Ferill 400. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 676 — 400. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á kosningalögum, sveitarstjórnarlögum og lögum um lögheimili og aðsetur (sveitarstjórnarkosningar í Grindavíkurbæ).
Frá dómsmálaráðherra.
I. KAFLI
Breyting á kosningalögum, nr. 112/2021.
1. gr.
a. (I.)
Kosningarrétt í sveitarstjórnarkosningum í Grindavíkurbæ sem fram fara 2026 á hver sá sem uppfyllir skilyrði 4. gr. eða hefur fengið umsókn skv. 2. og 3. mgr. samþykkta.
Sá sem átti lögheimili í Grindavíkurbæ 9. nóvember 2023, en flutt hefur lögheimili sitt í annað sveitarfélag hér á landi, getur sótt um að vera tekinn á kjörskrá í Grindavíkurbæ við sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 2026, enda fullnægi hann að öðru leyti skilyrðum 4. gr. Sé umsóknin samþykkt á umsækjandi kosningarrétt í Grindavíkurbæ en telst þar með hafa afsalað sér kosningarrétti í lögheimilissveitarfélagi sínu.
Þjóðskrá Íslands auglýsir fyrirkomulag á móttöku og meðferð umsókna og getur umsóknarferlið verið rafrænt. Umsókn skal send Þjóðskrá Íslands eigi síðar en 45 dögum fyrir kjördag. Þjóðskrá Íslands skal afgreiða umsóknina eins fljótt og unnt er og tilkynna umsækjanda um niðurstöðuna. Umsækjanda er heimilt að skjóta synjun Þjóðskrár Íslands til úrskurðarnefndar kosningamála innan sólarhrings frá dagsetningu hennar. Þegar umsóknarfrestur er liðinn er Þjóðskrá Íslands heimilt að láta sveitarstjórn Grindavíkurbæjar í té upplýsingar um þá einstaklinga sem um ræðir og upplýsa lögheimilissveitarfélag hvers og eins um niðurstöðuna.
Þrátt fyrir 29. gr. skal á kjörskrá Grindavíkurbæjar við sveitarstjórnarkosningar 2026 taka þá sem uppfylla skilyrði 4. gr. og skráðir voru með lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 38 dögum fyrir kjördag og að auki þá sem hafa fengið umsókn skv. 2. og 3. mgr. samþykkta, og skal samhliða taka viðkomandi út af kjörskrá í lögheimilissveitarfélagi.
b. (II.)
Þrátt fyrir 2. mgr. 6. gr. er kjörgengur í sveitarstjórn Grindavíkurbæjar við sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 2026 hver sá sem á kosningarrétt í sveitarfélaginu í þeim kosningum og hefur óflekkað mannorð.
Sá sem er á framboðslista skv. a-lið 1. mgr. 49. gr. eða hlýtur kosningu skv. b-lið sama ákvæðis við kosningar í sveitarstjórn Grindavíkurbæjar sem fram fara 2026 heldur kjörgengi í sveitarstjórn Grindavíkurbæjar til loka kjörtímabilsins án tillits til þess hvar viðkomandi á lögheimili.
c. (III.)
Ef þar til bært stjórnvald hefur bannað dvöl í eða umferð um Grindavíkurbæ á kjördag í sveitarstjórnarkosningum sem fram fara 2026 skulu kosningarnar engu að síður fara fram, nema þeim verði frestað skv. 124. gr., en kjörstaður, sem skal vera utan marka sveitarfélagsins, skal ákveðinn af sveitarstjórn að höfðu samráði við landskjörstjórn.
II. KAFLI
Breyting á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011.
2. gr.
Þrátt fyrir 2. mgr. 43. gr. eru þeir kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir Grindavíkurbæjar fram að sveitarstjórnarkosningum 2030 sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu eða höfðu kosningarrétt í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningum 2026, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. Þeir sem skipaðir eru í nefndir, ráð og stjórnir Grindavíkurbæjar geta ekki setið í nefndum, ráðum og stjórnum í öðru sveitarfélagi á sama tíma.
III. KAFLI
Breyting á lögum um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018.
3. gr.
Einstaklingi sem átti lögheimili í Grindavíkurbæ 9. nóvember 2023 og skráð hefur aðsetur samkvæmt þessari grein er heimilt að eiga áfram skráð lögheimili í Grindavíkurbæ á meðan aðsetursskráningin er í gildi, enda eigi viðkomandi ekki skráð lögheimili annars staðar.
4. gr.
Greinargerð.
Frumvarp þetta var samið í dómsmálaráðuneytinu, í samráði við forsætisráðuneytið. Ráðuneytin nutu aðstoðar dr. Kára Hólmars Ragnarssonar, dósents við lagadeild Háskóla Íslands, við gerð frumvarpsins.
Með frumvarpinu er mælt fyrir um sérreglur um kosningarrétt og kjörgengi í Grindavíkurbæ í sveitarstjórnarkosningum sem haldnar verða 2026 í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem uppi eru í sveitarfélaginu og raskað hafa búsetu og daglegu lífi Grindvíkinga.
Náttúruhamfarir í sveitarfélaginu Grindavíkurbæ, þ.e. jarðhræringar og eldsumbrot, hafa varað frá 2019. Fyrsta eldgosið tengt þessum umbrotum hófst í mars 2021 við Fagradalsfjall en kaflaskil urðu undir lok október 2023 þegar kvikusöfnunar varð vart á Svartsengissvæðinu. Byggði hún upp nægilegan þrýsting til að hleypa af stað kvikugangi 10. nóvember það sama ár undir svokallaðri Sundhnúksgígaröð og Grindavík. Umfangsmiklar jarðskorpuhreyfingar fylgdu þessum umbrotum, neyðarstigi var lýst yfir og Grindavíkurbær var rýmdur. Um 3.790 manns bjuggu þá í Grindavík á ríflega 1.100 heimilum.
Síðan hefur gosið níu sinnum í námunda við Grindavík og aflögunarmælingar sýna að enn er landris og kvikusöfnun undir Svartsengi þótt smám saman dragi úr hraða kvikuinnstreymis. Út frá fyrri atburðum á Sundhnúksgígaröðinni aukast líkurnar á nýju kvikuhlaupi og eldgosi þegar sambærilegt magn kviku hefur safnast fyrir undir Svartsengi og hljóp út í síðasta gosi. Magn kviku sem runnið hefur úr Svartsengi í eldsumbrotunum frá því í mars 2024 hefur verið breytilegt, á bilinu 12–31 milljón rúmmetra. Samkvæmt líkanreikningum í nóvember 2025 höfðu um 15 milljónir rúmmetra af kviku safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí. Því er enn talsverð óvissa um hvenær næsti atburður verður og ekki er hægt að segja fyrir um hvenær hættuástandi við Grindavík lýkur.
