Ferill 112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 671 — 112. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (afturköllun alþjóðlegrar verndar).
Frá Brynjari Níelssyni.
1. Við a-lið 1. gr.
a. Orðið „ítrekuð“ falli brott.
b. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þetta á m.a. við ef hann hefur verið dæmdur fyrir kynferðisbrot þar sem refsing sem við brotinu liggur er fangelsi ekki skemur en 1 ár og manndráp eða líkamsmeiðingar þar sem refsing sem við brotinu liggur er fangelsi allt að 16 árum eða ævilangt.
2. Við 3. gr.
a. Efnismálsgrein a-liðar orðist svo:
Afturkalla skal veitingu alþjóðlegrar verndar ef gildar ástæður eru til að álíta útlending hættulegan öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu eða hann hefur verið dæmdur fyrir afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi. Þá er heimilt að svipta mann alþjóðlegri vernd hafi hann hlotið endanlegan dóm fyrir kynferðisbrot þar sem refsing sem við brotinu liggur er fangelsi ekki skemur en 1 ár og manndráp og líkamsmeiðingar þar sem refsing sem við brotinu liggur er fangelsi allt að 16 árum eða ævilangt. Sama á við um alvarleg brot gegn 232. og 233. gr. almennra hegningarlaga.
b. Við c-lið bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Heimilt er að afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar ef aðrar gildar ástæður eru til. Þetta á m.a. við ef útlendingur hefur gerst sekur um alvarleg eða ítrekuð brot á hegningarlögum, þ.m.t. brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess og brot gegn valdstjórninni.
3. Á eftir 3. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 69. gr. laganna:
a. Á eftir orðinu „ákvæðum“ í 1. málsl. kemur: XI., XII. eða.
b. 5. málsl. fellur brott.