Ferill 409. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 686  —  409. mál.




Skýrsla


Íslandsdeildar þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál fyrir árið 2025.

1. Inngangur.
    Á vettvangi þingmannanefndar um norðurskautsmál (SCPAR) bar á árinu 2025 hæst umræðu um loftslagsbreytingar, réttindi frumbyggja, samskipti Grænlands og Bandaríkjanna og málefni Norðurskautsráðsins. Þá var tíðrætt um öryggismál á norðurslóðum og starf þingmannanefndarinnar án þátttöku Rússa eftir ólögmæta innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022.
    Hinn 8. mars 2022 sendi þingmannanefndin frá sér yfirlýsingu varðandi stríðið í Úkraínu þar sem kemur fram að friðsamlegt samstarf á norðurslóðum sé nauðsynleg forsenda fyrir starfi þingmannanefndar um norðurskautsmál. Í framhaldinu gerði þingmannanefndin tímabundið hlé á starfi sínu en fylgdist áfram náið með þróun mála á svæðinu, með friðsamlega hagsmuni ríkja og íbúa norðurslóða í huga. Nefndin komst síðar að þeirri niðurstöðu að samkvæmt starfsreglum nefndarinnar gætu nefndarmenn fundað að eigin vild án þátttöku Rússlands. Nefndarmenn voru sammála um að þrátt fyrir stríðið og afleiðingar þess væri nauðsynlegt að halda áfram að vinna að mikilvægum málum á svæðinu eins og baráttunni gegn loftslagsbreytingum, bættum lífskjörum og réttindum frumbyggja og sjálfbærri þróun. Því var tekin ákvörðun um að halda starfi þingmannanefndarinnar áfram án þátttöku Rússa og hélt nefndin ráðstefnu og tvo fundi á árinu 2024 og tvo fundi á árinu 2025.
    Samskipti Grænlands og Bandaríkjanna voru í brennidepli á árinu í ljósi þeirra ummæla forseta Bandaríkjanna, Donalds Trumps, að hann vilji að Grænland verði hluti af Bandaríkjunum. Grænlenska þingkonan og formaður nefndarinnar, Aaja Chemnitz, ítrekaði að ákvörðun um framtíð Grænlands lægi alfarið hjá Grænlendingum. Þeir vildu hvorki vera Bandaríkjamenn né Danir heldur Grænlendingar. Hún lagði jafnframt áherslu á að yfirvöld á Grænlandi vilji efla efnahagsleg tækifæri, eins og nýtingu auðlinda og ferðamennsku. Jafnframt sendu Chemnitz og Lisa Murkowski, öldungadeildarþingmaður frá Bandaríkjunum og varaformaður nefndarinnar, frá sér sameiginlega yfirlýsingu um samstarf milli Grænlands og Bandaríkjanna þar sem lögð er áhersla á samstarf en ekki eignarhald.
    Enn fremur hélt Alexandra Anstrell, formaður sænsku landsdeildarinnar og skýrsluhöfundur nefndarinnar um loftslagsmál, erindi um örplast á norðurslóðum. Þar kom m.a. fram að sænska þingið hefði óskað eftir samanburði á ríkjum Evrópusambandsins og að Norðurlöndin stæðu almennt vel í slíkum samanburði, einnig Ísland og Noregur sem aðilar að EES-samningnum.
    Tíðrætt var um réttindi frumbyggja og jafnréttismál á árinu og hélt Lisa Murkowski innlegg um alvarleg mistök bandarískra stjórnvalda gagnvart frumbyggjakonum, þar sem opinbera kerfið hafi brugðist ítrekað og ekki sinnt ábyrgð sinni með fullnægjandi hætti. Hún undirstrikaði mikilvægi þess að horfast í augu við fortíðina og tryggja ábyrgð, sannleika og réttlæti fyrir aðstandendur og samfélög frumbyggja.
    Einnig voru undirritaðar tvær viljayfirlýsingar á árinu, annars vegar milli Háskóla norðurslóða (UArctic) og þingmannanefndarinnar og hins vegar milli samráðsvettvangs sveitarstjórna á norðurslóðum (Arctic Mayors' Forum) og nefndarinnar.
    Formennska í Norðurskautsráðinu, samstarfsvettvangi ríkisstjórna norðurslóðaríkja, var ofarlega á dagskrá vegna breyttra aðstæðna eftir innrás Rússa í Úkraínu. Formennskutíð Noregs í ráðinu lauk í maí 2025 og kynnti formaður hennar, Morten Høglund, niðurstöður hennar fyrir nefndinni. Hann lagði áherslu á að Norðurskautsráðið hafi verið farsæll vettvangur norðurslóðamála í 25 ár. Hins vegar hefði staðan orðið erfið eftir ólöglega innrás Rússlands í Úkraínu. Aðildarríki ráðsins náðu þó samkomulagi um fyrirkomulag til að hefja aftur störf á vettvangi vinnuhópa ráðsins undir forystu Noregs, sem legið hafði niðri vegna stríðsins. Nýju viðmiðunarreglurnar byggjast á skriflegum samskiptum og gera vinnuhópunum kleift að halda áfram með verkefni sín. Danmörk undir forystu Grænlands tók við formennsku af Noregi í maí 2025.
    Þá fór fram umræða um skipulag og þemu næstu ráðstefnu nefndarinnar sem haldin verður í Fairbanks, Alaska í apríl 2026, en þau munu tengjast öryggismálum, orkuöryggi og sjálfbærni á norðurslóðum. Jafnframt var lögð áhersla á þátttöku ungs fólks og frumbyggja í ráðstefnunni. Af fleiri málum sem voru ofarlega á baugi hjá þingmannanefndinni má nefna rannsóknir og vinnslu auðlinda, mikilvægi þess að efla samstarf, rannsóknir og upplýsingamiðlun á norðurslóðum og orkuöryggi. Að auki fóru fram umræður um stefnur aðildarríkjanna og Evrópusambandsins í málefnum norðurslóða.

