Ferill 364. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 668 — 364. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um
fjárstyrki til að skapa umræðuvettvang um kosti og galla aðildar Íslands að Evrópusambandinu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvernig var umsóknar- og ákvörðunarferli háttað þegar tveimur félagasamtökum var veittur 20 millj. kr. fjárstyrkur samkvæmt heimild í fjáraukalögum III fyrir árið 2025 til að skapa umræðuvettvang um kosti og galla aðildar Íslands að Evrópusambandinu, líkt og segir í greinargerð með frumvarpi því sem síðar varð að lögunum?
2. Var stuðst við einhver skýr viðmið þegar umræddir fjárstyrkir voru ákveðnir?
3. Hvernig samrýmast framangreindir fjárstyrkir 42. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015?
Við úthlutun umræddra fjárstyrkja kom til álita hvort fara ætti þá leið að auglýsa eftir umsóknum eða úthluta stærstum hluta fjárins, sem byggir á heimild í fjáraukalögum III fyrir árið 2025, til fyrirliggjandi heildarhreyfinga sem tala með og á móti hugsanlegri aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB). Þá kom til álita sú leið sem farin hefur verið í stuðningi stjórnvalda í Noregi í þágu umræðu um ESB og Evrópumál. Þar styrkja stjórnvöld félagasamtök sem láta Evrópumál og hugsanlega aðild að ESB sig varða með árlegri greiðslu á grundvelli fjárlaga. Annars vegar er þar um að ræða Europabevegelsen, hreyfingu sem talar fyrir aðild Noregs að ESB, og hins vegar Nei til EU sem talar gegn aðild.
Í ljósi þess að um takmarkaða fjármuni var að ræða var talið farsælla, út frá markmiðum fjárveitingarinnar, að úthluta fénu til þeirra heildarhreyfinga sem hafa látið málefnið sig varða. Ákveðið var að 10 millj. kr. skyldu því renna til Evrópuhreyfingarinnar annars vegar og Heimssýnar – hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum hins vegar. Báðar hreyfingar hafa um árabil beitt sér í umræðunni um hugsanlega aðild Íslands að ESB. Þannig væri báðum hliðum gert jafn hátt undir höfði og litið svo á að þeir takmörkuðu fjármunir sem voru til ráðstöfunar kæmu til með að búa til umtalsvert meiri slagkraft fyrir hreyfingarnar til að efla umræðu, fremur en margar minni úthlutanir. Jafnframt var skoðað hvort fleiri samtök gætu komið til álita við úthlutun styrkjanna sem gert gætu tilkall sem eins konar heildarhreyfingar í umræðunni um kosti og galla aðildar Íslands að ESB. Var niðurstaðan sú að svo væri ekki.
Í 42. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, sem kveður á um styrkveitingar ráðherra, segir að hverjum ráðherra sé heimilt að veita tilfallandi styrki og framlög til verkefna sem varða þá málaflokka sem þeir bera ábyrgð á. Við úthlutun styrkja og framlaga skuli gæta jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða. Gera skuli grein fyrir útgjöldum vegna slíkra styrkja í fylgiriti með frumvarpi til fjárlaga skv. 19. gr. laganna og í ársskýrslu viðkomandi ráðherra skv. 62. gr. Þá kemur fram að gera skuli skriflegan samning um einstakar styrkveitingar, nema um sé að ræða minni háttar styrki, og skulu framlög samkvæmt þeim háð skilyrðum um fullnægjandi skýrslugjöf um framvindu verkefna og reikningsskil. Lögð var áhersla á að haga meðferð málsins innan þess ramma sem kveðið er á um í framangreindum ákvæðum umræddra laga.
Ákvæði laga um opinber fjármál eru ekki fortakslaus um auglýsingaskyldu. Í greinargerð með frumvarpi til laga um opinber fjármál segir um 42. gr.: „Séu margir aðilar að sinna sambærilegum verkefnum gæti t.d. í einhverjum tilvikum verið rétt að auglýsa slíkar styrkveitingar opinberlega til að jafnræðis sé gætt.“ Þannig er gert ráð fyrir að ekki sé auglýst í öllum tilvikum. Reglugerð fjármála- og efnahagsráðherra nr. 642/2018 um styrkveitingar ráðherra, sem á stoð í lögum um opinber fjármál, telst þá ekki heldur fortakslaus um slíka auglýsingaskyldu. Þó er mikilvægt að um úthlutunina gildi eftir sem áður góðir stjórnsýsluhættir.
Lítur utanríkisráðuneytið því svo á að jafnræðis, hlutlægni og samkeppnissjónarmiða hafi verið gætt. Gengið hefur verið frá samningum við styrkþega um styrkveitinguna.