Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 682  —  406. mál.




Skýrsla


Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins fyrir árið 2025.

1. Inngangur.
    Vestnorræna ráðið er samstarfsvettvangur þingmanna frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Á hefðbundnu starfsári kemur ráðið tvisvar saman, annars vegar á þemaráðstefnu að vetri og hins vegar á ársfundi að hausti.
    Á árinu 2025 fór þemaráðstefnan fram í Smiðju, skrifstofuhúsnæði Alþingis í Reykjavík, og var yfirskrift hennar „Samgöngur og innviðir á Vestur-Norðurlöndum“. Landsdeild Grænlands komst ekki á staðinn sökum veðurs og tók því þátt í þemaráðstefnunni á fjarfundi. Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins hafði ekki verið skipuð þegar ráðstefnan fór fram og tilnefndu þingflokkarnir því einn þingmann hver til þátttöku.
    Ársfundur ráðsins var haldinn í Ilulissat á Grænlandi í ágúst. Á fundinum voru samþykktar tvær ályktanir sem verða sendar til ríkisstjórna og þjóðþinga landanna þriggja til umfjöllunar. Í báðum ályktunum var fjallað um varnar- og öryggismál á Vestur-Norðurlöndum. Önnur þeirra kom frá Íslandsdeild en í henni voru vestnorrænir ráðherrar sem bera ábyrgð á mikilvægum innviðum, þar á meðal interneti og fjarskiptum, hvattir til að funda og ræða öryggi mikilvægra samskiptamiðla og internetinnviða í Norður-Atlantshafi, sérstaklega sæstrengja og gervihnattatenginga. Hin kom frá landsdeild Færeyja. Í henni eru ríkisstjórnir landanna hvattar til að koma á fót þverpólitískri vinnu á ríkisstjórnarstigi með það að markmiði að rannsaka núverandi öryggis- og varnarkerfi í Norður-Atlantshafi og þróa það þannig að það tryggi íbúum vestnorrænu landanna öruggt líf. Þá samþykkti ársfundurinn stefnu Vestnorræna ráðsins í alþjóðamálum. Á ársfundinum í Ilulissat var Jón Gnarr, formaður Íslandsdeildar, kjörinn formaður Vestnorræna ráðsins.
    Vestnorræna ráðið tók þátt í þremur málstofum á ráðstefnunni Hringborði norðurslóða sem fram fór í Reykjavík í október. Fyrsta málstofan bar yfirskriftina „Nágrannar á Atlantshafssvæðinu og á norðurslóðum: Að byggja upp sjálfbæra framtíð“ (e. North Atlantic and Arctic Neighbours: Building Sustainable Futures). Þar var fjallað um hvernig hægt er að nýta tækifærin á norðurslóðum og byggja upp til framtíðar. Rætt var um að nýta tengsl á milli fólks og hvernig byggja megi upp hinar dreifðu byggðir. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Íslandsdeildar, tók þátt í pallborði á þeirri málstofu. Önnur málstofan bar yfirskriftina „Lítil samfélög, sterkt lýðræði: Þrautseigja gagnvart upplýsingaóreiðu“ (e. Small Societies, Strong Democracies: Resilience in the Face of Disinformation). Í þeirri málstofu var fjallað um hlutverk fjölmiðla í lýðræðisríkjum og hvaða áskoranir og kostir fylgja því að vera lítið samfélag þegar tekist er á við upplýsingaóreiðu. Þriðja málstofan bar yfirskriftina „Silfraðir neistar: Að leysa úr læðingi tækifæri og möguleika eldri borgara“ (e. Silver Sparks: Unlocking Senior Potential). Í henni var fjallað um hvernig eldri borgarar geta bætt samfélagið og tekið þátt í að auka hagsæld og hagvöxt. Í seinni tveimur málstofunum tók Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, þátt í pallborði.
    Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins tók þátt í þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í Svíþjóð og fundaði við það tilefni með samstarfsráðherra Norðurlanda í ríkisstjórn Íslands og forsætisnefnd Norðurlandaráðs.