2. Almennt um þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál (CPAR).
    Á tveggja ára fresti heldur þingmannanefndin ráðstefnu um norðurskautsmál (CPAR – Conference of Arctic Parliamentarians) og var fyrsta þingmannaráðstefnan haldin í Reykjavík árið 1993. Á ráðstefnum þingmannanefndarinnar kemur saman stór hópur þingmanna og sérfræðinga frá ríkisstjórnum, háskólastofnunum og félagasamtökum sem láta sig málefni norðurslóða varða. Eitt meginviðfangsefni þingmannanefndarinnar er jafnframt að fylgja eftir samþykktum þeirrar ráðstefnu. Þingmannaráðstefnan samþykkir og sendir frá sér yfirlýsingu um málefni norðurskautsins til ríkisstjórna aðildarríkjanna, stofnana Evrópusambandsins og Norðurskautsráðsins. Síðasta ráðstefna CPAR fór fram í Kiruna í Svíþjóð í mars 2024. Fyrirhugað er að halda næstu ráðstefnu í apríl 2026 í Fairbanks í Alaska í Bandaríkjunum.
    Samvinna norðurskautsríkja hófst þegar samþykkt var áætlun um umhverfisvernd á norðurslóðum í Rovaniemi í Finnlandi árið 1991. Tveimur árum síðar var haldin ráðstefna í Reykjavík sem markaði upphafið að stofnun þingmannanefndar um norðurskautsmál en hún var formlega sett á laggirnar árið 1994. Árið 1996 var Norðurskautsráðið stofnað, m.a. eftir ötula undirbúningsvinnu þingmannanefndarinnar. Ráðið er samstarfsvettvangur ríkisstjórna norðurskautsríkja. Nefndin er stjórnarnefnd þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál sem haldin er á tveggja ára fresti.
    Þingmannanefnd um norðurskautsmál (SCPAR – Standing Committee of Parliamentarians of the Arctic Region) er stjórnarnefnd þingmannaráðstefnunnar. Á milli þess sem ráðstefnan er haldin er þingmannanefndin að störfum. Þingmannanefndin fundar að jafnaði tvisvar til þrisvar sinnum á ári og einn þingmaður frá hverju aðildarríki situr í nefndinni. Þjóðþing Bandaríkjanna, Kanada, Rússlands og Norðurlanda auk Evrópuþingsins eiga fulltrúa í nefndinni og fulla aðild. Nokkur samtök frumbyggja og ólíkra þjóðarbrota á norðurslóðum eiga einnig fasta fulltrúa í nefndinni. Auk þess eiga ýmis ríki, alþjóðasamtök og frjáls félagasamtök áheyrnaraðild að þingmannanefndinni með rétt til þátttöku í umræðum, svo sem Norðurlandaráð og Vestnorræna ráðið.
    Fundir þingmannanefndarinnar eru haldnir til skiptis í aðildarríkjunum átta og Evrópuþinginu. Ísland verður næst í gestgjafahlutverki á árinu 2027. Ekki er föst regla á því hvar fundir eru haldnir en algengast er að aðildarríkin og Evrópuþingið haldi fund í heimalandi sínu annað hvert ár. Meginviðfangsefni þingmannanefndarinnar er að skipuleggja þingmannaráðstefnuna og fylgja eftir samþykktum hennar sem og að fylgjast grannt með störfum Norðurskautsráðsins.
    Formaður Íslandsdeildar þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál er jafnan fulltrúi Alþingis í þingmannanefndinni. Formaður þingmannanefndarinnar er grænlenska þingkonan Aaja Chemnitz en hún var kjörin í apríl 2021 ásamt varaformanni nefndarinnar, bandarísku öldungadeildarþingkonunni Lisu Murkowski, og þær endurkjörnar í mars 2024. Formaður og varaformaður eru kosnir til tveggja ára í senn á ráðstefnu þingmannanefndarinnar annað hvert ár. Ekki eru ákveðnar starfsreglur um hversu oft formaður og varaformaður mega bjóða sig fram til endurkjörs eða hvernig embætti formanns og framkvæmdastjóra skiptist milli aðildarríkjanna. Framkvæmdastjóri þingmannanefndarinnar er Arna Gerður Bang, sérfræðingur á alþjóðadeild Alþingis, en hún tók við stöðu framkvæmdastjóra í mars 2024. Þing þess aðildarríkis sem fer með framkvæmdastjórn leggur til starfsmann til að gegna embættinu.
    Helstu viðfangsefni þingmannanefndarinnar lúta að sjálfbærri þróun og umhverfismálum með áherslu á loftslagsbreytingar. Rík áhersla er einnig lögð á varðveislu menningararfleifðar og lífshátta norðlægra þjóðflokka sem og aukna efnahagslega og félagslega velferð íbúa norðursins. Enn fremur er rík áhersla lögð á að halda norðurslóðum sem lágspennusvæði í alþjóðasamskiptum. Þá hefur þingmannanefndin á undanförnum árum lagt sérstakan metnað í að eiga frumkvæði að margs konar verkefnum sem hægt er að leggja fyrir Norðurskautsráðið til framkvæmdar.
    Áhersla hefur verið lögð á verkefni sem snúa að ýmsum málum sem snerta forgangsverkefni Norðurskautsráðsins. Jafnvel þótt samstarf norðurskautsríkja eigi sér fremur stutta sögu hefur það leitt til margvíslegra sameiginlegra verkefna og stofnana. Eftirlit með og mat á umhverfi norðurskautssvæðanna hefur frá byrjun verið forgangsverkefni ráðsins. Fjölmargar vandaðar vísindarannsóknir hafa verið unnar á vegum vinnuhópa ráðsins, m.a. um mengunarhættu, áhrif mengunar á vistkerfi norðurslóða og varðveislu líffræðilegs fjölbreytileika.
    Þrír lagalega bindandi samningar hafa verið gerðir á vettvangi Norðurskautsráðsins. Sá fyrsti var undirritaður af aðildarríkjunum á leiðtogafundi Norðurskautsráðsins í Nuuk í maí 2011, um leit og björgun á norðurslóðum (SAR). Talið hefur verið brýnt að bregðast við fyrirsjáanlega aukinni umferð á hafi og í lofti og annarri starfsemi á norðurslóðum, m.a. vegna loftslagsbreytinga, sem og aukinni hættu á slysum. Í samningnum eru afmörkuð leitar- og björgunarsvæði sem hvert ríkjanna átta ber ábyrgð á og kveðið er á um skuldbindingar þeirra og samstarf við leitar- og björgunaraðgerðir. Annar samningurinn var undirritaður á leiðtogafundi ráðsins í Kiruna í Svíþjóð árið 2013, um gagnkvæma aðstoð vegna olíumengunar í hafi, og sá þriðji árið 2017, um aukið alþjóðlegt vísindasamstarf á norðurslóðum.

