Ferill 277. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 661  —  277. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um kostnað við starfslokasamninga.


    Á málefnasviði dómsmálaráðuneytis eru 40 stofnanir og er fjöldi embættismanna hlutfallslega meiri hjá dómstólum og lögregluembættum en öðrum stofnunum. Svar þetta er byggt á upplýsingum sem bárust ráðuneytinu frá lögregluembættum, Landhelgisgæslu Íslands, ákæruvaldinu, Fangelsismálastofnun, Persónuvernd, sýslumönnum, Útlendingastofnun, dómstólasýslunni og kærunefnd útlendingamála, auk upplýsinga frá ráðuneytinu sjálfu. Gögnin endurspegla skráningu stofnananna sjálfra og voru fengin með formlegri fyrirspurn frá ráðuneytinu.
    Þær stofnanir sem eru ekki nefndar í töflum að aftan hafa ekki gert starfslokasamninga eða flutt til embættismenn samkvæmt upplýsingum dómsmálaráðuneytis.
    Starfslokasamningar sem gerðir eru við embættismenn eru taldir upp hjá því embætti sem viðkomandi starfaði við á því ári sem kostnaður féll til enda fellur kostnaður við slíka samninga þar. Kostnaður vegna starfsloka á grundvelli 4. mgr. 20. gr. stjórnarskrárinnar fellur ekki á málefnasvið dómsmálaráðuneytis og er kostnaður sem er greiddur af sama lið og eftirlaun hæstaréttardómara.

     1.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir innan ráðuneytisins annars vegar og hjá undirstofnunum þess hins vegar árlega frá árinu 2018?
    Tveir starfslokasamningar hafa verið gerðir hjá ráðuneytinu á tímabilinu. Hjá þeim 40 stofnunum sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins hafa verið gerðir 27 starfslokasamningar á tímabilinu.

     2.      Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess verið vegna þessara samninga, sundurliðað eftir árum og stofnunum?
    Tilgreindur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess vegna starfslokasamninga sem tilgreindir eru í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar er sundurliðaður í töflu að aftan í millj. kr. Þess skal getið að kostnaður við starfslokasamning fellur ekki í öllum tilvikum til á því ári sem slíkur samningur er gerður.

Stofnun 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 5,3
Sýslumaðurinn á Suðurlandi 2,4
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra 2,1 3,4
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum 11,4
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 3,2 4,3
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 25,2 1,6 2,7 4,7
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu 27,3 43,5 28,5
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum 8,5 22,5 22,5 16,9 16,6
Ríkislögreglustjóri 27,3 36,1 8,4 18,1
Landhelgisgæsla Íslands 1,1 4,6
Kærunefnd útlendingamála 23,6 0,3
Útlendingastofnun 5,3 11,1 3,1
Dómsmálaráðuneytið 7,5

     3.      Hversu margir embættismenn hafa verið fluttir til í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og undirstofnunum þess hins vegar frá árinu 2018, sundurliðað eftir árum, stofnunum og hvort það hafi verið gert á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eða á grundvelli annarra ákvæða laganna, svo sem 37. gr.?
    Í töflu að aftan eru taldir þeir embættismenn sem flust hafa frá ráðuneytinu og stofnunum þess auk þeirra embættismanna sem flust hafa innan ráðuneytisins eða innan stofnana á grundvelli 36. gr. laga nr. 70/1996.
    Vekja ber athygli á því að lögregluembætti eru níu talsins. Allir lögreglumenn teljast embættismenn og koma því flutningar þeirra innan löggæslunnar fram í svarinu.

Stofnun 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Ríkislögreglustjóri 1 1 3 2 1 4
Lögreglustjórinn á Vesturlandi 1 1
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra 5 4 4 2 1 3 3
Lögreglustjórinn á Austurlandi 1
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum 1 1 1 1 1
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum 1 2 1 6 1 3 2 2
Héraðssaksóknari 1
Dómsmálaráðuneytið 1