Ferill 405. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 681 — 405. mál.
Skýrsla
Íslandsdeildar NATO-þingsins fyrir árið 2025.
1. Inngangur.
Á vettvangi NATO-þingsins árið 2025 var mikilvægi varanlegs og réttláts friðar í Úkraínu áfram í brennidepli ásamt mikilvægi samstöðu bandalagsríkja í að standa vörð um sameiginlegt öryggi þeirra. Í því samhengi var lögð áhersla á að efla fælingarmátt og varnargetu bandalagsins, m.a. með því að standa við skuldbindingar um aukin framlög til varnarmála. Einnig var horft til framtíðar og þá ekki síst með tilliti til þess hvernig undirbúa megi bandalagið fyrir aukna notkun dróna og áskoranir ómannaðs hernaðar. Lýðræði var einnig ofarlega á baugi og sjónum beint að viðnámsþrótti þess og hvernig sporna megi gegn erlendum afskiptum. Þá var kastljósinu einnig beint að efnahagsáskorunum og mikilvægi samstarfs aðildarríkja þvert á Atlantsála og eins að Vestur-Balkanskaga en árið markaði 30 ára afmæli Dayton-friðarsamkomulagsins.
Á vorfundi NATO-þingsins í Dayton, Ohio, í maí setti umfjöllun um Dayton-friðarsamninginn svip sinn á þingið. Eins og fyrr segir voru 30 ár liðin frá friðarviðræðunum á Wright-Patterson flugherstöðinni nærri Dayton í nóvember 1995 og undirritun samningsins í París í desember það sama ár. Samningurinn batt enda á stríðið í Bosníu sem hafði þá staðið í um þrjú og hálft ár. Þá markaði fundurinn einnig 70 ára afmæli NATO-þingsins en þingið kom saman í fyrsta skipti 18.–21. júlí 1955 í þáverandi höfuðstöðvum NATO í Palais de Chaillot í París. Tvær yfirlýsingar voru samþykktar á fundinum, annars vegar tilmæli þingsins fyrir leiðtogafundinn í Haag og hins vegar yfirlýsing um forsendur friðar í Úkraínu. Skilaboð þingsins til leiðtoga bandalagsins voru að efla þurfi enn frekar fælingarmátt og varnir bandalagsins, m.a. með því að styrkja hernaðarlegt, tæknilegt og iðnvætt forskot NATO með aukinni fjárfestingu í varnarmálum og sanngjarnari dreifingu á byrðum og ábyrgð milli Evrópu og Norður-Ameríku. Í yfirlýsingunni um Úkraínu var m.a. lögð áhersla á að viðhalda og efla enn frekar stuðning NATO við Úkraínu, bæði á vígvellinum og eins til þess að mæta brýnum þörfum almennra borgara. Þá lagði þingið einnig áherslu á að styrkja stöðu Úkraínu við samningaborðið. Á fundum fimm fastanefnda NATO-þingsins voru rædd drög að 16 skýrslum þar sem fjallað var um fjölbreytt málefni, allt frá ógninni sem stafar af aukinni samvinnu einræðisríkja, stöðu lýðræðis, netógnum og upplýsingaóreiðu til ómannaðs hernaðar og öryggis í geimnum. Í skýrslunum birtist jafnframt áhersla á svæði sem þjóna mikilvægum öryggishagsmunum fyrir bandalagið, þ.e. norðurslóðir, Svartahafið og Indó-Kyrrahafssvæðið, auk Mið-Austurlanda, Afríku og Vestur-Balkanskaga.
Sameiginlegur fundur stjórnmálanefndar og öryggis- og varnarmálanefndar NATO-þingsins fór fram hér á landi dagana 2.–4. júlí en nefndarfundurinn hófst mánudaginn 30. júní í Kaupmannahöfn og þaðan héldu nefndarmenn til Þórshafnar í Færeyjum. Tilgangur fundarins var m.a. að fræðast um og ræða öryggismál á norðurslóðum, samstarfið við NATO, eftirlit um GIUK-hliðið, þ.e. hafsvæðið milli Grænlands, Íslands og Bretlands, nýjustu aðgerðir á sviði orkumála, áhrif loftslagsbreytinga á öryggi á norðurslóðum og opnun siglingaleiða, m.a. út frá auknum áhuga kínverskra stjórnvalda á svæðinu. Þingmenn funduðu í Smiðju, skrifstofuhúsnæði Alþingis, en fóru einnig í vettvangsferðir og skoðuðu Reykjanesvirkjun, Teledyne Gavia, sem sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á sjálfvirkum neðansjávarfarartækjum, og öryggissvæðið í Keflavík.
Meðal þess sem kom fram í erindum og umræðum voru áhrif allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu á samstarfið á norðurslóðum og mögulegar afleiðingar áframhaldandi loftslagsbreytinga fyrir öryggi á svæðinu. Var þar bæði vísað til beinna áhrifa og afleiðinga loftslagsbreytinga fyrir íbúa svæðisins en einnig til breytts öryggisumhverfis vegna bráðnunar hafíss á svæðinu og opnunar siglingaleiða um svæðið. Norðurslóðir væru því ekki lengur lágspennusvæði þar sem megináhersla væri lögð á samstarf á sviði vísinda og rannsókna. Aukin spenna og samkeppni nærliggjandi ríkja væri nú einkennandi fyrir umræðu og samstarf á svæðinu. Þingmenn fengu einnig innsýn í helstu stoðir Íslands í varnarmálum, þær breytingar sem átt hefðu sér stað í kjölfar brotthvarfs bandaríska hersins árið 2006 og áhrif bæði innlimunar Rússlands á Krímskaga og allsherjarinnrásarinnar í febrúar 2022 fyrir samstarf Íslands við bandalagsríki og þátttöku þeirra í varnartengdri starfsemi hér á landi.
Ársfundur NATO-þingsins var haldinn í Ljúblíana, Slóveníu, dagana 10.–13. október. Helstu umfjöllunarefni fundarins voru áframhaldandi stuðningur við Úkraínu, styrking fælingarmáttar og varnargetu bandalagsins, sérstaklega á austurvængnum, og aukin framlög til varnarmála. Þingið hvatti aðildarríki til að uppfylla eigin skuldbindingar um að verja að lágmarki 5% af vergri landsframleiðslu bæði til kjarnaþarfa í varnarmálum og annarra öryggis- og varnartengdra útgjalda eigi síðar en árið 2035. Sérstök áhersla var lögð á uppbyggingu loft- og eldflaugavarna, harðari refsiaðgerðir gegn Rússlandi og fjárfestingar í nýrri tækni, ekki síst ómönnuðum kerfum. Umræður í nefndum þingsins báru þess merki að innrásarstríð Rússlands í Úkraínu hefði markað varanleg þáttaskil í öryggisumhverfi Evrópu og að ekki mætti líta á einstök svæði eða málaflokka án þess að huga að heildarhagsmunum bandalagsins. Ítrekað kom fram að aukin samvinna einræðisríkja, hraðfara tæknibreytingar og fjölþáttaógnir krefðust samhæfðari, forvirkari og pólitískt skýrari viðbragða af hálfu NATO-ríkja.
Vísinda- og tækninefnd fjallaði um og afgreiddi skýrslu Njáls Trausta Friðbertssonar um breyttar öryggisáskoranir á norðurslóðum. Í skýrslunni var norðurslóðum lýst sem svæði mikilla umbreytinga. Umhverfið væri að taka örum breytingum vegna loftslagsbreytinga, bráðnunar íss og opnunar nýrra siglingaleiða en að auki gætti einnig vaxandi samkeppni stórvelda. Norðurslóðir gætu því ekki lengur talist afmarkað jaðarsvæði utan alþjóðastjórnmála heldur væru þær í vaxandi mæli orðnar mikilvægur þáttur í sameiginlegu öryggissvæði Evrópu og Norður-Ameríku. Þá var lögð áhersla á nauðsyn samræmdrar nálgunar innan NATO, aukinnar yfirsýnar yfir þróun mála og markvissrar nýtingar nýrrar tækni, m.a. á sviði gervihnatta, skynjara og ómannaðra kerfa, og jafnframt var varað við því að viðbrögð bandalagsins yrðu sundurlaus nema mótuð yrði skýr heildarstefna eða komið á samhæfingarvettvangi um málefni norðurslóða. Þá var Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir kjörin aðalskýrsluhöfundur vísinda- og tækninefndar í stað Njáls Trausta Friðbertssonar.
2. Almennt um NATO-þingið.
NATO-þingið hefur allt frá árinu 1955 verið umræðu- og samstarfsvettvangur þingmanna aðildarríkja NATO um öryggis- og varnarmál. Þingið tryggir ákveðið lýðræðislegt eftirlit með stefnu NATO og að rödd þingmanna heyrist þegar að stefnumótun kemur. Þá er þingið mikilvægur vettvangur til þess að styrkja samstarfið yfir Atlantsála milli aðildarríkjanna í Evrópu annars vegar og Norður-Ameríku hins vegar. Eftir lok kalda stríðsins fjölgaði aðildar- og aukaaðildarríkjum NATO-þingsins ört og hafði stækkunin áhrif á starfsemi þingsins, m.a. varðandi aukna áherslu á uppbyggingu lýðræðislegra stjórnkerfa í Austur-Evrópu. Störf þingsins beinast í auknum mæli að öryggismálum Evrópu í heild, efnahagslegum og pólitískum áskorunum í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu og hinu hnattræna öryggiskerfi.