3. Skipan Íslandsdeildar.
    Á árinu 2025 áttu eftirfarandi aðalmenn sæti í Íslandsdeild: Eiríkur Björn Björgvinsson, formaður, þingflokki Viðreisnar, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, varaformaður, þingflokki Miðflokks, og Ragna Sigurðardóttir, þingflokki Samfylkingar. Varamenn voru Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingflokki Samfylkingar, Jón Gnarr, þingflokki Viðreisnar, og Þorgrímur Sigmundsson, þingflokki Miðflokks. Ása Berglind tók sæti Rögnu sem aðalmaður í nefndinni frá 5. maí vegna fæðingarorlofs. Ritari Íslandsdeildar var Arna Gerður Bang.
    Formaður situr fyrir hönd Íslandsdeildar í þingmannanefndinni en í forföllum hans situr varaformaður fundi nefndarinnar. Öll Íslandsdeildin sækir ráðstefnu nefndarinnar sem haldin er á tveggja ára fresti. Íslandsdeildin kemur saman eftir þörfum og þá gerir formaður grein fyrir starfi þingmannanefndarinnar og nefndarmenn fá jafnframt upplýsingar um starf Norðurskautsráðsins.
    Íslandsdeild hélt tvo fundi á árinu þar sem þátttaka í fundum var undirbúin og starf nefndarinnar rætt.

