Ferill 121. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 631 — 121. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um bakgrunn umsækjenda um alþjóðlega vernd.
1. Hvernig fer rannsókn stjórnvalda fram varðandi sögu og bakgrunn umsækjenda um alþjóðlega vernd?
Samkvæmt 24. gr. laga um útlendinga skal umsókn um alþjóðlega vernd lögð fram hjá Útlendingastofnun eða lögreglu. Við framlagningu umsóknar hefst rannsókn stjórnvalda á sögu og bakgrunni umsækjenda um alþjóðlega vernd. Umsækjanda ber að afhenda vegabréf eða önnur persónuskilríki sem hann hefur í fórum sínum til að greiða fyrir rannsókn á auðkenni viðkomandi. Þá eru fingraför umsækjanda skráð í fingrafaragagnagrunninn Eurodac sem upplýsir um leið hafi fingraför hans áður verið skráð í gagnagrunninn af öðru ríki innan Schengen-samstarfsins. Fingraför eru einnig skráð í sérstakt fingrafara-/lífkennakerfi sem kallast ABIS (Automatic Biometric Identification System) sem framkvæmir sjálfkrafa leit í Schengen-upplýsingakerfinu (SIS) og upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir (VIS). Jafnframt er gerð leit í málavinnslukerfi lögreglunnar (LÖKE) sem framkvæmir sjálfvirka leit í gagnagrunnum Löggæslusamvinnustofnunar Evrópusambandsins (Europol), gagnagrunni Alþjóðasambands sakamálalögreglu (Interpol) og hluta af málavinnslukerfi Útlendingastofnunar. Í þágu rannsóknar Útlendingastofnunar er jafnframt heimilt að óska eftir því að umsækjandi gangist undir aldursgreiningu eða tungumála- og staðháttapróf til að staðreyna aldur hans eða upprunaríki. Þetta verklag hefur verið viðhaft um nokkurt skeið og er notað þegar engar aðrar leiðir eru tiltækar til að staðfesta uppruna. Markmiðið með framangreindu og ítarlegu viðtali við umsækjanda sjálfan er að fá greinargóða lýsingu á einstaklingnum, sögu hans, stöðu og bakgrunni.
Við vinnslu umsókna um alþjóðlega vernd yfirfara Útlendingastofnun og, eftir atvikum, kærunefnd útlendingamála öll fyrirliggjandi gögn málsins. Þar á meðal eru upplýsingar sem fram koma í viðtölum við umsækjanda og önnur framlögð gögn. Á grundvelli þessara gagna meta stjórnvöld aðstæður í heimaríki umsækjanda eða í viðtökuríki, ef við á. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar og úrskurðum kærunefndar eru helstu heimildir listaðar upp, svo sem skýrslur frá stjórnvöldum í ýmsum ríkjum, alþjóðlegum samtökum og frjálsum félagasamtökum. Almenna reglan er að umsækjanda um alþjóðlega vernd ber að leiða líkum að því, með rökstuddum hætti, að hann verði fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 37. og 38. gr. laga um útlendinga og flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna. Sambærilegar reglur að þessu leyti eru til staðar á Norðurlöndum og öðrum Evrópuríkjum. Við ákvörðun um rétt umsækjanda til alþjóðlegrar verndar er litið til ýmissa sjónarmiða og byggt á þeim gögnum sem liggja fyrir. Framburður umsækjanda um ástæður flótta er kjarni málsins. Þá er tekið mið af gögnum sem umsækjandi leggur fram til stuðnings frásögn sinni, ef einhver eru, auk skýrslna alþjóðlegra stofnana og samtaka um aðstæður í heimaríki hans sem og upplýsinga úr fyrirliggjandi gagnagrunnum.