Hlutverk og starfssvið þingsins.
Í Atlantshafssáttmálanum frá árinu 1949 var ekki gert ráð fyrir þinglegri ráðgjafarsamkundu en með tímanum jókst fylgi við þá skoðun að nauðsyn væri á skipulegu samstarfi þjóðþinga í tengslum við NATO og til stuðnings bandalaginu. Þingið hefur ekki formlega stöðu innan bandalagsins en smám saman hefur komist á náin og virk samvinna stofnananna. Meginhlutverk þingsins er að efla samstöðu og samráð þjóðþinga á sviði öryggis- og varnarmála. Þingið kemur saman tvisvar á ári, til vorfundar og ársfundar að hausti.
Starfsemi þingsins fer að mestu fram í fimm málefnanefndum; stjórnmálanefnd, varnar- og öryggismálanefnd, efnahagsnefnd, vísinda- og tækninefnd og nefnd um lýðræði og öryggi. Auk þess fer mikið starf fram á vegum Miðjarðarhafshópsins, sem þó hefur ekki stöðu formlegrar málefnanefndar, og þingmannaráð um málefni Úkraínu er afar virkt innan NATO-þingsins en staða þess er einnig óformleg. Þessar nefndir eru meginvettvangur umræðna, þær fjalla um samtímamál sem upp koma á starfssviði þeirra og vinna um þau skýrslur. Nefndarálit eru oftast sett fram í formi tilmæla, yfirlýsinga eða ályktana sem nefndin samþykkir og þingið greiðir síðan atkvæði um. Tilmælum er beint til Norður-Atlantshafsráðsins, sem fer með æðsta ákvörðunarvald innan NATO, og í þeim er hvatt til tiltekinna aðgerða. Ályktunum þingsins er hins vegar beint til ríkisstjórna aðildarríkjanna.
Þótt þingið sé óháð NATO hafa samskipti þess við bandalagið smám saman tekið á sig fastara form. Á meðal formlegra samskipta má í fyrsta lagi nefna formleg svör við tilmælum þingsins frá framkvæmdastjóra bandalagsins fyrir hönd Norður-Atlantshafsráðsins. Í öðru lagi flytur framkvæmdastjóri bandalagsins ávarp á vorfundum og ársfundum NATO-þingsins og svarar fyrirspurnum þingmanna. Í þriðja lagi koma stjórnarnefnd NATO-þingsins og Norður-Atlantshafsráðið árlega saman til fundar í höfuðstöðvum NATO í Brussel. Að lokum skal nefndur sameiginlegur fundur þriggja nefnda NATO-þingsins í Brussel í febrúarmánuði ár hvert til að greiða fyrir samskiptum við starfsmenn og embættismenn NATO, SHAPE (Supreme Headquarters Allied Powers in Europe – æðstu bækistöðvar bandamanna í Evrópu) og Evrópusambandsins.
Fulltrúar á NATO-þinginu og forystumenn þess.
Á NATO-þinginu eiga sæti 281 þingmaður frá aðildarríkjunum 32. Fjöldi fulltrúa frá hverju landi ræðst að mestu af fólksfjölda. Stærsta sendinefndin er sú bandaríska með 36 þingmenn en Ísland er í hópi þeirra smæstu með þrjá þingmenn. Auk fastra fulltrúanna má hvert þjóðþing tilnefna jafn marga varamenn sem mega taka þátt í störfum þingsins en hafa ekki atkvæðisrétt. Ráðherrar í ríkisstjórnum mega ekki vera fulltrúar á NATO-þinginu. Ef einnig eru taldir þingmenn frá 11 aukaaðildarríkjum, fjórum samstarfsríkjum á Miðjarðarhafssvæðinu og sjö ríkjum sem eiga áheyrnaraðild að NATO-þinginu er heildarfjöldinn um 369 þingmenn. Þingmenn frá samstarfsríkjum NATO-þingsins geta tekið þátt í þingfundum og nefndafundum, að undanskildum fundum stjórnarnefndar, lagt fram ályktanir og breytingartillögur og gegnt trúnaðarstörfum en hafa ekki atkvæðisrétt á fundum.
Æðstu embætti NATO-þingsins eru sjö og er kosið í sex þeirra, þ.e. forseta og fimm varaforseta, af þingfulltrúum á ársfundi. Kjörtímabilið er eitt ár og er heimilt að endurkjósa sitjandi forseta eða varaforseta einu sinni. Sjöunda embættið er staða gjaldkera en stjórnarnefndin kýs hann til tveggja ára í senn og er heimilt að endurkjósa gjaldkerann tvisvar. NATO-þinginu er stjórnað af stjórnarnefnd en í henni eiga sæti forseti, varaforsetar, gjaldkeri og nefndarformenn auk formanna allra landsdeilda aðildarríkja NATO.
3. Íslandsdeild NATO-þingsins.
Eftirfarandi aðalmenn voru kosnir í Íslandsdeild NATO-þingsins 4. febrúar 2025 eftir að nýtt þing kom saman í kjölfar þingkosninganna 30. nóvember 2024: Dagur B. Eggertsson, formaður, þingflokki Samfylkingar, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, varaformaður, þingflokki Sjálfstæðisflokks, og Sigmar Guðmundsson, þingflokki Viðreisnar. Varamenn voru Víðir Reynisson, þingflokki Samfylkingar, Njáll Trausti Friðbertsson, þingflokki Sjálfstæðisflokks, og Grímur Grímsson, þingflokki Viðreisnar.
Ritari Íslandsdeildar var Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum. Íslandsdeild hélt 11 fundi á árinu, bæði til undirbúnings fyrir þátttöku á fundum erlendis og eins með lykilaðilum í íslensku samfélagi á sviði öryggis og áfallaþols.
Skipan málefnanefnda var eftirfarandi:
| Stjórnarnefnd: | Dagur B. Eggertsson. |
| Til vara: | Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir. |
| Stjórnmálanefnd: | Dagur B. Eggertsson. |
| Til vara: | Víðir Reynisson. |
| Varnar- og öryggismálanefnd: | Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir. |
| Til vara: | Njáll Trausti Friðbertsson. |
| Nefnd um lýðræði og öryggi: | Dagur B. Eggertsson. |
| Til vara: | Víðir Reynisson. |
| Efnahagsnefnd: | Sigmar Guðmundsson. |
| Til vara: | Grímur Grímsson. |
| Vísinda- og tækninefnd: | Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir. |
| Til vara: | Njáll Trausti Friðbertsson. |
| Vinnuhópur um Miðjarðarhafssvæðið: | Sigmar Guðmundsson. |
Njáll Trausti Friðbertsson gegndi stöðu aðalskýrsluhöfundar vísinda- og tækninefndar NATO-þingsins fram að ársfundi NATO-þingsins þar sem hann kynnti skýrslu sína um öryggi á norðurslóðum en Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir var kjörin í hans stað í lok fundar.
4. Fundir NATO-þingsins.
Á venjubundnu ári kemur NATO-þingið saman til þingfundar tvisvar sinnum. Vorfundur er haldinn í maí og ársfundur í október eða nóvember. Á svokölluðum febrúarfundi heldur stjórnarnefndin fund með framkvæmdastjóra NATO og Norður-Atlantshafsráðinu, auk þess sem stjórnmálanefnd, efnahagsnefnd og varnar- og öryggismálanefnd halda sameiginlegan fund. Jafnframt kemur stjórnarnefnd þingsins saman til fundar í mars eða apríl ár hvert. Þá sækir fjöldi NATO-þingmanna árlegan fund um Atlantshafssamstarfið sem fram fer í Washington í desember. Loks halda nefndir og undirnefndir þingsins reglulega málstofur og fundi á milli þingfunda.
Árið 2025 tók Íslandsdeild þátt í febrúarfundum í Brussel, í vorfundi í Dayton í maí og í ársfundi í Ljúblíana í október. Dagur, Þórdís Kolbrún og Njáll Trausti tóku þátt í sameiginlegum fundi stjórnmálanefndar og varnar- og öryggismálanefndar hér á landi í júlí og Dagur og Þórdís Kolbrún sóttu einnig árlegan fund um Atlantshafssamstarfið (Transatlantic forum) í Washington í desember. Þá tók Dagur þátt í fundi stjórnarnefndar í Skopje, Norður-Makedóníu, í apríl og sótti að auki sameiginlegan fund stjórnmálanefndar og vísinda- og tækninefndar í apríl í Belgrad og Sarajevó, leiðtogafund NATO-þingsins í Brussel, ráðstefnu í tengslum við leiðtogafund NATO í Haag í júlí og sameiginlegan fund stjórnmálanefndar, nefndar um lýðræði og öryggi og Miðjarðarhafshópsins á Sikiley og Lampedúsa í október. Sigmar Guðmundsson sótti sameiginlegan fund Miðjarðarhafshópsins og efnahags- og öryggisnefndar í apríl í Antalya, Tyrklandi, og sameiginlegan fund efnahags- og öryggisnefndar og stjórnmálanefndar í Japan í nóvember.
