Ferill 362. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 669 — 362. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um skýrslu Evrópuþingsins um málefni norðurslóða.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Í hverju fólst aðstoð utanríkisráðherra við gerð skýrslu utanríkismálanefndar Evrópuþingsins um málefni norðurslóða?
2. Eru fordæmi fyrir þátttöku utanríkisráðherra í gerð skýrslu á vegum Evrópusambandsins og stofnana þess?
3. Eru fordæmi fyrir því að erlend ríki eða ríkjasambönd hafi afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi, líkt og Evrópusambandið hyggst hafa samkvæmt umræddri skýrslu?
4. Var ráðgert að kynna aðkomu íslenskra stjórnvalda að gerð skýrslunnar og fyrirhuguð afskipti Evrópusambandsins af þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi?
Í samræmi við starfsvenjur Evrópuþingsins voru drög að skýrslu utanríkismálanefndar þess um málefni norðurslóða unnin af framsögumanni nefndarinnar, Urmas Paet, þingmanni á Evrópuþinginu og fyrrverandi utanríkisráðherra Eistlands. Í viðauka aftast í skýrslunni gerir framsögumaðurinn grein fyrir þeim samtölum sem hann átti í aðdraganda skýrslugerðarinnar. Slík upplýsingagjöf er í samræmi við gagnsæiskröfur Evrópuþingsins um undirbúning skýrslu af þessum toga, en eftir sem áður er efni skýrslunnar að öllu leyti á ábyrgð framsögumannsins og utanríkismálanefndar Evrópuþingsins. Fyrir liggur að framsögumaðurinn sótti Ísland heim í tvígang á síðasta ári og ræddi á mjög óformlegum nótum málefni norðurslóða og stöðu alþjóðamála í víðu samhengi við utanríkisráðherra og aðra er hann hitti. Rétt er að undirstrika að framangreind samtöl voru ekki í tengslum við gerð skýrslunnar sem slíkrar, né var kallað eftir formlegri umsögn eða innleggi íslenskra stjórnvalda við gerð skýrslunnar. Í samtölunum var reifuð stefna Íslands í málefnum norðurslóða, sem samþykkt var samhljóða á Alþingi með þingsályktun 19. maí 2021, og almennt hverjir hagsmunir Íslands eru á norðurskautinu. Umfram framangreind samtöl var ekki um að ræða frekari aðkomu íslenskra stjórnvalda að gerð skýrslunnar.
Rétt er að undirstrika að stjórnvöld hafa beitt sér fyrir því undanfarin ár að efla hagsmunagæslu í Brussel. Meðal þess sem fulltrúar Íslands fylgjast grannt með er stefnumótun á sviðum sem varða Ísland og íslenska hagsmuni. Lykilþáttur í því er að Ísland komi sjónarmiðum sínum á framfæri þegar Evrópusambandið (ESB) vinnur að slíkri stefnumótun eða skýrslum sem varða íslenska hagsmuni, t.d. með því að leggja fram skriflegar umsagnir eða eiga fundi og samtöl við viðeigandi aðila innan stofnana ESB. Það er hins vegar háð mati hverju sinni með hvaða hætti sjónarmiðum og afstöðu Íslands er komið á framfæri við stofnanir ESB.
Eðli máls samkvæmt snertir allt starf ESB um málefni norðurslóða hagsmuni Íslands og hefur verið leitast við að afla tengsla og efla samráð og samtal við þá fulltrúa og þær stofnanir ESB sem láta sig málefnið varða. Þarf því ekki að koma á óvart að þegar framsögumaður ályktunarinnar, Urmas Paet, heimsótti Ísland á síðasta ári var tækifærið nýtt til að eiga samtöl við hann um mikilvæg hagsmunamál Íslands, þ.m.t. norðurslóðir. Þegar málefni norðurslóða ber á góma er sérstöku hlutverki Norðurskautsríkjanna haldið á lofti og ESB þakkaður öflugur stuðningur við rannsóknir og vísindasamstarf um norðurslóðir. Í þessum samtölum var hins vegar ekki rætt um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu í samhengi við norðurslóðir og er sú framsetning í skýrslunni vitaskuld á ábyrgð Evrópuþingsins eins.
Engin fordæmi eru fyrir því að erlend ríki beiti sér opinberlega eða hafi afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi. Það verður heldur ekki lesið úr niðurlagi skýrslu Evrópuþingsins að ESB sé með slík áform uppi. Er í skýrslunni afdráttarlaust mælt fyrir um að virða beri lýðræðislega niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, en það sem þar kemur fram er í formi ráðlegginga til annarra stofnana ESB. Þá er þar einnig vísað til samstarfs Íslands og ESB þegar kemur að því að berjast gegn fjölþáttaógnum af ýmsu tagi, sem aukist hafa undanfarin ár, m.a. baráttu gegn öflum sem beita sér gegn lýðræðislegum kosningum með upplýsingaóreiðu og undirróðursstarfsemi.