Nú hafa um 900 manns skráð lögheimili í Grindavík en talið er að allt að 400 manns eigi að jafnaði næturstað í Grindavík en auk íbúa eru ferðamenn og starfsmenn með tímabundna viðveru þar.
Endurreisnarferli samfélagsins í Grindavíkurbæ er bæði mikilvægt og flókið úrlausnarefni en lykilatriði er að Grindvíkingar sjálfir séu í forystu endurreisnarinnar og ákvarðanir um framtíð bæjarfélagsins verði í höndum þeirra sjálfra. Kosningarrétturinn er undirstöðuréttur í lýðræðissamfélagi. Því er gert ráð fyrir að sveitarstjórnarkosningar fari fram í Grindavík vorið 2026 eins og í öðrum sveitarfélögum landsins. Kosningarnar marka mikilvægan áfanga þar sem skapast nýtt lýðræðislegt umboð til að leiða bæjarfélagið í gegnum endurreisnarferlið.
Hins vegar eru ýmis álitamál vegna kosninganna sem þarf að leiða til lykta og lúta m.a. að því hverjir eigi kosningarrétt og kjörgengi. Af því tilefni aflaði forsætisráðuneytið lögfræðilegrar álitsgerðar Kára Hólmars Ragnarssonar og Trausta Fannars Valssonar, dags. 13. ágúst 2025, þar sem fjallað er um tilgreind álitaefni og bent á mismunandi leiðir til þess að afmarka kosningarrétt og kjörgengi. Með 11. gr. laga um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, nr. 40/2024, voru gerðar breytingar á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, og kosningalögum, nr. 112/2021, þar sem til bráðabirgða var vikið frá kröfu um lögheimili í sveitarfélaginu fyrir kjörna fulltrúa í bæjarstjórn og í nefndum, ráðum og stjórnum Grindavíkurbæjar. Þær undanþágur gilda til loka núverandi kjörtímabils.
Við afmörkun á því hvernig rétt sé að standa að sveitarstjórnarkosningum í Grindavíkurbæ vorið 2026 koma til greina ýmsar leiðir. Í samráði við Grindvíkinga er með frumvarpinu lagt til að þeir sem áttu lögheimili í Grindavíkurbæ 9. nóvember 2023 eigi val um að nýta kosningarrétt í sveitarfélaginu til viðbótar við þá sem nú eiga þar lögheimili.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Markmið lagasetningarinnar er að tryggja þau grundvallarréttindi fólks að geta notið kosningarréttar sem er liður í því að verja og endurreisa samfélagið í Grindavíkurbæ. Vegna náttúruhamfaranna er nauðsynlegt að útfæra sérákvæði um kosningarrétt og kjörgengi þannig að Grindvíkingar geti komið að endurreisn samfélagsins þrátt fyrir að hafa þurft að flytja úr sveitarfélaginu.
Í skýringum við 1. gr. frumvarps þess er varð að lögum um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, nr. 40/2024, kemur fram að með vísun til íbúa Grindavíkurbæjar sé átt „bæði við þá íbúa í bænum sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu og þá íbúa sem flutt hafa lögheimili sitt vegna náttúruhamfaranna“. Þá hefur löggjafinn einnig gripið til sérstakra ráðstafana að því er varðar kjörgengi þeirra sem hafa flutt lögheimili sitt úr Grindavík. Ljóst má vera að endurreisn Grindavíkurbæjar er verkefni fyrir allt samfélagið sem upplifði hamfarirnar en ekki aðeins fyrir þá sem enn hafa lögheimili í bænum. Kosningarréttur er eitt helsta tækið til að tryggja að ákvarðanir endurspegli vilja þeirra sem eiga mestra og beinustu hagsmuna að gæta af framtíð samfélagsins. Ef aðeins hluti Grindvíkinga fengi að kjósa gæti það skapað hættu á vantrausti og tilfinningu annarra um að vera útilokaðir frá ákvarðanatöku um framtíð bæjarins. Ljóst er að mikill meiri hluti Grindvíkinga hefur breytt lögheimilisskráningu sinni eftir fyrstu rýmingu bæjarins 10. nóvember 2023. Sumir sjá fyrir sér að flytja aftur til Grindavíkur við fyrsta tækifæri en aðrir ekki.
Gildandi ákvæði laga er varða kosningarrétt og kjörgengi gera ekki ráð fyrir öðru en að fólk kjósi í lögheimilissveitarfélagi sínu. Ef engar breytingar yrðu gerðar á lögum teldust þeir einir eiga kosningarrétt og kjörgengi sem eiga skráð lögheimili í Grindavík við útgáfu kjörskrár. Kjörnir fulltrúar myndu þar að auki missa kjörgengi sitt ef þeir þyrftu að flytja lögheimili sitt úr sveitarfélaginu á kjörtímabilinu.
Við afmörkun á því hvernig rétt væri að standa að sveitarstjórnarkosningum í Grindavíkurbæ vorið 2026 voru nokkrar leiðir kannaðar. Í fyrsta lagi kom til greina að hin almenna regla um lögheimilisskráningu yrði látin gilda. Í öðru lagi kom til greina að leita leiða til þess að einungis þeir hefðu kosningarrétt sem í reynd hafa fasta búsetu í sveitarfélaginu, sem hafa verið töluvert færri en þeir sem hafa þar skráð lögheimili. Í þriðja lagi að þeir sem áttu lögheimili í Grindavíkurbæ 9. nóvember 2023 ættu kosningarrétt þar (og hvergi annars staðar). Í fjórða lagi að þeir sem áttu lögheimili í Grindavíkurbæ 9. nóvember 2023 ættu val um að nýta kosningarrétt í sveitarfélaginu. Í fimmta lagi að kosningum í sveitarfélaginu yrði frestað og í sjötta lagi að mælt yrði fyrir um breytt stjórnskipulag á svæðinu með hugsanlegri tilfærslu verkefna og aðkomu annarra stofnana.
Með frumvarpinu er áformað að þeir sem áttu lögheimili í Grindavíkurbæ 9. nóvember 2023, og enn eiga lögheimili hér á landi, eigi þess kost að nýta kosningarrétt í sveitarfélaginu, en um valkvætt fyrirkomulag verði að ræða. Þannig eigi kosningarrétt þeir sem eiga lögheimili í Grindavík við útgáfu kjörskrár og að auki þeir sem áttu lögheimili í Grindavík 9. nóvember 2023 og skrá sig í gegnum umsóknarkerfi sem Þjóðskrá Íslands mun halda utan um. Þeir sem þannig verða skráðir á kjörskrá í Grindavík munu ekki eiga kosningarrétt í öðrum sveitarfélögum við kosningarnar 2026, hvað sem líður skráningu lögheimilis. Þetta er því valkostur fyrir Grindvíkinga, en ef fólk nýtir sér ekki þann möguleika þá kýs það í sínu „nýja“ lögheimilissveitarfélagi.
