Ferill 324. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 626  —  324. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Njáli Trausta Friðbertssyni um innflytjendaráð og móttöku flóttafólks.

    
    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver hefur árlegur heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess verið frá árinu 2015 við endurgreiðslur til sveitarfélaga á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, vegna innflytjendaráðs og móttöku flóttafólks?

    Ekki fellur til kostnaður vegna innflytjendaráðs í tengslum við endurgreiðslur til sveitarfélaga á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
    Ákvæði b-liðar 2. mgr. 15. gr. laganna kveður á um skyldu ríkissjóðs til að endurgreiða sveitarfélagi fyrir veitta aðstoð vegna erlendra ríkisborgara sem hafa átt lögheimili í landinu skemur en tvö ár. Aðstoðin sem endurgreidd er samkvæmt ákvæðinu nær því til allra erlendra ríkisborgara sem átt hafa hér lögheimili skemur en tvö ár, ekki einvörðungu til flóttafólks.
    Þær endurgreiðslur sem fram fóru vegna b-liðar 2. mgr. 15. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, frá árinu 2015 má sjá í töflu 1. Í töflu 2 er að finna yfirlit áranna 2023 og 2024 um kostnað sem féll til vegna þeirra tveggja ára en ekki var að fullu innheimtur innan árs.

     Tafla 1. Endurgreiðslur sem voru greiddar til sveitarfélaga á grundvelli b-liðar 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga árin 2015–2024.

                             

Ár Upphæð í kr.
2015 78.043.644
2016*
2017     204.681
2018 204.492.305
2019 38.559.656
2020 719.699.378
2021 365.698.878
2022 1.735.209.069
2023 3.639.836.665
2024 2.121.858.957
     *Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur ekki aðgang að upplýsingum um skiptingu greiðslna ársins 2016 á milli a- og b-liðar ákvæðisins.
    Heimild: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.


Tafla 2. Heimilaðar endurgreiðslur á grundvelli b-liðar 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga árin 2023–2024 vegna útgjalda sveitarfélaga þau ár.

Ár Upphæð í kr.
2023 4.580.835.392
2024 3.286.134.625

    Heimild: Vinnumálastofnun
.