Febrúarfundur NATO-þingsins í Brussel 17.–19. febrúar.
Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sóttu fundinn Dagur B. Eggertsson formaður, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður og Sigmar Guðmundsson, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Fyrirkomulag fundarins var með hefðbundnum hætti, þ.e. embættismenn og herforingjar Atlantshafsbandalagsins og aðrir gestir héldu erindi um afmörkuð málefni og svöruðu spurningum þingmanna. Haldinn var árlegur fundur stjórnarnefndar NATO-þingsins með Norður-Atlantshafsráðinu. Þá átti Íslandsdeild fundi með Jörundi Valtýssyni, fastafulltrúa Íslands gagnvart NATO, og Kristjáni Andra Stefánssyni, sendiherra Íslands í Brussel. Í samræmi við trúnaðarreglu sem gildir á febrúarfundi NATO-þingsins (Chatham House Rule) er ekki birt frásögn af fundinum.
Stjórnarnefndarfundur NATO-þingsins í Skopje 4.–6. apríl.
Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins tók þátt í fundinum Dagur B. Eggertsson formaður, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Á dagskrá bar einna hæst forsendur varanlegs og réttláts friðar í Úkraínu og efling sameiginlegra varna og fælingarmáttar bandalagsins í aðdraganda leiðtogafundar NATO í Haag (sjá fylgiskjal I).
Vorfundur NATO-þingsins í Dayton 22.–26. maí.
Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sóttu fundinn Dagur B. Eggertsson formaður, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður, Sigmar Guðmundsson og Njáll Trausti Friðbertsson, varamaður og aðalskýrsluhöfundur vísinda- og tækninefndar, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Umfjöllun um Dayton-friðarsamninginn setti svip sinn á vorþingið en 30 ár voru liðin frá friðarviðræðunum á Wright-Patterson flugherstöðinni nærri Dayton í nóvember 1995 og undirritun samningsins í París í desember sama ár. Samningurinn batt enda á stríðið í Bosníu sem hafði þá staðið í um þrjú og hálft ár. Styrking bandalagsins var einnig ofarlega á baugi í aðdraganda leiðtogafundar NATO 24.–25. júní og sjónum var áfram beint að innrásarstríði Rússlands í Úkraínu. Að auki markaði fundurinn 70 ára afmæli NATO-þingsins en þingið kom saman í fyrsta skipti 18.–21. júlí 1955 í þáverandi höfuðstöðvum NATO í Palais de Chaillot í París (sjá fylgiskjal II).
Fundur stjórnmálanefndar og öryggis- og varnarmálanefndar í Reykjavík 2.–4. júlí.
Af hálfu Íslandsdeildar sóttu fundinn Dagur B. Eggertsson formaður, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður, Njáll Trausti Friðbertsson varamaður, auk Auðar Örlygsdóttur og Örnu Gerðar Bang, sérfræðinga í alþjóðamálum. Tilgangur fundarins var m.a. að fræðast um og ræða öryggismál á norðurslóðum, samstarfið við NATO, eftirlit um GIUK-hliðið, þ.e. hafsvæðið milli Grænlands, Íslands og Bretlands, nýjustu aðgerðir á sviði orkumála, áhrif loftslagsbreytinga á öryggi á norðurslóðum og opnun siglingaleiða, m.a. út frá auknum áhuga kínverskra stjórnvalda á svæðinu (sjá fylgiskjal III).
Ársfundur NATO-þingsins í Ljúblíana 10.–13. október.
Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sóttu fundinn Dagur B. Eggertsson formaður, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður, Sigmar Guðmundsson og Njáll Trausti Friðbertsson, varamaður og aðalskýrsluhöfundur vísinda- og tækninefndar, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Helstu umfjöllunarefni fundarins voru áframhaldandi stuðningur við Úkraínu, styrking fælingarmáttar og varnargetu bandalagsins, sérstaklega á austurvængnum, og aukin framlög til varnarmála. Þingið hvatti aðildarríki til að uppfylla eigin skuldbindingar um að verja að lágmarki 5% af vergri landsframleiðslu bæði til kjarnaþarfa í varnarmálum og annarra öryggis- og varnartengdra útgjalda eigi síðar en árið 2035. Sérstök áhersla var lögð á uppbyggingu loft- og eldflaugavarna, harðari refsiaðgerðir gegn Rússlandi og fjárfestingar í nýrri tækni, ekki síst ómönnuðum kerfum (sjá fylgiskjal IV).
Transatlantic forum í Washington 8.–10. desember.
NATO-þingið efnir árlega til fundar um helstu málefni Atlantshafssamstarfsins í Washington D.C og að þessu sinni var fundurinn haldinn í samstarfi við bandaríska þingið. Tilgangur fundarins er einkum að veita evrópskum þingmönnum á NATO-þinginu innsýn í það sem hæst ber í bandarískri umræðu um öryggis- og varnarmál. Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sóttu fundinn Dagur B. Eggertsson formaður, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður, ásamt Auði Örlygsdóttur, sérfræðingi í alþjóðamálum. Fyrirkomulag fundarins var með hefðbundnum hætti, þ.e. stjórnmálamenn, embættismenn, fræðimenn, fulltrúar hugveitna og aðrir gestir héldu erindi um afmörkuð málefni og svöruðu spurningum þingmanna. Í samræmi við trúnaðarreglu sem gildir á Transatlantic Forum (Chatham House Rule) er ekki birt frásögn af fundinum.
5. Yfirlýsingar og ályktanir.
Sjá má lista yfir yfirlýsingar og ályktanir NATO-þingsins á árinu 2025 í fylgiskjali V.
Alþingi, 2. febrúar 2026.
| Dagur B. Eggertsson, form. |
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaform. | Sigmar Guðmundsson. |
Fylgiskjal I.
FRÁSÖGN
af fundi stjórnarnefndar NATO-þingsins í Skopje 4.–6. apríl 2025.
Fundur stjórnarnefndar NATO-þingsins fór fram í Skopje, Norður-Makedóníu, dagana 4.–6. apríl 2025. Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sóttu fundinn Dagur B. Eggertsson formaður, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Fundurinn fór fram skömmu eftir fimm ára afmæli aðildar Norður-Makedóníu að NATO og í kjölfar hörmulegs eldsvoða í næturklúbbi í landinu þar sem 59 manns létust. Forseti NATO-þingsins, Marcos Perestrello, setti fundinn og lagði í ávarpi sínu áherslu á að aðild Norður-Makedóníu að NATO hefði ekki einungis aukið öryggi landsins sjálfs heldur einnig styrkt sameiginlegar varnir bandalagsins. Hann benti á að Norður-Makedónía hefði á skömmum tíma sannað sig sem traustur og áreiðanlegur bandamaður, m.a. með því að uppfylla markmið NATO um að verja a.m.k. 2% af vergri landsframleiðslu til varnarmála, leggja sitt af mörkum til varna á austurvæng bandalagsins, styðja stöðugleika á Vestur-Balkanskaga og veita Úkraínu virkan stuðning í að verjast árásarstríði Rússlands.
Forsætisráðherra Norður-Makedóníu, Hristijan Mickoski, ávarpaði stjórnarnefndina og minntist þeirra sem létust í eldsvoðanum. Hann sagði slysið hafa minnt á hversu hverfult lífið væri en jafnframt sýnt mikilvægi samstöðu og benti í því samhengi á að bandalagsríki NATO hefðu verið fyrst til að veita aðstoð í kjölfar hörmunganna. Hann fór yfir framlag Norður-Makedóníu til sameiginlegs öryggis og varna bandalagsríkja og undirstrikaði mikilvægi samvinnu innan bandalagsins. Vlado Misajlovski, varnarmálaráðherra Norður-Makedóníu, fjallaði í ávarpi sínu um stöðu öryggismála í Evrópu, mikilvægi þess að tryggja varanlegan og réttlátan frið og hlutverk NATO í því samhengi. Þá fór hann yfir framlag Norður-Makedóníu til sameiginlegra aðgerða bandalagsins, þar á meðal þátttöku í varnarviðbúnaði á austurvæng NATO og í verkefnum á borð við KFOR í Kósovó og fjölþjóðlegum hersveitum í Búlgaríu, Lettlandi og Rúmeníu.
Stjórnarnefndin fjallaði um drög að yfirlýsingu um hvernig færa mætti fælingarmátt og varnir bandalagsins á næsta stig í aðdraganda leiðtogafundar þess í Haag. Ágnes Vadai, varaforseti NATO-þingsins og þingmaður frá Ungverjalandi, kynnti drögin og í kjölfarið sköpuðust töluverðar umræður, m.a. út frá stöðunni í Úkraínu. Hvernig greina mætti frá henni um leið og haldið væri í orðalag sem væri skýrt og trúverðugt, ekki síst varðandi friðarhorfur í landinu og mögulega aðild Úkraínu að NATO. Samþykktar voru nokkrar breytingartillögur við yfirlýsinguna, m.a. til samræmingar við orðalag frá fyrri leiðtogafundi NATO í Washington en jafnframt ákveðið að halda áfram vinnu við yfirlýsinguna fram að vorþingi NATO-þingsins í Dayton.