Hvað varðar kjörgengi er lagt til að það haldist í hendur við framangreindar sérreglur um kosningarrétt og haldist óbreytt út kjörtímabilið. Að sama skapi verði á þessu kjörtímabili kjörgengir í nefndir, stjórnir og ráð sveitarfélagsins þeir sem áttu kosningarrétt í kosningunum 2026 auk þeirra sem lögheimili eiga í sveitarfélaginu á hverjum tíma og uppfylla að öðru leyti skilyrði laga.
Af þeim leiðum sem nefndar eru hér að framan hefur sú leið sem valin var í fyrsta lagi þann kost að allir Grindvíkingar munu geta haft áhrif á stjórn og framtíð sveitarfélagsins. Með henni er brugðist við því að margir Grindvíkingar hafa, af ýmsum ástæðum, flutt lögheimili sitt úr sveitarfélaginu. Sumir þeirra hafa í hyggju að flytjast aftur til bæjarins við fyrsta tækifæri, aðrir kunna að vera alfarnir úr sveitarfélaginu og enn aðrir hafa ekki tekið ákvörðun um framhaldið í þeim efnum. Því þykir málefnalegast að heimila Grindvíkingum að ákveða sjálfum hvort þeir nýti kosningarrétt í sveitarfélaginu eða í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga nú lögheimili. Með þessu er komið til móts við jafnræðissjónarmið og komið í veg fyrir að kosningarréttur ráðist af atriðum sem eru að nokkru leyti handahófskennd, t.d. hverjir eigi enn skráð lögheimili í sveitarfélaginu eða dveljist þar að staðaldri þrátt fyrir óvissuástand.
3. Meginefni frumvarpsins.
3.1. Reglur frumvarpsins um kosningarrétt.
Lagt er til að sett verði nýtt ákvæði til bráðabirgða við kosningalög, nr. 112/2021, um kosningarrétt í sveitarstjórnarkosningunum í Grindavíkurbæ sem fram fara árið 2026. Í ákvæðinu verði mælt fyrir um að kosningarrétt eigi hver sá sem annaðhvort uppfylli hin almennu skilyrði 4. gr. laganna, þ.e. lögheimili í sveitarfélaginu og önnur hefðbundin skilyrði um aldur, ríkisborgararétt eða búsetu, eða hafi fengið samþykkta umsókn um kosningarrétt í sveitarfélaginu í samræmi við sérreglu frumvarpsins, á þeim grundvelli að hafa átt lögheimili í Grindavíkurbæ 9. nóvember 2023, þótt hann eigi nú lögheimili í öðru sveitarfélagi hér á landi. Í ákvæðinu er mælt nánar fyrir um málsmeðferð og kærurétt og tekið fram að þegar umsókn er samþykkt teljist viðkomandi hafa afsalað sér kosningarrétti í lögheimilissveitarfélagi.
3.2. Reglur frumvarpsins um kjörgengi.
Í samræmi við fyrirhugaða breytingu á kosningarrétti eru lagðar til breytingar á reglum um kjörgengi í sveitarstjórn, með öðru nýju ákvæði til bráðabirgða við kosningalög, nr. 112/2021, og kjörgengi í nefndir, ráð og stjórnir Grindavíkurbæjar, með nýju ákvæði til bráðabirgða við sveitarstjórnarlög, nr. 138/2011. Þannig mun kosningarréttur og kjörgengi haldast í hendur og einstaklingar missa ekki kjörgengi út kjörtímabilið þrátt fyrir breytingar á lögheimilisskráningu.
3.3. Fylgireglur í öðrum ákvæðum frumvarpsins.
Til viðbótar við fyrrnefndar reglur um kosningarrétt og kjörgengi er þriðja nýja ákvæðið til bráðabirgða við kosningalög að finna í c-lið 1. gr. frumvarpsins sem ætlað er að tryggja að kosningarnar fari fram, jafnvel þótt umferð og dvöl í sveitarfélaginu verði bönnuð á kjördag, og mun kjörstaður þá vera utan sveitarfélagsins. Er reglan í samræmi við heildarmarkmið frumvarpsins um að tryggja að sveitarstjórnarkosningar fari fram á fyrirhuguðum tíma.
Þar að auki er í 3. gr. frumvarpsins að finna reglu um minni háttar breytingu á ákvæði til bráðabirgða við lög um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, þar sem fjallað er um aðsetursskráningu Grindvíkinga, til þess að tryggja enn frekar að reglur um kosningarrétt í Grindavíkurbæ séu skýrar.
3.4. Framkvæmd kosninga að öðru leyti lýtur almennum reglum.
Í frumvarpinu eru ekki lagðar til sérreglur vegna annarra atriða er varða framkvæmd kosninganna, svo sem starfa kjörstjórna, tilhögun framboðslista, framboðsfresta, staðfestingar framboðslista o.s.frv. Um þessi atriði gilda því almennar reglur.
Álitaefni um fjölda meðmælenda með framboðslistum kom til sérstakrar skoðunar við gerð frumvarpsins. Í 2. mgr. 39. gr. kosningalaga, nr. 112/2021, er fjallað um meðmælendur framboðslista við sveitarstjórnarkosningar. Miðað við skráðan íbúafjölda í Grindavíkurbæ gerir ákvæðið kröfu um 20 meðmælendur fyrir hvern framboðslista þar sem skráður íbúafjöldi er á bilinu 501–2.000 íbúar en ef miðað væri við íbúafjölda eins og hann var 9. nóvember 2023 væri krafa um 40 meðmælendur. Samkvæmt ákvæðinu skulu meðmælin vera frá „kjósendum í hlutaðeigandi sveitarfélagi“. Orðalagið verður að skilja svo að þeir einir sem eiga kosningarrétt í sveitarfélaginu geti verið meðmælendur. Þessar almennu reglur eru vel framkvæmanlegar við kosningar í Grindavíkurbæ þannig að framboð þurfi að afla að lágmarki 20 undirskrifta frá einstaklingum með kosningarrétt í sveitarfélaginu. Kjósendur geta vissulega orðið fleiri en almennt gerist í sveitarfélögum með 501–2.000 skráða íbúa vegna ákvæða frumvarpsins um kosningarrétt en það veldur ekki sérstökum vandkvæðum. Hver framboðslisti í Grindavíkurbæ þarf því að safna 20 undirskriftum frá kjósendum, þ.m.t. þeim sem öðlast kosningarrétt með samþykktri umsókn til Þjóðskrár Íslands. Þeir einstaklingar geta ekki verið meðmælendur framboða í lögheimilissveitarfélögum sínum, enda eru þeir ekki kjósendur þar í skilningi 2. mgr. 39. gr. Við yfirferð meðmælendalista þurfa kjörstjórnir allra sveitarfélaga að gæta að þessum reglum, en þar sem frumvarpið gerir ráð fyrir að kjörskrár verði gefnar út í samræmi við sérreglur frumvarpsins ætti það ekki að vera bundið vandkvæðum.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
4.1. Álitsgerð vegna kosningarréttar og kjörgengis í Grindavík.
