Ferill 381. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 665  —  381. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Rósu Guðbjartsdóttur um VIRK.


     1.      Hversu mörgum einstaklingum hefur verið vísað úr endurhæfingarúrræðum á vegum VIRK eða öðrum endurhæfingarúrræðum sem VIRK hefur samið við undanfarin tíu ár, flokkað eftir úrræðum? Hvaða ástæður liggja að baki slíkum ákvörðunum og hvernig eru þær rökstuddar?
     2.      Hversu margir fyrrgreindra hafa fengið einhverfugreiningu eða hjá hve mörgum leikur grunur á að þeir séu á einhverfurófi?

    Upplýsingar um fjölda þeirra sem hætta í tilteknum úrræðum á vegum VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs ses. eða ástæður þess að viðkomandi hættir eru ekki skráðar sérstaklega í upplýsingakerfum VIRK, hvort sem hlutaðeigandi einstaklingur hefur fengið einhverfugreiningu eða ekki.
    Ástæður þess að einstaklingar hætta í endurhæfingarúrræðum á vegum VIRK geta verið af ýmsum toga. Í sumum tilvikum er það að ósk einstaklings, í öðrum tilvikum er það vegna fjarvista viðkomandi í því úrræði sem um ræðir og í enn öðrum tilvikum leiðir faglegt mat í ljós að úrræðið skilar ekki tilætluðum árangri en í slíkum tilvikum leitast VIRK við að finna annað, hentugra úrræði fyrir viðkomandi.

     3.      Hversu mörgum einstaklingum hefur verið synjað um endurhæfingarþjónustu hjá VIRK undanfarin tíu ár? Hvaða ástæður liggja að baki slíkum ákvörðunum og hvernig eru þær rökstuddar?
     4.      Hversu margir þeirra sem hefur verið synjað um endurhæfingarþjónustu hafa fengið einhverfugreiningu eða hjá hve mörgum leikur grunur á að þeir séu á einhverfurófi?

    Á árunum 2016–2025 bárust VIRK 35.439 beiðnir um starfsendurhæfingarþjónustu. Af þeim beiðnum var 8.899 synjað eða um 25% af heildarfjölda beiðna. Sundurliðun á ástæðum synjana kemur fram í meðfylgjandi töflu:

Ástæður synjana hjá VIRK á tímabilinu 2016–2025 Fjöldi
Starfsendurhæfing er ekki talin raunhæf eða hún er metin fullreynd 5.251
Læknisfræðilegri greiningu/meðferð/endurhæfingu er ekki lokið 2.024
Einstaklingur er ekki talinn hafa þörf fyrir þjónustu VIRK 1.624
Samtals 8.899
Heimild: VIRK – Starfsendurhæfingarsjóður.

    Allar umsóknir eru metnar af þverfaglegu teymi sérfræðinga. Við matið er notast við upplýsingar sem koma fram í beiðni læknis, svör umsækjenda við stöðluðum spurningalistum og eftir atvikum viðtöl og faglegt mat annarra sérfræðinga, svo sem lækna, sálfræðinga, sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa. Að loknu mati fá umsækjendur og tilvísandi fagaðilar rökstudda niðurstöðu ásamt tillögum um næstu skref. Einstaklingum stendur ávallt til boða að óska eftir endurskoðun ákvörðunar og/eða samtali við fagaðila til frekari skýringa á synjun.
    Alls voru 211 beiðnum einstaklinga með einhverfugreiningu samkvæmt upplýsingum í beiðni læknis eða tilvísandi aðila synjað um endurhæfingarþjónustu hjá VIRK á tímabilinu 2016–2025. Ekki eru skráðar upplýsingar um grun um tilteknar greiningar þeirra sem sækja um endurhæfingarþjónustu hjá VIRK í upplýsingakerfum VIRK og liggja því ekki fyrir upplýsingar um hvort grunur leikur á að viðkomandi sé á einhverfurófi í einstaka tilvikum.