4. Fundir þingmannanefndar um norðurskautsmál árið 2025.
    Á venjubundnu ári kemur þingmannanefndin saman til funda tvisvar til þrisvar sinnum. Á árinu voru haldnir tveir fundir þingmannanefndar, í janúar í Tromsø og september í Oulu. Formaður Íslandsdeildar tók eingöngu þátt í síðari fundinum þar sem ekki var búið að skipa í Íslandsdeild eftir þingkosningar 30. nóvember 2025 þegar fyrri fundurinn átti sér stað. Að auk tók formaður þátt í ársfundi Vestnorræna ráðsins sem haldinn var í Ilulissat í ágúst, fyrir hönd þingmannanefndarinnar.

Fundur þingmannanefndar um norðurskautsmál (SCPAR) 26. janúar, Tromsø.
    Helstu mál á dagskrá voru samskipti Grænlands og Bandaríkjanna og framgangur formennskuáætlunar Noregs í Norðurskautsráðinu. Þá voru undirritaðar tvær viljayfirlýsingar, annars vegar milli Háskóla norðurslóða (UArctic) og þingmannanefndarinnar og hins vegar milli samráðsvettvangs sveitarstjórna á norðurslóðum (Arctic Mayors' Forum) og nefndarinnar. Fyrir hönd Alþingis sótti fundinn Arna Gerður Bang, framkvæmdastjóri nefndarinnar (sjá fylgiskjal I).


Fundur þingmannanefndar um norðurskautsmál (SCPAR) 22.–23. september í Oulu, Finnlandi.
    Fyrir hönd Alþingis sótti fundinn Eiríkur Björn Björgvinsson, formaður Íslandsdeildar. Um 30 þingmenn, fulltrúar frumbyggja og embættismenn frá Norðurlöndum, Bandaríkjunum, Kanada og Evrópuþinginu tóku þátt í fundinum. Helstu mál á dagskrá voru orkumál, fjarskiptatengingar og öryggismál á norðurslóðum. Fundinum stýrði öldungardeildarþingmaðurinn frá Alaska, Lisa Murkowski, sem jafnframt er varaformaður nefndarinnar. Í opnunarávarpi sínu lagði hún áherslu á sjálfbærni og sameiginlega hagsmuni ríkja á norðurslóðum (sjá fylgiskjal II).

Alþingi, 3. febrúar 2026.

Eiríkur Björn Björgvinsson,
form.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir,
varaform.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir.


Fylgiskjal I.


F R Á S Ö G N
af fundi þingmannanefndar um norðurslóðamál í Tromsø 26. janúar 2025.