Fyrirkomulag kosninga, kosningarréttar og kjörgengis getur verið uppspretta álitamála um stjórnskipuleg réttindi og valdmörk handhafa ríkisvalds. Leitað var til Kára Hólmars Ragnarssonar og Trausta Fannars Valssonar, sem eru dósentar við lagadeild Háskóla Íslands, um ráðgjöf um heimildir löggjafans í þessu sambandi. Eftirfarandi umfjöllun byggist að verulegu leyti á álitsgerð þeirra, dags. 13. ágúst 2025, en hana má finna á vef Grindavíkurnefndar, www.grn.is.
4.2. Sjálfstjórn sveitarfélaga og réttur til frjálsra kosninga.
Sveitarstjórnarkosningar fara að nær öllu leyti fram á grundvelli almennra laga en ekki stjórnskipunarreglna og eru því á forræði og ábyrgð löggjafans. Almennt séð hefur löggjafinn því heimild til þess að mæla fyrir um hvernig kosningarrétti, kjörgengi og öðrum atriðum varðandi framkvæmd sveitarstjórnarkosninga er háttað.
Í 78. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, er mælt fyrir um sjálfstjórn sveitarfélaga. Ákvæðið er talið fela í sér stjórnskipulegan tilvistarrétt sveitarstjórnarstigsins og sjálfstjórn sveitarfélaga, en í því felst m.a. að íbúar hafi lýðræðislegan rétt til að kjósa sveitarstjórn í almennum kosningum (sjá nánar Trausta Fannar Valsson: Sveitarstjórnarréttur, bls. 23–27, og „Sjálfstjórn sveitarfélaga“, Tímarit lögfræðinga, 3. tbl. 2007, bls. 255–261). Það er hinn síðastnefndi þáttur 78. gr. stjórnarskrárinnar sem helst kæmi til skoðunar varðandi stjórnskipulegar valdheimildir löggjafans í þessu samhengi. Einnig má nefna almennar grunnreglur stjórnskipunarinnar um lýðræði og rétt til frjálsra kosninga, sem ekki eru skráðar eða nákvæmt útfærðar í stjórnarskrá, en vísa má til 3. gr. fyrsta samningsviðauka mannréttindasáttmála Evrópu (MSE) til hliðsjónar (ákvæðið á við um frjálsar kosningar til löggjafarþings en ekki sveitarstjórnarkosningar nema í mjög sérstökum aðstæðum, sbr. umfjöllun í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE), Repetto Visentini gegn Ítalíu (2021)).
Til fyllingar mætti líta til Evrópuráðssamnings um sjálfstjórn sveitarfélaga (e. European Charter of Local Self-Government) frá 1985 sem tók gildi gagnvart Íslandi 1. júlí 1991, og einkum viðauka við hann um þátttökuréttindi sem tók gildi gagnvart Íslandi 1. september 2017. Í 1. gr. viðaukans kemur fram að lög skuli mæla fyrir um kosningarrétt þeirra ríkisborgara sem búa í viðkomandi sveitarfélagi. Einnig sé heimilt að tryggja með lögum kosningarrétt annarra þegar það samrýmist stjórnskipun viðkomandi ríkis og alþjóðlegum skuldbindingum þess. Þar segir jafnframt að formreglur, skilyrði og takmörk kosningarréttar þurfi að uppfylla skilyrði um nauðsyn til þess að tryggja virkni lýðræðis eða til þess að fullnægja alþjóðlegum skuldbindingum ríkisins.
Umræddar reglur og lagasjónarmið um staðbundið lýðræði eru þó fremur almennar meginreglur en skýrt afmarkaðar réttarreglur. Frávik frá því að íbúar kjósi í því sveitarfélagi þar sem þeir hafa raunverulega fasta búsetu eru þekkt og leiða m.a. af undantekningarreglum laga um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, um skráningu lögheimilis, t.d. námsmenn erlendis og alþingismenn. Umfang þess fráviks sem hér er fyrirhugað er þó eðlisólíkt. Almennt séð eru það íbúar á viðkomandi svæði sem eiga hinn lýðræðislega rétt til að kjósa sveitarstjórn á grundvelli 78. gr. stjórnarskrárinnar en samkvæmt gildandi lögum um sveitarstjórnarkosningar hefur sá hópur í vissum tilvikum bæði verið útvíkkaður (sumir þeirra sem eiga fasta búsetu annars staðar en skráð lögheimili í sveitarfélaginu eiga kosningarrétt) og takmarkaður (sumir útlendingar sem búa í sveitarfélaginu eiga ekki kosningarrétt). Í tilviki Grindavíkurbæjar er einfaldlega erfitt að fullyrða afdráttarlaust hverjir ættu að teljast „íbúar“ út frá þessum almennu meginreglum um staðbundið lýðræði.
Vegna stjórnskipunarreglna um sjálfstjórn sveitarfélaga og meginreglna um lýðræði er mikilvægt að mælt sé fyrir um framkvæmd og fyrirkomulag kosninga sem skýrast í lögum. Stöðugleiki kosningalaga er enn fremur mikilvægur og gjalda ber varhuga við að breyta kosningalögum þegar skammt er til kosninga. Má vísa til viðmiða Feneyjanefndar Evrópuráðsins um kosningaframkvæmd þar sem fram kemur að meginatriði kosningalöggjafar ættu ekki að taka breytingum þegar minna en ár er til kosninga. Ljóst er að kosningalögum er þó stundum breytt með skemmri fyrirvara, sjá t.d. lög nr. 124/2024, um breytingu á kosningalögum, nr. 112/2021, sem samþykkt voru 12. nóvember 2024, tóku gildi 15. nóvember og höfðu áhrif á kosningarrétt einstaklinga í alþingiskosningum 30. nóvember 2024. Í samhengi þessa frumvarps ber einnig að geta þess að þótt ekki sé langt til fyrirhugaðra kosninga þá hefur samráðsferli um efni frumvarpsins staðið yfir í nokkurn tíma og hinar fyrirhuguðu efnisreglur frumvarpsins því verið til umfjöllunar helstu hagsmunaaðila nokkuð lengur en framlagningardagur frumvarpsins á Alþingi bendir til.