Stríð Rússlands gegn Úkraínu var umfangsmikið umræðuefni á fundinum. Ruslan Stefanchuk, forseti úkraínska þingsins Verkhovna Rada, sendi stjórnarnefndinni rafrænt ávarp þar sem hann kallaði eftir áframhaldandi stuðningi bandalagsríkja, bæði hernaðarlegum og pólitískum, og ítrekaði mikilvægi viðskiptaþvingana gegn Rússlandi. Hann lagði áherslu á að raunverulegar öryggistryggingar væru forsenda réttláts og varanlegs friðar og minnti á að leið Úkraínu að NATO-aðild hefði verið skilgreind sem óafturkræf.
Í kjölfarið átti stjórnarnefndin samtal við Yehor Cherniev, formann úkraínsku landsdeildarinnar, sem lýsti stöðu mála í Úkraínu og þakkaði fyrir víðtækan stuðning NATO-þingsins. Hann benti á að Úkraína væri reiðubúin til friðar- og samningaviðræðna en að Rússland hefði ekki sýnt slíkan vilja og haldið áfram árásum á mikilvæga borgaralega innviði. Í umræðum var fjallað um nauðsyn öryggistrygginga, áframhaldandi afhendingu vopna og skotfæra, einkum loftvarnakerfa og eldflauga, auk þjálfunar úkraínskra hermanna. Þá var einnig rætt um fjárfestingar í úkraínskum varnariðnaði, notkun frystra eigna Rússlands, aðgerðir gegn skuggaflota Rússa og mikilvægi þess að draga Rússland og rússneska ráðamenn til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi. Dagur B. Eggertsson tók þátt í umræðunum og lagði áherslu á mikilvægi skýrra og raunhæfra öryggistrygginga fyrir Úkraínu sem grunnforsendu í hvers kyns friðarferli. Hann spurði út í rauðu línurnar fyrir Úkraínu, hvað væri ófrávíkjanlegt í þeirra augum, í mögulegum samningum um frið. Í svari Chernievs kom skýrt fram að Úkraína myndi aldrei viðurkenna hernumin landsvæði sem hluta af Rússlandi, að virða þyrfti fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt Úkraínu, m.a. í mótun þeirra eigin utanríkisstefnu, og að í því samhengi væri aðild að NATO sterkasta öryggistryggingin fyrir varanlegum og réttlátum friði í Úkraínu.
Stjórnarnefndin fjallaði einnig um samstarf NATO-þingsins við georgíska þingið. Í umræðum komu fram vaxandi áhyggjur af lýðræðislegri afturför í landinu og var bent á að hluti landsvæðis Georgíu væri enn hernuminn. Lögð var áhersla á að sýna skýra samstöðu með georgísku þjóðinni og lýðræðislegum gildum.
Þá tók stjórnarnefndin til umfjöllunar fjárhagsleg málefni NATO-þingsins, þar á meðal endurskoðaða ársreikninga fyrir árið 2024, sem ekki voru gerðar athugasemdir við, og skýrslu endurskoðenda NATO (IBAN). Faik Öztrak, þingmaður frá Tyrklandi, var kjörinn starfandi gjaldkeri þingsins fram til 31. mars 2026. Einnig var farið yfir stöðu ráðningar næsta framkvæmdastjóra NATO-þingsins, jafnréttismál innan þingsins og skipulag komandi funda og þinghalda.
Dagur B. Eggertsson átti jafnframt fund með Derek Twigg, formanni bresku landsdeildarinnar, og Mark Lancaster, breskum öldungadeildarþingmanni og fyrrum varnarmálaráðherra.
Fylgiskjal II.
F R Á S Ö G N
af vorfundi NATO-þingsins í Dayton 22.–26. maí 2025.
Árlegur vorfundur NATO-þingsins var haldinn í Dayton, Ohio, dagana 22.–26. maí. Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sóttu fundinn Dagur B. Eggertsson formaður, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður, Sigmar Guðmundsson og Njáll Trausti Friðbertsson varamaður og aðalskýrsluhöfundur vísinda- og tækninefndar, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Á vorfundum NATO-þingsins vinna málefnanefndir skýrslur og eiga fundi með sérfræðingum og fulltrúum ríkisstjórna og alþjóðastofnana. Þá er þingfundur haldinn þar sem fjallað er um þau mál sem hæst ber í alþjóðlegri öryggis- og varnarmálaumræðu. Umfjöllun um Dayton-friðarsamninginn setti svip sinn á vorþingið en 30 ár voru liðin frá friðarviðræðunum á Wright-Patterson flugherstöðinni nærri Dayton í nóvember 1995 og undirritun samningsins í París í desember það sama ár. Samningurinn batt enda á stríðið í Bosníu sem hafði þá staðið í um þrjú og hálft ár. Styrking bandalagsins var einnig ofarlega á baugi í aðdraganda leiðtogafundar NATO 24.-25. júní og sjónum áfram beint að innrásarstríði Rússlands í Úkraínu. Að auki markaði fundurinn 70 ára afmæli NATO-þingsins en þingið kom saman í fyrsta skipti 18.–21. júlí 1955 í þáverandi höfuðstöðvum NATO í Palais de Chaillot í París. Þingið sóttu 158 þingmenn frá þeim 15 bandalagsríkjum sem þá mynduðu NATO.
Tvær yfirlýsingar voru samþykktar á fundinum, annars vegar tilmæli þingsins fyrir leiðtogafundinn í Haag og hins vegar yfirlýsing um forsendur friðar í Úkraínu. Skilaboð þingsins til leiðtoga bandalagsins voru að efla þurfi enn frekar fælingarmátt og varnir bandalagsins, m.a. með því að styrkja hernaðarlegt, tæknilegt og iðnvætt forskot NATO með aukinni fjárfestingu í varnarmálum og sanngjarnari dreifingu á byrðum og ábyrgð milli Evrópu og Norður-Ameríku. Í yfirlýsingunni um Úkraínu var m.a. lögð áhersla á að viðhalda og efla enn frekar stuðning NATO við Úkraínu, bæði á vígvellinum og eins til þess að mæta brýnum þörfum almennra borgara. Þá lagði þingið einnig áherslu á að styrkja stöðu Úkraínu við samningaborðið.
Á vorþinginu var sérstök setningarathöfn tileinkuð Dayton-friðarsamningnum og stöðunni á Balkanskaga. Elmedin Konakovic, utanríkisráðherra Bosníu og Hersegóvínu, Gordan Grlic-Radman, utanríkisráðherra Króatíu, og Hans Christian Schmidt, æðsti sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Bosníu og Hersegóvínu, fluttu erindi og þingmenn hlýddu jafnframt á ávörp frá Mike DeWine, ríkisstjóra Ohio, Christopher Landau, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Matthew Whitaker, fastafulltrúa Bandaríkjanna gagnvart NATO. Þá fóru einnig fram pallborðsumræður undir yfirskriftinni: „Þá og nú: Endurmat á stöðunni á Balkanskaga eftir Dayton-samkomulagið“ með þátttöku Christophers Hills, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Serbíu, Carls Bildts, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, Dame Karenar Pierce, fyrrverandi sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum og sérstaks sendifulltrúa fyrir Vestur-Balkanskagann, og Wesleys Clarks, sem gegndi áður stöðu hershöfðingja í bandaríska hernum. Umræðustjóri var Frederick Kempe, forstjóri og forseti Atlantshafsráðs Bandaríkjanna. Bildt varaði við því að draga beinan lærdóm af átökunum á Balkanskaganum á tíunda áratugnum og heimfæra yfir á stríðið í Úkraínu þar sem átökin væru í eðli sínu ólík. Átökin á Balkanskaga hefðu einkennst af flóknum deilum fólks af ólíkum uppruna meðan línan væri afar skýr í Úkraínu. Þar færi Rússland fram með afdráttarlausu valdi gegn Úkraínu í takt við eigin heimsvaldastefnu. Í umræðunum mátti þó einnig greina ákveðinn samanburð milli atburðanna fyrir 30 árum og árásarstríðs dagsins í dag en hann var fyrst og fremst talinn felast í þeim lærdómi sem draga mætti af samtakamætti bandalagsríkja við að binda enda á stríðið. Það hefði skipt sköpum þá og myndi einnig skipta sköpum fyrir réttlátan og langvarandi frið í Úkraínu. Gerry Connolly, fyrrverandi forseti NATO-þingsins og þingmaður á bandaríska þinginu, féll frá daginn áður en þingmenn komu saman í Dayton, miðvikudaginn 21. maí, og var hans minnst fyrir mikilvægt starf hans í þágu þingsins.
