Ferill 397. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 670  —  397. mál.




Skýrsla


Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins fyrir árið 2025.

1. Inngangur.
    Í umræðum á vettvangi Evrópuráðsþingsins árið 2025 var áfram lögð þung áhersla á stuðning við Úkraínu og fjölmargar umræður fóru fram sem tengdust árásarstríði Rússlands og afleiðingum þess. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, ávarpaði Evrópuráðsþingið á fundi þess í júní í tengslum við undirritun tvíhliða samnings Úkraínu og Evrópuráðsins um stofnun sérstaks dómstóls vegna glæpa gegn friði í Úkraínu. Dómstóllinn hefur það hlutverk að draga til ábyrgðar háttsetta leiðtoga sem framið hafa glæpi gegn friði í Úkraínu. Hann er ein af þremur stoðum sem eiga að tryggja að Rússland verði látið bera ábyrgð á því tjóni sem ríkið hefur valdið með innrásinni í Úkraínu. Hinar tvær eru tjónaskráin, sem komið var á fót á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík árið 2023 og alþjóðleg skaðabótanefnd en þingið veitti álit sitt á drögum að samningi um skaðabótanefndina í þingfundaviku í október. Í þeirri umræðu kom m.a. fram að afar brýnt væri að finna leiðir til að nýta frystar eignir rússneska ríkisins til uppbyggingar og endurreisnar Úkraínu. Þá var einnig skýrt kveðið á um að horft væri aftur til ársins 2014 og innlimunar Krímskaga og að skaðabótaskyldan næði því ekki einungis aftur til allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu árið 2022. Í ávarpi sínu á Evrópuráðsþinginu sagði Zelensky að þingið hefði sýnt mikilvægt frumkvæði í því að finna leiðir til þess að draga Rússland til ábyrgðar og að þær nytu nú vaxandi stuðnings meðal bandalagsríkja í Evrópu og víðar. Hann lagði áherslu á að allir rússneskir stríðsglæpamenn, þar á meðal Pútín forseti, yrðu dregnir til ábyrgðar með samstilltu pólitísku og lagalegu átaki. Fjöldi annarra umræðna fór fram um innrásarstríðið og áframhaldandi stuðning við Úkraínu. Má þar m.a. nefna umræðu um nýjar ógnir við evrópsk lýðræðisríki þar sem lögð var áhersla á mikilvægi áframhaldandi stuðnings við Úkraínu og að aðildarríki styrktu viðnáms- og varnarhæfni sína gegn rússneskum áhrifum, áróðri og upplýsingaóreiðu. Fór sú umræða fram í kjölfar fjölþátta ógna sem ríki innan Evrópuráðsins höfðu þurft að þola, rof á lofthelgi og drónaflug við flugvelli sem lamaði alla starfsemi þeirra um tíma. Þingið samþykkti ályktun um að koma á fót samstarfsvettvangi við rússnesk lýðræðisöfl í útlegð sem hefur það að markmiði að efla tengsl og undirbúa lýðræðislega framtíð Rússlands þegar skilyrði skapast. Þá var einnig samþykkt ályktun um mikilvægi fjölmiðlafólks og þörfina á auknum aðgerðum til að frelsa úkraínska blaðamenn í haldi rússneskra stjórnvalda.
    Umræða um átökin fyrir botni Miðjarðarhafs og ástandið í mannúðarmálum á Gaza var einnig áberandi. Þingmenn lögðu áherslu á að lausn á langvarandi og djúpstæðum átökum í Miðausturlöndum fyndist ekki með hernaðaraðgerðum heldur með víðtæku pólitísku samráði. Í ályktun þingsins var krafan um tafarlaust og varanlegt vopnahlé á Gaza ítrekuð, sem og um lausn allra gísla og óhindraðan aðgang mannúðaraðstoðar á svæðið. Evrópuráðsþingið fordæmdi sérstaklega að hungri væri beitt sem vopni í átökunum og mannúðaraðstoð nýtt í pólitískum tilgangi með skerðingu á aðgengi að nauðsynlegum gögnum og aðstoð. Slíkt væri brot á alþjóðalögum. Þingið lagði jafnframt áherslu á að koma þyrfti í veg fyrir hvers kyns ólögmætan brottflutning Palestínumanna af svæðinu og eins allar tilraunir til að gera breytingar á landamærum Gaza-svæðisins. Þá ítrekaði þingið einnig stuðning sinn við tveggja ríkja lausn og hvatti aðildarríki og áheyrnarríki Evrópuráðsins til að vinna með Sameinuðu þjóðunum og alþjóðadómstólum að því að tryggja að alþjóðalögum væri fylgt.
    Þingstörfin á vettvangi Evrópuráðsþingsins einkenndust einnig af þeim öru breytingum sem eiga sér stað á alþjóðavettvangi og endurspeglaðist það einna helst í fjölda beiðna um sérstakar umræður. Meðal þeirra sem rötuðu á dagskrá þingsins voru umræður um pólitískar ofsóknir í Georgíu, um handtöku Ekrem Imamoglu, borgarstjóra Istanbúl, og stöðu lýðræðis og mannréttinda í Tyrklandi, um pólitískan óstöðugleika í Serbíu, um Radio Free Europe/ Radio Liberty (RFE/RL) og mikilvægi fjölmiðla sem mótvægi við áróður og falsfréttir fjölmiðla í Austur-Evrópu, um hlutverk þingmanna við að viðhalda fjárstuðningi til mannréttinda- og lýðræðismála á tímum aukinna framlaga til varnarmála, um mótmæli og óeirðir á Vestur-Balkanskaga og í Mið-Evrópu og um árangur og áskoranir í réttindabaráttu kvenna í Evrópu.
    Lýðræðið var einnig ofarlega á dagskrá þingsins í takt við megin hlutverk Evrópuráðsins að standa vörð um lýðræði, mannréttindi og réttarríkið. Framkvæmdastjórn Evrópuráðsþingsins setti á fót sérstaka nefnd sem ætlað er að styðja við framtak Evrópuráðsins um nýjan lýðræðissáttmála Evrópu. Var nefndin formlega stofnuð í þingfundaviku í Strassborg í október en alls voru skipulagðir fjórir fundir á árinu. Beindust sjónir m.a. að áhrifum dóma Mannréttindadómstóls Evrópu á tjáningarfrelsi, funda- og félagafrelsi og að hlutverki stjórnmálaflokka sem fremstu víglínu gegn afturför lýðræðis. Einn af fundunum fór fram í aðdraganda fundar stjórnarnefndar í Kísiná í Moldóvu í nóvember og á þeim fundi var áhersla lögð á áhrif erlendra afskipta af kosningum fyrir þróun lýðræðis. Var sjónum einna helst beinst að nýafstöðnum þingkosningum í Moldóvu með þátttöku forseta kjörstjórnar Moldóvu, Angelica Caraman, og Martin Kuijer, varaforseta Feneyjanefndarinnar. Í framsögum og umræðum kom m.a. fram að stjórnvöld stóðu frammi fyrir fjölþættum áskorunum, netárásum, ólöglegri fjármögnun, kostuðum mótmælum, kosningamútum, fölsum skráningum á kjörskrá og fölskum eftirlitsaðilum sem bregðast hefði þurft við. Stjórnvöld sættu helst gagnrýni fyrir að hafa gripið til breytinga á lögum of skömmu fyrir kosningar en áhersla var jafnframt lögð á mikilvægi þess að vinna áfram gegn erlendum afskiptum og að læra þyrfti af þessari reynslu og finna leiðir til þess að hún nýttist fyrir komandi kosningar í Evrópu.
    Mannréttindadómstóll Evrópu var þingmönnum einnig hugleikinn á árinu og beindi forseti Evrópuráðsþingsins, Theodoros Rousopoulos, sjónum sínum að stöðu hans í einu af opnunarávörpum sínum. Vísaði hann þar til opins bréfs frá níu forsætisráðherrum Evrópu þar sem þeir kölluðu eftir samtali um túlkun Mannréttindadómstóls Evrópu á mannréttindasáttmála Evrópu á sviði innflytjendamála. Varaði forseti stjórnvöld við því að vega að sjálfstæði dómstóla. Hann sagðist skilja þær áskoranir sem ríkin stæðu frammi fyrir en kallaði eftir því að þau einbeittu sér að því að finna lausnir í stað þess að fara auðveldu leiðina og benda á dómstóla. Slíkt færi gegn grundvallargildum stofnunarinnar. Sagan hefði sýnt að þegar pólitíska valdið beindist gegn dómsvaldinu væri það lýðræðið sem bæri skaðann. Forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, Mattias Guyomar, tók þátt í sérstakri umræðu um getu dómstólsins til þess að takast á við áskoranir samtímans. Í umræðunni komu fram skiptar skoðanir á bréfi forsætisráðherranna. Litu sumir þingmenn svo á að í bréfinu fælist árás á sjálfstæði dómstólsins meðan aðrir töldu afar mikilvægt að skapa svigrúm til umræðu um túlkun dómstólsins á mannréttindasáttmála Evrópu.
    Umræða um jafnréttismál var jafnframt áberandi og birtist m.a. í beiðnum um sérstakar umræður en einnig í öðru starfi þingsins, ályktunum þess og skýrslum. Má þar m.a. nefna ályktanir um hvernig vinna megi gegn kynjamismunun í heilbrigðisþjónustu, um kynferðisofbeldi gegn körlum og drengjum, um hvernig efla megi aðgengi að þátttöku í þingstörfum með tilliti til jafnréttis og inngildandi stefnumótunar, um árangur og áskoranir í jafnréttisbaráttu í Evrópu og um atvinnuþátttöku kvenna, frumkvöðlastarf og kynjaða fjárlagagerð. Meðal þess sem bar hæst á sviði jafnréttismála var sérstök umræða um aðgerðir almennings til varnar mannréttindum og lýðræði í Lettlandi. Lettneska þingið samþykkti í lok október að segja sig úr Istanbúl-samningnum sem er samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi. Kallaði ákvörðun þingsins fram ein stærstu mótmæli í sögu Lettlands sem leiddu til þess að forseti Lettlands synjaði lögunum staðfestingar og vísaði þeim aftur til þingsins. Málinu er þó ekki endilega lokið en því hefur verið frestað þar til nýtt þing kemur saman eftir kosningar að ári liðnu. Þá voru verðlaun í nafni Vigdísar Finnbogadóttur fyrir valdeflingu kvenna veitt í annað sinn en þau eru afrakstur samstarfs íslenskra stjórnvalda og Evrópuráðsþingsins. Komu verðlaunin að þessu sinni í hlut palestínsku samtakanna Konur sólarinnar (e. Women of the Sun) sem stofnuð voru af Reem Hajajreh í þeim tilgangi að skapa tækifæri fyrir palestínskar konur til að komast inn á karllæg svið eins og stjórnmál, viðskipti og tækni. Samtökin hafa einnig leitt saman palestínskar og ísraelskar konur til að stuðla að samræðum, efla gagnkvæman skilning og brjóta niður múra og fordóma þeirra á milli.
    Þá var einnig rík áhersla lögð á fólksflutninga og stöðu flóttafólks og innflytjenda á árinu sem endurspeglaðist m.a. í fjölda ályktana og skýrslna á vettvangi þingsins. Meðal viðfangsefna í tengslum við þann málaflokk voru gervigreind, lýðfræðileg öldrun, fjöldabrottvísanir, lífsbjörg flóttafólks á hafi og samstarf ólíkra aðila sem starfa við móttöku flóttafólks og innflytjenda. Fjöldi annarra málefna var þingmönnum Evrópuráðsþingsins einnig hugleikinn og má sem dæmi nefna réttinn til húsnæðis, ungt fólk og lýðræði, orkumál og réttlát orkuskipti, þörfina fyrir nýjum félagssáttmála, tengsl íþrótta, mannréttinda og friðar, nýtingu refsiréttar í þágu umhverfis og áskoranir og áhrif samfélagsmiðla á tjáningarfrelsi. Einnig er vert að nefna að Gréta Gunnarsdóttir tók við af Ragnhildi Arnljótsdóttur sem fastafulltrúi Íslands gagnvart Evrópuráðinu í byrjun septembermánaðar. Þá var Despina Chatzivassiliou-Tsovilis, framkvæmdastjóri Evrópuráðsþingsins, endurkjörin í stöðu framkvæmdastjóra til næstu fimm ára en hún var upphaflega kjörin árið 2021, fyrst kvenna.