2. Almennt um Vestnorræna ráðið.
    Lögþing Færeyja, Landsþing Grænlands (grænl. Inatsisartut) og Alþingi stofnuðu Vestnorræna þingmannaráðið í Nuuk 24. september 1985 sem samstarfsvettvang þinganna þriggja. Með því varð fastmótað samstarf landanna sem oft ganga undir nafninu Vestur-Norðurlönd (d. Vestnorden). Stofnun ráðsins byggðist fyrst og fremst á sameiginlegum bakgrunni landanna á ýmsum sviðum með hliðsjón af nánum sögulegum og menningarlegum arfi og tengslum og sameiginlegum hagsmunum í umhverfis-, samgöngu- og efnahagsmálum. Á aðalfundi árið 1997 var samþykktur nýr stofnsamningur og nafni samtakanna um leið breytt í Vestnorræna ráðið. Á sama fundi var skerpt á markmiðum samstarfsins og nýjar vinnureglur samþykktar. Einnig var ákveðið að setja á fót skrifstofu ráðsins og ráða framkvæmdastjóra. Lögþing Færeyinga, Alþingi Íslendinga og Landsþing Grænlendinga velja hvert um sig sex fulltrúa til setu í Vestnorræna ráðinu, átján fulltrúa alls.
    Markmið Vestnorræna ráðsins eru að starfa að hagsmunum Vestur-Norðurlanda, vernda auðlindir og menningararfleifð Norður-Atlantshafssvæðisins, stuðla að samvinnu ríkisstjórna og landsstjórna Vestur-Norðurlanda um mikilvæg mál og vera tengiliður milli vestnorrænna þinga og samstarfsaðila. Vestnorræna ráðið hefur ályktað um ýmis mál, þar á meðal umhverfismál, auðlinda- og samgöngumál, björgunar- og öryggismál, málefni norðurslóða, heilbrigðismál, menningarmál og íþrótta- og æskulýðsmál svo að fátt eitt sé nefnt.
    Vestnorræna ráðið kemur saman tvisvar á ári, annars vegar til þemaráðstefnu í byrjun árs og hins vegar til ársfundar í ágúst eða byrjun september. Ársfundur fer með æðsta ákvörðunarvald ráðsins. Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins skipuleggur verkefni og störf ráðsins milli ársfunda. Forsætisnefnd samanstendur af einum fulltrúa frá hverju landi, formanni, fyrsta varaformanni og öðrum varaformanni. Formennska í ráðinu skiptist árlega milli landanna þriggja. Ráðið getur einnig skipað sérstakar vinnunefndir um einstök mál. Ársfundur samþykkir ályktanir um ýmis mál sem síðan eru teknar til umfjöllunar í þjóðþingum landanna sem þingsályktunartillögur. Á hverjum ársfundi er tekin ákvörðun um hvaða þema verði tekið fyrir á þemaráðstefnu ráðsins árið eftir.
    Árið 2002 var undirrituð yfirlýsing um samstarf Vestnorræna ráðsins og ríkisstjórna Vestur-Norðurlanda. Með yfirlýsingunni var kveðið á um að ríkisstjórnir landanna þriggja gæfu ráðinu skýrslu um stöðu framkvæmda gildandi ályktana fyrir ársfund ráðsins. Forsætisnefnd gæfist auk þess tækifæri til að funda með ráðherrum landanna í tengslum við þing Norðurlandaráðs ár hvert. Eftir því sem kostur væri tækju ráðherrar landanna einnig þátt í fundum Vestnorræna ráðsins.
    Vestnorræna ráðið vinnur jafnframt að framgangi markmiða sinna með virkri þátttöku í norrænu og evrópsku samstarfi og norðurskautssamstarfi. Árið 2006 var undirritaður samstarfssamningur Vestnorræna ráðsins og Norðurlandaráðs og var hann tekinn til endurskoðunar árið 2021. Samningurinn veitir Vestnorræna ráðinu og Norðurlandaráði gagnkvæman þátttökurétt hvoru á fundum annars og mótar samstarf milli ráðanna frekar. Samningurinn gerir það m.a. mögulegt að taka ályktanir Vestnorræna ráðsins til umfjöllunar í Norðurlandaráði.
    Árið 2008 komu Vestnorræna ráðið og Evrópuþingið sér saman um að halda reglubundna upplýsinga- og samráðsfundi. Auk þess hefur Vestnorræna ráðið áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu og þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál og árið 2016 gerði ráðið jafnframt samning um samstarf við Hringborð norðurslóða. Loks gerði Vestnorræna ráðið samstarfssamning við þingmannanefnd um norðurskautsmál í tengslum við ársfund ráðsins í ágúst 2022 sem veitir Vestnorræna ráðinu og þingmannanefndinni gagnkvæman þátttökurétt hvoru á fundum annars og kveður á um árlegan fund formannanna tveggja í tengslum við aðra fundi sem bæði samtök sækja.
    Á ársfundi sínum árið 2024 samþykkti Vestnorræna ráðið nýjar starfsreglur. Veigamestu breytingarnar voru gerðar á reglum um tungumál sem notuð eru í starfi Vestnorræna ráðsins. Fram til þessa hefur vinnutungumálið verið danska. Fundir hafa farið fram á því máli og öll skjöl, fundargerðir og dagskrá verið á dönsku. Samkvæmt nýjum starfsreglum eru tungumál Vestnorræna ráðsins nú færeyska, grænlenska, íslenska og norrænt tungumál. Öll meginskjöl eru gefin út á færeysku, grænlensku, íslensku, norrænu tungumáli og ensku. Fundargerðir eru jafnframt gefnar út á norrænu tungumáli og ensku og dagskrá sömuleiðis. Í starfsreglum segir að forsætisnefnd setji frekari reglur varðandi túlkun og þýðingar.

3. Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins.
    Alþingi kom saman 4. febrúar 2025 eftir kosningar sem fram fóru 30. nóvember 2024. Þemaráðstefna Vestnorræna ráðsins fór fram áður en ný Íslandsdeild var skipuð og áttu allir stjórnmálaflokkar sem sæti fengu á Alþingi einn fulltrúa á þemaráðstefnunni. Af hálfu Alþingis sóttu þemaráðstefnuna Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokki Samfylkingarinnar, Bergþór Ólason, þingflokki Miðflokksins, Bryndís Haraldsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Grímur Grímsson, þingflokki Viðreisnar, Sigurður Helgi Pálmason, þingflokki Flokks fólksins, og Þórarinn Ingi Pétursson, þingflokki Framsóknarflokksins.
    Ný Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins var kosin 4. febrúar 2025. Aðalmenn í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins eru Jón Gnarr, formaður, þingflokki Viðreisnar, Ingibjörg Davíðsdóttir, varaformaður, þingflokki Miðflokksins, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingflokki Samfylkingarinnar, Guðlaugur Þór Þórðarson, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, og Sigurjón Þórðarson, þingflokki Flokks fólksins. Varamenn eru Diljá Mist Einarsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Eiríkur Björn Björgvinsson, þingflokki Viðreisnar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokki Samfylkingarinnar, Jón Gunnarsson, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Karl Gauti Hjaltason, þingflokki Miðflokksins, og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingflokki Flokks fólksins. Ritari Íslandsdeildar var Hildur Edwald, sérfræðingur í alþjóðamálum.
    Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins tók virkan þátt í starfi ráðsins á árinu og vann að framgangi vestnorrænna mála á Alþingi. Íslandsdeild lagði fram tillögu til þingsályktunar á 156. löggjafarþingi um framfylgd tveggja ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi 2024. Tillagan var samþykkt sem ályktun Alþingis nr. 6/156 hinn 14. maí 2025.
    Íslandsdeild hélt 11 fundi á árinu þar sem þátttaka og undirbúningur fyrir fundi Vestnorræna ráðsins var ræddur. Tveir af þeim fundum voru heimsóknir annars vegar til sendiskrifstofu Grænlands í Reykjavík og hins vegar til sendiskrifstofu Færeyja í Reykjavík. Í þeim heimsóknum tóku aðalræðismenn Grænlands, Tove Søvndahl Gant, og Færeyja, Hanna í Horni, á móti nefndarmönnum. Tengsl og samskipti landanna voru rædd á þeim fundum. Þá samþykkti Íslandsdeild að flytja tillögu að þingsályktun um framfylgd tveggja ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi 2025 sem nú bíður afgreiðslu þingsins.

4. Fundir Vestnorræna ráðsins 2025.
    Þemaráðstefna Vestnorræna ráðsins árið 2025 fór fram í Reykjavík. Vestnorræna ráðið kom saman til ársfundar í Ilulissat á Grænlandi í ágúst þar sem tvær ályktanir voru samþykktar. Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins tók þátt á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í október og átti auk þess sex fundi þar sem nefndin undirbjó fundi Vestnorræna ráðsins og ræddi innri málefni ráðsins.