Á fundum fimm fastanefnda NATO-þingsins voru rædd drög að 16 skýrslum þar sem fjallað var um fjölbreytt málefni, allt frá ógninni sem stafar af aukinni samvinnu einræðisríkja, stöðu lýðræðis, netógnum og upplýsingaóreiðu til ómannaðs hernaðar og öryggis í geimnum. Í skýrslunum birtist jafnframt áhersla á svæði sem þjóna mikilvægum öryggishagsmunum fyrir bandalagið, þ.e. norðurslóðir, Svartahafið og Indó-Kyrrahafssvæðið, auk Mið-Austurlanda, Afríku og Vestur-Balkanskaga.
Frederick Kempe, framkvæmdastjóri og forseti Atlantshafsráðsins, kom fyrir nefnd um lýðræði og öryggi og ræddi þar við þingmenn um stöðuna á alþjóðavettvangi og velti því m.a. upp hvort heimurinn væri að endurupplifa ástandið 1939 eða 1945. Hann sagði að viðbrögð ráðamanna nú myndu stýra því hvers konar tímabil tæki við í sögunni í kjölfar þessa umrótatíma. Hann talaði fyrir samstöðu og beindi sjónum að ógninni sem stafaði af hinum svokölluðu KRINK-ríkjum (Kína, Rússland, Íran og Norður-Kórea) sem ættu í raun í nánara samstarfi en öxulveldi síðari heimsstyrjaldar. Hann gagnrýndi Donald Trump fyrir að beita Rússland ekki nægjanlegum þrýstingi og hvatti Evrópu til að bregðast hraðar við, m.a. með því að losa um frystar eignir Rússa. Hann nefndi í því samhengi mikilvæga þingsályktunartillögu sem lægi fyrir bandaríska þinginu um hertar viðskiptaþvinganir á hendur Rússlandi. Fundurinn fór fram á sviði leikhúss sem Kempe sagði að væri viðeigandi því þingmenn væru á heimssviðinu og augu heimsins hvíldu á þeim.
Í umræðum var formaður úkraínsku landsdeildarinnar, Yehor Cherniev, meðal þeirra sem tóku til máls. Hann sagði eina stærstu drónaárás á Úkraínu hafa farið fram kvöldið áður og minnti á hvar draga þyrfti mörkin þegar kæmi að langvarandi og réttlátum friði í Úkraínu. Hann lagði áherslu á mikilvægi öryggistrygginga fyrir Úkraínu og sagði viðskiptaþvinganir afar mikilvægar í baráttunni. Í umræðum kom einnig fram þörfin á aukinni þátttöku og stuðningi meðal Evrópuríkja sem væru fjær átökunum. Dagur B. Eggertsson spurði út í hlutverk Evrópu. Kempe lagði áfram áherslu á að Evrópa þyrfti að taka eigin varnir fastari tökum og bregðast hraðar við. Álfan hefði alla burði til þess að stöðva Rússland. Dr. Colin P. Clarke, rannsóknarstjóri hjá The Soufan Group, kom einnig fyrir nefndina og ræddi þróun hryðjuverkaógnar fram til ársins 2025. Í umræðum komu fram áhyggjur af aukinni vopnavæðingu sem gæti leitt til þess að fleiri vopn kæmust í rangar hendur. Þá barst umræðan einnig að samfélagsmiðlum, gervigreind og örri tækniþróun. Clarke sagði afar mikilvægt að missa ekki sjónar á hryðjuverkaógninni. Skortur á pólitískum vilja gæti orðið til þess að öfgahópar næðu forskoti og stjórnvöld sætu eftir í baráttunni. Þá voru að auki tekin fyrir drög að þremur skýrslum, sérstakri skýrslu í tilefni af 25 ára afmæli ályktunar Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi, meginskýrslu nefndarinnar um hvernig vernda megi samfélög bandalagsríkja fyrir áhrifum af kínverskri upplýsingaóreiðu og skýrslu undirnefndar um stöðu lýðræðis á tímum stafrænna ógna og hvernig efla megi netöryggi meðal bandalagsríkja NATO.
Á fundum varnar- og öryggismálanefndar var sjónum beint að viðbrögðum bandalagsins við áframhaldandi hernaði Rússlands í Úkraínu og áhrifum stríðsins fyrir þróun öryggis á Evró-Atlantshafssvæðinu. Rík áhersla var lögð á að bandalagsríkin yrðu að hraða uppbyggingu í varnarmálum til að mæta vaxandi ógn úr austurátt og aukinni þátttöku einræðisríkja í árásarstríði Rússlands gegn Úkraínu. Áhersla var lögð á mikilvægi þess að veita aukið fjármagn til varnarmála, styrkja varnariðnaðinn beggja vegna Atlantsála og efla varnir, sérstaklega á austurvæng bandalagsins. Þá voru einnig rædd drög að þremur skýrslum sem snúa að framtíðarstefnu NATO gagnvart Rússlandi, mikilvægu hlutverki einræðisríkja í innrásarstríði Rússlands í Úkraínu og samstarfi bandalagsríkja á Indó-Kyrrahafssvæðinu.
Efnahags- og öryggisnefndin ræddi nauðsyn þess að endurskoða útboðsferla í varnargeiranum og ýta undir nýsköpun og aukið samstarf innan varnariðnaðarins. Þingmenn bentu á að skortur á fjárfestingu frá lokum kalda stríðsins hefði leitt til veikrar viðbúnaðarstöðu bandalagsríkja. Áframhaldandi öflugur stuðningur við Úkraínu var ítrekaður, sem og nauðsyn þess að veita meira en 2% af vergri landsframleiðslu til varnarmála. Mörg ríki væru nú að horfa til 3% af vergri landsframleiðslu en það gæti reynst of lítið ef bandalaginu eigi að takast að nútímavæða eigin varnir. Nefndin tók jafnframt til umfjöllunar drög að þremur skýrslum, um áhrif aukinnar sundrungar í efnahagsmálum á samstarfið þvert yfir Atlantsála, um efnahagsleg áhrif innrásarstríðs Rússlands fyrir ríkin í og við Svartahaf og um hvernig bandalagið geti tekist á við ríkjandi ógnir og framtíðaráskoranir fyrir varnir í Evrópu og Norður-Ameríku.
Á fundi vísinda- og tækninefndar var fjallað um mikilvægi þess að varnarstefna NATO taki mið af örri þróun á sviði tækni og nýsköpunar og var megináhersla lögð á ómannaðan hernað, innviði í geimnum og öryggismál á norðurslóðum. Í drögum að skýrslu um ómannaðan hernað og vopnakerfi var lögð rík áhersla á þá byltingu sem orðið hefði í notkun slíkrar tækni í hernaði, sérstaklega í kjölfar allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu. Í skýrslunni er hvatt til þess að taka mið af notkun og innleiðingu ómannaðra vopnakerfa í allri áætlunargerð á sviði varnarmála og eins við heræfingar. Í drögum að skýrslu um geiminnviði var bent á að veikleikar í geiminnviðum gætu haft alvarleg áhrif fyrir fjarskipti og eftirlit og því þyrftu bandalagsríkin að efla getu sína til að greina, bregðast við og verja sig gegn mögulegum fjandsamlegum aðgerðum í geimnum. Njáll Trausti Friðbertsson, aðalskýrsluhöfundur vísinda- og tækninefndar, kynnti drög að skýrslu sinni um öryggisáskoranir á norðurslóðum af völdum loftslagsbreytinga. Í skýrslunni kemur m.a. fram að þiðnun sífrera og bráðnun hafíss muni hafa afgerandi afleiðingar fyrir umhverfi og samfélag á norðurslóðum en að um leið opnist nýjar siglingaleiðir um svæðið og aukinn aðgangur að auðlindum á hafsbotni. Ekki sé því hægt að horfa fram hjá auknu mikilvægi svæðisins í efnahagslegu og hernaðarlegu tilliti, ekki síst í kjölfar innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og í ljósi þeirra breytinga sem stríðið hefur valdið hvað varðar samstarf og rannsóknir á svæðinu. Í umræðum um drögin mátti greina áherslu á að norðurslóðir yrðu áfram vettvangur samvinnu en ekki sundrungar og hvöttu þingmenn til aukins samstarfs norðurslóðaríkja við önnur ríki í Evrópu til að efla öryggi á svæðinu. Í þessu samhengi var bent á vaxandi áhuga ríkja á borð við Spán, Þýskaland og Frakkland á málefnum norðurslóða. Áhersla var lögð á jafnvægi milli viðskiptalegra, umhverfislegra og pólitískra hagsmuna og lýstu þingmenn yfir áhyggjum vegna mögulegra hernaðarumsvifa Kínverja á svæðinu undir yfirskini vísindarannsókna en Kína hefur skilgreint sig um nokkurt skeið sem nær-norðurslóðaríki. Þingmenn fjölluðu einnig um nauðsyn þess að efla leitar- og björgunargetu á svæðinu, að endurskoða þyrfti staðsetningu herafla og efla varnargetu í köldum aðstæðum sem kallaði á aukna þjálfun hermanna og tæknibúnað sem væri sérhæfður fyrir aðstæður á norðurslóðum. Þá hvöttu einstaka þingmenn sérstaklega til þess að tekið yrði á óþægilegum málum og sögðu nauðsynlegt að NATO horfðist í augu við þá vaxandi ógn sem stafaði af sífellt umfangsmeiri og óljósari aðgerðum Kína á svæðinu. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir undirstrikaði einnig mikilvægi þess að þingið tæki til umræðu flókin málefni sem ekki væri hægt að loka augunum gagnvart. NATO horfði til þess sem kæmi frá þinginu og þingmenn þyrftu því að hafa kjark til þess að segja hlutina hreint út.
