Ferill 404. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 680  —  404. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um lóðarleigusamninga.

Frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.


     1.      Hversu margar lóðir leigir ríkið út undir sumarhús?
     2.      Hversu marga lóðarleigusamninga vegna frístundalóða hefur ríkið gert á síðustu fimm árum? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     3.      Hversu margir lóðarleigusamningar hafa verið gerðir og eru í gildi í heildina?
     4.      Hver er kostnaðurinn við umsýslu á frístundalóðum í eigu ríkisins?
     5.      Stendur til að selja umræddar lóðir til lóðarleigutaka?


Skriflegt svar óskast.