Ferill 368. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 602 — 368. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um Almannaheillasjóð.
Flm.: Rósa Guðbjartsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Diljá Mist Einarsdóttir.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að stofna sjóð, Almannaheillasjóð, er njóti framlaga af fjárlögum fyrir hvert ár sem nemi heildarfjárhæð þeirra eigna sem runnið hafa í ríkissjóð úr dánarbúum án erfingja á næstliðnu ári. Sjóðurinn hafi það að markmiði að styðja við almannaheillafélög sem starfa samkvæmt lögum um félög til almannaheilla. Dómsmálaráðherra skipi sjóðnum þriggja manna stjórn sem auglýsi árlega styrki til úthlutunar samkvæmt reglum sem ráðherra setji.
Greinargerð.
Í tillögunni er lagt til að stofnaður verði sérstakur sjóður, Almannaheillasjóður, og í hann renni framlög af fjárlögum fyrir hvert ár sem nemi heildarfjárhæð þeirra fjármuna og eigna sem renna í ríkissjóð úr dánarbúum án erfingja á næstliðnu ári. Markmið sjóðsins sé að styðja almannaheillafélög sem starfa samkvæmt lögum um félög til almannaheilla, nr. 110/2021. Dómsmálaráðherra skipi sjóðnum þriggja manna stjórn og setji honum reglur, m.a. um úthlutun styrkja. Lagt er til að almannaheillafélög sem skráð eru í almannaheillafélagaskrá Skattsins geti sótt um styrki í sjóðinn til tiltekinna og afmarkaðra verkefna hverju sinni.