Hvað varðar íbúa Grindavíkur er ljóst að fyrir hendi eru sérstakar aðstæður sem framangreindar meginreglur um lýðræði og frjálsar kosningar veita aðeins almenna leiðsögn um. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu um rétt til frjálsra kosninga í 3. gr. 1. viðauka við MSE hefur komið fram að ekki sé um algild réttindi að ræða og raunar hafi ríki víðtækt svigrúm til mats á þessu sviði. Dómstóllinn hefur litið til þess hvort inngrip ríkisins í rétt til frjálsra kosninga sé byggt á geðþótta eða ómálefnalegum sjónarmiðum (e. arbitrariness) eða sé óhóflegt og tekið sérstaklega fram að meta þurfi aðstæður í samhengi (sjá t.d. MDE, Mathieu-Mohin og Clerfayt gegn Belgíu (1987) og Zdanoka gegn Lettlandi (YD) (2006)). Hæstiréttur Íslands hefur enn fremur vísað til óskráðrar meðalhófsreglu íslenskrar stjórnskipunar, sbr. dóm Hæstaréttar frá 10. apríl 2014 nr. 726/2013 (auðlegðarskattur), sem gæti komið til skoðunar í þessu samhengi. Þótt Hæstiréttur hafi ekki útlistað nákvæmlega skilyrði þeirrar reglu, og oftast komi meðalhóf fremur til skoðunar við mat á takmörkunum á tilteknum stjórnarskrárvörðum réttindum en sem almenn stjórnskipunarregla, má segja að meðalhófsregla gangi almennt út á skilyrði um lögmætt markmið, markhæfni, nauðsyn (ekki sé vægara úrræði í boði) og meðalhóf í þrengri merkingu (sanngjarnt jafnvægi andstæðra hagsmuna).
Löggjafinn hefur víðtækt svigrúm til þess að mæla fyrir um fyrirkomulag sveitarstjórnarkosninga í Grindavík, þ.m.t. hvernig kosningarrétti og kjörgengi sé best fyrir komið í ljósi þessara sérstöku aðstæðna, en gæta verði að því að lagasetning byggist á málefnalegum sjónarmiðum og ekki sé gengið lengra gagnvart réttindum borgaranna en nauðsynlegt er. Lagareglur um kosningar þurfa að vera skýrar og eins stöðugar og mögulegt er.
Að framangreindu gættu virðist hvorki 78. gr. stjórnarskrárinnar né aðrar þær meginreglur sem hér hefur verið vísað til standa í vegi lagasetningar af því tagi sem fyrirhuguð er í frumvarpinu.
4.3. Jafnræðisregla.
Þar sem fyrirhugaðar eru sérreglur um kosningar í einu sveitarfélagi er rétt að líta til jafnræðisreglu 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar á þeim grundvelli hvort sérregla um kosningarrétt í tilteknu sveitarfélagi skapi ójafnræði milli kjósenda. Í dómi Hæstaréttar frá 25. október 2023 nr. 9/2023 (sérstök framfærsluuppbót) kemur skýrt fram (60. mgr.): „Forsenda þess að jafnræðisreglan komi til álita er að tilvik sem borin eru saman séu sambærileg þannig að sýna megi fram á að mismunun hafi átt sér stað […] Ef þau eru ósambærileg er almennt ekki þörf frekari rannsóknar á því hvort málefnaleg rök séu fyrir hendi.“ Staða Grindavíkur og íbúa sveitarfélagsins telst ósambærileg stöðu annarra sveitarfélaga. Á þeim grundvelli verður ekki séð að jafnræðisreglan komi til frekari skoðunar hvað það varðar að sérreglur séu settar um Grindavík.
Jafnræðisreglan kemur hins vegar komið til skoðunar innan þess hóps sem átti skráð lögheimili í Grindavík í nóvember 2023. Af jafnræðisreglunni leiðir í ákveðnum tilvikum að löggjafanum er óheimilt að láta það sama ganga yfir fólk í verulega ósambærilegri stöðu. Gagnvart einstaklingi sem flutti frá Grindavík í annað sveitarfélag, hefur selt eign sína í Grindavík, keypt fasteign annars staðar og hefur ekki hug á að flytja til baka virðist ekki málefnalegt eða í samræmi við grunnsjónarmið um staðbundið lýðræði að mæla fyrir um að viðkomandi hafi kosningarrétt í Grindavík en ekki í því sveitarfélagi sem hann býr nú í. Við þessu er brugðist með því að gera útfærsluna valkvæða, þ.e. að með nýju lagaákvæði sé mælt fyrir um að þeir sem áttu lögheimili í Grindavík 9. nóvember 2023 geti nýtt kosningarrétt og átt kjörgengi í Grindavík við sveitarstjórnarkosningar 2026. Taka skal fram að almennt ber að gjalda varhuga við því að fólk velji í hvaða sveitarfélagi eða kjördæmi það kýs eða býður sig fram. Hér eru hins vegar uppi svo sérstakar aðstæður að valkvætt fyrirkomulag virðist samrýmast best þeim grundvallarreglum sem helst koma til skoðunar, þ.m.t. jafnræðisreglunni.
Þeir einstaklingar sem flutt hafa lögheimili sitt frá Grindavíkurbæ í annað sveitarfélag hér á landi eru í frumvarpinu allir meðhöndlaðir með sambærilegum hætti, þ.e. þeir geta valið að kjósa í Grindavík, að uppfylltum almennum skilyrðum kosningarréttar. Þeir sem áttu lögheimili í Grindavíkurbæ hinn 9. nóvember 2023 en hafa síðar flutt til annarra landa, og eiga því ekki lögheimili hér á landi, falla utan sérreglu frumvarpsins. Lögheimili hér á landi er enda grundvallarskilyrði kosningarréttar samkvæmt kosningalögum, nr. 112/2021, sbr. einnig fyrrgreind sjónarmið um staðbundið lýðræði. Einstaklingar sem flutt hafa af landi brott teljast ekki í sambærilegri stöðu og þeir sem hafa flutt milli sveitarfélaga hér á landi vegna náttúruhamfaranna.
5. Samráð.
Helstu hagaðilar eru Grindvíkingar, þ.m.t. þeir sem áttu lögheimili í bænum 9. nóvember 2023, þeir sem enn eiga lögheimili í bænum og þeir sem hafa flutt í bæinn síðan. Þá snertir frumvarpið framkvæmd kosninga og því varðar það verkefni Þjóðskrár Íslands, landskjörstjórnar, sveitarfélaga og kjörstjórna þeirra, svo og stjórnmálasamtaka og annarra framboða.
Í október 2025 var fært til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda umræðuskjal um sveitarstjórnarkosningar og önnur atriði (mál nr. S-198/2025). Þar var kallað eftir sjónarmiðum Grindvíkinga og annarra hagaðila m.a. um hvernig væri réttast að útfæra kosningarrétt Grindvíkinga og hvernig mætti koma á skilvirkri samvinnu milli sveitarfélags og ríkis á næsta kjörtímabili þannig að hún stuðlaði að farsælli endurreisn og trausti samfélagsins. Niðurstöður samráðsins leiddu í ljós að á meðal þeirra sem bjuggu í Grindavík þegar goshrinan hófst er ríkur vilji til þess að eiga val um að nýta atkvæðisrétt sinn í Grindavík þrátt fyrir núverandi skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi.