Þemaráðstefna Vestnorræna ráðsins 21.–22. janúar 2025.
    Þemaráðstefna Vestnorræna ráðsins fór fram í Reykjavík dagana 21.–22. janúar. Af hálfu Alþingis tóku þátt í ráðstefnunni Þórunn Sveinbjarnardóttir, Bergþór Ólason, Bryndís Haraldsdóttir, Grímur Grímsson, Sigurður Helgi Pálmason og Þórarinn Ingi Pétursson, auk Hildar Edwald, sérfræðings í alþjóðamálum.
    Þema ráðstefnunnar var samgöngur og innviðir á Vestur-Norðurlöndum. Ráðstefnunni var skipt upp í fimm umræður; flugsamgöngur á Vestur-Norðurlöndum, öryggi mikilvægra innviða á Vestur-Norðurlöndum, almenningssamgöngur á vestnorræna svæðinu, skipaflutningar og skipaumferð á Vestur-Norðurlöndum og grænar samgöngur (sjá fylgiskjal I).

Fundur forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins 21. maí 2025.
    Af hálfu Íslandsdeildar tóku þátt í fundinum Ingibjörg Davíðsdóttir, varaformaður Íslandsdeildar, og Hildur Edwald, sérfræðingur í alþjóðamálum. Á fundinum var Kim Kielsen kjörinn formaður Vestnorræna ráðsins en hann tók við formennsku grænlensku landsdeildarinnar eftir kosningar í Grænlandi. Á dagskrá fundarins var undirbúningur fyrir ársfund Vestnorræna ráðsins og 40 ára afmæli ráðsins. Þá var einnig rætt um alþjóðlegt samstarf Vestnorræna ráðsins (sjá fylgiskjal II).

Ársfundur Vestnorræna ráðsins 19.–20. ágúst 2025.
    Af hálfu Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins sóttu ársfundinn Jón Gnarr, formaður, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Karl Gauti Hjaltason og Sigurjón Þórðarson, auk Hildar Edwald, sérfræðings í alþjóðamálum. Á fundinum gerðu fulltrúar landsdeilda grein fyrir starfinu á liðnu ári. Þá ávörpuðu samstarfsaðilar Vestnorræna ráðsins fundinn. Forsetar vestnorrænu þinganna tóku þátt og ávörpuðu fundinn. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ávarpaði fundinn og tók þátt í umræðum um ungt fólk á Vestur-Norðurlöndum. Ársfundur samþykkti tvær ályktanir og samþykkti stefnu Vestnorræna ráðsins í alþjóðamálum. Þá var Jón Gnarr, formaður Íslandsdeildar, kosinn formaður Vestnorræna ráðsins (sjá fylgiskjal III).

Þátttaka á 75. þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi 27.–29. október 2025.
    Af hálfu Íslandsdeildar sóttu þingið Jón Gnarr, formaður, og Hildur Edwald, sérfræðingur í alþjóðamálum. Auk þátttöku á þingi Norðurlandaráðs átti forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins fundi annars vegar með fulltrúum forsætisnefndar Norðurlandaráðs og hins vegar með samstarfsráðherra Norðurlanda í ríkisstjórn Íslands (sjá fylgiskjal IV).

5. Ályktanir og yfirlýsingar Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi ráðsins 19.–20. ágúst 2025.
     *      Ályktun nr. 1/2025, um öryggis- og varnargrundvöll á Norður-Atlantshafi.
     *      Ályktun nr. 2/2025, um öryggi mikilvægra innviða á Norður-Atlantshafi.

Alþingi, 2. febrúar 2026.

Jón Gnarr,
form.
Ingibjörg Davíðsdóttir,
varaform.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir.
Guðlaugur Þór Þórðarson. Guðrún Hafsteinsdóttir. Sigurjón Þórðarson.


Fylgiskjal I.


Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 27. janúar 2025


F R Á S Ö G N
af þemaráðstefnu Vestnorræna ráðsins í Reykjavík 21.–22. janúar 2025.


