisins að þessu leyti var fyrst gerður árið 2011. Fyrir vikið hefur rekstur þeirra verið mjög erfiður, skólagjöld hafa stórhækkað og nemendum í þessu mikilvæga námi fækkað. Á undanförnum árum hefur verið skýrt ákall frá tónlistarskólum sem kennt hafa söngnám á mið- og framhaldsstigi og hljóðfæranám á miðstigi um aukið fjármagn vegna síversnandi rekstrarstöðu
    Jöfnunarsjóður sveitarfélaga ráðstafar árlegu framlagi ríkisins til sveitarfélaga í samræmi við reglur sem innviðaráðherra setur. Framlag ríkisins tekur breytingum samkvæmt almennri verðlagsuppfærslu fjárlaga hverju sinni.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem hér hefur verið gerð grein fyrir og lagðar eru til í sérstöku þingskjali.

Alþingi, 12. desember 2025.

Ragnar Þór Ingólfsson,
form., frsm.
Arna Lára Jónsdóttir. Dagur B. Eggertsson.
Eiríkur Björn Björgvinsson. Ingvar Þóroddsson.