Á fundum stjórnmálanefndar var sjónum beint að friðarhorfum í Úkraínu, öryggisþróun á Vestur-Balkanskaga og auknu samstarfi einræðisríkja sem grafa undan alþjóðalögum og lýðræði. Þrjár skýrslur voru teknar til umræðu, um réttlátan frið í Úkraínu, 30 ára afmæli Dayton-friðarsamningsins og áskoranir vegna aukinnar samstöðu og samstarfs meðal KRINK-ríkjanna svokölluðu, Kína, Rússlands, Írans og Norður-Kóreu. Í umræðu um Vestur-Balkanskaga var minnt á hversu brothættur friðurinn væri á svæðinu og að aukin spenna, m.a. milli Belgrad og Pristína, gæti ógnað öryggi í Evrópu. Þingmenn hvöttu til áframhaldandi og samhæfðs hlutverks NATO og ESB, m.a. með auknu samstarfi við eftirlit og á sviði netöryggis, og undirstrikuðu mikilvægi þess að KFOR-hersveit NATO sinnti áfram hlutverki sínu við að tryggja stöðugleika á svæðinu. Þá vöruðu þingmenn við því að áhrif Rússlands og efnahagsleg umsvif Kína gætu grafið undan sjálfstæði og fullveldi ríkja á svæðinu. Umræðan um Úkraínu beindist að nauðsyn þess að mögulegt friðarsamkomulag verðlaunaði ekki árásarhegðun, heldur tryggði varanlegan og réttlátan frið sem byggði á fullveldi Úkraínu og áreiðanlegum öryggistryggingum fyrir ríkið. Þingmenn lögðu áherslu á að styrkur og samstaða væru forsenda friðar og að Úkraína ætti rétt á stuðningi NATO á eigin vegferð til fullrar aðildar. Í tengslum við vaxandi samstöðu einræðisríkja undirstrikuðu þingmenn hlutverk NATO í að takast á við fjölþáttaógnir, jafnt í hernaði, á sviði efnahagsmála og í tengslum við upplýsingaóreiðu. Samhliða því þyrfti bandalagið að efla traust, auka samvirkni (e. interoperability) og byggja upp viðnámsþrótt samfélaga sinna gegn óhefðbundnum ógnum. Í pallborðsumræðum lagði fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri NATO, Mircea Geoanã, áherslu á að NATO þyrfti að endurhugsa varnarsamstarf sitt með raunhæfum hætti og horfa til öryggishugtaksins í víðu samhengi. Evrópa yrði að axla meiri ábyrgð en það þyrfti að gerast í góðri sátt þvert á ríki bandalagsins. Mikilvægt væri að það skapaðist ekki „öryggistómarúm“ (e. security gaps) þegar áherslur í samstarfinu færðust. Í umræðum lýstu þingmenn yfir áhyggjum af því að viðskiptaþvinganir og tollamál, sérstaklega gagnvart varnariðnaði, gætu grafið undan trausti og samvinnu meðal bandalagsríkja. Þá barst umræðan einnig að mikilvægi þess að þingmenn ræktuðu hlutverk sitt í að upplýsa almenning um tilgang aukins framlags til varnarmála og gerðu borgurum sínum ljóst hvað væri í húfi. Frelsi, öryggi og lýðræði í Evrópu væri í hættu og mikilvægt að bregðast við með viðeigandi hætti.
Hinn eiginlegi þingfundur NATO-þingsins fór fram á lokadegi vorþingsins í Dayton. Fjöldi leiðtoga frá ríkjum Vestur-Balkanskaga flutti ávörp og minnti á gildi bandalagsins sem burðaráss stöðugleika á svæðinu. Þá flutti Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, netávarp þar sem hann lýsti ástandinu í landinu sem alvarlegu og ítrekaði mikilvægi aukins hernaðarlegs og efnahagslegs stuðnings bandalagsins. Mark Rutte, nýr framkvæmdastjóri NATO, flutti sitt fyrsta ávarp á vettvangi NATO-þingsins þar sem hann hvatti þingmenn til að beita áhrifum sínum í þágu aukins stuðnings við varnarmál og framleiðslugetu bandalagsríkja. Hann undirstrikaði mikilvægi þess að öll ríki legðu sitt af mörkum, að samstaða og sanngjörn skipting byrða væru forsenda öflugrar fælingar og réttláts friðar og að ekki mætti bíða með aðgerðir. Í kjölfar ávarpsins svaraði Rutte fjölmörgum spurningum frá þingmönnum aðildarríkja, m.a. frá Degi B. Eggertssyni sem beindi sjónum að stefnu NATO gagnvart Rússlandi og spurði hvort þörf væri á heildstæðari nálgun gagnvart norðurslóðum í ljósi aukinnar spennu á svæðinu og meðal bandalagsríkja. Rutte tók undir mikilvægi norðurslóða og sagði afar jákvætt að nú væru sjö af átta ríkjum Norðurskautsráðsins í NATO. Þessi ríki væru nú að efla samstarfið innan NATO og eins að kanna með hvaða hætti bandalagið gæti stutt við þá samvinnu og aukna áherslu á norðurslóðir. Mörg brýn málefni og aðgerðir blöstu við, m.a. í tengslum við opnun siglingaleiða um svæðið. Þingmenn annarra ríkja beindu einnig athyglinni að brýnustu áskorunum samtímans, þar á meðal þörfinni á að styrkja varnir bandalagsins á austurvængnum, efla loftvarnir og bregðast við vaxandi upplýsingaóreiðu. Þingmenn bentu á að ný viðmið um fjárframlög til varnarmála væru nauðsynleg og að framleiðslugeta hergagnaiðnaðarins dygði ekki til að mæta þeirri þörf sem nú væri uppi. Þá var rætt hvernig mætti treysta stuðning við Úkraínu til langs tíma og forðast að endurtaka mistök fyrri friðarviðræðna. Einnig kom fram krafa um aukið samstarf milli NATO og ESB, með áherslu á að tryggja að aðgerðir ESB nýtist einnig ríkjum utan sambandsins. Að loknum umræðum voru samþykktar tvær yfirlýsingar þingsins sem áður hefur verið vikið að, annars vegar tilmæli þingsins fyrir leiðtogafundinn í Haag og hins vegar yfirlýsing um áframhaldandi stuðning bandalagsins við Úkraínu. Ársfundur NATO-þingsins fer næst fram í Ljúblíana 10.–13. október nk.
Fylgiskjal III.
F R Á S Ö G N
af sameiginlegum fundi stjórnmálanefndar og öryggis- og varnarmálanefndar NATO-þingsins í Reykjavík 2.–4. júlí 2025.
Sameiginlegur fundur stjórnmálanefndar og öryggis- og varnarmálanefndar NATO-þingsins fór fram hér á landi dagana 2.–4. júlí en nefndarfundurinn hófst mánudaginn 30. júní í Kaupmannahöfn og þaðan héldu nefndarmenn til Þórshafnar í Færeyjum. Af hálfu Íslandsdeildar sóttu fundinn Dagur B. Eggertsson formaður, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður, Njáll Trausti Friðbertsson varamaður, auk Auðar Örlygsdóttur og Örnu Gerðar Bang, sérfræðinga í alþjóðamálum. Tilgangur fundarins var m.a. að fræðast um og ræða öryggismál á norðurslóðum, samstarfið við NATO, eftirlit um GIUK-hliðið, þ.e. hafsvæðið milli Grænlands, Íslands og Bretlands, nýjustu aðgerðir á sviði orkumála, áhrif loftslagsbreytinga á öryggi á norðurslóðum og opnun siglingaleiða, m.a. út frá auknum áhuga kínverskra stjórnvalda á svæðinu.
Fundurinn hófst á vettvangsferð í Reykjanesvirkjun þar sem Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar, framfara og Auðlindagarðsins hjá HS Orku, tók á móti hópnum og kynnti starfsemina. Hann fór yfir nýtingu jarðvarma á Íslandi, helstu tækifæri á því sviði og sagði frá eldsumbrotunum sem hefðu sett mark sitt á svæðið og starfsemina undanfarið. Nefndirnar funduðu einnig í Smiðju, skrifstofuhúsnæði Alþingis, og áttu þar í samtali við fulltrúa utanríkisráðuneytisins, þau Bergdísi Ellertsdóttur, sendiherra Íslands í málefnum norðurslóða, og Snorra Matthíasson, deildarstjóra á varnarmálaskrifstofu, Þorvarð Sveinsson, framkvæmdastjóra Farice, og Sigríði Björk Gunnarsdóttur ríkislögreglustjóra. Dagur ávarpaði hópinn í upphafi fundar og Þórdís Kolbrún tók þátt í pallborðsumræðum fyrir hönd Íslandsdeildar.