    Þemaráðstefna Vestnorræna ráðsins fór fram í Reykjavík dagana 21.–22. janúar. Ráðstefnan var haldin í Smiðju, skrifstofuhúsnæði Alþingis. Þar sem ekki var búið að skipa Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins eftir alþingiskosningar sem haldnar voru 30. nóvember 2024 var sá háttur hafður á að hver flokkur tilnefndi einn fulltrúa til þátttöku á ráðstefnunni og fulltrúi Samfylkingarinnar, stærsta flokksins, var starfandi formaður.
    Af hálfu Alþingis sóttu fundinn Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokki Samfylkingarinnar, Bergþór Ólason, þingflokki Miðflokksins, Bryndís Haraldsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Grímur Grímsson, þingflokki Viðreisnar, Sigurður Helgi Pálmason, þingflokki Flokks fólksins, og Þórarinn Ingi Pétursson, þingflokki Framsóknarflokksins, ásamt Hildi Edwald, sérfræðingi í alþjóðastjórnmálum.
    Grænlenska landsdeildin var veðurteppt í Nuuk og tók því þátt í ráðstefnunni á fjarfundi. Martin Mohr Olsen, doktor í heimspeki með áherslu á sjálfbærni og nýsköpun á norðurslóðum, frá Færeyjum var fundarstjóri.
    Þema ráðstefnunnar var samgöngur og innviðir á Vestur-Norðurlöndum. Var ráðstefnunni skipt í fimm umræður, hverja með framsögu og pallborðsumræðum.
    Þórunn Sveinbjarnardóttir opnaði fundinn og bauð fundargesti velkomna. Því næst flutti Helge Orten ávarp en hann sótti fundinn fyrir hönd Norðurlandaráðs. Hann fjallaði m.a. um þemaráðstefnu Norðurlandaráðs sem haldin var í Þórshöfn í Færeyjum í apríl 2024 en þar var rætt um innviði og flutninga. Norðurlönd stefna á að verða samþættasta og sjálfbærasta svæði heims árið 2030 og til þess að það markmið náist þarf að huga vel að samgöngum og innviðum, sérstaklega í tengslum við orkuskipti.
    Jóhannis Erlendsson, fulltrúi Norðurlandaráðs æskunnar, ávarpaði þá fundinn og sagði frá starfi ráðsins. Hann fjallaði m.a. um þing Norðurlandaráðs æskunnar sem fram fór í Smiðju í tengslum við þing Norðurlandaráðs í október 2024. Halla Nolsøe Poulsen, framkvæmdastjóri Norræna Atlantshafssamstarfsins (NORA), flutti ávarp þar sem hún sagði frá starfi NORA og þeim verkefnum sem NORA hefur styrkt í tengslum við samgöngur og uppbyggingu innviða á svæðinu. Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri var næstur í pontu og fjallaði í ávarpi sínu um samstarf í ferðamálum á Norður-Atlantshafssvæðinu, NATA. NATA veitir styrki tvisvar á ári til fólks og félagasamtaka sem vilja ferðast innan svæðisins og vinna saman. Styrkirnir hafa m.a. farið til kóra og íþróttafélaga og nýst þeim til að ferðast milli Vestur-Norðurlanda og eiga í samstarfi. Síðasta upphafsávarpið var frá Hrannari B. Arnarssyni, formanni Norræna félagsins á Íslandi, en hann fjallaði um mikilvægi norræns samstarfs og vestnorræns samstarfs. Hann sagði margt jákvætt vera að gerast í norrænu samstarfi og fagnaði sérstaklega ákvörðunum sem teknar voru á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík í október í fyrra um að gerðar yrðu breytingar á Helsingforssáttmálanum.
    Fyrsta umræðan var um flugsamgöngur á Vestur-Norðurlöndum. Framsögumaður í þeirri umræðu var Inga Dóra G. Markussen, forstöðumaður sjálfbærni og samskipta hjá Air Greenland. Hún sagði frá starfi flugfélagsins og þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað. Uppbygging flugvalla, samningar við önnur flugfélög og þróun og viðbætur á flugleiðum munu skila mun betri samgöngum til og frá Grænlandi og innan þess. Þó eru margar áskoranir, veður getur haft mikil áhrif og þar sem farþegar eru frekar fáir, sérstaklega á veturna, verða flugsamgöngur gjarnan mjög dýrar. Markmið flugfélagsins er að fá fólk til að fljúga frá Evrópu og Bandaríkjunum á fleiri staði á Grænlandi en Nuuk og dreifa þannig ferðamönnum sem heimsækja Grænland um landið. Air Greenland á einnig þyrlur og er með áætlunarflug með þyrlum. Flugfélagið tekur samfélagslega ábyrgð sína alvarlega og vill þjónusta öll svæði Grænlands. Henrik Old, þingmaður landsdeildar Færeyja, Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri á Íslandi, og Inga Dóra G. Markussen tóku þátt í pallborðsumræðum um flugsamgöngur.
    Önnur umræðan snerist um öryggi mikilvægra innviða á Vestur-Norðurlöndum. Frummælandi í þeim umræðum var Kristian Reinert Davidsen, forstjóri Føroya Tele. Hann fjallaði um mikilvægi sæstrengja. Mjög misjafnt er á milli þriggja landa Vestnorræna ráðsins hversu örugg tengingin í gegnum sæstrengi er. Ísland er mun betur sett að þessu leyti en Færeyjar og Grænland þar sem tengingar eru fleiri, en Ísland er tengt í gegnum Danice, Iris og Farice. Grænland og Færeyjar missa hins vegar öll tengsl ef einn eða tveir strengir skemmast eða eru eyðilagðir. Þó að strengirnir rofni þarf það ekki að þýða að árás hafi verið gerð, mörg dæmi eru um að strengirnir hafi orðið fyrir rofi eða skemmdum af náttúrulegum orsökum. Þá fjallaði Davidsen einnig um hvaða vararáðstafanir séu til staðar. Helst ber þar að nefna gervitungl en í gegnum þau er hægt að halda netsambandi þó að sæstrengir rofni. Þau hafa þó takmarkaðri flutningsgetu og er mikilvægt að skilgreina hvaða innviðir það eru sem setja á í forgang ef sú staða kemur upp að treysta þurfi algjörlega á gervitungl. Bankakerfi og heilbrigðiskerfi eru meðal þeirra sem talið er mikilvægt að setja í forgang. Í kjölfar framsögunnar fóru fram pallborðsumræður um málefnið en í pallborði sátu, auk Davidsens, Eyjólfur Ármannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Bryndís Haraldsdóttir og Hrannar B. Arnarsson, formaður Norræna félagsins.
    Umfjöllunarefni þriðju umræðunnar var almenningssamgöngur á vestnorræna svæðinu. Frummælandi í þeim umræðum var Herdís Sigurgrímsdóttir, sérfræðingur í umhverfis- og skipulagsmálum hjá VSÓ Ráðgjöf. Hún fjallaði í erindi sínu um uppbyggingu almenningssamgangna, hvað raunhæft væri að gera og hvaða áskoranir væru fyrir hendi. Á vestnorræna svæðinu eru almenningssamgöngur mjög fjölbreyttar; strætó, ferjur og jafnvel þyrlur eru hluti af almenningssamgöngum. Veður og myrkur getur hins vegar haft áhrif á vilja fólks til að velja almenningssamgöngur. Í pallborði í kjölfar erindisins sátu, auk Herdísar, Eyðdís Hartmann Niclasen, þingmaður landsdeildar Færeyja, og Jóhannis Erlendsson frá Norðurlandaráðsþingi æskunnar.
    Fjórðu umræðurnar snerust um skipaflutninga og skipaumferð á Vestur-Norðurlöndum. Framsögumaður var Lau Øfjord Blaxekjær, doktor og sérfræðingur í sjálfbærni og grænum orkuskiptum samgangna á hafi. Í erindi sínu fjallaði hann um loftslagsmarkmið, hvað gera þurfi til að ná þeim og hvernig við getum komið í veg fyrir að orkuskipti muni hafa verulegan kostnaðarauka í för með sér. Til umræðu er að leggja skatt á alla losun skipa og getur það haft veruleg áhrif á kostnað við flutninga á vörum og fólki. Fyrir öll vestnorrænu löndin er mikilvægt að fylgjast með þessum málefnum þar sem þau reiða sig verulega á inn- og útflutning með skipum. Grænt eldsneyti er enn mun dýrara en jarðefnaeldsneyti og geta græn orkuskipti því orðið mjög kostnaðarsöm. Mikilvægt er að byggja upp innviði og sjá til þess að næg orka sé til staðar til þess að hægt sé að auka hlut grænnar orku og fara að lokum alveg yfir í hana. Karlot Hergeirsson, þingmaður landsdeildar Færeyja, og Helge Orten, fulltrúi Norðurlandaráðs, tóku þátt í pallborðsumræðum um þetta málefni, auk Lau Øfjord Blaxekjær.
    Fimmtu og síðustu umræðurnar voru um grænar samgöngur. Framsögumaður í þeim umræðum var Marianne Ribes, verkefnastjóri hjá Grænu orkunni. Í erindi sínu fjallaði hún um þau markmið sem samþykkt hafa verið varðandi orkuskipti og hvað gera þurfi til þess að ná þeim. Mikilvægt er að byggja upp innviði, svo sem hleðslustöðvar, svo að hægt sé að skipta jarðefnaeldsneytisdrifnum farartækjum í græn farartæki. Byggja þarf upp innviði, ekki aðeins fyrir einkabílinn, heldur einnig stærri farartæki eins og flutningabíla og skip en það er kostnaðarsamt og orkufrekt. Í lokin voru pallborðsumræður og í þeim tóku þátt, auk Ribes, Þórarinn Ingi Pétursson og Halla Nolsøe Poulsen, framkvæmdastjóri NORA. Jenis av Rana, formaður færeysku landsdeildarinnar, hélt lokaávarp á fundinum þar sem hann þakkaði gestum fyrir þátttöku sína.
    Í kjölfar ráðstefnunnar hélt forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins fund sinn. Þórunn Sveinbjarnardóttir var fulltrúi Alþingis á þeim fundi. Þar var farið yfir málefni ráðstefnunnar og innri málefni ráðsins rædd, til að mynda afmælisárið en árið 2025 á Vestnorræna ráðið 40 ára afmæli. Fyrirkomulag og hugsanlegar breytingar á barna- og ungmennabókmenntaverðlaunum Vestnorræna ráðsins voru einnig á dagskrá og var Brynhildur Björnsdóttir, formaður dómnefndar verðlaunanna, gestur fundarins.
    Miðvikudaginn 22. janúar var innri fundur Vestnorræna ráðsins haldinn í Smiðju. Þátttakendur á fundinum voru, auk þingmanna Færeyja, Grænlands og Íslands, Martin Mohr Olsen og Jóhannis Erlendsson. Á innri fundinum var farið yfir helstu niðurstöður og umræður þemaráðstefnunnar og Jóhannis Erlendsson sagði frá starfi Norðurlandaráðs æskunnar og ályktunum þess. Ákveðið var að gera breytingar á dagskrá fundarins og í stað þess að ræða afmælisár Vestnorræna ráðsins og barna- og ungmennabókmenntaverðlaunin var ákveðið að ræða stöðu Grænlands í heiminum í ljósi ummæla Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um kaup á Grænlandi og umræðna þar um. Doris J. Jensen, formaður landsdeildar Grænlands, skýrði frá stöðunni eins og hún snýr að Grænlandi. Grænlendingar leggja mikla áherslu á að þeir séu Grænlendingar og vilji vera Grænlendingar, ekki Bandaríkjamenn eða Danir, og að framtíð og staða Grænlands sé og eigi að vera ákvörðun Grænlendinga. Vestnorræna ráðið ákvað að fela forsætisnefnd að semja yfirlýsingu fyrir hönd Vestnorræna ráðsins þar sem ráðið lýsir yfir stuðningi við Grænlendinga ásamt því að hvetja aðra þingmenn og önnur þingmannasamtök til þess að gera slíkt hið sama.
    Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins og á vefsvæðinu www.vestnordisk.is.