2. Almennt um Evrópuráðið og Evrópuráðsþingið.
    Evrópuráðið var stofnað 5. maí 1949 af tíu Vestur-Evrópuríkjum. Aðildarríkin eru nú 46 talsins með samtals um 700 milljónir íbúa og mynda eina órofa pólitíska heild í álfunni að Rússlandi, Belarús og Kósovó undanskildum. Rússlandi var vikið úr Evrópuráðinu eftir allsherjarinnrás þess í Úkraínu. Kósovó hefur sótt um aðild að Evrópuráðinu og mælti þingið með aðild hinn 16. apríl 2024. Málið er nú í höndum ráðherraráðsins.
    Hlutverk Evrópuráðsins er að standa vörð um grundvallarhugsjónir aðildarríkjanna um mannréttindi, lýðræðið og réttarríkið og stuðla að efnahagslegum og félagslegum framförum. Með það að markmiði beitir ráðið sér m.a. fyrir gerð og samþykkt bindandi fjölþjóðasáttmála. Mannréttindasáttmálinn er þeirra þekktastur og á honum grundvallast Mannréttindadómstóll Evrópu. Dómstóllinn tekur til meðferðar kærur frá aðildarríkjum, einstaklingum og hópum vegna meintra brota á ákvæðum mannréttindasáttmálans og eru dómar hans bindandi að þjóðarétti fyrir viðkomandi ríki.
    Ályktanir og fjölþjóðasáttmálar Evrópuráðsins hafa haft víðtæk áhrif í álfunni allri. Fjölmargir sáttmálar ráðsins á ýmsum sviðum þjóðlífsins eru mikilvægar mælistikur fyrir þjóðir sem eru að koma á lýðræði og réttarríki, en mælistikur Evrópuráðsins gilda einnig fyrir aðrar fjölþjóðastofnanir og alþjóðleg samtök. Evrópuráðið hefur stutt dyggilega við lýðræðisþróun í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu til samræmis við hlutverk sitt og tilgang. Til þess beitir ráðið sér fyrir gerð og samþykkt bindandi fjölþjóðasamninga og ályktana sem hafa víðtæk áhrif í álfunni allri. Auk þess veitir það aðstoð á sviði laga- og stjórnsýsluumbóta og aðhald í krafti eftirlits með því að ríki virði aðildarskuldbindingar sínar og hefur eftirlit með þing- og forsetakosningum.
    Framkvæmdarvald Evrópuráðsins er í höndum ráðherranefndarinnar, en í henni sitja utanríkisráðherrar aðildarríkjanna eða fastafulltrúar þeirra í Strassborg. Evrópuráðsþingið er vettvangur fulltrúa þjóðþinga aðildarríkjanna en einnig hafa sveitar- og héraðsstjórnir aðildarríkjanna samráð á ráðstefnu sveitar- og héraðsstjórna.
    Evrópuráðsþingið er nokkurs konar hugmyndabanki Evrópuráðsins um stjórnmál, efnahagsmál, félagsmál, mannréttindamál, umhverfis- og orkumál og menningar- og menntamál. Á Evrópuráðsþinginu eiga 306 fulltrúar sæti og jafnmargir til vara. Ólíkt ráðherranefnd Evrópuráðsins þar sem hvert ríki hefur eitt atkvæði fer fjöldi fulltrúa á þinginu eftir stærð þjóðar. Á þinginu starfa níu fastanefndir og sex flokkahópar. Þá sitja forseti, 20 varaforsetar og formenn fastanefnda og flokkahópa í framkvæmdastjórn þingsins, sem hefur umsjón með innri málefnum þess. Sami hópur skipar stjórnarnefnd þingsins ásamt formönnum landsdeilda. Þingið kemur saman ársfjórðungslega, eina viku í senn, að jafnaði í janúar, apríl, júní og október. Stjórnarnefndin fundar tvisvar til þrisvar á milli þingfunda. Loks kemur sameiginleg nefnd þingsins og ráðherranefndar Evrópuráðsins reglulega saman samhliða fundum Evrópuráðsþingsins í Strassborg.
    Hlutverk þingsins felst einkum í því að:
     *      eiga frumkvæði að aðgerðum og beina tillögum til ráðherranefndarinnar,
     *      hafa eftirlit með efndum fjölþjóðlegra skuldbindinga og þrýsta á um skjótar aðgerðir ef misbrestur verður þar á, og
     *      vera vettvangur fyrir skoðanaskipti og samráð þingmanna aðildarríkjanna og styrkja þannig lýðræðismenningu og efla tengsl þjóðþinga.
    Á þingfundum Evrópuráðsþingsins eru skýrslur nefnda ræddar og ályktað á grundvelli þeirra. Þingið getur beint tilmælum og álitum til ráðherranefndarinnar sem fjallar um þau og bregst við eftir atvikum með beinum aðgerðum. Evrópuráðsþingið á þannig oft frumkvæði að gerð fjölþjóðlegra sáttmála sem eru lagalega bindandi fyrir aðildarríkin. Sem dæmi má nefna að Evrópusáttmálinn um aðgerðir gegn mansali, sem tók gildi árið 2008, á rætur sínar að rekja til ályktana Evrópuráðsþingsins frá árunum 1997 og 2002. Þar eru stjórnvöld hvött til þess að grípa til samstilltra aðgerða til að stemma stigu við þeirri skipulögðu glæpastarfsemi sem mansal er. Sáttmáli Evrópuráðsins um baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og heimilisofbeldi, sem einnig er nefndur Istanbúl-samningurinn, er einnig í samræmi við ályktanir Evrópuráðsþingsins. Istanbúl-samningurinn tók gildi árið 2014 og Ísland fullgilti hann í apríl 2018. Þingmenn á Evrópuráðsþinginu gegna einnig því mikilvæga hlutverki að velja dómara við Mannréttindadómstól Evrópu og kjósa í embætti Evrópuráðsins.
    Evrópuráðsþingið er fjölþjóðastofnun þar sem þingmenn frá öllum ríkjum Evrópu, að Rússlandi, Belarús og Kósovó undanskildum, starfa saman á jafnréttisgrundvelli. Jafnframt hafa störf Evrópuráðsþingsins bein áhrif á störf þjóðþinganna þar sem fulltrúar á Evrópuráðsþinginu eru þingmenn í heimalöndum sínum, ólíkt því sem á t.d. við um Evrópuþingið. Þingfundir Evrópuráðsþingsins, þar sem þingmenn bera saman bækur sínar og skiptast á hugmyndum, eru því afar mikilvægt framlag til löggjafarstarfs heima fyrir og hafa þeir hraðað mjög þeirri öru lýðræðisþróun sem hefur orðið í Evrópu eftir lok kalda stríðsins og stutt hana. Þá hefur reynslan sýnt að þjóðir sem hafa skýr markmið í störfum sínum innan þingsins og kappkosta að ná þeim fram geta haft áhrif langt umfram stærð og pólitískt bolmagn. Sú staðreynd varpar skýru ljósi á mikilvægi íslenskrar þátttöku á Evrópuráðsþinginu og þá hagsmuni sem í henni felast.

3. Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins.
    Eftirfarandi aðalmenn voru kosnir í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 4. febrúar 2025 eftir að nýtt þing kom saman í kjölfar þingkosninganna 30. nóvember 2024: Ragnar Þór Ingólfsson, formaður, þingflokki Flokks fólksins, Sigríður Á. Andersen, varaformaður, þingflokki Miðflokksins, og Sigurður Helgi Pálmason, þingflokki Flokks fólksins. Þá voru varamenn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingflokki Flokks fólksins, Bergþór Ólason, þingflokki Miðflokksins, og Jónína Björk Óskarsdóttir, þingflokki Flokks fólksins. Á fundi Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins þann 28. mars var Sigurður Helgi kjörinn formaður Íslandsdeildar en Ragnar Þór sat áfram sem aðalmaður. Þann 29. apríl tilkynnti forseti Alþingis frekari breytingar á Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir tók sæti Ragnars Þórs sem aðalmaður og Ragnar Þór tók sæti Kolbrúnar sem varamaður í Íslandsdeild. Ritari Íslandsdeildar var Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum.
    Skipan Íslandsdeildar í nefndir Evrópuráðsþingsins var sem hér segir:
     *      Stjórnarnefnd: Ragnar Þór Ingólfsson/Sigurður Helgi Pálmason.
     *      Sameiginleg nefnd Evrópuráðsþingsins og ráðherraráðsins: Ragnar Þór Ingólfsson/Sigurður Helgi Pálmason.
     *      Stjórnmála- og lýðræðisnefnd: Ragnar Þór Ingólfsson/Sigurður Helgi Pálmason.
     *      Laga- og mannréttindanefnd: Sigríður Á. Andersen.
     *      Nefnd um félagsmál, heilbrigðismál og sjálfbæra þróun: Ragnar Þór Ingólfsson/Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir.
     *      Nefnd um fólksflutninga og málefni flóttafólks: Sigríður Á. Andersen.
     *      Nefnd um menningar- og menntamál, fjölmiðla og vísindi: Sigurður Helgi Pálmason.
     *      Jafnréttisnefnd: Ragnar Þór Ingólfsson/Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir.
    Flokkahópar Evrópuráðsþingsins skipuðu meðlimi Íslandsdeildar í eftirfarandi nefndir:
     *      Eftirlitsnefnd: Sigríður Á. Andersen.
    Íslandsdeild fundaði fimm sinnum á árinu til þess að undirbúa þátttöku á fundum erlendis en á fundum Íslandsdeildar fór einnig fram kosning formanns og varaformanns. Sigurður Helgi Pálmason sótti tvo fundi stjórnarnefndar í Valetta og Kísiná og tók sæti í tveimur sérnefndum á vegum þingsins, í tengslaneti þingmanna í málefnum úkraínskra barna og sem fulltrúi menningarmálanefndar í sérnefnd framkvæmdastjórnar um nýjan lýðræðissáttmála. Sigurður Helgi sótti einn fund utan þingfundaviku, fund tengslanets þingmanna í málefnum úkraínskra barna sem fór fram í Kænugarði í júní. Þá sótti Sigurður Helgi einnig sérstakan fund formanna landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja (NB8) í Jurmala í ágúst. Sigríður Á. Andersen sótti fund laga- og mannréttindanefndar í Lundúnum í desember.

4. Fundir Evrópuráðsþingsins 2025.
    Þingfundir Evrópuráðsþingsins eru að jafnaði haldnir í Evrópuhöllinni í Strassborg fjórum sinnum á ári, í janúar, apríl, júní og október. Auk þess koma framkvæmdastjórn og stjórnarnefnd Evrópuráðsþingsins saman til funda á milli þinga og afgreiða mál sem æðsta vald þingsins. Þar sem þing kom ekki saman fyrr en 4. febrúar í kjölfar þingkosninga 30. nóvember 2024 var ekki þátttaka af hálfu Alþingis í fyrstu þingfundaviku ársins í janúar 2025.

Fundur Evrópuráðsþingsins í Strassborg 7.–11. apríl.
    Af hálfu Alþingis tóku þátt í fundunum Sigurður Helgi Pálmason, formaður, Sigríður Á. Andersen, varaformaður, og Ragnar Þór Ingólfsson, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Staða mála á alþjóðavettvangi setti svip sinn á þingfundavikuna en alls voru haldnar sex sérstakar umræður á Evrópuráðsþinginu. Meðal þeirra var umræða um þróun mála í Georgíu og þátttöku georgískra þingmanna á Evrópuráðsþinginu, um handtöku Ekrem Imamoglu, borgarstjóra Istanbúl, og ástand lýðræðis og mannréttinda í Tyrklandi og um árásarstríðið í Úkraínu og nauðsyn þess að draga Rússland til ábyrgðar og forðast refsileysi. Einnig fóru fram sérstakar umræður um að aflétta tafarlaust hvers kyns hindrunum á mannúðaraðstoð til Gaza og tryggja framfylgd vopnahlés, um mótmæli og óeirðir á Vestur-Balkanskaga og í Mið-Evrópu og um drög að samningi Evrópuráðsins um verndun umhverfisins með refsirétti (sjá fylgiskjal I).

Fundur stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins í Valletta 23. maí.
    Af hálfu Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins sóttu fundinn Sigurður Helgi Pálmason, formaður, og Stígur Stefánsson, deildarstjóri alþjóðadeildar. Sérstakar umræður fóru fram um Radio Free Europe/Radio Liberty (RFE/RL) og hlutverk þingmanna við að viðhalda fjárstuðningi til mannréttinda- og lýðræðismála á tímum þegar framlög til varnarmála eru að hækka. Farið var yfir áherslur Möltu í formennskutíð sinni í ráðherraráðinu og umræður fóru fram um drög að þriðju viðbótarbókun við Evrópusamninginn um gagnkvæma aðstoð í sakamálum frá árinu 1959 og um fjárhagsáætlun Evrópuráðsþingsins fyrir árin 2026 og 2027 (sjá fylgiskjal II).

