Ferill 331. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 627  —  331. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um samning um samræmda móttöku flóttafólks.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvað hafa sveitarfélög skuldbundið sig til að taka á móti mörgum flóttamönnum á grundvelli samnings um samræmda móttöku flóttafólks? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
     2.      Hversu mörgum flóttamönnum hafa sveitarfélög tekið á móti á grundvelli samnings um samræmda móttöku flóttafólks? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.


    Gildandi samningar um samræmda móttöku flóttafólks eru með gildistíma til og með 31. desember 2025. Tólf sveitarfélög eru með gildan samning og hafa þau skuldbundið sig til að veita allt að 3.484 einstaklingum í senn þjónustu.
    Eftirfarandi tafla sýnir þau sveitarfélög sem eru með gildan samning um samræmda móttöku flóttafólks, hámarksfjölda flóttafólks sem hvert sveitarfélag hefur skuldbundið sig til að veita þjónustu í senn á grundvelli samninganna sem og heildarfjölda flóttafólks sem hvert sveitarfélag hafði veitt þjónustu á gildistíma samningsins þann 9. desember 2025.

Sveitarfélög með samning til áramóta 2025–2026

Hámarksfjöldi skv. samningi

**Fjöldi sem veitt hefur verið þjónusta

Reykjavíkurborg
    1.800 2.576
Árborg     100 127
Akureyrarbær     320     404
Reykjanesbær     200     389
Hafnarfjarðarbær     450     690
Akraneskaupstaður 100 114
Garðabær 140     180
Hornafjörður 8     8
Mosfellsbær 15     64
Ísafjarðarbær 40     68
Vestmannaeyjabær* 30     30
Kópavogur 101     231
Borgarbyggð 180 220
Samtals 3.484     5.101
                                  Heimild: Vinnumálastofnun.


*Vestmannaeyjabær var með gildan samning til 30. júní 2025.
**Fjöldi flóttafólks sem var veitt þjónusta í sveitarfélagi í einn dag eða lengur. Þau sem fluttu milli sveitarfélaga eru talin í báðum eða öllum sveitarfélögum sem þau bjuggu í.