Ferill 369. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 604  —  369. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um skatta á einstaklinga.

Frá Jens Garðari Helgasyni.


     1.      Hve háa fjárhæð innti ríkissjóður af hendi vegna tekjuáranna 2015 til 2024 á grundvelli fyrirmæla 2. mgr. A-liðar 67. gr. laga nr. 90/2003? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     2.      Hver var heildarfjárhæð tekjuskatts, fjármagnstekjuskatts og útsvars á einstaklinga tekjuárin 2015 til 2024, sundurliðað eftir árum og tekjutíundum? Í þeim tilvikum þegar niðurstaða álagningar er neikvæð samkvæmt fyrrgreindu lagaákvæði er þess óskað að neikvæð fjárhæð sé sýnd.
     3.      Hver voru skattleysismörk tekjuskatts einstaklinga árin 2015 til 2024 og við hvaða fjárhæð tekna varð álagning tekjuskatts einstaklinga jákvæð samkvæmt fyrrgreindu lagaákvæði, sundurliðað eftir árum?


Skriflegt svar óskast.