Áform um lagasetningu voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 5. desember 2025 (mál nr. S-244/2025) með umsagnarfresti til 12. sama mánaðar. Umsögn barst frá einum einstaklingi sem lýsti þeirri afstöðu að einungis þeir sem eiga lögheimili í Grindavíkurbæ ættu að fá að kjósa í sveitarstjórnarkosningum þar.
Drög að frumvarpi voru birt í samráðsgáttinni 19. desember 2025 (mál nr. S-257/2025) með umsagnarfresti til 7. janúar 2026. Engar umsagnir bárust í samráðsgátt en eftir að umsagnarfresti lauk barst dómsmálaráðuneytinu umsögn Sveitarfélagsins Voga. Þar er bent á að verði frumvarpið að lögum leiði það af sér breytingar á verkferlum annarra sveitarfélaga en Grindavíkurbæjar. Við breytingu á skipan í ráð, nefndir og stjórnir á kjörtímabilinu þurfi að ganga úr skugga um það í hvert sinn að viðkomandi einstaklingur starfi ekki í nefndum, ráðum eða stjórnum á vegum Grindavíkurbæjar. Hugað hefur verið að þessu við samningu frumvarpsins og er þeirri reglu sem mælt er fyrir um í lokamálslið 2. gr. frumvarpsins ætlað að koma í veg fyrir aðstæður sem þessar. Það er réttmæt ábending að ganga þarf úr skugga um þetta hverju sinni, en eins og almennt við mat á því hvort tiltekinn einstaklingur sé til þess bær að taka sæti í ráði, nefnd eða stjórn á vegum sveitarfélags verður það að vera hlutverk umrædds sveitarfélags og viðkomandi einstaklings.
Þá er rétt að geta þess að meðan á umsagnarfresti stóð barst dómsmálaráðuneytinu ábending frá Þjóðskrá Íslands um að í frumvarpsdrögunum væri ekki vikið sérstaklega að þeirri stöðu að einstaklingur sem átti lögheimili í Grindavík 9. nóvember 2023 væri fluttur af landi brott. Úr þessu hefur verið bætt.
Fulltrúar forsætisráðuneytis og Grindavíkurnefndar hafa átt samráð við fulltrúa Grindavíkurbæjar við undirbúning frumvarpsins. Þá hafa fulltrúar dómsmálaráðuneytisins átt samráð við innviðaráðuneytið, sem fer með málefni sveitarfélaga, og málið hefur verið kynnt Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Tveir vinnufundir um útfærslu frumvarpsins voru haldnir með fulltrúum dómsmálaráðuneytisins, forsætisráðuneytisins, Þjóðskrár Íslands, landskjörstjórnar og Grindavíkurnefndar auk þess sem fulltrúar Þjóðskrár Íslands og landskjörstjórnar komu á framfæri skriflegum ábendingum.
Niðurstaða þess samráðs sem hefur átt sér stað er samandregið sú að víðtæk sátt virðist um þá útfærslu sem lögð er til.
6. Mat á áhrifum.
Með frumvarpinu er tryggður möguleiki Grindvíkinga til að koma að endurreisn samfélagsins á svæðinu með því að nýta kosningarrétt í sveitarstjórnarkosningum.
Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið hafi teljandi viðbótarkostnað í för með sér fyrir ríki eða sveitarfélög.
Verði frumvarpið að lögum kallar það á ákveðnar breytingar á verkefnum stjórnvalda, einkum Þjóðskrár Íslands sem ætlað er að halda utan um umsóknarferli og gerð kjörskrár. Samráð hefur verið haft við hlutaðeigandi aðila og ekki annað komið í ljós en að viðkomandi stofnanir séu vel í stakk búnar til þess að framkvæma kosningar með þeim hætti sem mælt er fyrir um í frumvarpinu.
Hvað varðar áhrif á jafnréttismál má geta þess að við gerð frumvarpsins voru tæplega 900 manns skráðir með lögheimili í Grindavík, af þeim um 60% karlar en 40% konur. Í byrjun árs 2023 voru 52% þeirra sem áttu lögheimili í Grindavík karlar en 48% konur. Með útfærslunni á kosningarrétti sem lögð er til er verið að skapa forsendur til þess að kynjahlutfall geti orðið í samræmi við hlutfallið meðal íbúa áður en jarðhræringarnar hófust, og þar með jafnara en kynjahlutfall þeirra sem nú eiga skráð lögheimili í sveitarfélaginu.
Um vernd persónuupplýsinga skal þess getið að í frumvarpinu er gert ráð fyrir heimild Þjóðskrár Íslands til þess að miðla til sveitarfélaga upplýsingum um þá sem sækja um kosningarrétt í Grindavík. Þessi heimild á þó einungis við eftir að umsóknarfresti lýkur og felur í reynd í sér sömu upplýsingar og sömu aðilar fá í hendur nokkrum dögum síðar þegar kjörskrá er gefin út og er því ekki um teljanlega viðbótaráhættu gagnvart persónuvernd að ræða. Nauðsyn heimildarinnar er útskýrð í skýringum við a-lið 1. gr. frumvarpsins.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um a-lið. Í ákvæðinu er mælt fyrir um kosningarrétt við sveitarstjórnarkosningar í Grindavíkurbæ sem fyrirhugaðar eru 16. maí 2026. Rétt þykir að tilgreina ekki dagsetningu kosninga í ákvæðinu, t.d. ef svo færi að heimildir í gildandi lögum til þess að fresta kosningum yrðu nýttar.
Kosningarrétt samkvæmt ákvæðinu eiga tveir hópar fólks:
Í fyrsta lagi þeir sem eiga skráð lögheimili í sveitarfélaginu og myndu því að óbreyttum lögum eiga kosningarrétt í sveitarfélaginu og uppfylla að öðru leyti skilyrði 4. gr. laganna um aldur, ríkisborgararétt eða lengd búsetu. Í þessum hópi kann að vera fólk sem á skráð lögheimili í Grindavík en dvelst í reynd annars staðar.
