Ferill 257. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 586 — 257. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á ýmsum lögum um skatta, gjöld o.fl.
(tollar, leigutekjur o.fl.).
(Eftir 2. umræðu, 17. des.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003.
1. gr.
2. gr.
a. Í stað fjárhæðarinnar „180.000 kr.“ í 2. mgr. kemur: 300.000 kr.
b. Í stað „50%“ í 4. málsl. 3. mgr. kemur: 25%.
3. gr.
4. gr.
a. Í stað orðanna „Lánasjóður íslenskra“ kemur: Menntasjóður.
b. Á eftir orðinu „Fiskræktarsjóður“ kemur: Happdrætti Háskóla Íslands.
5. gr.
a. Á eftir „aðra fjármálagerninga“ í 2. mgr. kemur: eða sýndareignir.
b. Á eftir „þar á meðal frá“ í 9. mgr. kemur: þjónustuveitendum sýndareigna og.
c. 10. mgr. orðast svo:
Ríkisskattstjóra er heimilt að leggja dagsektir, sem geta numið allt frá 10.000 kr. til 1 millj. kr. á dag, á eftirfarandi aðila:
1. Rekstraraðila stafræns vettvangs vanræki hann skil skv. 4. mgr. Leggjast dagsektir á frá þeim degi sem rekstraraðila bar að standa skil á gögnum samkvæmt auglýsingu ríkisskattstjóra um skil á gögnum til þess dags að hann fullnægir skyldu sinni.
2. Fjármálastofnanir og þjónustuveitendur sýndareigna sé um vanrækslu á skyldu skv. 9. mgr. að ræða eða hafi viðskiptamaður verið samþykktur án þess að upplýsingaskyldu samkvæmt þeirri sömu málsgrein hafi verið fullnægt. Leggjast dagsektir á frá þeim degi sem aðila bar að standa skil á gögnum samkvæmt reglum settum skv. 9. mgr. og til þess dags að þeirri skyldu er fullnægt.
6. gr.
a. Í stað orðanna „og 2025“ og „og 2024“ í 1. málsl. kemur: 2025, 2027, 2028 og 2029; og: 2024, 2026, 2027 og 2028.
b. Í stað orðanna „og 2024“ í 2. málsl. kemur: 2024, 2026, 2027 og 2028.
7. gr.
Ákvæði laga þessara sem vísa til aðila með heimilisfesti á Evrópska efnahagssvæðinu skulu gilda á sama hátt um aðila með heimilisfesti í Bretlandi að því er varðar rétt sem tryggður er samkvæmt alþjóðasamningi sem Ísland hefur staðfest vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu.
II. KAFLI
Breyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987.
8. gr.
a. 2. mgr. orðast svo:
Álag á vanskilafé skv. 1. mgr. skal vera einn hundraðshluti (1%) af upphæð vanskilafjár fyrir hvern dag eftir eindaga, þó ekki hærra en tíu hundraðshlutar (10%).
b. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Sé staðgreiðsla ekki greidd innan mánaðar frá og með gjalddaga, sbr. 20. gr., skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er frá gjalddaga.
c. Á eftir orðinu „álagi“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: og dráttarvöxtum.
d. Á eftir orðinu „álag“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: og dráttarvexti.
e. Við 1. málsl. 4. mgr. bætist: og dráttarvöxtum.
f. Við 5. mgr. bætist: og dráttarvaxta skv. 3. mgr.
9. gr.
III. KAFLI
Breyting á lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996.
10. gr.
a. Í stað orðanna „Lánasjóður íslenskra“ kemur: Menntasjóður.
b. Á eftir orðinu „Fiskræktarsjóður“ kemur: Happdrætti Háskóla Íslands.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020.
11. gr.
V. KAFLI
Breyting á lögum um ríkisábyrgðir, nr. 121/1997.
12. gr.
VI. KAFLI
Breyting á tollalögum, nr. 88/2005.
13. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. þurfa leyfishafar sem hyggjast selja farþegum og áhöfnum millilandafara við komu til landsins gjaldskyldar vörur samkvæmt lögum um gjald af áfengi, tóbaki, nikótíni o.fl., nr. 96/1995, úr tollfrjálsri verslun, sbr. 2. mgr. 104. gr., að uppfylla skilyrði 1.–3. og 5.–9. tölul. 1. mgr. 91. gr.
14. gr.
a. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Sé erlend vara vegna ófyrirséðrar þróunar flutt inn í svo auknum mæli og við slíkar aðstæður að valdið geti innlendum framleiðendum samsvarandi vöru skaða, eða hættu á skaða, er ráðherra heimilt, að gættum ákvæðum fríverslunar- og milliríkjasamninga sem Ísland er aðili að, að grípa til sérstakra verndarráðstafana til að hamla gegn slíkum viðskiptum.
b. 3. mgr. fellur brott.
c. Við 4. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Verndarráðstafanir skulu þó ekki gilda lengur en í fjögur ár, nema fyrir liggi ákvörðun ráðherra um að nauðsynlegt sé að framlengja þær.
d. Í stað orðanna „getur skipað“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: skal skipa.
e. Á eftir orðunum „á undirboðskjörum eða með styrkjum“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: og vegna verndarráðstafana.
f. Í stað orðanna „undirboðs- eða jöfnunartolla“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: undirboðstolla, jöfnunartolla og beitingu verndarráðstafana.
g. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Álagning undirboðs- og jöfnunartolla og beiting verndarráðstafana.
15. gr.
Verndarráðstöfunum skal aðeins beitt að því marki sem þær nægja til að koma í veg fyrir eða bæta úr alvarlegu tjóni og greiða fyrir nauðsynlegri aðlögun.
Verndarráðstafanir skulu vera í formi tolla á hina erlendu vöru, óháð uppruna hennar, eða í formi magntakmarkana á innflutning sem hægt er að dreifa hlutfallslega á milli hlutaðeigandi innflutningsríkja.
Ráðherra er heimilt að gera samkomulag við annað ríki um bætur vegna þeirra afleiðinga sem af verndarráðstöfunum kunna að hljótast skv. 3. mgr. 133. gr.
Verði innlendir framleiðendur fyrir áhrifum af verndarráðstöfunum annars ríkis er ráðherra heimilt að grípa til mótvægisaðgerða í formi endurskoðunar gjalda og niðurfellingar tollívilnana.
16. gr.
a. Á eftir orðunum „undirboðs- eða jöfnunartolla“ í 1. mgr. kemur: og beita verndarráðstöfunum.
b. Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Verndarráðstöfunum má beita til bráðabirgða þar til nánari upplýsingar liggja fyrir, ef ætla má að dráttur kunni að valda tjóni. Verndarráðstafanir skulu vera í formi hækkaðra tolla og skulu ekki gilda lengur en í 200 daga.
c. Í stað orðanna „undirboðs- og jöfnunartolla“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: undirboðstolla, jöfnunartolla og verndarráðstafanir.
17. gr.
18. gr.
VII. KAFLI
Breyting á búvörulögum, nr. 99/1993.
19. gr.
VIII. KAFLI
Breyting á lögum um gistináttaskatt og innviðagjald, nr. 87/2011.
20. gr.
IX. KAFLI
Brottfall laga um úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs, nr. 151/2019.
21. gr.
X. KAFLI
Breyting á lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, nr. 55/1992.
22. gr.
23. gr.
Stjórn stofnunarinnar er heimilt að innheimta iðgjöld af munum skv. 1. og 2. mgr. 5. gr. til notkunar í atvinnustarfsemi með álagi ef vátryggingarfjárhæð eða samanlögð vátryggingarfjárhæð muna á vátryggingarstað nemur hærri fjárhæð en 5% af greiðsluskyldu stofnunarinnar skv. 1. mgr. 18. gr.
Við ákvörðun álags skal taka tillit til þeirrar áhættu sem felst í vátryggingu viðkomandi muna og kostnaðar Náttúruhamfaratryggingar Íslands við endurtryggingu þeirra.