Meðal þess sem kom fram í erindum og umræðum voru áhrif allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu á samstarfið á norðurslóðum og mögulegar afleiðingar áframhaldandi loftslagsbreytinga fyrir öryggi á svæðinu. Var þar bæði vísað til beinna áhrifa af afleiðingum loftslagsbreytinga fyrir íbúa svæðisins en einnig til breytts öryggisumhverfis vegna bráðnunar hafíss á svæðinu og opnunar siglingaleiða um svæðið. Norðurslóðir væru því ekki lengur lágspennusvæði þar sem megináhersla væri lögð á samstarf á sviði vísinda og rannsókna. Aukin spenna og samkeppni nærliggjandi ríkja væri nú einkennandi fyrir umræðu og samstarf á svæðinu. Þingmenn fengu einnig innsýn í helstu stoðir Íslands í varnarmálum, þær breytingar sem átt hefðu sér stað í kjölfar brotthvarfs bandaríska hersins árið 2006 og áhrif bæði innlimunar Rússlands á Krímskaga og allsherjarinnrásarinnar í febrúar 2022 fyrir samstarf Íslands við bandalagsríki og þátttöku þeirra í varnartengdri starfsemi hér á landi. Í umræðu um fjarskipti og öryggi sæstrengja kom fram mikilvægi samstarfs við innlenda aðila, svo sem sjávarútveginn, og erlend ríki um eftirlit og upplýsingamiðlun. Skipaumferð og veiðarfæri væru helsta orsök skemmda á strengjum, einkum á grunnsævi, og því skipti máli að viðeigandi aðilar væru upplýstir um staðsetningu þeirra. Stærstur hluti sæstrengja við Ísland lægi á djúpsævi, sem veitti náttúrulega vernd gegn skemmdum en þó væri mikilvægt að efla eftirlit. Í sjónmáli væru ýmsar tæknilausnir sem gætu auðveldað það verkefni, svo sem gervihnattagreining og neðansjávarskynjarar. Það dygði þó ekki eitt og sér og áfram væri brýnt að efla samstarf við nágrannaríki um eftirlit og viðbragð á svæðum umhverfis strengina. Þá var einnig til umræðu almannaöryggi og helstu verkefni íslensku lögreglunnar. Kom m.a. fram í umræðum aukin umsvif skipulagðrar glæpastarfsemi og hvernig ríki og stjórnvöld víða um heim nýttu sér hana í auknum mæli í pólitískum tilgangi. Svæðisbundið samstarf og alþjóðasamstarf væri grundvöllur árangurs í þeirri baráttu og hefði einnig víðtæk áhrif á löggæslustarfið. Meðal þess sem kom einnig til tals var heimilisofbeldi og kynbundið ofbeldi en fram kom að það væri enn algengasta ofbeldið sem fólk gæti orðið fyrir og að flest morð væru einnig framin af hendi nákomins aðila. Átak á þessu sviði væri því ekki síður mikilvægt til þess að tryggja öryggi almennings og markverður árangur hefði náðst hér á landi með breyttu verklagi og nýrri nálgun.
Þingmenn fóru einnig í vettvangsferð í Teledyne Gavia þar sem Stefán Reynisson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, tók á móti hópnum. Teledyne Gavia sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á sjálfvirkum neðansjávarfarartækjum (e. AUV – Autonomous Underwater Vehicles). Tækin eru notuð í margvíslegum tilgangi og nýtast m.a. á sviði varnarmála, í vísindasamstarfi og atvinnutilgangi, svo sem við kortlagningu tundurdufla, rannsóknir á hafsbotni og eftirlit með neðansjávarinnviðum. Að auki fengu þingmenn skoðunarferð um flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli og kynningu frá Auðuni Friðriki Kristinssyni, framkvæmdastjóra aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar. Þingmenn fengu kynningu á helstu viðfangsefnum Landhelgisgæslunnar og kom það sumum á óvart hversu víðtæk starfsemin væri. Gæslan sinnti í raun ýmsum verkum sem herir bandalagsríkja inntu af hendi. Í því samhengi var einnig rætt um framlög til varnarmála og hvernig þeim málum væri háttað hér á landi. Hér færi fram ýmis varnartengd starfsemi sem ekki væri hægt að telja til framlaga til varnarmála vegna þess að hér væri ekki starfræktur her. Lega landsins og samstarf við íslensk stjórnvöld, lögreglu og Landhelgisgæsluna á sviði varnar- og öryggismála væri helsta stoðin í samstarfinu við bandalagsríki Atlantshafsbandalagsins og yrði það áfram. Þá fór hópurinn einnig í vettvangsferð á öryggissvæðið í Keflavík þar sem Snorri Matthíasson og Jón B. Guðnason, framkvæmdastjóri varnarmálasviðs Landhelgisgæslunnar, tóku á móti hópnum, leiddu hann um svæðið og veittu fræðslu um loftrýmisgæslu, kafbátaeftirlit og helstu starfsemi á svæðinu.
Fylgiskjal IV.
F R Á S Ö G N
af ársfundi NATO-þingsins í Ljúblíana 10.–13. október 2025.
Ársfundur NATO-þingsins var haldinn í Ljúblíana, Slóveníu, dagana 10.–13. október. Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sóttu fundinn Dagur B. Eggertsson formaður, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður, Sigmar Guðmundsson og Njáll Trausti Friðbertsson, varamaður og aðalskýrsluhöfundur vísinda- og tækninefndar, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Meginumræður fundarins fóru fram í fimm málefnanefndum þingsins á grundvelli skýrslna sem unnar voru af nefndarmönnum og fyrirlestra alþjóðlegra sérfræðinga um öryggismál. Þá var þingfundur haldinn þar sem fjallað var um þau mál sem hæst hafa borið í alþjóðlegri öryggis- og varnarmálaumræðu og greidd atkvæði um ályktanir og ákvarðanir þingsins. Yfir 245 þingmenn frá 32 aðildarríkjum NATO og samstarfsríkjum sóttu fundinn.
Helstu umfjöllunarefni fundarins voru áframhaldandi stuðningur við Úkraínu, styrking fælingarmáttar og varnargetu bandalagsins, sérstaklega á austurvængnum, og aukin framlög til varnarmála. Þingið hvatti aðildarríki til að uppfylla eigin skuldbindingar um að verja að lágmarki 5% af vergri landsframleiðslu bæði til kjarnaþarfa í varnarmálum og annarra öryggis- og varnartengdra útgjalda eigi síðar en árið 2035. Sérstök áhersla var lögð á uppbyggingu loft- og eldflaugavarna, harðari refsiaðgerðir gegn Rússlandi og fjárfestingar í nýrri tækni, ekki síst ómönnuðum kerfum.
Umræður í nefndum þingsins báru þess merki að innrásarstríð Rússlands í Úkraínu hefði markað varanleg þáttaskil í öryggisumhverfi Evrópu og að ekki mætti líta á einstök svæði eða málaflokka án þess að huga að heildarhagsmunum bandalagsins. Ítrekað kom fram að aukin samvinna einræðisríkja, hraðfara tæknibreytingar og fjölþáttaógnir krefðust samhæfðari, forvirkari og pólitískt skýrari viðbragða af hálfu NATO-ríkja.
Í stjórnmálanefnd var sjónum beint að friðarhorfum í Úkraínu, stöðugleika á Vestur-Balkanskaga og vaxandi samstöðu einræðisríkja sem grafa undan alþjóðalögum og lýðræðislegum gildum. Í umræðum um Úkraínu var lögð rík áhersla á að réttlátur og varanlegur friður gæti ekki byggst á því að frysta núverandi víglínur eða veita árásarhegðun eftirgjöf, heldur yrði að tryggja fullveldi Úkraínu og öryggistryggingar gagnvart frekari innrásum yrðu að vera trúverðugar. Þá var fjallað um stöðu Vestur-Balkanskaga í tilefni af 30 ára afmæli Dayton-friðarsamningsins og varað við því að brothættur stöðugleiki á svæðinu gæti raskast ef alþjóðlegur stuðningur og samhæfing NATO og ESB veikist. Oana Lungescu, sérfræðingur hjá Royal United Services Institute, flutti erindi þar sem hún benti á að svigrúm til umbóta og stöðugleika á Vestur-Balkanskaga væri að minnka og að skortur á skýrri pólitískri sýn gæti aukið áhrif Rússlands og Kína á svæðinu. Í umræðum um aukið samstarf svokallaðra KRINK-ríkja, Kína, Rússlands, Írans og Norður-Kóreu, var lögð áhersla á að bandalagið þyrfti að líta á þessa þróun sem kerfisbundna áskorun fyrir alþjóðakerfið í heild, ekki einungis sem svæðisbundið vandamál.