Fundur Evrópuráðsþingsins í Strassborg 23.–27. júní.
    Af hálfu Alþingis tóku þátt í fundunum Sigurður Helgi Pálmason, formaður, Sigríður Á. Andersen, varaformaður, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Hæst bar ávarp forseta Úkraínu, Volodymyrs Zelenskys, og sameiginleg umræða um lagalegar afleiðingar og mannréttindaáhrif innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og um fangaskipti og lausn pólitískra fanga. Vigdísarverðlaunin voru veitt í annað sinn, Mattias Guyomar, forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, og Robert Abela, forsætisráðherra Möltu, ávörpuðu þingið og haldnar voru sérstakar umræður um hvernig stöðva megi ástandið í mannúðarmálum á Gaza og koma í veg fyrir víðtækari átök í Miðausturlöndum, um árangur og áskoranir í réttindabaráttu kvenna í Evrópu, um tafarlausa lausn þeirra sem sæta pólitískum ofsóknum í Georgíu og um getu Mannréttindadómstóls Evrópu til þess að takast á við áskoranir samtímans (sjá fylgiskjal III).

Fundur formanna landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í Jurmala 22. ágúst.
    Af hálfu Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins sóttu fundinn Sigurður Helgi Pálmason, formaður, og Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum. Formaður lettnesku landsdeildarinnar bauð til sérstaks fundar í Jurmala til þess að ræða þær ógnir sem steðja að lýðræði í dag, stöðuna á Eystrasaltssvæðinu í kjölfar innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og þær áskoranir sem ný staða í öryggis- og varnarmálum felur í sér fyrir samfélögin á Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu (sjá fylgiskjal IV).

Fundur Evrópuráðsþingsins í Strassborg 29. september til 3. október.
    Af hálfu Alþingis tóku þátt í fundinum Sigurður Helgi Pálmason, formaður, Sigríður Á. Andersen, varaformaður, og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, ásamt Auði Örlygsdóttur, sérfræðingi í alþjóðamálum. Á dagskrá þingfundaviku Evrópuráðsþingsins bar einna hæst umræðu um fjölmiðla og öryggi fjölmiðlafólks. Sérstök umræða fór fram um hvernig tryggja megi öryggi blaðamanna sem fjalla um átökin á Gaza-svæðinu. Á dagskrá var einnig umræða um nauðsyn þess að efla aðgerðir til að frelsa úkraínska blaðamenn úr haldi rússneskra stjórnvalda. Þá voru þrír blaðamenn tilnefndir til mannréttindaverðlauna Václavs Havels sem afhent voru í þrettánda skipti og haldin var sérstök minningarathöfn til heiðurs fjölmiðlafólki sem hefur látið lífið við störf sín. Athöfnin var til heiðurs Viktoriu Roshchynu, úkraínskri blaðakonu sem numin var á brott og tekin af lífi þegar hún var á vettvangi stríðsátaka í Úkraínu, og verður hún héðan í frá haldin árlega, á baráttudegi Viktoriu (e. Victory for Viktoria). Þá setti staða heimsmála einnig svip sinn á þingfundavikuna en alls bárust níu beiðnir um sérstakar umræður, þar á meðal um pólitískan óstöðugleika í Serbíu, um nýjar ógnir við lýðræði í Evrópu af hálfu Rússlands, um lýðræði og réttarríki í Tyrklandi og Georgíu og um drög að samningi um alþjóðlega skaðabótanefnd fyrir Úkraínu (sjá fylgiskjal V).

Fundur stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins í Kísiná 21.–22. nóvember.
    Af hálfu Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins sóttu fundinn Sigurður Helgi Pálmason, formaður, og Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum. Hæst bar umræðu um kosningaeftirlit í þingkosningunum í Moldóvu 28. september og sérstök umræða um aðgerðir almennings til varnar mannréttindum og lýðræði í Lettlandi. Lettneska þingið samþykkti í lok október að segja sig úr Istanbúl-samningnum sem er samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi. Þá fór einnig fram umræða um skýrslu og ályktun jafnréttisnefndar um forvarnir og baráttu gegn kynjaðri mismunun innan heilbrigðiskerfisins sem og umræður um þrjár skýrslur og ályktanir reglunefndar um hvernig taka megi á hagsmunaárekstrum á vettvangi þingsins, um breytingar á starfsreglum og um hvernig styðja megi þingmenn til virkari þátttöku á Evrópuráðsþinginu. Í aðdraganda fundar stjórnarnefndar kom sérnefnd á vegum framkvæmdastjórnarinnar saman sem hefur það hlutverk að styðja við framtak Evrópuráðsins um nýjan lýðræðissáttmála Evrópu. Helsta umræðuefni þess fundar voru erlend afskipti og áhrif þeirra á lýðræði. Beindust sjónir einna helst að nýafstöðnum þingkosningum í Moldóvu (sjá fylgiskjal VI).

5. Ályktanir, tilmæli og álit Evrópuráðsþingsins árið 2025.
    Ályktun er ákvörðun Evrópuráðsþingsins eða yfirlýsing um afstöðu þess í tilteknu máli. Tilmæli eru tillögur sem jafnan byggjast á ályktunum þingsins og er beint til ráðherranefndarinnar sem tekur þær til umfjöllunar og bregst við eftir atvikum með beinum aðgerðum eða tillögu að lagasetningu í aðildarríkjunum. Álit eru oftast gefin sem umsögn eða svör við spurningum sem ráðherranefndin beinir til þingsins, t.d. varðandi inngöngu nýrra aðildarríkja, en einnig um fjárlög Evrópuráðsins og drög að nýjum Evrópusamningum.
    Nálgast má upplýsingar um ályktanir, álit og tilmæli til ráðherranefndar Evrópuráðsins sem samþykkt voru á þingfundum og fundum stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins árið 2025 á vefsíðu þess.

Alþingi, 2. febrúar 2026.

Sigurður Helgi Pálmason,
form.
Sigríður Á. Andersen, varaform. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir.

Fylgiskjal I.


FRÁSÖGN

af fundum Evrópuráðsþingsins í Strassborg 7.–11. apríl 2025.


