Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 570 — 1. mál.
3. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2026.
Frá meiri hluta fjárlaganefndar (RÞJ, ArnaJ, DBE, EBB, IngÞ).
Við 6. gr. Nýir liðir:
2.43 Að selja, að öllu leyti eða hluta, fasteignir og lóðir ríkisins við Lindargötu, Skuggasund og Sölvhólsgötu í Reykjavík og eignir við Spítalaveg í Garðabæ.
2.44 Að selja, að öllu leyti eða hluta, lönd eða lóðir til sveitarfélaga og/eða óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga þannig að uppbyggingin geti orðið að veruleika innan kostnaðarramma laga um almennar íbúðir.