Á fundum varnar- og öryggismálanefndar var fjallað ítarlega um þróun öryggismála í Evrópu og viðbrögð NATO við áframhaldandi hernaði Rússlands í Úkraínu. Í umræðum var lögð áhersla á að Rússland liti á áframhaldandi stríð sem hagkvæmari kost en vopnahlé og notaði jafnframt fjölþáttaógnir, þar á meðal netárásir, skemmdarverk og upplýsingaóreiðu, til að veikja seiglu samfélaga bandalagsríkja. Keir Giles, sérfræðingur hjá Chatham House, flutti erindi þar sem hann lagði áherslu á að Evrópuríki hefðu um langt skeið nálgast varnarmál sem lúxus og treyst um of á Bandaríkin í eigin vörnum. Hann benti á að bilið milli yfirlýsinga um aukin framlög til varnarmála og raunverulegrar getuuppbyggingar væri enn of mikið, einkum á sviði loft- og eldflaugavarna, og að kjarnorkuógnir Rússlands hefðu þegar haft lamandi áhrif á ákvarðanatöku í Evrópu. Charlie Edwards, sérfræðingur við International Institute for Strategic Studies, fjallaði um aukin skemmdarverk og fjölþáttaaðgerðir í Evrópu og varaði við því að horfa á einstök atvik án samhengis í stað þess að greina heildarmynstur aðgerða sem miðuðu að því að veikja samfélagslegt þol án þess að kalla fram hefðbundin hernaðarviðbrögð.
Í efnahags- og öryggismálanefnd var fjallað um sífellt nánari tengsl efnahags- og öryggismála og þær áskoranir sem fylgja veikri framleiðslugetu varnariðnaðar bandalagsríkja. Í umræðum kom fram að langvarandi skortur á fjárfestingum frá lokum kalda stríðsins hefði grafið undan viðbúnaði NATO og að aukin varnarfjárframlög þyrftu að skila raunverulegri getu, ekki einungis fallegum tölum á blaði. Nefndin fjallaði um áhrif tollastríðs á samstarf Evrópu og Norður-Ameríku, efnahagsleg áhrif stríðsins í Úkraínu á ríkin við Svartahaf og nauðsyn þess að tryggja öruggar aðfangakeðjur, styrkja varnariðnað beggja vegna Atlantsála og viðhalda áframhaldandi stuðningi við Úkraínu.
Á fundum nefndar um lýðræði og öryggi var fjallað um sívaxandi ógnir við lýðræðislegar stofnanir bandalagsríkja, einkum í stafrænu umhverfi. Ræddar voru áskoranir sem tengjast upplýsingaóreiðu, erlendum afskiptum af kosningum og misnotkun nýrrar tækni, þar á meðal gervigreindar. Þá var fjallað um stöðu lýðræðis á Vestur-Balkanskaga og samþykkt sérskýrsla í tilefni af 25 ára afmæli ályktunar Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi. Í umræðum var lögð áhersla á að lýðræðislegt áfallaþol samfélaga væri órjúfanlegur hluti sameiginlegs öryggis NATO og að bandalagið þyrfti að mæta þessum ógnunum með skýrari lagaramma, aukinni samhæfingu og virku samtali við almenning.
Í vísinda- og tækninefnd var fjallað um örar tæknibreytingar og áhrif þeirra á varnarmál bandalagsins, einkum þróun ómannaðs hernaðar, gervigreindar og öryggi geim- og fjarskiptainnviða. Nefndin fjallaði um og afgreiddi skýrslu Njáls Trausta Friðbertssonar um breyttar öryggisáskoranir á norðurslóðum. Í skýrslunni var norðurslóðum lýst sem svæði mikilla umbreytinga. Umhverfið væri að taka örum breytingum vegna loftslagsbreytinga, bráðnunar íss og opnunar nýrra siglingaleiða en að auki gætti einnig vaxandi samkeppni stórvelda. Norðurslóðir gætu því ekki lengur talist afmarkað jaðarsvæði utan alþjóðastjórnmála heldur væru þær í vaxandi mæli orðnar mikilvægur þáttur í sameiginlegu öryggissvæði Evrópu og Norður-Ameríku. Þá var lögð áhersla á nauðsyn samræmdrar nálgunar innan NATO, aukinnar yfirsýnar yfir þróun mála og markvissrar nýtingar nýrrar tækni, m.a. á sviði gervihnatta, skynjara og ómannaðra kerfa. Jafnframt var varað við því að viðbrögð bandalagsins yrðu sundurlaus nema mótuð yrði skýr heildarstefna eða komið á samhæfingarvettvangi um málefni norðurslóða. Þá var Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir kjörin aðalskýrsluhöfundur vísinda- og tækninefndar í stað Njáls Trausta Friðbertssonar.
Hinn eiginlegi þingfundur NATO-þingsins fór fram á lokadegi ársfundarins. Forseti þingsins hóf fundinn á minningarorðum um látinn þingmann og fyrrverandi varaforseta þingsins, Lord Campbell. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, ávarpaði þingið með fjarfundarbúnaði og þakkaði m.a. fyrir stuðning við Prioritised Ukraine Requirements List (PURL), þar á meðal framlag Íslands, og ítrekaði brýna þörf fyrir auknar loftvarnir gegn vaxandi dróna- og eldflaugaárásum Rússlands á borgaralega innviði og orkuinnviði. Forsætisráðherra Slóveníu, Robert Golob, lagði í ávarpi sínu sérstaka áherslu á mikilvægi vísinda, tækni og nýsköpunar fyrir framtíðarvarnir bandalagsins og benti á að mikilvægur lærdómur fælist í reynslu Úkraínu af notkun dróna.
Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, flutti ávarp þar sem hann lagði áherslu á nauðsyn aukinna varnarfjármuna og framleiðslugetu, varaði við nýrri kynslóð rússneskra vopna sem gætu náð langt inn á yfirráðasvæði bandalagsríkja og hvatti þingmenn til að gegna virku hlutverki við að útskýra fyrir almenningi hvað væri í húfi. Dagur B. Eggertsson ávarpaði Rutte og beindi athyglinni að norðurslóðum í fyrirspurn sinni. Hann kallaði eftir mótun sameiginlegrar stefnu um varnarsamstarf, rannsóknir, eftirlit og tækniþróun á svæðinu. Slík stefnumótun væri nauðsynleg svo bregðast mætti við þeim áskorunum sem blasa við á svæðinu og eins þeirri spennu sem gætti í auknum mæli milli einstakra bandalagsríkja. Rutte tók undir mikilvægi norðurslóða og benti á að sjö af átta ríkjum Norðurskautsráðsins væru nú aðilar að NATO sem skapaði einstakt tækifæri til aukinnar samvinnu. Hann lagði áherslu á að öryggi á norðurslóðum, Atlantshafi og í Evrópu væri órjúfanlega tengt öryggi Norður-Ameríku og að Bandaríkin hefðu ríka hagsmuni af stöðugleika á svæðinu.
Á þingfundinum voru jafnframt veitt verðlaun NATO-þingsins á sviði kvenna, friðar og öryggis. Að þessu sinni komu verðlaunin í hlut Vjosu Osmani-Sadriu, forseta Kósovó, fyrir framúrskarandi framlag hennar til eflingar forystuhlutverki kvenna og aðkomu þeirra að ákvarðanatöku. Þá skipaði þingið Benedettu Berti í embætti framkvæmdastjóra NATO-þingsins og þakkaði fráfarandi framkvæmdastjóra, Ruxöndru Popa, fyrir mikilvægt starf. Marcos Perestrello var endurkjörinn forseti NATO-þingsins sem og varaforsetar og gjaldkeri þingsins. Að loknum umræðum samþykkti þingið tvær yfirlýsingar og sex ályktanir sem endurspegluðu víðtæka samstöðu um nauðsyn aukinnar varnargetu, eflingar lýðræðislegs viðnámsþróttar, samhæfðra efnahags- og öryggisaðgerða og áframhaldandi stuðnings við Úkraínu sem lykilforsendu öryggis á Evró-Atlantshafssvæðinu.
Fylgiskjal V.
Yfirlýsingar og ályktanir NATO-þingsins árið 2025.
– Yfirlýsing 496 um að færa fælingarmátt og varnargetu NATO á næsta stig á leiðtogafundinum í Haag.
– Yfirlýsing 497 um að ná fram friði í Úkraínu byggðum á styrk.
– Yfirlýsing 498 um hvernig efla megi viðnámsþrótt lýðræðis á Evró-Atlantshafssvæðinu og sporna gegn erlendum afskiptum.
– Ályktun 499 um að mæta áskorunum samtímans með eflingu fælingarmáttar og sameiginlegra varna í kjölfar leiðtogafundarins í Haag.
– Ályktun 500 um eflingu efnahagssamstarfs og öryggis yfir Atlantsála í kjölfar leiðtogafundar NATO í Haag.
– Ályktun 501 um hvernig stuðla megi að stöðugleika og sáttum á Vestur-Balkanskaga.
– Ályktun 502 um samstöðu með Úkraínu og brýna nauðsyn þess að koma á réttlátum og varanlegum friði.
– Ályktun 503 um undirbúning NATO fyrir framtíð ómannaðs hernaðar.