XI. KAFLI
Breyting á lögum um gjald af áfengi, tóbaki, nikótíni o.fl., nr. 96/1995.
24. gr.
Gjaldskyldar samkvæmt lögum þessum eru einnig tollfrjálsar verslanir skv. 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005, vegna sölu eða afhendingar á áfengi.
25. gr.
26. gr.
a. Á undan 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Ríkisskattstjóri leggur á og innheimtir áfengisgjald.
b. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Gjald af áfengi sem ætlað er til sölu í tollfrjálsri verslun skv. 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005, skal greitt við afgreiðslu þess út af geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur.
c. 3. og 4. mgr. orðast svo:
Ríkisskattstjóra er heimilt að veita innflytjanda áfengis skv. 1. mgr. 2. gr. og tollfrjálsri verslun skv. 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005, greiðslufrest á áfengisgjaldi enda sé viðkomandi í skilum við ríkissjóð. Hvert uppgjörstímabil vegna greiðslufrests er einn almanaksmánuður. Gjalddagi er annar virkur dagur eftir lok hvers uppgjörstímabils. Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um skilyrði fyrir greiðslufresti.
Hvert uppgjörstímabil vegna innlendrar framleiðslu er almanaksmánuður. Framleiðandi skal ótilkvaddur gera grein fyrir áfengisgjaldi sem honum ber að standa skil á í sérstakri skýrslu á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Áfengisgjaldinu og skýrslunni skal skilað til ríkisskattstjóra eigi síðar en á gjalddaga áfengisgjalds. Gjalddagi hvers uppgjörstímabils er annar virkur dagur eftir lok þess. Skýrslu ber að skila fyrir hvert uppgjörstímabil jafnvel þótt ekki hafi verið um gjaldskyldu að ræða á tímabilinu.
27. gr.
a. Á eftir orðinu „sbr.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 4. og 6. mgr.
b. Á eftir orðinu „áfengisgjald“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: skv. 3.–6. mgr. 5. gr.
c. Í stað orðanna „eða framleiðanda áfengis“ í 4. mgr. kemur: eða tollfrjálsri verslun skv. 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005.
28. gr.
29. gr.
Gjaldskyldir samkvæmt lögum þessum eru allir þeir sem flytja inn eða framleiða tóbaksvörur hér á landi til sölu eða vinnslu.
Gjaldskyldar samkvæmt lögum þessum eru einnig tollfrjálsar verslanir skv. 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005, vegna sölu eða afhendingar á tóbaksvöru.
Gjaldskyldir eru enn fremur þeir sem flytja með sér til landsins tóbaksvöru til eigin nota svo og þeir sem fá senda tóbaksvöru erlendis frá án þess að það sé til sölu eða vinnslu enda sé ekki um fjarsölu að ræða í skilningi laga um tóbaksvarnir.
30. gr.
a. Á undan 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Gjald af innfluttri tóbaksvöru skal greitt við tollafgreiðslu hennar, sbr. þó 2. mgr.
b. Við 1. mgr. bætist: til sölu eða vinnslu.
c. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Gjaldið skal reiknast við sölu eða afhendingu tóbaksvöru frá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins til kaupanda og skiptir ekki máli hvenær eða hvernig greiðsla fer fram.
d. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Ríkisskattstjóri leggur á og innheimtir tóbaksgjald af tóbaksvöru sem ætluð er til sölu í tollfrjálsri verslun skv. 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005. Gjaldið skal greitt við afgreiðslu vörunnar út af geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur.
e. Í stað tilvísunarinnar „1. mgr.“ í 2. mgr. kemur: 2. og 3. mgr.
f. Í stað orðanna „samkvæmt þessari grein“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: skv. 2. mgr.
g. Á eftir 3. mgr. koma þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Ríkisskattstjóra er heimilt að veita tollfrjálsri verslun skv. 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005, greiðslufrest á tóbaksgjaldi skv. 3. mgr. enda sé verslunin í skilum við ríkissjóð. Hvert uppgjörstímabil vegna greiðslufrests er einn almanaksmánuður. Gjalddagi er annar virkur dagur eftir lok hvers uppgjörstímabils. Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um skilyrði fyrir greiðslufresti.