Fylgiskjal II.


Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 22. maí 2025


F R Á S Ö G N
af fundi forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins 21. maí 2025 í Reykjavík.


    Af hálfu Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins sóttu fundinn Ingibjörg Davíðsdóttir, varaformaður Íslandsdeildar, og Hildur Edwald alþjóðaritari. Aðrir fundarmenn voru Kim Kielsen, formaður landsdeildar Grænlands, Niini Malu Hansen, ritari grænlensku landsdeildarinnar, Bjørt Samuelsen, formaður landsdeildar Færeyja, Poula Árnadóttir Lervig, ritari færeysku landsdeildarinnar, Lárus Valgarðsson, framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins, og Ole Heinrich túlkur.
    Á fundinum var Kim Kielsen kjörinn formaður Vestnorræna ráðsins en Doris J. Jensen, fyrrverandi formaður Vestnorræna ráðsins og grænlensku landsdeildarinnar, er ekki lengur þingmaður á grænlenska þinginu. Forsætisnefnd fór yfir og samþykkti drög að dagskrá og þátttakendalista ársfundar ráðsins sem haldinn verður í Ilulissat á Grænlandi dagana 18.–21. ágúst 2025. Þá fjallaði nefndin um afmælisrit sem gefa á út á árinu í tilefni þess að í september 2025 verða 40 ár liðin frá stofnun Vestnorræna ráðsins. Hinn 23. september er Vestnorræni dagurinn og ræddi forsætisnefnd hugmyndir um hvað gera á í tilefni hans á 40 ára afmælinu.
    Forsætisnefnd fjallaði einnig um drög að alþjóðlegri stefnu ráðsins og áheyrnaraðild þess að Norðurskautsráðinu. Ákveðið var að halda þeirri umfjöllun áfram á næsta forsætisnefndarfundi.
    Endurskoðun á fyrirkomulagi barna- og ungmennaverðlauna ráðsins var einnig til umfjöllunar og ákveðið að skipa sérfræðinganefnd sem skoða á hvort og hvernig megi breyta fyrirkomulagi verðlaunanna svo að þau þjóni betur tilgangi sínum.
    Að lokum var fundardagskrá Vestnorræna ráðsins árið 2025 samþykkt og ákveðið að halda næsta forsætisnefndarfund í Nuuk dagana 19.–20. júní.
    Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar og á vefsvæðinu www.vestnordisk.is.


Fylgiskjal III.


Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 28. ágúst 2025


F R Á S Ö G N
af ársfundi Vestnorræna ráðsins 19.–20. ágúst í Ilulissat á Grænlandi.