    Af hálfu Alþingis tóku þátt í fundunum Sigurður Helgi Pálmason, formaður, Sigríður Á. Andersen, varaformaður, og Ragnar Þór Ingólfsson, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Staða mála á alþjóðavettvangi setti svip sinn á þingfundavikuna en alls voru haldnar sex sérstakar umræður á Evrópuráðsþinginu. Meðal þeirra var umræða um þróun mála í Georgíu og þátttöku georgískra þingmanna á Evrópuráðsþinginu, um handtöku Ekrem Imamoglu, borgarstjóra Istanbúl, og ástand lýðræðis og mannréttinda í Tyrklandi og um árásarstríðið í Úkraínu og nauðsyn þess að draga Rússland til ábyrgðar og forðast refsileysi. Einnig fóru fram sérstakar umræður um að aflétta tafarlaust hvers kyns hindrunum á mannúðaraðstoð til Gaza og tryggja framfylgd vopnahlés, um mótmæli og óeirðir á Vestur-Balkanskaga og í Mið-Evrópu og um drög að samningi Evrópuráðsins um verndun umhverfisins með refsirétti.
    Theodoros Rosoupoulos, forseti Evrópuráðsþingsins, beindi sjónum sínum að innrásarstríði Rússlands gegn Úkraínu í opnunarávarpi sínu og sagði að lyktir stríðsins hefðu óhjákvæmilega afdrifaríkar afleiðingar fyrir framtíð álfunnar. Evrópsk lýðræðisríki yrðu að halda áfram að styðja Úkraínu með öflugum hætti. Barátta úkraínsku þjóðarinnar væri barátta allrar Evrópu og fyrir þeim gildum og meginreglum sem evrópsk samfélög grundvölluðust á. Rosoupoulos sagði augu heimsins beinast að Evrópu og að álfan þyrfti að taka skýra forystu í að standa vörð um mannréttindi, lýðræði og réttarríki nú þegar grafið væri undan stoðum lýðræðis um heim allan.
    Sigurður Helgi Pálmason tók til máls í umræðu um aukinn viðnámsþrótt gegn utanaðkomandi afskiptum sem ætlað er að grafa undan lýðræði í Evrópu. Í ályktun um málið beinir Evrópuráðsþingið því til stjórnvalda aðildarríkja að stuðla að auknu gagnsæi í stjórnmálum og stjórnsýslu, efla lýðræðisstofnanir og auka menntun og læsi almennra borgara svo þeir séu betur í stakk búnir til að koma auga á áróður og meta gæði upplýsinga. Í ræðu sinni vísaði Sigurður Helgi til Reykjavíkuryfirlýsingarinnar og meginreglna um lýðræði sem samþykktar voru á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík og hvatti leiðtoga Evrópu til að fylgja þeim skuldbindingum eftir með markvissum aðgerðum. Hann sagði sérstaklega alvarlegt hvernig erlend ríki beittu nýrri tækni og aðferðum við að grafa undan trausti, hafa áhrif á kosningar og skapa sundrung í samfélögum. Lýðræðislegur viðnámsþróttur krefðist samstarfs milli stjórnvalda, frjálsra félagasamtaka, stofnana og einstaklinga, með áherslu á fjölmiðlalæsi, sérstaklega meðal ungs fólks. Fjölmiðlalæsi yrði að vera hluti af menntastefnu ríkja og nauðsynlegt að stuðla að auknu alþjóðlegu samstarfi til að bregðast við netógnum og upplýsingaóreiðu á alþjóðavísu.
    Í umræðu um þróun mála í Georgíu og þátttöku georgískra þingmanna á Evrópuráðsþinginu lýstu þingmenn yfir miklum áhyggjum af versnandi stöðu lýðræðis í landinu og dýpkandi pólitískum klofningi. Gerð var athugasemd við kjörbréf georgísku landsdeildarinnar við upphaf þingfundar í janúar á efnislegum grunni en eftir umfjöllun á vettvangi þingsins var ákveðið að samþykkja kjörbréfin með skilyrðum. Georgíska landsdeildin kaus hins vegar að draga þátttöku sína til baka. Í umræðu um stöðuna fordæmdu þingmenn áframhaldandi aðgerðir gegn mótmælendum, blaðamönnum og almenningi og kröfðust lausnar þeirra sem hneppt hefðu verið í varðhald, rannsóknar á lögregluofbeldi og að stjórnvöld stöðvi án tafar illa meðferð á mótmælendum. Þá bentu þingmenn einnig á aukna skerðingu fjölmiðlafrelsis, tjáningar- og fundarfrelsis, gagnrýndu ný lög og breytingar á kosningalögum sem grafa undan lýðræði í landinu og vöruðu stjórnvöld við því að útilokun stjórnarandstöðu fæli í sér alvarlegt brot á skuldbindingum Georgíu gagnvart Evrópuráðinu. Þá lýstu þingmenn jafnframt yfir vonbrigðum með að georgíska sendinefndin hefði sagt af sér og hafnað frekara samtali í stað þess að nýta vettvanginn til eflingar lýðræðis í landinu.
    Í umræðu um stöðu mannréttinda og lýðræðis í Tyrklandi kallaði Evrópuráðsþingið eftir tafarlausri lausn borgarstjóra Istanbúl, Ekrem Imamoglu, og fordæmdi pólitíska hvata að baki handtökunni. Í ályktun þingsins segir að aðgerðirnar virðist til þess fallnar að hindra framboð Imamoglu til forseta, draga úr möguleikum á fjölflokkakerfi og bæla niður lýðræðislega umræðu. Þá fordæmdi þingið einnig ólögmætar handtökur á mótmælendum og óhóflega valdbeitingu lögreglu og illa meðferð í haldi.
    Í umræðu um Úkraínu fordæmdi þingið áframhaldandi ólögmætt árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og lagði áherslu á nauðsyn þess að draga Rússland til ábyrgðar svo standa mætti vörð um alþjóðalög og réttlæti. Þingið fagnaði skrefum í átt að stofnun sérstaks dómstóls um glæpi árásarstríðsins og hvatti til þess að frystar eigur Rússa á Vesturlöndum yrðu nýttar til enduruppbyggingar í Úkraínu. Jafnframt kallaði þingið eftir því að aðildarríki fylgdu eftir handtökuskipunum á hendur rússneskum leiðtogum og áréttaði að friður í Úkraínu yrði að byggjast á alþjóðalögum og ábyrgð, ekki refsileysi.
    Í umræðu um verndun umhverfis með refsirétti veitti Evrópuráðsþingið álit sitt á drögum að samningi gegn umhverfisglæpum sem er fyrsti lagalega bindandi alþjóðlegi samningurinn á þessu sviði. Þingið fagnaði samningnum en lýsti yfir áhyggjum af skorti á metnaði og takmörkuðu umfangi samningsins. Evrópuráðsþingið lagði m.a. til að ólöglegar fiskveiðar og skógareyðing yrðu felld inn í samninginn og að hugtakið vistmorð (e. ecocide) yrði skilgreint í lögum. Þá kallaði þingið einnig eftir eflingu eftirlits, skýrari lagahugtökum og auknu fjármagni til að tryggja undirritun, fullgildingu og framkvæmd samningsins. Evrópuþinginu ber að veita álit sitt á drögum að fjölþjóðlegum samningum Evrópuráðsins áður en þeir fara fyrir ráðherraráðið. Drögin að samningi gegn umhverfisglæpum verða lögð fyrir ráðherraráðið til samþykktar 14. maí 2025 sem hluti af víðtækari umhverfispakka.
    Umræða um tafarlausa afléttingu á hindrunum á mannúðaraðstoð á Gaza var svokölluð „current affairs debate“ og því lá ekki ályktun eða skýrsla til grundvallar umræðunni. Paul Galles, þingmaður frá Lúxemborg, var framsögumaður og sagðist harmi sleginn yfir árásum og takmörkunum sem sett væru á mannúðarsamtök á Gaza-svæðinu. Engin mannúðaraðstoð hefði borist inn á svæðið síðan 2. mars, sem setti líf tveggja milljóna manna í bráða hættu vegna skorts á vatni, mat og lyfjum. Hann hvatti þingmenn til þess að tala máli saklausra borgara svæðisins á alþjóðavettvangi og þrýsta á samningaviðræður til að tryggja fulla og varanlega framkvæmd vopnahlés á svæðinu. Galles hvatti þingmenn einnig til að nýta áheyrnaraðild Ísraels að Evrópuráðinu svo þrýsta mætti á að mannúðaraðstoð berist á svæðið. Þá var ákall um örugga frelsun allra gísla Hamas endurtekið af hálfu þingsins en hluti þingmanna gagnrýndi þingið þó fyrir að vera ekki afdráttarlausari í kröfu sinni um skilyrðislausa frelsun ísraelskra gísla sem enn væru í haldi á Gaza. Við lok umræðunnar fór forseti Evrópuráðsþingsins fram á mínútu þögn til þess að heiðra öll fórnarlömb hryllilegu árásanna 7. október 2023 og líf þeirra tugþúsunda saklausra borgara sem fallið hefðu í kjölfarið.
    Umræðan um óeirðir og mótmæli á Vestur-Balkanskaga og í Mið-Evrópu var einnig „current affairs debate“ og kallaði því ekki á skýrslu eða ályktun þingsins. George Papandreou, grískur þingmaður, var framsögumaður og lýsti yfir stolti yfir framgöngu borgara á svæðinu sem stæðu upp gegn spillingu og krefðust réttlætis, lýðræðis og frelsis. Hann sagði að mótmælin fælu ekki í sér ógn við lýðræðið, þau væru ein skýrasta birtingarmynd lýðræðis í verki.     Sigríður Á. Andersen talaði fyrir hönd flokkahóps hægri manna (ECPA) í umræðu um lagaleg áhrif aðildar Evrópusambandsins að mannréttindasáttmála Evrópu. Hún sagði að þrátt fyrir að greiða þyrfti úr mörgum lagalegum álitaefnum og draga úr álagi á Mannréttindadómstól Evrópu ætti að horfa til þess að færa valdheimildir ESB aftur til aðildarríkjanna og efla dómstól ESB sérstaklega á sviði mannréttinda frekar en að dómstóll ESB gerðist aðili að mannréttindasáttmála Evrópu. Málum sem hefðu farið í gegnum öll dómstigin þrjú á Íslandi en endað fyrir Mannréttindadómstól Evrópu hefði fjölgað verulega. Því væri í raun um fjögur dómstig að ræða en ekki þrjú í landinu. Taldi Sigríður að slík málsmeðferð, þar sem mál væru dregin í gegnum ótal áfrýjunarskref, drægi úr trausti almennings til dómskerfisins í heild og veikti þá mikilvægu samræmdu dómaframkvæmd sem ætti að ríkja í beitingu laganna. Umræðan á sér langan aðdraganda en hún hefur staðið yfir í um 40 ár. Í ályktun þingsins sagði að nú sæi loks fyrir endann á ferlinu, m.a. vegna nýlegra dóma sem fallið hefðu við dómstól ESB og skýrðu frekar lögsögu dómstólsins á tilteknum sviðum. Einnig kom fram að með aðild gætu einstaklingar höfðað mál gegn stofnunum ESB ef brotið væri á réttindum þeirra, og þar með væri hægt að tryggja með betri hætti en áður samræmingu milli dómstóla Evrópu. Í því fælist jafnframt mikilvæg skuldbinding við mannréttindi á tímum þegar sótt væri að sameiginlegum gildum Evrópu.
    Opinn fundur stjórnmálanefndar fór fram um málefni Grænlands með þátttöku Ööju Chemnitz og Michaels Aastrups Jensens, þingmanna í danska þinginu. Chemnitz lagði ríka áherslu á mikilvægi afstöðu Grænlendinga; ekkert um Grænland án Grænlands, og sagði mikilvægt að koma þeim skilaboðum til skila við Bandaríkin að Grænland væri ekki til sölu. Nýleg skoðanakönnun sýndi að 85% Grænlendinga vilji ekki verða hluti af Bandaríkjunum. Breið samstaða meðal grænlensks stjórnmálafólks varðandi þessa afstöðu birtist m.a. í því að í kjölfar kosninga þar í landi þann 11. mars sl. var stærsta samsteypustjórn í sögu Grænlands mynduð. Grænlendingar vilja byggja upp grænlenskt samfélag, ferðaþjónustu og eigin efnahag. Komið var inn á varnarsamning Danmerkur og Bandaríkjanna frá 1951 en sá samningur veitir Bandaríkjunum afar ríkar heimildir. Á tímabili voru herstöðvar á Grænlandi 15 talsins en í dag er einungis starfrækt ein stöð, Pituffik-herstöðin á Norður-Grænlandi. Það hafi verið ákvörðun Bandaríkjanna að draga úr starfseminni en ekki Danmerkur og ef Bandaríkin vilji gefa í aftur geti þau gert það byggt á téðum samningi. Aastrup Jensen minnti m.a. á að Grænland ætti aðild að Evrópuráðinu og NATO og sagði hann að ef grænlenska þjóðin myndi vilja boða til kosninga um sjálfstæði Grænlands þá væri ekkert sem stæði í vegi fyrir því. Sigríður Á. Andersen tók þátt í fundinum og spurði annars vegar hvort viðhorf Danmerkur hefði nýlega breyst varðandi sjálfstæði Grænlands og hins vegar hvort Grænland gæti nýtt sér þessa miklu og nýfengnu athygli með einhverjum hætti. Í svörum þingmannanna kom fram að sett hefðu verið lög árið 2009 sem bætt hefðu stöðu Grænlands gagnvart Danmörku og að þau veittu grænlensku þjóðinni fullt vald yfir eigin framtíð. Chemnitz sagði að athygli heimsins hefði óhjákvæmilega áhrif á stöðu Grænlands og eitt af því sem biði nýrra stjórnvalda væri endurskoðun á lögum um sjálfsstjórn Grænlands frá árinu 2009 og að fara þurfi af stað í sannleiks- og sáttaferli eftir margra áratuga ríkjasamband við Danmörku.
    Í þingfundavikunni í Strassborg fóru einnig fram umræður um tengsl Evrópuráðsins og Evrópska stjórnmálasamfélagsins (ECP) og um framkvæmd dóma Mannréttindadómstóls Evrópu. Xavier Espot Zamora, forsætisráðherra furstadæmisins Andorra, og Henri, stórhertogi af Lúxemborg, ávörpuðu þingið en Lúxemborg fer með formennsku í Evrópuráðinu. Xavier Bettel, utanríkis- og utanríkisviðskiptaráðherra Lúxemborgar og formaður ráðherraráðsins, fór yfir áherslur Lúxemborgar og svaraði spurningum þingmanna. Þá átti Alain Berset, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, einnig í samtali við þingmenn um stöðu, aðgerðir og áherslur Evrópuráðsins og Michael O'Flaherty, mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins, kynnti Evrópuráðsþinginu fyrstu ársskýrslu sína en hann var kjörinn í embættið í janúar 2024.
    Tvenn verðlaun voru veitt í þingfundavikunni, annars vegar verðlaun Evrópuráðsins árið 2025 fyrir safn ársins, sem komu að þessu sinni í hlut Euskararen Etxea, húss basknesku tungunnar í Bilbao á Spáni, og hins vegar Evrópuverðlaunin 2025 en þau féllu í skaut tyrknesku borgarinnar Gaziantep. Á dagskrá Evrópuráðsþingsins var einnig umræða um niðurstöður kosningaeftirlits með þingkosningum í Kósovó, um að koma á fót samstarfi Evrópuráðsins við Rómönsku-Ameríku, um hvernig binda megi endi á fjöldabrottrekstur útlendinga úr aðildarríkjum Evrópuráðsins og um hvernig efla megi virðingu fyrir réttarríkinu og baráttu gegn spillingu innan ráðsins sem og um breytingar á ýmsum ákvæðum í starfsreglum Evrópuráðsþingsins.
    Samhliða þingfundum fundaði Íslandsdeild með Ragnhildi Arnljótsdóttur, fastafulltrúa Íslands gagnvart Evrópuráðinu. Sigurður Helgi Pálmason sat jafnframt fund formanna landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja (NB8). Frekari upplýsingar fást hjá sérfræðingi Íslandsdeildar og á vefsvæðinu pace.coe.int.

Fylgiskjal II.

FRÁSÖGN
af fundi stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins í Vallettu á Möltu 23. maí 2025.