Sé tóbaksgjald ekki greitt innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er. Dráttarvextir skulu reiknaðir frá og með gjalddaga.
Verði vanskil á greiðslu tóbaksgjalds hjá tollfrjálsri verslun skv. 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005, skal ríkisskattstjóri synja aðila um frekari greiðslufrest meðan vanskil vara.
h. Í stað tilvísunarinnar „4. tölul. 2. mgr.“ í 4. mgr. kemur: 4. tölul. 4. mgr.
31. gr.
32. gr.
Tóbaksgjald skal fellt niður eða endurgreitt í eftirtöldum tilvikum:
1. Við sölu tóbaks úr landi.
2. Við innflutning og sölu á tóbaki til tollfrjálsra verslana og tollfrjálsra forðageymslna, sbr. þó 4. tölul. 4. mgr. 9. gr. Jafnframt af tóbaksvörum sem tóbaksgjald hefur verið reiknað eða greitt af en þær síðan sendar til útlanda, í tollfrjálsa verslun, í tollvörugeymslu, í tollfrjálsa forðageymslu eða á frísvæði eða þeim fargað undir eftirliti tollyfirvalda eða Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins.
33. gr.
Gjaldskyldar samkvæmt kafla þessum eru einnig tollfrjálsar verslanir skv. 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005, vegna sölu eða afhendingar á vörum skv. 10. gr. b.
34. gr.
a. Á undan 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Ríkisskattstjóri leggur á og innheimtir gjald skv. 10. gr. d.
b. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Gjald af vöru skv. 10. gr. b sem ætluð er til sölu í tollfrjálsri verslun skv. 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005, skal greitt við afgreiðslu vörunnar út af geymslusvæði fyrir ótollafgreiddar vörur.
c. Í stað 3. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Ríkisskattstjóra er heimilt að veita innflytjanda vöru skv. 1. mgr. 10. gr. c og tollfrjálsri verslun skv. 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005, greiðslufrest á gjaldi skv. 10. gr. d enda sé viðkomandi í skilum við ríkissjóð. Hvert uppgjörstímabil vegna greiðslufrests er einn almanaksmánuður. Gjalddagi er annar virkur dagur eftir lok hvers uppgjörstímabils. Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um skilyrði fyrir greiðslufresti.
Hvert uppgjörstímabil vegna innlendrar framleiðslu er almanaksmánuður. Framleiðandi skal ótilkvaddur gera grein fyrir gjaldi skv. 10. gr. d, sem honum ber að standa skil á, í sérstakri skýrslu á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Gjaldinu og skýrslunni skal skilað til ríkisskattstjóra eigi síðar en á gjalddaga. Gjalddagi hvers uppgjörstímabils er annar virkur dagur eftir lok þess. Skýrslu ber að skila fyrir hvert uppgjörstímabil jafnvel þótt ekki hafi verið um gjaldskyldu að ræða á tímabilinu.
35. gr.
a. 1. mgr. fellur brott.
b. Í eftir orðinu „gjald“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: skv. 4. mgr. 10. gr. f.
c. Orðin „sbr. 10. gr. f“ í 1. málsl. 2. mgr. falla brott.
d. Á eftir orðinu „gjald“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: skv. 10. gr. d.
e. Í stað orðanna „eða framleiðanda vöru skv. 10. gr. b“ í 5. mgr. kemur: eða tollfrjálsri verslun skv. 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005.
36. gr.
5. Af samtals 10 dósum af nikótínvörum eða 10 einnota rafrettum með 2 ml tönkum eða 20 ml af vökva til áfyllingar fyrir rafrettur sem flugverjar er hafa verið skemur en 15 daga í ferð hafa meðferðis.
