Ferill 274. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 592  —  274. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um kostnað við starfslokasamninga.



     1.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir innan ráðuneytisins annars vegar og hjá undirstofnunum þess hins vegar árlega frá árinu 2018?
    Starfslokasamningar í töflu að aftan eru þeir samningar sem gerðir hafa verið á tilgreindu tímabili hjá stofnunum ráðuneytisins og fela í sér réttindi umfram það sem kveðið er á um í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Starfslokasamningar sem gerðir hafa verið við forstöðumenn stofnana ráðuneytisins teljast til samninga viðkomandi stofnunar í töflunni hér að aftan. Enginn starfslokasamningur hefur verið gerður hjá ráðuneytinu á tímabilinu eða þeim stofnunum ráðuneytisins sem ekki eru nefndar í töflunni.

Tafla 1. Fjöldi starfslokasamninga hjá stofnunum ráðuneytisins.

2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Embætti ríkissáttasemjara 3
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála 1
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 1 2 2 1 3
Skipulagsstofnun 1
Tryggingastofnun 1
Vinnueftirlitið 1 2 1 1 2
Vinnumálastofnun 1 1
                                  
     2.      Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess verið vegna þessara samninga, sundurliðað eftir árum og stofnunum?
    Kostnaður sem fram kemur í töflu að aftan er kostnaður vegna þeirra starfslokasamninga sem fram koma í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar. Starfslokasamningar sem gerðir hafa verið við forstöðumenn stofnana ráðuneytisins á tilgreindu tímabili bókast sem kostnaður viðkomandi stofnunar í töflunni hér að aftan. Kostnaður vegna starfslokasamninga er tiltekinn á því ári sem viðkomandi samningur var gerður.

Tafla 2. Kostnaður vegna starfslokasamninga stofnana ráðuneytisins í m.kr.

2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Embætti ríkissáttasemjara 64,0
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála 14,6
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 3,7 1,7 6,8 7,2 9,8
Skipulagsstofnun 11,7
Tryggingastofnun 18,5
Vinnueftirlitið 1,0 15,6 3,8 4,3 4,5
Vinnumálastofnun 4,5 2,8


     3.      Hversu margir embættismenn hafa verið fluttir til í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og undirstofnunum þess hins vegar frá árinu 2018, sundurliðað eftir árum, stofnunum og hvort það hafi verið gert á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eða á grundvelli annarra ákvæða laganna, svo sem 37. gr.?
    Hvað varðar flutning embættismanna í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og stofnunum þess hins vegar þá eru einungis taldir þeir embættismenn sem flytjast frá ráðuneyti og stofnunum til að koma í veg fyrir tvítalningu milli ráðuneyta og stofnana þeirra. Enginn flutningur embættismanna hefur átt sér stað frá þeim stofnunum sem ekki eru nefndar í töflunni hér að aftan. Þeir flutningar sem taldir eru upp í töflunni að aftan eru allir gerðir á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.

Tafla 3. Flutningur embættismanna á grundvelli 36. gr. laga, nr. 70/1996.

2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Félags- og húsnæðismálaráðuneyti 1 1
Embætti ríkissáttasemjara 1
Vinnumálastofnun 1