Ferill 389. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 654 — 389. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um augasteinsaðgerðir og samninga við einkarekna þjónustuaðila.
Frá Ingibjörgu Isaksen.
1. Hvaða samningar hafa verið í gildi undanfarin fimm ár milli Sjúkratrygginga Íslands og einkarekinna læknastofa eða heilbrigðisstofnana um framkvæmd augasteinsaðgerða? Óskað er eftir því að fram komi hvaða þjónustuaðilar eiga í hlut og umfang samninga, þ.e. fjöldi aðgerða og fjárhæðir.
2. Hvernig hefur þróun biðlista eftir augasteinsaðgerðum verið undanfarin fimm ár? Hver var meðalbiðtími á hverju ári og er vitað hvort munur er á biðtíma eftir landshlutum eða eftir því hvort aðgerðir eru framkvæmdar á opinberum eða einkareknum stofnunum?
3. Hversu margar augasteinsaðgerðir voru framkvæmdar á hverju ári sl. fimm ár, sundurliðað eftir því hvort aðgerðir voru framkvæmdar innan opinbera heilbrigðiskerfisins eða hjá einkareknum þjónustuaðilum og eftir landshlutum, eftir því sem gögn leyfa?
4. Hefur ráðherra látið meta áhrif samninga við einkarekna þjónustuaðila vegna augasteinsaðgerða á biðlista, aðgengi sjúklinga og kostnað ríkisins? Ef svo er, hverjar eru niðurstöður þess mats?
Skriflegt svar óskast.