Ferill 144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 584 — 144. mál.
3. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki.
Frá Vilhjálmi Árnasyni.
Við 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða VI bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Fjárhæð gjalds á hvern ekinn kílómetra vegna aksturs bifreiðar í eigu ökutækjaleigu skal vera 75% af fjárhæð heildarkílómetragjalds tiltekinnar bifreiðar árið 2026 og 85% af fjárhæð heildarkílómetragjalds tiltekinnar bifreiðar árið 2027.