    Af hálfu Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins sóttu fundinn Sigurður Helgi Pálmason, formaður, og Stígur Stefánsson, deildarstjóri alþjóðadeildar.
    Hefð er fyrir því að stjórnarnefndarfundur að vori fari fram í því ríki sem fer með sex mánaða formennsku í ráðherranefnd Evrópuráðsins en Malta gegnir því hlutverki frá 14. maí til 14. nóvember. Á fundinum fór Ian Borg, utanríkisráðherra Möltu, yfir áherslur formennskunnar sem beinast einkum að málefnum barna og ungs fólks. Vernd barna og hagsmunir þeirra eru í forgrunni, með sérstakri áherslu á að styrkja baráttuna gegn kynferðisofbeldi og misnotkun sem á sér stað í gegnum stafrænar leiðir. Einnig vill Malta efla þátttöku ungs fólks í lýðræðislegu samfélagi, tryggja að rödd þess heyrist og sé virt við ákvarðanatöku. Einungis með því að efla hverja kynslóð til þátttöku er hægt að sporna við hnignun lýðræðis. Samstaða og stuðningur við Úkraínu, í varnarbaráttu gegn ólöglegri allsherjarinnrás Rússlands, verður áfram í öndvegi. Borg lagði áherslu á að Malta hefði sem hlutlaust ríki möguleika á að gegna hlutverki sáttasemjara í deilum og átökum milli ríkja. Í fyrirspurnum til Borgs var nokkuð fjallað um bátaflóttafólk á sunnanverðu Miðjarðarhafi og hlutverk sjóhers Möltu við björgun og leit á hafsvæðinu umhverfis eyríkið. Borg lagði áherslu á að öll ríki Evrópu yrðu að vinna saman að flóttamannamálum og að ósanngjarnt væri að ríki á syðri landamærum Schengen bæru stærstu byrðarnar. Borg sagði flóttamannaleiðina til Evrópu yfir Miðjarðarhafið undir stjórn skipulagðra glæpagengja sem smygla fólki og hafa gjarnan af þeim aleiguna og misnota það á grimmilegan hátt. Til úrbóta hefði verið fjárfest í flóttamannamiðstöðvum í Norður-Afríku auk samvinnu við upprunaríki flóttafólks þar sem pólitísk staða leyfir slíkt.
    Sérstök umræða fór fram um Radio Free Europe/Radio Liberty (RFE/RL). Fjölmiðlinum var komið á fót í kalda stríðinu sem mótvægi við áróður og falsfréttir fjölmiðla í Austur-Evrópu. Í dag er RFE/RL með útsendingu á 27 tungumálum sem nær til 23 ríkja í austanverðri Evrópu, Mið-Asíu og Miðausturlöndum. Starfsemi miðilsins, sem að mestu fer fram í Prag, stendur nú frammi fyrir alvarlegum áskorunum þar sem Bandaríkjastjórn hefur lokað fyrir fjármögnun hans þrátt fyrir að bandaríska þingið hafi samþykkt fjárveitingu til rekstursins. Litáíski þingmaðurinn Emanuelis Zingeris var framsögumaður í umræðunni og lagði áherslu á núverandi hlutverk RFE/RL við að sporna við falsfréttum, áróðri og þeim öflum sem reyna að grafa undan lýðræðiskerfum Evrópu. Hann fagnaði neyðarframlagi frá framkvæmdastjórn ESB upp á 5,5 milljónir evra sem gerir miðlinum kleift að halda starfsemi sinni gangandi og kallaði jafnframt eftir því að Evrópuríkin tryggðu reksturinn til framtíðar. Zingeris lagði til að stjórnmálanefnd Evrópuráðsþingsins tæki starfsemi og framtíðarfjármögnun RFE/RL til sérstakrar skoðunar. Í umræðunni kom fram að 40 milljónir manna fylgjast með miðlum RFE/RL í viku hverri, þar af um 9% íbúa Rússlands og 10% íbúa Íran.
    Sérstök umræða fór einnig fram um hlutverk þingmanna við að viðhalda fjárstuðningi til mannréttinda- og lýðræðismála á tímum þegar framlög til varnarmála eru að hækka. Frummælandinn, Andrej Hunko, lýsti yfir áhyggjum af því að stóraukin framlög til varnar- og öryggismála hefðu leitt til þrýstings um niðurskurð á öðrum mikilvægum sviðum, t.d. þróunarsamvinnu og mannréttindamálum og tók dæmi af vaxandi hópi þýskra ellilífeyrisþega sem lifa undir fátæktarmörkum. Í umræðunni komu þó einnig fram önnur sjónarmið, þar sem því var haldið fram að aukin framlög til varnarmála væru einmitt leið ríkja til að verja mannréttindi og öryggi eigin borgara, og því væri ekki um mótsagnir að ræða.
    Þá var kynnt skýrsla og samþykkt álit um drög að þriðju viðbótarbókun við Evrópusamninginn um gagnkvæma aðstoð í sakamálum frá árinu 1959. Viðbótarbókunin snýst fyrst og fremst um að laga samstarfið að breyttu tækniumhverfi með það að markmiði að auðvelda og efla samstarf aðildarríkja Evrópuráðsins á þessu sviði. Með samþykkt álitsins mælir Evrópuþingið með því að ráðherranefnd Evrópuráðsins samþykki viðbótarbókunina en hvetur jafnframt til þess að tryggt verði að eftirlit með borgurum fari ætíð fram í samræmi við alþjóðleg mannréttindaviðmið.
    Loks var kynnt skýrsla og samþykkt ályktun um fjárhagsáætlun Evrópuráðsþingsins fyrir árin 2026 og 2027. Í ályktuninni er farið yfir hvernig Evrópuþingið mun vinna að pólitískum áherslumálum á þessu tímabili. Þeirra á meðal er aukinn stuðningur við Úkraínu með áherslu á stöðu barna í gegnum þingmannanet um stöðu barna í Úkraínu. Einnig á að auka stuðning við framkvæmd dóma Mannréttindadómstóls Evrópu með þingmannasamstarfi. Þá er áhersla á innleiðingu Lýðræðissáttmálans (e. Pact for Democracy) með því að veita honum stuðning þingmanna, efla samstarf á sviði lýðræðislegra kosninga og auka samskipti við frjáls félagasamtök, þar á meðal fulltrúa lýðræðissinna í Hvíta-Rússlandi og Rússlandi, sem aðhyllast gildi og meginreglur Evrópuráðsins.




Fylgiskjal III.

FRÁSÖGN
af fundum Evrópuráðsþingsins í Strassborg 23.–27. júní 2025.


    Af hálfu Alþingis tóku þátt í fundunum Sigurður Helgi Pálmason, formaður, Sigríður Á. Andersen, varaformaður, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Hæst bar ávarp forseta Úkraínu, Volodymyrs Zelenskys, og sameiginleg umræða um lagalegar afleiðingar og mannréttindaáhrif innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og um fangaskipti og lausn pólitískra fanga. Vigdísarverðlaunin voru veitt í annað sinn, Mattias Guyomar, forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, og Robert Abela, forsætisráðherra Möltu, ávörpuðu þingið og haldnar voru sérstakar umræður um hvernig stöðva megi ástandið í mannúðarmálum á Gaza og koma í veg fyrir víðtækari átök í Miðausturlöndum, um árangur og áskoranir í réttindabaráttu kvenna í Evrópu, um tafarlausa lausn þeirra sem sæta pólitískum ofsóknum í Georgíu og um getu Mannréttindadómstóls Evrópu til þess að takast á við áskoranir samtímans.
    Theodoros Rousopoulos, forseti Evrópuráðsþingsins, beindi sjónum sínum að nýlegu opnu bréfi þar sem níu forsætisráðherrar Evrópu kalla eftir samtali um túlkun Mannréttindadómstóls Evrópu á mannréttindasáttmála Evrópu á sviði innflytjendamála. Rousopoulos varaði stjórnvöld við því að vega að sjálfstæði dómstóla. Hann sagðist skilja þær áskoranir sem ríkin stæðu frammi fyrir en kallaði eftir því að þau einbeittu sér að því að finna lausnir í stað þess að fara auðveldu leiðina og benda á dómstóla. Slíkt færi gegn grundvallargildum stofnunarinnar. Sagan hefði sýnt okkur að þegar pólitíska valdið beindist gegn dómsvaldinu væri það lýðræðið sem bæri skaðann. Þá beindi Rousopoulos einnig sjónum að stöðu friðar og öryggis í heiminum sem hann sagði kristallast í stigmögnum átaka í Miðausturlöndum og mannúðarhamförunum á Gaza. Hann sagði mikilvægt að láta ekki deigan síga. Evrópuráðið væri eina stofnunin á alþjóðavísu þar sem grundvallarstarfsemin sneri að varðveislu og uppbyggingu lýðræðis. Hér væru það ekki vopn eða fjármagn heldur fólk sem væri í brennidepli.
    Verðlaun í nafni Vigdísar Finnbogadóttur fyrir valdeflingu kvenna voru veitt í annað sinn og komu þau að þessu sinni í hlut palestínsku samtakanna Konur sólarinnar (e. Women of the Sun). Samtökin voru stofnuð af Reem Hajajreh í þeim tilgangi að skapa tækifæri fyrir palestínskar konur til að komast inn á karllæg svið eins og stjórnmál, viðskipti og tækni. Samtökin hafa einnig leitt saman palestínskar og ísraelskar konur til að stuðla að samræðum og efla gagnkvæman skilning og brjóta niður múra og fordóma þeirra á milli. Jafnréttisverðlaunin eru sameiginlegt framtak íslenskra stjórnvalda og Evrópuráðsþingsins en þeim er ætlað að verðlauna einstakling eða samtök sem stuðla að eða styðja með framúrskarandi hætti við valdeflingu kvenna. Alls bárust nefndinni 111 tilnefningar víðs vegar að úr heiminum og voru þrjú valin úr þeirra hópi. Hin tvö voru The Green Girls Organisation frá Kamerún og Gisèle Pelicot, frönsk kona sem bar vitni í réttarhöldum yfir eiginmanni hennar sem hafði byrlað henni ítrekað lyf, nauðgað henni og boðið tugum karla að gera slíkt hið sama.
    Forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, Mattias Guyomar, tók þátt í sérstakri umræðu um getu dómstólsins til þess að takast á við áskoranir samtímans. Í umræðunni komu fram skiptar skoðanir á bréfi forsætisráðherranna níu um úrskurði dómstólsins á sviði innflytjendamála. Litu sumir þingmenn svo á að í bréfinu fælist ákveðin árás á sjálfstæði dómstólsins á meðan aðrir töldu afar mikilvægt að skapa svigrúm til umræðu um túlkun dómstólsins á mannréttindasáttmála Evrópu. Sigríður Á. Andersen tók þátt í umræðunni og sagðist fagna framtakinu. Hún varaði við því að Mannréttindadómstóll Evrópu skipti sér í auknum mæli af ákvörðunum stjórnvalda, ekki síst á sviði innflytjendamála, og væri farinn að vefengja mat dómstóla aðildarríkja, líka í matskenndum málum þar sem dómstóllinn hefði áður stigið varlegar til jarðar.
    Sameiginleg umræða fór fram um lagalegar afleiðingar og mannréttindaáhrif innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og um fangaskipti og lausn pólitískra fanga. Sigurður Helgi tók til máls í þeirri umræðu og talaði um mikilvægi vonar sem hann fyndi sterkt fyrir á vettvangi Evrópuráðsþingsins. Hann upplifði að það sem þar væri sagt og gert skipti raunverulegu máli. Hann fagnaði þeim áfanga sem náðst hefði í að draga Rússland til ábyrgðar fyrir árásarstríðið í Úkraínu með stofnun tjónaskrárinnar og sérstaks dómstóls um glæp gegn friði.
    Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, ávarpaði þingið eftir að hafa undirritað tvíhliða samning við Alain Berset, framkvæmdastjóra Evrópuráðsins, um stofnun sérstaks dómstóls vegna glæpa gegn friði í Úkraínu. Dómstóllinn, sem stofnaður er á vettvangi Evrópuráðsins, hefur það hlutverk að draga til ábyrgðar háttsetta leiðtoga sem framið hafa glæpi gegn friði í Úkraínu. Hann er ein af þremur stoðum sem eiga að tryggja að Rússland verði látið bera ábyrgð á því tjóni sem ríkið hefur valdið vegna innrásarinnar í Úkraínu. Hinar tvær eru tjónaskráin og skaðabótanefnd sem stefnt er á að koma á fót bráðlega. Grunnurinn að þessu mikilvæga starfi var lagður með yfirlýsingu á leiðtogafundi Evrópuráðsins sem haldinn var í Reykjavík í maí 2023. Næsta skref í þessari vegferð er að aðildarríkjum Evrópuráðsins sem og ríkjum utan þess bjóðist að gerast aðilar að dómstólnum með sérstöku samkomulagi. Í ávarpi sínu í Evrópuráðsþinginu sagði Zelensky að hugmyndin hefði fyrst komið fram á vettvangi þingsins og að hún nyti nú vaxandi stuðnings meðal bandalagsríkja í Evrópu og víðar. Hann lagði áherslu á að allir rússneskir stríðsglæpamenn, þar á meðal Pútín, yrðu dregnir til ábyrgðar með samstilltu pólitísku og lagalegu átaki. Með dómstólnum yrði sett mikilvægt fordæmi til að koma í veg fyrir refsileysi fyrir glæp gegn friði.
    Sérstök umræða fór fram um mannúðarhörmungarnar á Gaza og hvernig koma mætti í veg fyrir frekari stigmögnun átaka í Miðausturlöndum sem felld var undir knýjandi málsmeðferð (e. urgent procedure). Þingmenn lögðu áherslu á að lausn á langvarandi og djúpstæðum átökum í Miðausturlöndum fyndist ekki með hernaðaraðgerðum heldur með víðtæku pólitísku samráði. Í ályktun þingsins var varað við því að grafa undan viðkvæmu vopnahléi milli Ísraels og Írans og krafan um tafarlaust og varanlegt vopnahlé á Gaza ítrekuð, og um lausn allra gísla og óhindraðan aðgang mannúðaraðstoðar á svæðið. Evrópuráðsþingið fordæmdi sérstaklega að hungri væri beitt sem vopni í átökunum og mannúðaraðstoð nýtt í pólitískum tilgangi með skerðingu á nauðsynlegum gögnum og aðstoð. Slíkt væri brot á alþjóðalögum. Þingið lagði jafnframt áherslu á að koma þyrfti í veg fyrir hvers kyns ólögmætan brottflutning Palestínumanna af svæðinu og hvers kyns tilraunir til breytinga á landamærum Gaza-svæðisins. Þá ítrekaði þingið einnig stuðning sinn við tveggja ríkja lausn og hvatti aðildarríki og áheyrnarríki Evrópuráðsins til að vinna með Sameinuðu þjóðunum og alþjóðadómstólum að því að tryggja að alþjóðalögum væri fylgt.
    Þá fóru einnig fram sérstakar umræður um réttindi kvenna í Evrópu, árangur og áskoranir og um tafarlausa lausn þeirra einstaklinga sem sæta pólitískum ofsóknum í Georgíu. Í umræðu um jafnrétti í Evrópu kom m.a. fram að þrátt fyrir mikinn árangur á undanförnum árum væri nú sótt að jafnrétti í Evrópu, ekki síst í gegnum hatursorðræðu og upplýsingaóreiðu á samfélagsmiðlum. Evrópuþingið hvatti aðildarríki til að festa jafnrétti í lög og stefnumótun á öllum sviðum. Sérstök áhersla var lögð á að tryggja öruggt aðgengi að þungunarrofi og mikilvægi þess að berjast gegn kynbundnu ofbeldi, hatursorðræðu og hvers kyns mismunun. Í umræðu um pólitískar ofsóknir í Georgíu lögðu þingmenn áherslu á þá ábyrgð sem Evrópuráðsþingið bæri gagnvart þingmönnum í Georgíu og öllum þeim óbreyttu borgurum sem þráðu að njóta sömu réttinda og aðrir Evrópubúar. Það væri afar mikilvægt að taka skýra afstöðu og verja lýðræðisleg réttindi borgara Georgíu.
    Sigurður Helgi ávarpaði fund tengslanets þingmanna Evrópuráðsþingsins í málefnum úkraínskra barna og sagði frá upplifun sinni af ferð tengslanetsins til Kænugarðs fyrr í mánuðinum. Hann sagði ferðina hafa haft afar mótandi áhrif á sig. Hann hefði komið heim sem betri maður. Ferðin hefði reynt á. Það hefði verið afar átakanlegt að upplifa óöryggið og árásirnar sem úkraínska þjóðin hefði mátt þola í á fjórða ár. Það sem markaði hann mest hefði verið frásögn ungs pilts sem sagði frá raunum sínum eftir að hafa verið brottnuminn af rússneskum yfirvöldum, rænt frá upprunalandi sínu, fjölskyldu sinni og þvingaður í her óvinaríkisins. Hann myndi geyma sársauka þessa drengs með sér og ljá rödd sína málstað úkraínskra barna eins lengi og þurfa þætti.
    Evrópuráðsþingið afgreiddi skýrslu og ályktun um mannréttindamiðaða nálgun í orkuskiptum. Í umræðu um málið kom m.a. fram að orkuskipti ættu að byggjast á mannréttindum og tryggja aðgang að hreinni, öruggri og hagkvæmri orku sem forsendu félagslegra réttinda, sérstaklega fyrir viðkvæma hópa. Þingið lagði áherslu á afnám niðurgreiðslna í vinnslu og notkun jarðefnaeldsneytis, auknar fjárfestingar í endurnýjanlegri orku og verndun tekjulágra gegn orkufátækt með stuðningsaðgerðum eins og verðþökum og styrkjum. Sigríður Á. Andersen tók til máls fyrir hönd flokkahóps íhaldsmanna og þjóðernissinna (e. European Conservatives, Patriots & Affiliates, ECPA). Í ræðu sinni sagði Sigríður að aðstæður ríkja Evrópusambandsins væru afar ólíkar þegar kæmi að orkuskiptum frá jarðefnaeldsneyti til sjálfbærari orkugjafa. Hún benti á að Ísland, þar sem um 90% af orku sem væri nýtt væri endurnýjanleg, hefði engu að síður þurft að innleiða tilskipanir ESB, m.a. skyldu til að flytja inn óhagkvæmt lífeldsneyti og kaupa losunarheimildir frá löndum með mun lægri hlutdeild endurnýjanlegrar orku. Þetta teldi hún vera óréttlátt og jafnvel svik við almenning. Sigríður gagnrýndi að kostnaðurinn af þessari stefnu félli á heimili og fyrirtæki, án þess að sýnt hefði verið fram á raunverulegan árangur í losun gróðurhúsalofttegunda. Þvert á móti hefði þetta stuðlað að því að framleiðsla flyttist frá Evrópu til landa með enn lakari umhverfisviðmið. Hvatti Sigríður til gagnrýninnar endurskoðunar á orkustefnu sambandsins.
    Ian Borg, varaforsætisráðherra, utanríkis- og ferðamálaráðherra Möltu og forseti ráðherraráðsins, ávarpaði þingið, en Malta gegnir nú formennsku í Evrópuráðinu, og Alain Berset, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, átti í samtali við þingmenn venju samkvæmt. Einnig fóru fram umræður um mótmælaöldu og ólgu meðal borgara og viðbrögð lögreglu í aðildarríkjum Evrópuráðsins, um mikilvægi aukins fjölbreytileika meðal kjörinna fulltrúa, um vernd mannréttinda í tengslum við íþróttir og hlutverk Ólympíuhreyfingarinnar í friðaruppbyggingu. Einnig var fjallað um björgun mannslífa á Miðjarðarhafi og mannréttindavernd fólks á flótta, um áskoranir og þarfir þeirra sem koma að móttöku og þjónustu á sviði fólksflutninga, bæði innan einkageirans og hins opinbera, um drög að viðauka við Evrópusamning um varnir gegn hryðjuverkum og um skýrslu um eftirlit með þingkosningunum í Albaníu. Þá var Hugh Mercer kjörinn dómari við Mannréttindadómstól Evrópu fyrir hönd Bretlands.
    Samhliða þingfundum fundaði Íslandsdeild með Ragnhildi Arnljótsdóttur, fastafulltrúa Íslands gagnvart Evrópuráðinu, og Sesselju Sigurðardóttur, skrifstofustjóra laga- og stjórnsýsluskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Sigurður Helgi Pálmason sat jafnframt fund formanna landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja (NB8). Frekari upplýsingar fást hjá sérfræðingi Íslandsdeildar og á vefsvæðinu pace.coe.int.

