Ferill 361. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 548 — 361. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um skólameistara framhaldsskóla.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hversu mörg embætti skólameistara framhaldsskóla voru auglýst laus til umsóknar 1. mars til 1. desember 2025?
2. Hversu mörgum skólameisturum framhaldsskóla var tilkynnt að ráðherra hygðist auglýsa embætti þeirra laust til umsóknar skv. 2. mgr. 23. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, á fyrrgreindu tímabili? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum.
3. Skipunartími hversu margra skólameistara framhaldsskóla í embætti framlengdist sjálfkrafa samkvæmt sömu grein á fyrrgreindu tímabili? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum.
Skriflegt svar óskast.