6. Af samtals 20 dósum af nikótínvörum eða 20 einnota rafrettum með 2 ml tönkum eða 40 ml af vökva til áfyllingar fyrir rafrettur sem ferðamenn, skipverjar á íslenskum skipum eða skipum í leigu íslenskra aðila er hafa verið skemur en 15 daga í ferð hafa meðferðis og flugverjar, þ.m.t. flugverjar í aukaáhöfn, er hafa verið 15 daga eða lengur í ferð hafa meðferðis.
7. Af samtals 40 dósum af nikótínvörum eða 40 einnota rafrettum með 2 ml tönkum eða 80 ml af vökva til áfyllingar fyrir rafrettur sem skipverjar á íslenskum skipum eða skipum í leigu íslenskra aðila hafa meðferðis eftir að hafa verið 15 daga eða lengur í ferð.
XII. KAFLI
Breyting á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004.
37. gr.
a. Í stað fjárhæðarinnar „0,41 kr.“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 0,52 kr.
b. Í stað fjárhæðarinnar „0,13 kr.“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: 0,17 kr.
c. Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Raforkunotkun vegna raforku til kyntra hitaveitna skal undanþegin greiðslu jöfnunargjalds.
d. Í stað 2. málsl. 4. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Gjalddagi er 1. júlí ár hvert fyrir fyrstu sex mánuði þess almanaksárs og byggist gjaldið á rauntölum skv. 2. mgr. vegna fyrstu sex mánaða næstliðins árs. Gjalddagi er 1. desember ár hvert fyrir seinni sex mánuði þess almanaksárs og byggist gjaldið á rauntölum skv. 2. mgr. vegna síðustu sex mánaða næstliðins árs.
e. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Fjárhæð jöfnunargjalds skal uppfærð 1. janúar ár hvert, á grundvelli tillögu frá Umhverfis- og orkustofnun.
38. gr.
Ákvæði b-liðar 2. gr., 3. gr., b-liðar 4. gr. og b-liðar 10. gr. koma til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda 2027 og á staðgreiðsluárinu 2026 eftir því sem við á.
Við brottfall laga um úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs, nr. 151/2019, skv. 21. gr. tekur ríkissjóður við öllum réttindum og skyldum ÍL-sjóðs.
39. gr.
1. Lög um umboðsmann skuldara, nr. 100/2010: Orðið „ÍL-sjóður“ í 1. mgr. 5. gr. laganna fellur brott.
2. Lög um ríkisábyrgðir, nr. 121/1997: Orðið „ÍL-sjóður“ í 1. mgr. 7. gr. laganna fellur brott.
3. Lög um húsnæðismál, nr. 44/1998:
a. 26. gr. laganna fellur brott, ásamt fyrirsögn.
b. Orðið „ÍL-sjóðs“ í 1. málsl. 42. gr. laganna fellur brott.
c. Eftirfarandi breytingar verða á 44. gr. laganna:
1. 3. tölul. 1. mgr. fellur brott.
2. Tilvísunin „3.“ í 1. málsl. 2. mgr. fellur brott.
3. 3. málsl. 2. mgr. fellur brott.
d. 45. gr. laganna fellur brott, ásamt fyrirsögn.
e. 7. mgr. 47. gr. laganna fellur brott.
f. 5. mgr. 48. gr. laganna fellur brott.
4. Lög um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara, nr. 166/2011:
a. Orðið „ÍL-sjóður“ í 1. málsl. 1. mgr. 1. gr. laganna fellur brott.
b. Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
1. Í stað orðsins „fjögurra“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: þriggja.
2. Í stað orðanna „ÍL-sjóður skal tilnefna einn fulltrúa, Landssamtök lífeyrissjóða einn fulltrúa“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: Landssamtök lífeyrissjóða skulu tilnefna einn fulltrúa.
3. Orðið „ÍL-sjóður“ í 3. mgr. fellur brott.
c. Orðin „og ÍL-sjóðs“ í 3. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna falla brott.
5. Lög um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996: Orðið „ÍL-sjóður“ í 3. mgr. 2. gr. laganna fellur brott.
6. Lög um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, nr. 137/2019: 4. og 6. mgr. 18. gr. laganna falla brott.