    Af hálfu Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins sóttu fundinn Jón Gnarr, formaður, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Karl Gauti Hjaltason og Sigurjón Þórðarson, auk Hildar Edwald alþjóðaritara.
    Ársfundurinn hófst á þemaumræðum um jafnrétti á Vestur-Norðurlöndum. Þingforsetar landanna þriggja hófu umræðurnar á framsögu. Í ræðu sinni fjallaði Bjørt Samuelsen, forseti færeyska þingsins, um að jafnrétti snerist fyrst og fremst um að jafna möguleika allra til að þroskast og skapa sér gott líf burtséð frá kyni, fæðingarstað og öðrum slíkum þáttum. Hún benti á launamun kynjanna, lágar tekjur í umönnunarstörfum og þann mikla mun sem væri á því hversu margir karlar og konur taka sér fæðingarorlof. Skortur á þátttöku karla í foreldrahlutverkinu geti haft bæði félagsleg og lagaleg áhrif, t.d. við skilnað. Í ræðu sinni fjallaði Kim Kielsen, forseti grænlenska þingsins, um að jafnrétti snerist um miklu meira en kynjamál og að nauðsynlegt væri að skilgreina og ramma umræðuna inn í ákveðna málaflokka. Hann nefndi sérstaklega stöðu fatlaðs fólks og benti á að það væri ekki nægilegt að gefa vinnustöðum fjármagn til að finna verkefni fyrir fatlað fólk, markmiðið yrði að vera raunverulega jöfn tækifæri, óháð fötlun, kyni eða öðrum aðgreiningarþáttum. Hann sagði menntun vera lykilatriði og að jafnrétti væri samfélagslegt verkefni sem krefðist samvinnu allra. Þá fjallaði hann um áskoranir sem tengdust því að margar konur flyttu frá smærri byggðum til stærri borga til að mennta sig og sneru ekki aftur, sem leiddi til fólksfækkunar í dreifðum byggðum. Skapa þyrfti fleiri tækifæri í minni samfélögum, bæta aðstæður og fjölga störfum. Í ræðu sinni fjallaði Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, um baráttuna fyrir jafnrétti og að henni væri alls ekki lokið. Mikilvægt væri að tryggja jöfn tækifæri til menntunar og atvinnu, sérstaklega fyrir ungt fólk, innflytjendur og konur af erlendum uppruna sem oft stæðu veikar. Ofbeldi og misnotkun væri enn svartur blettur og vinna þyrfti bæði með þolendum og gerendum til að rjúfa vítahring áfalla á milli kynslóða. Leggja þyrfti áherslu á sjálfsákvörðunarrétt kvenna og að skóla- og atvinnulíf tryggði að fólk vildi búa áfram í samfélögunum. Í umræðum sem á eftir fóru var fjallað um jafnrétti til menntunar og stöðu drengja og stúlkna í menntakerfinu. Þá var fjallað um hvernig stuðla mætti að því að fólk sneri til baka eftir nám og hvernig bæta mætti samfélög þannig að fólk vildi búa þar. Mikið var fjallað um andlega líðan og þá háu sjálfsvígstíðni sem er veruleikinn í Grænlandi og hvernig takast mætti á við þann vanda. Jafnrétti snerist fyrst og fremst um að skapa jöfn tækifæri fyrir alla og búa samfélögin þannig að fólk vildi vera þar, búa og lifa góðu lífi óháð kyni, stöðu eða efnahag.
    Eftir umræður um jafnréttismál við þingforsetana þrjá fór fram þemaumræða með samstarfsráðherra Íslands, Loga Einarssyni, um ungt fólk á Vestur-Norðurlöndum. Ráðherra fjallaði í framsöguræðu sinni um hvernig hægt væri að stuðla að því að fólk vildi búa í samfélögum landanna þriggja. Flutningsmenningin, að fólk flytji til að mennta sig og komi ekki til baka, hefur mikil áhrif á Vestur-Norðurlöndum. Hlusta verði á ungt fólk til að vita hvað það vill. Hann sagði frá því að undir formennsku Íslands í norrænu ráðherranefndinni hefði ungt fólk verið spurt hvað leggja ætti áherslu á. Í svörum kom fram að leggja ætti áherslu á góðar samgöngur, húsnæðismál, menntun og starfsmöguleika. Þá kom fram að tómstundir og heilbrigði, líkamlegt sem andlegt, væri einnig mikilvægt. Bjóða þyrfti upp á kjöraðstæður fyrir fólk að búa við. Þá ávarpaði fulltrúi Norðurlandaráðs æskunnar, Birgir Ferjá Heldarskarð, fundinn og fjallaði um þann atgervisflótta sem Vestur-Norðurlönd glímdu við. Hann sagði að löndin þyrftu að læra hvert af öðru og gera ekki sömu mistökin aftur, skiptast á upplýsingum og miðla reynslu. Fjalla þyrfti um málefni ungs fólks þvert á löndin. Sagðist hann vera að bíða eftir aðgerðum í tengslum við þær ályktanir sem Vestnorræna ráðið hefði samþykkt sem m.a. sneru að menntamálum, ferðalögum og tengingu á milli landanna þriggja. Í umræðum sem á eftir fóru kom skýrt fram að horfa ætti til tækifæra á Vestur-Norðurlöndum en ekki eingöngu til áskorana. Skapa þyrfti nýja möguleika fyrir smærri samfélög og að menntun og jafnrétti væri lykillinn að því. Hægt væri að efla tengsl á milli landanna, t.d. tengsl á milli skóla, í félagslífi og í íþróttastarfi. Tryggja þurfi að ungt fólk sjái sér framtíð í því að búa í heimalöndum sínum.
    Að umræðum loknum ávörpuðu fulltrúar samstarfsaðila Vestnorræna ráðsins fundinn. Heléne Björklund, forseti Norðurlandaráðs, lýsti í ávarpi sínu ánægju með þær umræður sem fram hefðu farið. Bera þyrfti virðingu fyrir því sem skilur fólk að og því sem sameinar það. Hún sagði að Norðurlandaráð hefði á árinu 2025 lýst yfir stuðningi við grænlenska þjóð og skýlausan rétt Grænlendinga til að ákvarða sjálfir framtíð sína. Norðurslóðir hefðu mikið verið ræddar á vettvangi Norðurlandaráðs, sérstaklega undir formennsku Íslands í fyrra, og þær væru það enn. Að lokum bauð hún Vestnorræna ráðið velkomið á þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi síðar á þessu ári.