Í öðru lagi geta þeir sem áttu lögheimili í Grindavíkurbæ 9. nóvember 2023 átt kosningarrétt í sveitarfélaginu. Reglur þar að lútandi er að finna í 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Um er að ræða undantekningu frá hinu almenna skilyrði kosningarréttar skv. 4. gr. laganna að lögheimili og kosningarréttur haldist í hendur. Sá sem hefur flutt lögheimili sitt úr sveitarfélaginu eftir 9. nóvember 2023, líkt og stærstur hluti Grindvíkinga hefur raunar gert, og á nú lögheimili í öðru sveitarfélagi hér á landi getur samkvæmt ákvæðinu engu að síður fengið kosningarrétt í sveitarfélaginu með því að senda inn umsókn þar að lútandi til Þjóðskrár Íslands, uppfylli hann önnur skilyrði 4. gr., þ.e. um 18 ára aldur og ríkisborgararétt eða búsetu, eins og þar greinir nánar. Rétt er að taka fram að sá sem t.d. var 17 ára 9. nóvember 2023 og átti lögheimili í Grindavíkurbæ en hefur flutt lögheimili sitt eftir það tímamark uppfyllir nú aldursskilyrði 4. gr. laganna og getur því neytt kosningarréttar með því að senda inn umsókn í samræmi við 2. og 3. mgr. ákvæðisins.
Miðað er við lögheimilisskráningu 9. nóvember 2023 sem er sama viðmiðunardagsetning og í bráðabirgðaákvæði V og VI í lögum um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, sbr. lög nr. 94/2023, þar sem mælt er fyrir um heimild Grindvíkinga til aðsetursskráningar. Hinn 10. nóvember 2023 var Grindvíkingum gert að yfirgefa heimili sín.
Í 2. málsl. 2. mgr. ákvæðisins er tekið fram að samþykkt umsókn um kosningarrétt í Grindavíkurbæ hafi í för með sér að viðkomandi kjósandi teljist hafa afsalað sér kosningarrétti í lögheimilissveitarfélagi sínu enda er ekki gert ráð fyrir að kjósandi geti kosið í tveimur sveitarfélögum. Þar af leiðandi er sá sem fær samþykkta umsókn um kosningarrétt í Grindavíkurbæ ekki kjörgengur í sveitarstjórn í öðru sveitarfélagi, sbr. 2. mgr. 6. gr. laganna.
Í 3. mgr. ákvæðisins er mælt fyrir um umsóknarferlið til Þjóðskrár Íslands. Um er að ræða svipað fyrirkomulag og mælt er fyrir um í gildandi ákvæði 3. mgr. 4. gr. laganna um heimild námsmanns sem hefur flutt lögheimili sitt til Danmerkur, Finnlands, Færeyja, Grænlands, Noregs eða Svíþjóðar til að sækja um að halda kosningarrétti í sveitarstjórnarkosningum. Líkt og í því tilviki er hér gert ráð fyrir því að Þjóðskrá Íslands haldi utan um umsóknarferli, sem geti verið rafrænt, og geri Grindvíkingum kleift að velja að nýta kosningarrétt í sveitarfélaginu jafnvel þótt þeir hafi ekki lengur skráð lögheimili þar. Gert er ráð fyrir að fyrirkomulagið verði kynnt á vef Þjóðskrár Íslands og eftir atvikum víðar og umsóknarfrestur renni út 45 dögum fyrir kjördag. Þannig verði Þjóðskrá Íslands kleift að ljúka meðferð umsókna og frágangi í tæka tíð fyrir viðmiðunardag kjörskrár, sem er 38 dögum fyrir kjördag, sbr. 27. og 29. gr. laganna, og útgáfu kjörskrár í kjölfarið, sbr. 30. gr. laganna. Í 3. mgr. er einnig mælt fyrir um kærurétt á synjun Þjóðskrár Íslands innan sólarhrings, sem er sami kærufrestur og nú er mælt fyrir um í 33. gr. laganna. Enn fremur veitir 3. mgr. heimild til miðlunar upplýsinga um þá einstaklinga sem fá umsóknir samþykktar til sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar og lögheimilissveitarfélags hvers og eins umsækjanda, sem verður þó ekki virk fyrr en að loknum umsóknarfrestinum. Um er að ræða upplýsingar sem þessir aðilar myndu að öðrum kosti fá við útgáfu kjörskrár nokkrum dögum síðar, en rétt þykir að veita sérstaka heimild til að deila upplýsingum til þess að koma í veg fyrir vafaatriði, flýta fyrir yfirferð á meðmælendalistum o.s.frv. Upplýsingunum er ekki miðlað fyrr en eftir umsóknarfrestinn til þess að koma í veg fyrir hugsanlegan þrýsting á kjósendur um að senda inn umsókn.
Í 4. mgr. er sett sérregla gagnvart 29. gr. laganna til þess að tryggja að gerð kjörskráa sé í samræmi við bráðabirgðaákvæðið. Tímamark það sem miðað er við er óbreytt, þ.e. viðmiðunardagur kjörskrár er 38 dögum fyrir kjördag líkt og almenna reglan í 29. gr. gerir ráð fyrir. Þeir sem nýta sér heimild 2. og 3. mgr. til þess að kjósa í Grindavíkurbæ, þrátt fyrir lögheimilisskráningu annars staðar, eru teknir á kjörskrá sveitarfélagsins ásamt þeim sem eiga kosningarrétt í sveitarfélaginu samkvæmt almennri reglu 4. gr., þ.e. eiga lögheimili skráð í sveitarfélaginu á viðmiðunardeginum. Samhliða eru gerðar nauðsynlegar ráðstafanir þannig að þeir sem kosningarrétt eiga í Grindavík séu ekki teknir á kjörskrá í öðrum sveitarfélögum.
Um b-lið. Í 1. mgr. ákvæðisins er mælt fyrir um að kosningarréttur og kjörgengi við sveitarstjórnarkosningar í Grindavíkurbæ 2026 haldist í hendur, líkt og er almenna reglan samkvæmt lögunum. Í 2. mgr. 6. gr. laganna segir að kjörgengur í sveitarstjórn sé hver sá sem eigi kosningarrétt í sveitarfélagi skv. 4. gr. og hafi óflekkað mannorð. Þar sem frumvarpið gerir ráð fyrir sérreglu um kosningarrétt í Grindavíkurbæ gagnvart 4. gr. laganna er ákvæði þetta nauðsynlegt til þess að tryggja samræmi, en efnislega er reglan í ákvæðinu sambærileg því sem gilt hefur, þ.e. að kjörgengi sé bundið kosningarrétti. Þar sem lagt er til í frumvarpinu að kosningarréttur í Grindavíkurbæ hafi í för með sér að kjósandi teljist afsala sér kosningarrétti í lögheimilissveitarfélagi, sbr. a-lið 1. gr. frumvarpsins, leiðir af gildandi reglu 2. mgr. 6. gr. laganna að viðkomandi verður ekki kjörgengur í sveitarstjórn í lögheimilissveitarfélagi sínu, nái frumvarpið fram að ganga.
