Ferill 192. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 562 — 192. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir (ETS-kerfið).
(Eftir 2. umræðu, 15. des.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023.
1. gr.
a. 4. tölul. orðast svo: Losun: Losun gróðurhúsalofttegunda frá upptökum í stöð eða losun frá loftfari í flugstarfsemi, sem tilgreind er í I. viðauka, eða frá skipum sem stunda sjóflutningastarfsemi, sem tilgreind er í I. viðauka, á lofttegundum sem eru tilgreindar í tengslum við viðkomandi starfsemi.
b. Orðin „hefur starfsleyfi samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og“ í 6. tölul. falla brott.
2. gr.
3. gr.
a. Á eftir orðunum „um úthlutun losunarheimilda“ kemur: og takmarkanir þar á.
b. Á eftir orðinu „orkuúttekt“ kemur: eða gert sambærilegar ráðstafanir.
c. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Í reglugerðinni skal jafnframt kveðið á um form og efni kolefnishlutleysisáætlunar og hvenær skerða skal úthlutun ef skilyrði er varða kolefnishlutleysisáætlun eru ekki uppfyllt.
4. gr.
a. Í stað orðanna „er heimilt að“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: skal.
b. Á eftir orðunum „framkvæmd orkuúttektar“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: eða sambærilegra ráðstafana.
c. Á eftir orðunum „skv. I. viðauka, einnig“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: áætlun um losun ef upplýsingar skortir, sem og.
5. gr.
a. Orðin „samkvæmt nánari reglum í reglugerð sem ráðherra setur skv. 4. mgr. 11. gr.“ í 2. mgr. falla brott.
b. Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ráðherra er þó heimilt að kveða á um það í reglugerð að víkja megi frá skyldu til að skila losunarheimildum að öllu leyti eða að hluta ef um er að ræða losun frá skipi í ísflokki eða frá skipi í tengslum við siglingu milli hafnar innan EES og hafnar utan EES, milli hafnar í EES-ríki og eyju eða ysta svæðis innan sama ríkis, eða milli landa þegar siglingin er liður í opinberri þjónustu.
c. Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Skylda til að skila inn losunarheimildum myndast hvorki vegna losunar sem staðfest er að hafi verið fönguð og flutt til varanlegrar geymslu í stöð sem hefur gildandi leyfi samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir né vegna losunar sem litið er svo á að hafi verið fönguð og notuð á þann hátt að hún sé orðin varanlega bundin með efnatengjum í vörum þannig að hún fari ekki út í andrúmsloftið við venjulega notkun, þ.m.t. við alla venjulega starfsemi sem á sér stað eftir að líftíma vörunnar lýkur. Ráðherra skal setja í reglugerð nánari ákvæði um þær kröfur sem skal uppfylla svo að líta megi á að gróðurhúsalofttegundir séu orðnar varanlega bundnar með efnatengjum.
d. Orðin „og um heimild skipa með ísflokk til að standa skil á færri losunarheimildum“ í 6. mgr. falla brott.
6. gr.
a. Í stað orðanna „flugrekenda og skipafélaga“ í 10. tölul. kemur: og flugrekenda.
b. Á eftir 15. tölul. koma tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
16. Samþykkt vöktunaráætlana vegna losunar frá starfsemi rekstraraðila, sbr. 1. mgr. 11. gr.
17. Yfirferð og umsýslu vegna úthlutunar endurgjaldslausra losunarheimilda til rekstraraðila.
7. gr.
8. gr.
Með lögum þessum er ríkisstjórninni heimilað að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun
sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 183/2025 frá 11. júlí 2025.
9. gr.
a. 1. málsl. 4. mgr. orðast svo: Viðbótarúthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til flugrekenda skv. 2. mgr. er háð skilyrði um skil flugrekenda á kolefnishlutleysisáætlun í samræmi við reglugerð ESB um efnisinnihald og uppsetningu kolefnishlutleysisáætlunar sem þörf er á vegna úthlutunar endurgjaldslausra losunarheimilda, sbr. 7. mgr. 10. gr., til Umhverfis- og orkustofnunar.
b. Í stað orðsins „skýrslu“ í 6. mgr. kemur: áætlunar.
c. Við 7. mgr. bætist: og ákvæði er varða kolefnishlutleysisáætlun skv. 4. mgr.
10. gr.
a. Í stað tilvísunarinnar „12. gr.“ í 2. mgr. kemur: 11. gr.
b. 2. mgr. undir starfseminni „Flug“ flyst og verður 3. mgr.
c. Í stað tilvísunarinnar „l-lið“ í 2. málsl. j-liðar og k-lið 3. mgr. undir starfseminni „Flug“ kemur: l- og m-lið.
II. KAFLI
Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
11. gr.
12. gr.
13. gr.