Ferill 257. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 571  —  257. mál.
Leiðréttur texti.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

Frá Jóni Gunnarssyni.


    Á undan 38. gr. komi nýr kafli, XIII. kafli, Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með einni nýrri grein, svohljóðandi:
    Í stað „60%“ í 1. málsl. 1. mgr. 42. gr. A laganna kemur: 100%.

Greinargerð.

    Í ákvæði til bráðabirgða XLIV í lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, er kveðið á um að þrátt fyrir fyrirmæli 1. mgr. 42. gr. A skuli endurgreiðsluhlutfall þeirra lögaðila sem ákvæðið tekur til vera 100%. Það fyrirkomulag sem bráðabirgðaákvæðið mælir fyrir um hefur reynst vel og lagt er því til að 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts sem greiddur hefur verið vegna vinnu manna á byggingarstað við byggingu, viðhald eða endurbætur á mannvirkjum í þeirra eigu, eða sérgreindum matshlutum þeirra verði fest í sessi.