Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 585 — 2. mál.
3. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.
Frá Vilhjálmi Árnasyni.
1. Við 8. gr.
a. Á eftir e-lið komi nýr stafliður, svohljóðandi: Við 1. tölul. 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Hjólhýsi og tjaldvagnar.
b. Á eftir g-lið komi nýr stafliður, svohljóðandi: Orðin „aðrir tengi- og festivagnar“ í c-lið 2. tölul. 1. mgr. falla brott.
2. Á eftir 11. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 3. tölul. 1. mgr. 3. gr. skal á tímabilinu 1. janúar 2026 til og með 31. desember 2028 vörugjald lagt á tengiltvinnbifreið, þ.e. bifreið með bensín- eða dísilhreyfli og rafhreyfli fyrir ytri raforkuhleðslu, miðað við skráða losun koltvísýrings ( CO2) viðkomandi bifreiðar samkvæmt samræmdu prófunaraðferðinni, mælt í grömmum á hvern ekinn kílómetra. Gjaldið skal vera sem hér segir, en samanlagt ekki nema meira en 70% á hvert ökutæki:
a. 0,34% á hvert gramm skráðrar koltvísýringslosunar umfram 30 grömm á hvern ekinn kílómetra sé bifreið með skráða losun samkvæmt Euro 6e.
b. 0,34% á hvert gramm skráðrar koltvísýringslosunar umfram 63 grömm á hvern ekinn kílómetra sé bifreið með skráða losun samkvæmt Euro 6e-bis.
Auk vörugjalds skv. 1. mgr. skal sérstakt vörugjald lagt á bifreið skv. 2. mgr. 3. gr.