Fylgiskjal IV.

FRÁSÖGN
af fundi formanna landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á Evrópuráðsþinginu
í Jurmala í Lettlandi 22. ágúst 2025.


    Af hálfu Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins sóttu fundinn Sigurður Helgi Pálmason, formaður, og Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum.
    Formenn landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á Evrópuráðsþinginu hittast reglulega á stuttum fundum í þingfundavikum Evrópuráðsþingsins í Strassborg til þess að ræða þau málefni sem eru á dagskrá hverju sinni, deila skoðunum sínum og, eftir atvikum, samræma áherslur og viðbrögð við ályktunum, tilmælum og skýrslum þingsins. Samstarfið veitir mikilvægan vettvang til tengslamyndunar og skiptir sköpum þegar fylgja á eftir málum á vettvangi þingsins. Vegna ástands heimsmála hefur skapast meiri þörf á samráði og enn öflugri tengslum og því bauð formaður lettnesku landsdeildarinnar til sérstaks fundar í Jurmala, rétt utan við Ríga í Lettlandi. Helstu umræðuefni fundarins voru þær ógnir sem steðja að lýðræði í dag, staðan á Eystrasaltssvæðinu í kjölfar innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og þær áskoranir sem ný staða í öryggis- og varnarmálum felur í sér fyrir samfélögin á Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu.
    Meðal þess sem formennirnir beindu sjónum sínum að var staða lýðræðis í löndunum, kosningaþátttaka og traust ungs fólks til lýðræðislegra stofnana, fjölmiðlafrelsi og valfrelsi, þ.e. frelsi fólks til þess að kjósa samkvæmt sannfæringu óháð þrýstingi, áróðri og erlendum afskiptum. Sögðu þau menntun afar mikilvæga í þessu samhengi sem og aðgerðir og viðbrögð stjórnvalda varðandi eflingu fjölmiðlalæsis og gagnrýninnar hugsunar meðal ungs fólks. Þá væri einnig afar brýnt að tryggja áframhaldandi starfsemi Radio Free Europe/Radio Liberty (RFE/RL), sem komið var á fót í kalda stríðinu sem mótvægi við áróður og falsfréttir fjölmiðla í Austur-Evrópu. Starfsemi miðilsins, sem að mestu fer fram í Prag, stendur nú frammi fyrir alvarlegum áskorunum þar sem Bandaríkjastjórn hefur lokað fyrir fjármögnun hans þrátt fyrir að bandaríska þingið hafi samþykkt fjárveitingu til rekstursins. Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram neyðarframlag upp á 5,5 milljónir evra sem gerir miðlinum kleift að halda starfsemi sinni gangandi en brýnt væri að tryggja reksturinn til framtíðar.
    Formennirnir ræddu erlend afskipti, sem væru sífellt stærra vandamál innan friðhelgi og landhelgi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Nauðsynlegt væri að horfa til þessara öryggisógna út frá umboði Evrópuráðsins og líta til sálrænna áhrifa og umhverfisáhrifa af skuggaflota Rússlands á svæðinu og þeim skemmdarverkum sem unnin hafa verið, m.a. með truflunum í GPS-merkjum sem hafa bein áhrif á almenna borgara og helstu innviði svæðisins. Þá gæti hópurinn beitt sér fyrir því að efla umræðu um afskipti, skemmdarverk og áhrif þeirra á vettvangi Evrópuráðsþingsins og í tengslum við umfjöllun um árásarstríð Rússlands í Úkraínu. Mikilvægt væri að varpa ljósi á þær ógnir sem blasa við á svæðinu og áhrif þeirra á samfélögin á þessum slóðum og halda þannig umræðunni á lofti. Í þessu samhengi var einnig rætt hvernig aðlaga mætti starfandi stofnanir að nýjum pólitískum veruleika. Alþjóðastofnanir störfuðu í þágu aðildarríkja og borgara þeirra og margar hverjar væru meðvitaðar um stöðuna á Eystrasaltinu og öryggi þar í víðum skilningi. Engu að síður væri svigrúm til úrbóta í mörgum tilvikum og mikilvægt að horfa til öryggis út frá sálrænum áhrifum af erlendum afskiptum og aðgerðum á svæðinu, fjölþátta ógnum og upplýsingaóreiðu en ekki eingöngu í tengslum við hernað og hefðbundnar varnir. Formennirnir ræddu einnig beitingu flóttafólks í pólitískum tilgangi sem hluta af fjölþáttaógnum (e. instrumentalisation of migration). Lettar hefðu ekki farið varhluta af þessum aðgerðum þar sem Rússland og Belarús beindu flóttafólki frá þriðju ríkjum að landamærum Lettlands í þeim tilgangi að skapa sundrung og grafa undan stoðum lýðræðis í landinu.
    Eftir fundinn sendu formennirnir frá sér sameiginlega yfirlýsingu 1 þar sem þau ítreka staðfestu sína í að standa vörð um frið, öryggi og lýðræði í Evrópu. Þau lýstu yfir stuðningi sínum við fullveldi, sjálfstæði og friðhelgi Úkraínu og lögðu áherslu á mikilvægi þess að allar ákvarðanir sem vörðuðu framtíð Úkraínu væru teknar af úkraínsku þjóðinni. Í yfirlýsingunni leggja formennirnir einnig áherslu á að standa vörð um lýðræði á Norðurlöndunum og á Eystrasaltinu og lýsa áhyggjum af auknum erlendum afskiptum á svæðinu.
    Hópurinn lagði jafnframt áherslu á að halda áfram að efla þessi mikilvægu og sterku tengsl og stuðla að góðu samráði og samstarfi. Ræddu formennirnir m.a. skilvirkara samráð á reglubundnum fundum hópsins í þingfundaviku með tilliti til umræðunnar og trúnaðarstarfa á vettvangi þess. Þá lögðu þau fram tillögu um að koma á reglubundnum fundum í tengslum við fundi stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins eða árlegum fundum utan hefðbundinna funda Evrópuráðsþingsins til þess að veita svigrúm til dýpra samtals og öflugra samstarfs. Frekari upplýsingar fást hjá sérfræðingi Íslandsdeildar og á vefsvæðinu pace.coe.int.

Fylgiskjal V.

FRÁSÖGN
af fundum Evrópuráðsþingsins í Strassborg 29. september til 3. október 2025.