    Eiríkur Björn Björgvinsson var gestur fundarins fyrir hönd þingmannanefndar um norðurslóðamál. Í ræðu sinni fjallaði hann um sívaxandi áskoranir í norðurslóðamálum. Hann sagði frá þeirri ákvörðun að halda áfram starfi þingmannanefndarinnar án þátttöku Rússlands eftir að árásarstríð þeirra í Úkraínu hófst. Það væri sameiginleg ábyrgð að halda vinnunni áfram en á vettvangi nefndarinnar er fjallað um loftslagsmál, atvinnumál, öryggi o.fl. í tengslum við norðurslóðir. Brýnt væri að halda áfram vísindastarfi á norðurslóðum.
    Nils T. Bjørke var fulltrúi norska þingsins og í ávarpi sínu undirstrikaði hann mikilvægi þingmannasamstarfs af þessu tagi. Það víkkaði sjóndeildarhringinn, yki þekkingu og skapaði lýðræðislegri þróun á svæðinu í norðri. Uppi væru viðsjárverðir tímar í öryggismálum og mikil athygli hefði beinst að Grænlandi. Hann sagði að Norðmenn teldu mikilvægt að styðja rétt Grænlendinga til að ráða sjálfir framtíð sinni en að virða yrði danska konungsríkið og samtalið þyrfti að fara fram á milli Nuuk og Kaupmannahafnar. Þá sagði hann frá kosningum sem fram fara í Noregi í byrjun september og að öryggismál væru meira áberandi í kosningabaráttu nú en áður.
    Fulltrúi Norðurlandaráðs æskunnar, Birgir Ferjá Heldarskarð, ávarpaði þá fundinn og sagði frá starfi og skipulagi Norðurlandaráðs æskunnar og lagði áherslu á mikilvægi þess að Norðurlandaráð æskunnar og Vestnorræna ráðið héldu áfram góðum samskiptum.
    Eftir ávörp gesta sagði formaður Vestnorræna ráðsins, Kim Kielsen, frá störfum ráðsins og forsætisnefndar á síðasta ári, m.a. frá þemaráðstefnu, þátttöku í þingi Norðurlandaráðs og þátttöku í Arctic Circle. Jenis av Rana, þingmaður færeysku landsdeildarinnar, gerði grein fyrir störfum hennar, Kim Kielsen, formaður grænlensku landsdeildarinnar, gerði grein fyrir störfum hennar og að lokum gerði Jón Gnarr, formaður Íslandsdeildar, grein fyrir störfum hennar. Jón sagði m.a. frá fundum landsdeildarinnar með aðalræðismönnum Grænlands og Færeyja á Íslandi og fundi með Kalak, vinafélagi Grænlands og Íslands.
    Þá fóru fram almennar umræður um stöðuna í samstarfi Vestur-Norðurlanda. Í umræðunni var lögð áhersla á að mikilvægt væri að tala um þau fjölmörgu tækifæri sem fyrir liggja á svæðinu fremur en að beina athyglinni eingöngu að áskorunum. Slíkt væri lykilatriði til að laða ungt fólk til baka og tryggja að það vilji búa og starfa í heimalöndum sínum. Menntun væri grundvallarstoð, þar sem sameiginlegir skólar og lýðháskólar hefðu þegar skapað tengsl milli ungs fólks á svæðinu og stuðlað að auknum skilningi milli menningarheima. Þá var bent á að sérhæfing á háskólastigi í hverju landi gæti nýst öllum löndunum betur. Einnig var rætt um að félagslíf, íþróttastarf og vinaverkefni milli landa skiptu miklu máli fyrir ungt fólk, en að áskoranir væru til staðar, m.a. í húsnæðismálum, sem gerðu ungu fólki oft erfitt fyrir að koma sér upp húsnæði eftir nám erlendis. Að sama skapi væri mikilvægt að skapa lifandi borgar- og atvinnulíf, þar sem ferðaþjónusta gæti verið mikilvæg viðbót. Lögð væri áhersla á að viðhalda menningu og sjálfsmynd á sama tíma og samfélögin nýttu krafta innflytjenda.
    Ársfundurinn samþykkti stefnu Vestnorræna ráðsins í alþjóðamálum þar sem ákveðin voru forgangsatriði ráðsins þegar kemur að alþjóðlegri samvinnu en þau eru að vinna að vestnorrænum hagsmunum, að vernda auðlindir og menningu Norður-Atlantshafssvæðisins, að taka þátt í þingmannasamstarfi og gæta hagsmuna vestnorræna svæðisins á Norðurlöndum, á norðurslóðum, í Evrópu og í samstarfi við alþjóðleg samtök.
    Þá voru samþykktar tvær tillögur á fundinum, sú fyrri var lögð fram af landsdeild Færeyja og fjallar um öryggis- og varnarmál á Norður-Atlantshafssvæðinu. Í tillögunni eru ríkisstjórnir landanna hvattar til að koma á fót þverpólitískri vinnu á ríkisstjórnarstigi með það að markmiði að rannsaka núverandi öryggis- og varnarkerfi í Norður-Atlantshafi og þróa það þannig að það tryggi íbúum vestnorrænu landanna öruggt líf. Sú síðari var lögð fram af Íslandsdeild en í henni voru vestnorrænir ráðherrar sem bera ábyrgð á mikilvægum innviðum, þar á meðal interneti og fjarskiptum, hvattir til að funda og ræða öryggi mikilvægra samskiptamiðla og internetinnviða í Norður-Atlantshafi, sérstaklega sæstrengja og gervihnattatenginga. Þá voru ráðherrarnir einnig hvattir til að skoða hvort grundvöllur væri til samstarfs um öryggis- og neyðarþjónustuáætlanir varðandi sæstrengja- og gervihnattatengingar landanna þriggja.
    Fyrir ársfundi lá tillaga frá forsætisnefnd um að þema næsta starfsárs yrði öryggismál á Norður-Atlantshafssvæðinu. Í umræðum um þá tillögu lagði Kim Kielsen til að forsætisnefnd yrði falið að taka endanlega ákvörðun um þema næsta árs. Í ljósi mikilla umræðna um málefni ungs fólks, jafnrétti og stöðu fatlaðs fólks taldi hann gott að taka það einnig upp sem þema á næsta starfsári. Ákveðið var að fela forsætisnefnd að útfæra þema næsta árs, annaðhvort að hafa tvö þemu eða að gera tilraun til að samþætta þessi mál í eitt þema. Í lok ársfundar var Jón Gnarr kjörinn nýr formaður ráðsins. Auk hans sitja í forsætisnefnd Bjørt Samuelsen, fyrsti varaformaður, og Kim Kielsen, annar varaformaður.
    Samhliða ársfundi Vestnorræna ráðsins hélt forsætisnefnd ráðsins fund til undirbúnings ársfundar. Forsætisnefnd fundaði einnig með Loga Einarssyni, samstarfsráðherra frá Íslandi. Þá var haldið upp á 40 ára afmæli Vestnorræna ráðsins með dagskrá þar sem Kim Kielsen, Bjørt Samuelsen og Lárus Valgarðsson, framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins, fluttu erindi.
    Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins og á vefsvæðinu www.vestnordisk.is.