Við mat á trúverðugleika frásagnar er horft til þess hvort hún fái stuðning í gögnum málsins, bæði almennum gögnum um heimaríki og persónulegum gögnum umsækjanda. Einnig er metið hve nákvæm frásögnin er og hvort samræmi sé í henni, bæði innan hverrar frásagnar og milli þeirra skipta sem umsækjandi hefur sagt sögu sína. Við úrlausn málsins er aðeins byggt á þeim atriðum sem metin eru trúverðug. Við mat á trúverðugleika byggja Útlendingastofnun og kærunefnd m.a. á skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, og tilmælum varðandi trúverðugleikamat sem í henni er að finna.
2. Fer fram bakgrunnsathugun á þeim aðilum sem hingað koma á grundvelli fjölskyldusameiningar? Ef svo er, hvernig er því ferli háttað?
Við framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd fara stjórnvöld yfir bakgrunn umsækjenda áður en vernd er veitt, líkt og að framan er rakið, til samræmis við lög um útlendinga. Þegar síðar er sótt um fjölskyldusameiningu þarf umsækjandi að leggja fram staðfestingu á auðkenni og sakavottorð, auk sakavottorðs aðstandanda sem dvelur hér á landi samkvæmt VIII. kafla laganna, þar sem strangari skilyrði gilda.
Auðkenning aðstandenda reynist þó oft flókin, þar sem stjórnvöld hafa takmarkaðar heimildir til að afla frekari gagna samkvæmt VIII. kafla laganna. Almennt er stuðst við opinber skjöl til staðfestingar á auðkenni en þegar slík gögn eru ekki fyrir hendi hefur Útlendingastofnun stuðst við DNA-rannsóknir í þeim tilvikum sem framkvæmd þeirra er möguleg, en í dag eru þær rannsóknir framkvæmdar eftir að einstaklingur kemur til landsins. Í tilvikum kvótaflóttamanna þá hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna skoðað bakgrunn þeirra einstaklinga sem greiningardeild ríkislögreglustjóra fer yfir eins og kostur er. Í málum samkvæmt 45. gr. laganna er ríkur réttur til fjölskyldusameiningar, þó með ákveðnum undanþáguheimildum sem ekki hefur reynt á í framkvæmd. Til að tryggja samræmi og fyrirsjáanleika þarf markmið bakgrunnsskoðana að vera skýrt. Áherslan getur annars vegar falist í að koma í veg fyrir að einstaklingar tengdir brotastarfsemi setjist hér að og hins vegar í að staðfesta fjölskyldutengsl og auðkenni umsækjenda. Skýrar reglur og samræmt verklag þurfa að gilda um alla umsækjendur, óháð komuleið þeirra. Jafnframt þarf lagaumgjörðin að kveða ótvírætt á um heimildir stjórnvalda til bakgrunnsskoðana og hvort þær krefjist samþykkis viðkomandi. Núverandi framkvæmd byggir almennt á samþykki umsækjanda, m.a. í tengslum við öryggisvottanir og flugvernd.
Með vísan til framangreinds telur ráðherra nauðsynlegt að styrkja lagaheimildir stjórnvalda til ítarlegri bakgrunnsskoðana, bæði gagnvart umsækjendum um alþjóðlega vernd og þeim sem sækja um dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Ráðuneytið hefur þegar hafið vinnu við að rýna og kortleggja reglur og verklag um bakgrunnsskoðanir með það að markmiði að samræma þær við heimildir og aðferðir sem tíðkast á Norðurlöndunum. Til stendur að gera samning um DNA-sýnatöku í upprunaríkjum í samvinnu við viðurkennda alþjóðastofnun. Þá eru markmið verndarsamkomulags ESB, þar á meðal skimunarreglugerðarinnar sem innleiða á með frumvarpi um brottfararstöð, ásamt stofnun brottfararstöðvarinnar, hluti af aðgerðum sem miða að því að efla samstarf stjórnvalda og tryggja að nauðsynlegar bakgrunnsupplýsingar liggi fyrir á skilvirkan hátt og auðveldi aðgengi að þeim.