    Af hálfu Alþingis tóku þátt í fundinum Sigurður Helgi Pálmason, formaður, Sigríður Á. Andersen, varaformaður, og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, ásamt Auði Örlygsdóttur, sérfræðingi í alþjóðamálum.
    Á dagskrá þingfundaviku Evrópuráðsþingsins bar einna hæst umræðu um fjölmiðla og öryggi fjölmiðlafólks. Sérstök umræða fór fram um hvernig tryggja megi öryggi blaðamanna sem fjalla um átökin á Gaza-svæðinu og á dagskrá var einnig umræða um nauðsyn þess að efla aðgerðir til að frelsa úkraínska blaðamenn úr haldi rússneskra stjórnvalda. Þá voru þrír blaðamenn tilnefndir til mannréttindaverðlauna Václavs Havels sem afhent voru í þrettánda skipti og haldin var sérstök minningarathöfn til heiðurs fjölmiðlafólki sem hefur látið lífið við störf sín. Athöfnin var til heiðurs Viktoriu Roshchynu, úkraínskri blaðakonu sem numin var á brott og tekin af lífi þegar hún var á vettvangi stríðsátaka í Úkraínu, og verður hún héðan í frá haldin árlega, á baráttudegi Viktoriu (e. Victory for Viktoria). Þá setti staða heimsmála einnig svip sinn á þingfundavikuna en alls bárust níu beiðnir um sérstakar umræður, þar á meðal um pólitískan óstöðugleika í Serbíu, um nýjar ógnir við lýðræði í Evrópu af hálfu Rússlands, um lýðræði og réttarríki í Tyrklandi og Georgíu og um drög að samningi um alþjóðlega skaðabótanefnd fyrir Úkraínu.
    Í setningarræðu sinni minnti Theodoros Rousopoulos, forseti Evrópuráðsþingsins, á að
75 ár væru liðin frá samþykkt mannréttindasáttmála Evrópu og að sáttmálinn hefði alla tíð síðan verið mikilvæg siðferðileg og lagaleg stoð í vernd mannréttinda, lýðræðis og réttarríkis í álfunni. Maksym Butkevych, úkraínskur blaðamaður og mannréttindafrömuður, hlaut þrettándu mannréttindaverðlaun Václavs Havels, sem veitt eru fyrir framúrskarandi starf í þágu mannréttinda. Butkevych er meðstofnandi mannréttindastofnunarinnar Zmina og útvarpsstöðvarinnar Hromadske Radio. Eftir allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu bauð hann sig fram í herinn, þrátt fyrir að hafa alla tíð verið mikill friðarsinni, en var fljótt hnepptur í varðhald og sat í rússnesku fangelsi í tvö ár. Auk Butkevych voru blaðakonan Mzia Amaghlobeli frá Georgíu og blaðamaðurinn Ulvi Hasanli frá Aserbaísjan heiðruð sérstaklega fyrir þeirra mikilvægu störf í þágu mannréttinda.
    Í umræðum á vettvangi þingsins var áfram þung áhersla á stuðning við Úkraínu og alls fóru fram fimm umræður sem tengdust árásarstríði Rússlands og afleiðingum þess. Þar á meðal var sérstök umræða um Rússland og nýjar ógnir við evrópsk lýðræðisríki þar sem lögð var áhersla á mikilvægi áframhaldandi stuðnings við Úkraínu og að aðildarríki styrktu viðnáms- og varnarhæfni sína gegn rússneskum áhrifum, áróðri og upplýsingaóreiðu. Þingið samþykkti einnig ályktun um að koma á fót samstarfsvettvangi við rússnesk lýðræðisöfl í útlegð með það að markmiði að efla tengsl og undirbúa lýðræðislega framtíð Rússlands þegar skilyrði skapast. Sigurður Helgi Pálmason tók til máls í þeirri umræðu og lagði áherslu á mikilvægi þess að slíkur vettvangur styrkti raddir stjórnmálafólks, aðgerðasinna, fjölmiðlafólks og allra þeirra sem héldu von lýðræðis á lofti. Orðum um stuðning þyrftu að fylgja aðgerðir og mikilvægt væri að styðja við baráttu þessara hugrökku aðila sem sumir hverjir hefðu goldið fyrir með lífi sínu. Þá var samþykkt ályktun um mikilvægi fjölmiðlafólks og þörfina á auknum aðgerðum til að frelsa úkraínska blaðamenn í haldi rússneskra stjórnvalda. Krafist var tafarlausrar lausnar allra blaðamanna sem haldið er föngnum í trássi við alþjóðalög, blaðamenn væru óbreyttir borgarar og nytu þess vegna verndar samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum. Þá var einnig lögð áhersla á áframhaldandi stuðning við Úkraínu og mikilvægi þess að draga rússnesk stjórnvöld til ábyrgðar. Að auki var fjallað um drög að samningi um alþjóðlega skaðabótanefnd fyrir Úkraínu sem þingið samþykkti sem lið í því að draga Rússland til ábyrgðar fyrir það tjón sem það hefur valdið í Úkraínu og gagnvart úkraínsku þjóðinni. Í þeirri umræðu kom m.a. fram að afar brýnt væri að finna leiðir svo að nýta mætti frystar eignir rússneska ríkisins til uppbyggingar og endurreisnar Úkraínu. Þá var einnig skýrt kveðið á um að horft væri aftur til ársins 2014 og innlimunar Krímskaga og að skaðabótaskyldan næði ekki einungis aftur til allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu.
    Á Evrópuráðsþinginu var einnig fjallað ítarlega um mannúðarástandið á Gaza og öryggi fjölmiðlafólks á svæðinu. Í sérstakri umræðu um nauðsyn þess að binda enda á hörmungarnar á Gaza og dráp á blaðamönnum var þess krafist að komið yrði á tafarlausu, varanlegu og skilyrðislausu vopnahléi og að tryggja þyrfti að mannúðaraðstoð kæmist óhindrað inn á svæðið. Þingið fordæmdi árásir á borgaraleg skotmörk og hvers kyns hindranir á dreifingu hjálpargagna. Slíkt bryti gegn alþjóðlegum mannúðarlögum. Þingið áréttaði að auk mannúðaraðstoðar þyrfti að tryggja vernd og aðgang fjölmiðlafólks að átakasvæðum, og fordæmdi árásir og áreitni gagnvart Global Sumud-flotanum sem freistaði þess að komast að ströndum Gaza með nauðsynjar og önnur hjálpargögn.
    Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir tók þátt í sameiginlegri umræðu um greiningar og tilmæli varðandi það hvernig tryggja megi réttinn til húsnæðis og um eflingu almennrar heilbrigðisþjónustu. Þar lagði Kolbrún áherslu á að tryggja þyrfti mannsæmandi húsnæði fyrir ungt og efnaminna fólk. Í því fælist m.a. að tryggja þyrfti nægt framboð af félagslegum íbúðum og húsnæði á hagstæðu verði. Þá beindi hún sjónum sínum einnig að aðgengi og sagði mikilvægt að hanna húsnæði með þarfir fólks í huga, ekki síst fólks með fötlun. Sérlausnir ættu að heyra sögunni til þar sem hanna ætti nýtt húsnæði út frá algildri hönnun sem tryggði aðgengi allra, þar á meðal fólks með fötlun.
    Í umræðu um stjórnmálaflokka og lýðræði minnti Sigurður Helgi Pálmason á að stjórnmálaflokkar væru ein af undirstöðum lýðræðis. Hann lagði áherslu á að endurvekja þyrfti traust almennings með aukinni ábyrgð, gagnsæi og virkri þátttöku. Í því fælist m.a. að tryggja aðkomu ungs fólks, kvenna og minnihlutahópa að stjórnmálum. Þá lagði hann áherslu á að samtal, heiðarleiki og virðing væru forsenda endurnýjunar og trúverðugleika stjórnmála á tímum vaxandi vantrausts og skautunar. Stjórnmálafólk þyrfti að hlusta á raddir kjósenda.
    Í sérstakri umræðu um stöðu lýðræðis og réttarríkis í Tyrklandi komu fram alvarlegar áhyggjur af takmörkunum á tjáningarfrelsi og réttindum minnihlutahópa. Hvöttu þingmenn til opins samráðs og aðgerða til að snúa þróuninni við. Pólitískur óstöðugleiki í Serbíu var einnig til umræðu í sérstakri umræðu og lýstu þingmenn yfir áhyggjum af aukinni hörku og átökum meðal mótmælenda. Hvatti þingið stjórnvöld til þess að finna leiðir til friðsamlegs samtals svo að stuðla mætti að auknum stöðugleika í landinu. Umræður fóru einnig fram um skuldbindingar Ungverjalands og Búlgaríu gagnvart Evrópuráðinu. Þingið lýsti yfir áhyggjum af stöðu lýðræðis og mannréttinda í Ungverjalandi þar sem fjölmiðlafrelsi væri ábótavant og hvatti þingið Ungverjaland til þess að gera viðeigandi umbætur á kosningalögum og dómskerfi landsins. Í tilviki Búlgaríu samþykkti þingið að ljúka sérstöku eftirliti gagnvart landinu sem staðið hefði yfir frá því að Búlgaría gerðist aðili að Evrópuráðinu. Mikilvægar framfarir hefðu átt sér stað, m.a. með umbótum í réttarkerfinu og auknu gagnsæi. Þó var bent á að enn væru til staðar vissir veikleikar í dómskerfinu sem þyrfti að bregðast við og eins væri mikilvægt að bæta stöðu Rómafólks í landinu.
    Mäulen Äshimbayev, forseti öldungadeildar þjóðþings Kasakstans, ávarpaði þingið í umræðum um stuðning þingsins við lýðræðisumbætur í Kasakstan. Þingið hvatti til áframhaldandi stuðnings við umbætur í Kasakstan og fagnaði afnámi dauðarefsingar og mikilvægum stjórnarskrárbreytingum þar í landi. Var áhersla lögð á að efla stoðir lýðræðis í landinu með því að tryggja sjálfstæði dómstóla og fjölmiðlafrelsi.
    Þingið veitti einnig álit á drögum að nýjum Evrópusamningi um samframleiðslu þáttaraða. Myriam Spiteri Debono, forseti Möltu, Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, og Ian Borg, varaforsætisráðherra og utanríkis- og ferðamálaráðherra Möltu, ávörpuðu þingið. Borg gegnir stöðu forseta ráðherranefndarinnar þar sem Malta fer með formennsku í Evrópuráðinu og flutti þinginu því skýrslu nefndarinnar og svaraði spurningum þingmanna. Í ávarpi sínu lagði Borg áherslu á stuðning við Úkraínu, friðarumleitanir og vernd barna og fjölmiðlafólks á Gaza, aukið jafnrétti, stafrænt öryggi og þróun og baráttu gegn upplýsingaóreiðu. Hann undirstrikaði mikilvægi mannréttinda og samstöðu í Evrópu. Framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, Alain Berset, sat fyrir svörum venju samkvæmt og Despina Chatzivassiliou-Tsovilis, framkvæmdastjóri Evrópuráðsþingsins, var endurkjörin framkvæmdastjóri þess til næstu fimm ára. Chatzivassiliou-Tsovilis var kjörin til embættisins árið 2021 og var þá fyrsta konan til að gegna embættinu. Önnur mál á dagskrá voru m.a. gervigreind og fólksflutningar, kynferðislegt ofbeldi gegn körlum og drengjum, ungt fólk og lýðræði og frjáls för þingmanna Evrópuráðsþingsins í störfum sínum fyrir þingið.
    Sigurður Helgi Pálmason stýrði fundi formanna landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á Evrópuráðsþinginu og Íslandsdeild sat fund með nýjum fastafulltrúa Íslands gagnvart Evrópuráðinu, Grétu Gunnarsdóttur. Frekari upplýsingar má nálgast hjá sérfræðingi Íslandsdeildar og á vefsvæðinu pace.coe.int.

Fylgiskjal VI.


FRÁSÖGN
af fundi stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins í Kisíná í Moldóvu 20.–21. nóvember 2025.

