Ferill 371. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 606  —  371. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

Frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.


     1.      Hversu margir einstaklingar hafa fengið greiðslur á grundvelli laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, sl. 10 ár?
     2.      Hversu margir þeirra hafa fengið greiðslur á grundvelli hvers sjúkdómsstigs annars vegar og fötlunarstigs hins vegar skv. 26. og 27. gr. laganna?
     3.      Hversu margir þeirra hafa fengið greiðslur á grundvelli alvarlegrar einhverfu eða verulegrar einhverfu, sbr. 2.–3. tölul. 1. mgr. 27. gr. laganna?
     4.      Hversu mörgu umsóknum um greiðslur hefur verið hafnað sl. 10 ár?


Skriflegt svar óskast.