Fylgiskjal IV.


Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 31. október 2025


F R Á S Ö G N
af fundum Vestnorræna ráðsins á 77. Norðurlandaráðsþingi í Stokkhólmi 27. til 29. október 2025.


    Af hálfu Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins sóttu fundinn Jón Gnarr, formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins og formaður Vestnorræna ráðsins, og Hildur Edwald alþjóðaritari. Auk þátttöku á Norðurlandaráðsþingi átti forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins fundi með fulltrúum forsætisnefndar Norðurlandaráðs sem og vestnorrænum samstarfsráðherrum Norðurlanda. Einnig var haldinn undirbúningsfundur í forsætisnefnd fyrir þessa fundi. Af hálfu landsdeildar Færeyja sóttu þingið Bjørt Samuelsen, formaður, og Poula Árnadóttir Lervig, ritari landsdeildar Færeyja. Formaður landsdeildar Grænlands, Kim Kielsen, gat ekki sótt þingið sökum anna. Þá sótti Lárus Valgarðsson, framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins, þingið auk þeirra funda sem Vestnorræna ráðið var þátttakandi í.
    Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins hélt fund í sænska þinginu mánudaginn 27. október. Á fundinum voru aðrir fundir sem voru á dagskrá Norðurlandaráðsþings undirbúnir. Þá fór forsætisnefnd yfir síðasta ársfund ráðsins og ræddi hvað hefði gengið vel og hvað betur mætti fara. Forsætisnefnd tók ákvörðun um þema Vestnorræna ráðsins 2025–2026 en það verður velferð ungs fólks á vestnorræna svæðinu. Ákveðið var að fá ungt fólk frá löndunum þremur til liðs við ráðið varðandi skipulagningu þemaráðstefnunnar sem fram fer í Þórshöfn í Færeyjum í lok janúar 2026. Forsætisnefnd fjallaði þá um ársfund ráðsins árið 2026 sem ráðgert er að haldinn verði á Akureyri dagana 1.–3. september og tekin var ákvörðun um að halda fund með Evrópuþinginu í Brussel í júní það sama ár. Að lokum fjallaði forsætisnefnd um barna- og ungmennabókmenntaverðlaun Vestnorræna ráðsins og starfshóp sem skipa á til að endurskoða fyrirkomulag þeirra.
    Fundarstjóri á fundi forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins með forsætisnefnd Norðurlandaráðs var Maria Stockhaus, varaforseti Norðurlandaráðs. Meginefni fundarins voru öryggis- og varnarmál á Vestur-Norðurlöndum og ungt fólk og framtíð þess á norðurslóðum. Lögð var áhersla á mikilvægi öryggis- og varnarmála á Vestur-Norðurlöndum í ljósi alþjóðlegra sviptinga og aukins áhuga stórvelda á svæðinu. Sérstaklega var rætt um mikilvægi þess að vernda sæstrengi og tryggja netöryggi og voru fundarmenn sammála um að fjárfestingar í öryggismálum þyrftu einnig að hafa borgaralegan tilgang, ekki eingöngu hernaðarlegan. Þegar kom að umræðum um ungt fólk var áhersla lögð á að finna leiðir til að laða það að svæðinu. Vestnorrænu löndin glíma við fólksflótta ungs fólks, fólk fer og sækir sér menntun en snýr ekki aftur. Á þemaþingi Vestnorræna ráðsins í Færeyjum verður rætt um stöðu og framtíð ungs fólks, þar á meðal geðheilbrigði, félagslega þátttöku og lýðræðislega virkni. Á fundinum var rætt um mikilvægi þess að ungt fólk sé virkir þátttakendur í stefnumótun en ekki aðeins táknræn viðbót. Stærstu áskoranir varðandi ungt fólk er andleg heilsa, húsnæðisvandi og vantraust til stjórnmálanna en það vantraust hefur áhrif á lýðræðisþátttöku ungs fólks. Allir fundarmenn voru sammála um að mikilvægt væri að efla samstarf og samræmingu milli Vestnorræna ráðsins og Norðurlandaráðs, m.a. varðandi öryggismál og málefni ungs fólks. Rætt var um að nýta 25 ára afmæli Norðurlandaráðs árið 2027 til að styrkja samstarf og endurskoða samstarfssamning milli ráðanna.
    Í tengslum við Norðurlandaráðsþing fundaði forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins með vestnorrænum samstarfsráðherrum Norðurlanda. Þátttakendur á þeim fundi voru Jón Gnarr, formaður Vestnorræna ráðsins, Logi Einarsson, samstarfsráðherra Norðurlanda frá Íslandi, Halla Jónsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra, Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir frá utanríkisráðuneyti Íslands og Gunvør Balle og Páll Nolsøe frá utanríkisráðuneyti Færeyja. Að þessu sinni gátu Kim Kielsen og Bjørt Samuelsen, fulltrúar Færeyja og Grænlands í forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins, ekki tekið þátt í fundinum. Grænlenskir ráðherrar tóku ekki þátt í Norðurlandaráðsþingi þetta árið þar sem ekki var orðið við kröfu þeirra um sjálfstæða aðild Grænlands að Norðurlandaráði. Færeyski samstarfsráðherrann Bjarni Kárason Petersen gat heldur ekki tekið þátt í fundinum. Jón Gnarr stýrði fundinum og fór yfir störf Vestnorræna ráðsins síðastliðið ár og þakkaði ráðherrum fyrir þátttöku þeirra í fundum Vestnorræna ráðsins. Fundarmenn voru allir sammála um mikilvægi vestnorræns samstarfs og ræddu hvort hægt væri að koma að enn frekara samstarfi á milli vestnorrænna ráðherra innan Norrænu ráðherranefndarinnar. Mikilvægt væri að upplýsingaflæði og samskipti milli Vestnorræna ráðsins og ráðherranna væri gott svo að hægt væri að koma tillögum og ákvörðunum Vestnorræna ráðsins í framkvæmd. Þá sagði Gunvør Balle frá formennskuáætlun Danmerkur og Færeyja í Norrænu ráðherranefndinni en löndin fara með formennsku árið 2026. Yfirskrift formennskuáætlunarinnar er „Traust tengsl í hverfulum heimi“.
    Jón Gnarr, formaður Vestnorræna ráðsins, ávarpaði þingið. Í ræðu sinni fjallaði hann um mikilvægi norræns samstarfs. Hann fjallaði um norræna menningu og sögu og að Norðurlandabúar megi og eigi að vera stoltir af menningu sinni og sögu án þess þó að vera með stærilæti. Þá fjallaði hann um norræn gildi og að þau verði að halda í heiðri. Litið væri til Norðurlanda sem standa fremst hvað varðar jafnrétti og frið. Þá fjallaði hann um þróun alþjóðamála sem ekki hafi verið í rétta átt, í átt að friði. Umræða um öryggismál á Norður-Atlantshafssvæðinu hefur smitast yfir á vestnorræna samvinnu sem fengið hefur meira vægi. Að lokum þakkaði hann fyrir gott samstarf milli Vestnorræna ráðsins og Norðurlandaráðs og þá möguleika sem það gefur af sér.
    Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar og á vefsvæðinu www.vestnordisk.is.