    
    Af hálfu Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins sóttu fundinn Sigurður Helgi Pálmason, formaður, og Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum.
    Hefð er fyrir því að fundur stjórnarnefndar fari fram í því ríki sem nýlega hefur tekið við sex mánaða formennsku í ráðherranefnd Evrópuráðsins. Moldóva tók við því hlutverki þann 14. nóvember sl. og mun gegna því til 15. maí nk. Í aðdraganda fundar stjórnarnefndar kom sérnefnd á vegum framkvæmdastjórnarinnar saman en nefndin var sett á fót í þingfundaviku Evrópuráðsþingsins í Strassborg í byrjun októbermánaðar og hefur það hlutverk að styðja við framtak Evrópuráðsins um nýjan lýðræðissáttmála Evrópu. Sigurður Helgi á sæti í nefndinni fyrir hönd menningarmálanefndar en nefndin er skipuð 70 þingmönnum. Helsta umræðuefni fundarins voru erlend afskipti og áhrif þeirra á lýðræði. Í opnunarávarpi sínu beindi Theodoros Rousopoulos, forseti Evrópuráðsþingsins, sjónum að þeirri hernaðaruppbyggingu sem ætti sér stað í Evrópu á sama tíma og lýðræðisríki álfunnar stæðu mögulega hallari fæti. Lagði hann áherslu á að lýðræðið væri fyrsta vörn Evrópu og mikilvægt að styrkja stoðir þess á tímum aukinnar hervæðingar. Hann undirstrikaði mikilvægt hlutverk þingmanna í að efla samtalið um nýjan lýðræðissáttmála á landsvísu og meðal almennings og sagði nauðsynlegt að vinnan við sáttmálann skilaði sér í áþreifanlegum aðgerðum. Alain Berset, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, tók einnig þátt í fundinum og átti í samtali við þingmenn um nýja lýðræðissáttmálann. Sáttmálanum er ætlað að binda endi á hnignun lýðræðis og efla viðnámsþrótt lýðræðisstofnana svo þær geti betur sinnt hlutverki sínu og mætt þeim áskorunum sem felast í aukinni upplýsingaóreiðu og uppgangi einræðishyggju. Berset lagði áherslu á að sáttmálinn væri mikilvægt framhald af leiðtogafundi Evrópuráðsins þar sem aðildarríkin hefðu endurnýjað skuldbindingar sínar gagnvart sameiginlegum gildum og lagt fram meginreglur um lýðræði. Með nýjum sáttmála væri verið að sporna gegn þeim öflum sem vildu grafa undan lýðræðinu og draga saman þá ólíku þætti sem hefðu samverkandi áhrif á stöðu lýðræðis í dag. Nefndi hann sérstaklega gervigreindina í því samhengi og mikilvægi þess að bregðast við og styrkja áfallaþol og seiglu samfélaga gagnvart upplýsingaóreiðu og misnotkun á þeim lausnum sem fælust í aukinni tækni og nýtingu gervigreindar.
    Forseti kjörstjórnar Moldóvu, Angelica Caraman, kom fyrir nefnd Evrópuráðsþingsins um nýjan lýðræðissáttmála og sagði frá því hvernig Moldóvu hefði tekist að bregðast við erlendum afskiptum í nýafstöðnum þingkosningum. Sagði hún gríðarlega mikið hafa verið í húfi en að hennar mati hafi lýðræðisstofnanir Moldóvu staðist þá miklu prófraun sem kosningarnar fólu í sér. Meðal þeirra áskorana sem bregðast hefði þurft við voru netárásir, óljós og ólögleg fjármögnun í kosningabaráttu, kostuð mótmæli, kosningamútur, falsar skráningar á kjörskrá og falskir eftirlitsaðilar. Caraman varði þær lagalegu aðgerðir sem ráðist hefði verið í í kosningabaráttunni og sagði þær hafa verið nauðsynlegar til þess að sporna gegn þátttöku stjórnmálaflokka sem hefðu verið arftakar flokka sem ekki hefðu uppfyllt nauðsynleg skilyrði til framboðs. Chris Said, formaður kosningaeftirlitsins á vegum Evrópuráðsþingsins, sagði að Moldóva hefði sýnt fram á að landið gæti staðist þaulskipulagða og öfluga herferð á vegum erlendra aðila en minnti jafnframt á að barátta sem þessi væri ekki unnin í eitt skipti fyrir öll. Martin Kuijer, varaforseti Feneyjanefndarinnar, fór yfir nýjustu tilmæli hennar í tengslum við framfylgd kosninga á tímum erlendra afskipta, upplýsingaóreiðu og netárása. Hann tiltók sérstaklega þrjá lykilþætti sem yrðu að vera til staðar, þ.e. öflugur lagarammi sem nýta mætti til þess að bregðast við síbreytilegum netógnum, sterkur stofnanastrúktúr til þess að tryggja framfylgd laga og öflugt samstarf þvert á landamæri. Í umræðum var m.a. minnst á mikilvægi dómstóla, þar með talið Mannréttindadómstóls Evrópu og sjálfstæði þeirra, sem og sjálfstæði dómara. Þá var sjónum einnig beint að hlutverki ungs fólks í mótun sáttmálans og mikilvægi þess að samfélög Evrópu taki utan um ungt fólk, styrki möguleika þess til þátttöku í samfélaginu og gefi þeim með því aukna tilfinningu fyrir því að tilheyra. Einnig kom fram nauðsyn þess að styrkja félagslega grunninn, auka aðgengi fólks að félagsþjónustu og efla félagsleg réttindi fólks. Það þyrfti að haldast í hendur við eflingu lýðræðis því meðan fólk hefði ekki í sig og á væri erfitt að taka virkan þátt í lýðræðinu. Treysta þyrfti stoðir öflugrar og vandaðrar fjölmiðlunar, ekki síst á tímum samfélagsmiðla, og finna þyrfti leiðir til að bregðast hratt og vel við erlendum afskiptum og upplýsingaóreiðu. Um leið þyrfti að fara varlega þar sem slíkar aðgerðir mættu ekki hafa ófyrirséðar afleiðingar fyrir framþróun lýðræðis og réttinn til tjáningar.
    Á fundi stjórnarnefndar fór Mihai Popsoi, varaforsætisráðherra og utanríkisráðherra Moldóvu, yfir áherslur formennskunnar sem beinast einkum að þremur þáttum, þ.e. að áframhaldandi stuðningi við Úkraínu og mikilvægi þess að draga Rússland til ábyrgðar, að nýjum lýðræðissáttmála og öflugri viðbrögðum við upplýsingaóreiðu, þar með talið erlendum afskiptum. Kjörorð formennskunnar væri „Evrópa friðar og aukinnar seiglu“. Igor Grosu, forseti þjóðþings Moldóvu, ávarpaði einnig fundinn. Sagði hann Moldóvu taka við formennsku í ráðinu á víðsjárverðum tímum sem mörkuðu jafnframt 30 ára afmæli aðildar landsins að Evrópuráðinu. Þá hefði ríkt friður en nú geisaði stríð í álfunni og alþjóðakerfið einkenndist af mikilli geópólitískri spennu. Moldóva og Evrópa öll væri nú varin af nágrönnum þeirra í Úkraínu og brýnt væri að við hættum ekki að berjast fyrir því sem væri okkur öllum dýrmætast, frelsi og lýðræði.
    Sérstök umræða fór fram um aðgerðir almennings til varnar mannréttindum og lýðræði í tengslum við þróunina í Lettlandi en lettneska þingið samþykkti í lok október að segja sig úr Istanbúl-samningnum sem er samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi. Edmunds Cepuritis, varaformaður lettnesku landsdeildarinnar, opnaði umræðuna og lýsti viðbrögðum almennings. Mótmælendur söfnuðust fyrir utan þinghúsið til þess að mótmæla ákvörðun þingsins um að segja sig úr samningum og alls skrifuðu hátt í 70.000 manns undir ákall til forseta landsins um að staðfesta ekki lögin eða um 4% þjóðarinnar. Cepuritis sagði að um ein stærstu mótmæli í sögu Lettlands væri að ræða. Það væri ekki oft sem almenningur fyllti strætin til þess að mótmæla og afar sérstakt að alþjóðlegur samningur drægi að sér jafn mikla athygli og raun bar vitni. Samningurinn hefði enda verið táknrænn fyrir Evrópuvegferð landsins. Það hafi verið almenningi með öllu óásættanlegt að leyfa þinginu að stuðla að brestum í samstarfi landsins og annarra Evrópuþjóða með ákvörðun sinni um að segja sig úr samningnum. Almenningur hafi viljað sýna í verki að þau stæðu vörð um Evrópuvegferð landsins og sameiginleg evrópsk gildi. Þá þakkaði Cepuritis einnig fyrir þann mikilvæga stuðning sem borist hefði víða að, m.a. frá þingmönnum Evrópuráðsþingsins.
    Beata Jonite, yfirmaður stefnumótunar og hagsmunagæslu hjá MARTA-setrinu í Lettlandi, sagði að Lettland hefði skrifað sig í sögubækurnar og vísaði þar til þeirra 10–15 þúsund almennra borgara sem hefðu fyllt stræti Ríga og fleiri borga Lettlands. Hún lagði áherslu á að engin raunveruleg rök hefðu legið að baki lagasetningunni heldur hefði tilgangurinn einungis verið að sundra þjóðinni í pólitískum tilgangi. Hún tók undir með Cepuritis og sagði að viðbrögð almennings og frjálsra félagasamtaka hefðu snúist um framtíð Lettlands og hvort það ætlaði að gefa sig á vald popúlisma og fáfræði eða halda áfram að feta braut grundvallarmannréttinda og sameiginlegra gilda. Þá sagði hún einnig að því væri oft haldið fram að ungt fólk léti sig ekki málin varða en það hefði ekki verið raunin í Lettlandi og mótmælin sýnt fram á að unga fólkið væri tilbúið að berjast fyrir lýðræðinu. Forseti Lettlands synjaði lögunum staðfestingar og vísaði þeim aftur til þingsins. Málinu er þó ekki endilega lokið en því hefur verið frestað þar til nýtt þing kemur saman eftir kosningar að ári liðnu. Í umræðum mátti greina samstöðu þingmanna með Lettlandi og aðgerðum almennings en þó var einstaka þingmaður þeirrar skoðunar að í viðbrögðum samstarfsríkja hafi falist erlend afskipti og að ákvörðun lettneska þingsins mætti rekja til óljósra skilgreininga og greina samningsins. Í lokaorðum sínum sagði Jonite mikilvægt fyrir Evrópuráðið að taka ábyrgð á að útskýra hugtökin og samninginn sjálfan og sporna þannig gegn þeirri upplýsingaóreiðu sem græfi undan honum og þeim árangri sem náðst hefði á grundvelli samningsins. Cepuritis nýtti tækifærið til þess að beina sjónum að Rússlandi og sagði skipta máli að vera skýr varðandi þau undirliggjandi öfl sem hér væru að baki. Um rússnesk afskipti væri að ræða og nauðsynlegt væri að segja það hreint út.
    Farið var yfir skipan í nefndir og ný kjörbréf samþykkt auk þess sem nefndin tók afstöðu til fyrstu draga að dagskrá þingfundaviku í janúar. Kynnt var skýrsla um niðurstöður kosningaeftirlits í Moldóvu í þingkosningunum þann 28. september sl. Í þeirri umræðu var áfram rætt um þær áskoranir sem blöstu við moldóvskum stjórnvöldum vegna erlendra afskipta og hvernig brugðist var við þeim áskorunum. Þá var einnig rætt um mikilvægi þess að byggja á þeirri reynslu sem áunnist hefði svo draga mætti úr áhrifum erlendra afskipta á kosningar og þróun lýðræðis í álfunni. Þá var einnig kynnt skýrsla og ályktun jafnréttisnefndar um forvarnir og baráttu gegn kynjaðri mismunun innan heilbrigðiskerfisins. Í skýrslunni kom m.a. fram að í raun væri ekkert aðildarríki sem stæði sig nógu vel í þessum málaflokki. Einstaka ríki legðu áherslu á mikilvæga þætti. Bretland hefði t.d. beint sjónum sínum að breytingarskeiðinu og að í Frakklandi væri rík áhersla lögð á legslímuflakk en heilt yfir þyrfti að bæta úr, ekki síst varðandi rannsóknir. Aðeins færu um 4% af öllu fjármagni sem veitt væri til rannsókna í rannsóknir á þeim sjúkdómum sem konur þurfa að glíma við og þar af færi langstærstur hluti í rannsóknir á brjóstakrabbameini. Það væri í raun svipað hlutfall og færi í rannsóknir á skallamyndun. Var skýrslan samþykkt samhljóða.
    Einnig voru til umræðu þrjár skýrslur og ályktanir reglunefndar um hvernig taka megi á hagsmunaárekstrum á vettvangi þingsins, um breytingar á starfsreglum og hvernig styðja megi þingmenn til virkari þátttöku á Evrópuráðsþinginu. Töluverð umræða skapaðist um þessar breytingar, ekki síst varðandi breytingar á skipan í nefndir og landsdeildir út frá kynjasjónarmiðum. Eins varðandi breytingar á umboði nefnda en eftir breytingarnar mun flóttamannanefnd fá aukið umboð til þess að fjalla um efnahagsmál í tengslum við þróunarsamvinnu og fólksflutninga.
    Á fundinum tilkynnti forseti Evrópuráðsþingsins jafnframt að opnað hefði verið fyrir tilnefningar til jafnréttisverðlauna í nafni Vigdísar Finnbogadóttur sem veitt verða í þingfundaviku Evrópuráðsþingsins í júní á næsta ári. Verðlaunin voru stofnuð árið 2023 í aðdraganda leiðtogafundar Evrópuráðsþingsins í Reykjavík og er þeim ætlað að heiðra þann einstakling eða þau samtök sem þykja skara fram úr í baráttu sinni fyrir aukinni valdeflingu kvenna. Þá fór einnig fram sérstakt málþing um ofbeldi gegn konum og hlutverk þinganna og þjóðþinga í að framfylgja Istanbúl-samningi Evrópuráðsins. Frekari upplýsingar má nálgast hjá sérfræðingi Íslandsdeildar og á vefsíðu Evrópuráðsþingsins, pace.coe.int.
1     www.althingi.is/media/althjodastarf/Statement_PACE_logo_final_amend-1-.pdf