Í 2. mgr. er gert ráð fyrir að kjörgengi frambjóðenda haldist út kjörtímabilið þótt viðkomandi eigi ekki lögheimili í sveitarfélaginu eða flytji lögheimili sitt síðar úr sveitarfélaginu. Efnislega er 2. mgr. ákvæðisins sambærileg bráðabirgðaákvæði XIV í lögunum, sem bætt var við lögin með 11. gr. laga um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, nr. 40/2024, þar sem mælt er fyrir um að lögheimili í sveitarfélaginu sé ekki kjörgengisskilyrði fram að sveitarstjórnarkosningum 2026. Í skýringum með því ákvæði segir að í ljósi þeirra aðstæðna sem uppi séu í Grindavíkurbæ hafi verið talin ástæða til að víkja frá þessu skilyrði laganna fram til sveitarstjórnarkosninga árið 2026 til að tryggja starfhæfi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar. Þar sem óvissa vegna jarðhræringa ríkir enn, og vegna þess að frumvarp þetta gerir ráð fyrir að víkja frá skilyrði um lögheimili í sveitarfélaginu hvað varðar kosningarrétt og kjörgengi, er nauðsynlegt að tryggja að þeir sem kjörnir verða í sveitarstjórn í sveitarstjórnarkosningunum 2026 haldi kjörgengi sínu út kjörtímabilið, óháð skráningu lögheimilis. Þeir geta hins vegar misst kjörgengi sitt líkt og almennt gerist með því að uppfylla ekki skilyrði um óflekkað mannorð.
Um c-lið. Í ákvæðinu er mælt fyrir um þá sérreglu að kjörstaður verði utan Grindavíkurbæjar ef umferð um sveitarfélagið verður bönnuð á kjördag.
Í 124. gr. laganna er ákvæði um frestun kosninga af óviðráðanlegum orsökum, annars vegar ef kosningin ferst fyrir á boðuðum kjördegi, sbr. 1. mgr., og hins vegar ef yfirkjörstjórn frestar kosningu í kjördeild eftir að hún er hafin, sbr. 2. mgr. Í báðum tilvikum skal boða til kjörfundar að nýju innan viku. Ákvæði 124. gr. tekur þannig á tilteknum ófyrirsjáanlegum aðstæðum en veitir ekki heimild til þess að fresta kosningum með fyrirvara vegna fyrirsjáanlegra óviðráðanlegra orsaka. Í tilviki Grindavíkurbæjar kemur t.d. til greina að eldsumbrot nokkrum dögum fyrir boðaðan kjördag valdi því að umferð um og dvöl í sveitarfélaginu sé bönnuð á kjördag og bannið gæti enn verið í gildi viku eftir kjördag. Í því tilviki leysir ákvæði 124. gr. ekki úr því hvernig kosningarnar skuli fara fram.
Með ákvæðinu er mælt fyrir um að ef dvöl í eða umferð um Grindavíkurbæ hefur verið bönnuð muni kosningar engu að síður fara fram á áður tilgreindum kjördegi. Kjörstaður verði hins vegar ákveðinn sérstaklega af sveitarstjórn, að höfðu samráði við landskjörstjórn, og verði utan marka sveitarfélagsins.
Tilgangur ákvæðisins er að koma í veg fyrir að kosningum verði frestað af þeirri ástæðu að óframkvæmanlegt sé að halda kjörfund í Grindavíkurbæ sjálfum. Í ljósi þess að Grindvíkingar hafa nú þegar þurft að gera ráðstafanir til þess að halda áfram sínu daglega lífi, eftir því sem unnt er, þótt komi til rýmingar bæjarins, þykir þessi kostur ákjósanlegri en að veita stjórnvöldum frekari heimildir til að fresta kosningunum. Það telst ekki verulega íþyngjandi fyrir kjósendur að halda kjörfund utan sveitarfélagsins við þær aðstæður sem hér eru til skoðunar, einnig í ljósi þess möguleika að kjósa utan kjörfundar. Líkt og tekið er fram í ákvæðinu gæti engu að síður komið til þess að kosningunum yrði frestað á grundvelli 124. gr. laganna, t.d. ef rýma þyrfti bæinn á kjördag vegna skyndilegs hættuástands.
Um 2. gr.
Í 2. málsl. ákvæðisins er girt fyrir að einstaklingur geti á grundvelli sérstöðu Grindavíkurbæjar setið í nefnd tveggja sveitarfélaga samtímis. Vegna sérreglu frumvarpsins um kosningarrétt í Grindavík í sveitarstjórnarkosningunum 2026 er ekki útilokað að einstaklingur hefði átt kosningarrétt í Grindavík 2026 en þegar nýtt kjörtímabil hefst ætti hann lögheimili, og því kosningarrétt samkvæmt almennum reglum og þar með kjörgengi í nefndir, ráð og stjórnir, í lögheimilissveitarfélagi sínu. Sú regla sem hér er mælt fyrir um kemur ekki í veg fyrir að einstaklingur kjósi í Grindavík 2026 en taki síðan sæti í nefnd annars sveitarfélags að loknum kosningum. Slíkt veldur enda engum vandkvæðum, ekki frekar en þegar einstaklingur flytur í annað sveitarfélag að loknum kosningum. Reglan kemur hins vegar í veg fyrir að einstaklingur taki sæti taki sæti í nefndum tveggja sveitarfélaga.
Um 3. gr.
Til samanburðar má benda á að í aðsetursskráningarheimild 2. mgr. 8. gr. laga um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, segir að alþingismanni sé heimilt að eiga áfram lögheimili á þeim stað þar sem hann hafði fasta búsetu áður og í 1. mgr. 9. gr. segir að námsmanni erlendis sé „heimilt að hafa lögheimili á Íslandi“. Æskilegt er að eyða hugsanlegum vafa um lögheimilisskráningu þeirra Grindvíkinga sem skráð hafa aðsetur sitt innan lands. Í ákvæðinu er því lagt til að þeim sem skráð hefur aðsetur sitt samkvæmt ákvæði til bráðabirgða V sé heimilt að eiga áfram skráð lögheimili í Grindavíkurbæ á meðan aðsetursskráningin er í gildi, enda eigi viðkomandi ekki skráð lögheimili annars staðar, sbr. einnig reglu 1. mgr. 2. gr. laganna um að ekki sé heimilt að eiga lögheimili á Íslandi á fleiri en einum stað í senn. Aðsetursskráning hefur eftir sem áður engin áhrif á kosningarrétt. Ákvæðið veitir heimild til að halda skráningu lögheimilis í Grindavíkurbæ, eftir atvikum án þess að heimilisfang sé tilgreint, enda margir Grindvíkingar í þeirri stöðu að þeirra fyrra húsnæði er nú í eigu Þórkötlu ehf. eða annarra aðila. Vegna tímafresta í 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða V er ljóst að heimild ákvæðisins til aðsetursskráningar mun ekki falla niður fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026.
Um 4. gr.