Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 554, 157. löggjafarþing 310. mál: hafnalög (frestur til endurskoðunar hafnarreglugerða og Hafnabótasjóður).
Lög nr. 91 18. desember 2025.

Lög um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (frestur til endurskoðunar hafnarreglugerða og Hafnabótasjóður).


1. gr.

     Í stað ártalsins „2026“ í ákvæði til bráðabirgða II í lögunum kemur: 2027.

2. gr.

     Ákvæði til bráðabirgða III í lögunum orðast svo:
     Þrátt fyrir ákvæði 1. tölul. 3. mgr. 26. gr. er Hafnabótasjóði heimilt, fram að samþykkt nýrrar samgönguáætlunar en þó ekki lengur en til 1. janúar 2027, að fjármagna framkvæmdir ríkisins án þess að þær séu tilgreindar í samgönguáætlun.

3. gr.

     Ákvæði til bráðabirgða IV í lögunum fellur brott.

4. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 15. desember 2025.