    Fundur þingmannanefndar um norðurslóðamál (SCPAR) var haldinn í Tromsø 26. janúar 2025. Helstu mál á dagskrá voru samskipti Grænlands og Bandaríkjanna og framgangur formennskuáætlunar Noregs í Norðurskautsráðinu. Þá voru undirritaðar tvær viljayfirlýsingar, annars vegar milli Háskóla norðurslóða (UArctic) og þingmannanefndarinnar og hins vegar milli samráðsvettvangs sveitarstjórna á norðurslóðum (Arctic Mayors' Forum) og nefndarinnar.
    Lars Haltbrekken, formaður landsdeildar Noregs, bauð fundarmenn velkomna til Tromsø, sem nefnist Romsa á norðursamísku og er oft nefnd „hliðið að norðurslóðum“. Hann lagði áherslu á menningarleg og söguleg tengsl Sama við Tromsø en þeir hafa byggt landið um aldir. Formaður þingmannanefndar um norðurskautsmál, Aaja Chemnitz, sagðist hlakka til áhugaverðra umræðna um úrlausnarefni á erfiðum tímum og lagði áherslu á mikilvægi friðsamlegrar samvinnu á norðurslóðum fyrir starf nefndarinnar.
    Fyrsta mál á dagskrá var umræða um samskipti Grænlands og Bandaríkjanna í ljósi
þeirra ummæla forseta Bandaríkjanna, Donalds Trumps, að hann vilji að Grænland verði hluti af Bandaríkjunum. Aaja Chemnitz sagði ljóst að ákvörðun um framtíð Grænlands lægi alfarið hjá Grænlendingum. Þeir vildu hvorki vera Bandaríkjamenn né Danir heldur Grænlendingar. Miklar umræður hefðu skapast um málið, svo miklar að Chemnitz hefur veitt fleiri en 500 viðtöl undanfarnar þrjár vikur. Hún lagði áherslu á að yfirvöld á Grænlandi vilja efla efnahagsleg tækifæri, til að mynda nýtingu auðlinda og ferðamennsku.
    Doris J. Jensen, formanni Vestnorræna ráðsins, var gefið orðið. Hún tók undir orð Chemnitz og sagði að allir flokkar á Grænlandi stæðu saman í þessu furðulega máli. Hún sagði jafnframt að Vestnorræna ráðið hefði samþykkt yfirlýsingu um stuðning við Grænland og hvatti þjóðþing hvarvetna til að gera slíkt hið sama. Sara Olsvig, forseti Heimskautaráðs inúíta (Inuit Circumpolar Council, ICC), sagði nokkur orð um málið. Hún lagði áherslu á að aukin átök og utanaðkomandi þrýstingur gæti haft neikvæð áhrif á réttindi frumbyggja á norðurslóðum. Þá greindi Chemnitz frá því að hún og Lisa Murkowski, öldungadeildarþingmaður frá Bandaríkjunum og varaformaður nefndarinnar, væru að vinna að sameiginlegri yfirlýsingu um samstarf milli Grænlands og Bandaríkjanna þar sem lögð væri áhersla á samstarf en ekki eignarhald. Yfirlýsingin yrði send til nefndarmanna og síðan til fjölmiðla í Bandaríkjunum og Evrópu.
    Næsta mál á dagskrá var kynning Lars Haltbrekkens, formanns landsdeildar Noregs, og Runars Myrnes Balto, fulltrúa í stjórn Samaþingsins, á starfi sannleiks- og sáttanefndar sem þjóðþing Noregs, Stórþingið, skipaði. Sannleiks- og sáttanefndinni var falið að rannsaka óréttlæti sem beinst hefði gegn Sömum, Kvenum, norskum Finnum og Skógfinnum. Stórþingið fjallaði um skýrslu nefndarinnar 12. nóvember 2024. Í skýrslunni var afhjúpað umfangsmikið ranglæti sem Samar hefðu þolað og raktar afleiðingar aðlögunarstefnu norskra stjórnvalda gagnvart Sömum. Stórþingið ræddi málið og leiddi umræðan til formlegrar afsökunarbeiðni.
    Þá kynnti Lars Kullerud, forseti Háskóla norðurslóða (UArctic), stofnunina og áherslu hennar á fræðslu og rannsóknir á norðurslóðum. Kullerud hefur gegnt stöðu forseta háskólans frá því í maí árið 2002. Árið 1998 hvatti Norðurskautsráðið til þess að háskólinn yrði stofnaður og var hann settur á laggirnar í Rovaniemi í Finnlandi árið 2001. Alþjóðleg skrifstofa Háskóla norðurslóða hefur frá upphafi verið hýst við Háskólann í Lapplandi í Rovaniemi. Háskóli norðurslóða er dreifstýrð samtök og því sjá hýsistofnanir hans að mestu um fjármál hans og ýmis lagaleg málefni. Til að styrkja lagalega stöðu Háskóla norðurslóða varðandi samningsgetu, fjáröflun og ábyrgð var háskólinn formlega skráður sem sjálfseignarfélag samkvæmt finnskum lögum í nóvember árið 2019. Kullerud sagði að fjáröflun háskólans byggðist á fjárframlögum og hvatti hann því ríki á norðurslóðum til að styðja háskólann fjárhagslega. Þá undirrituðu Kullerud og Chemnitz viljayfirlýsingu milli þingmannanefndarinnar og Háskóla norðurslóða.
    Morten Høglund, formaður Norðurskautsráðsins, kynnti formennsku Norðmanna í ráðinu. Hann hóf mál sitt á því að árétta mikilvægi slagorðsins Gerum alþjóðlegt samstarf stórkostlegt á ný. Hann lagði áherslu á að Norðurskautsráðið hefði verið farsæll vettvangur norðurslóðamála í 25 ár. Hins vegar hefði staðan orðið erfið eftir ólöglega innrás Rússlands í Úkraínu. Kullerud undirstrikaði mikilvægi þess að finna leiðir fyrir norðurskautsríki til að koma á eðlilegum samskiptum og leggja áherslu á alþjóðlegt samstarf. Frá því að Norðmenn tóku við formennsku í maí árið 2023 hefur áhersla verið lögð á að stuðla að virkni ráðsins og vinnuhópa með þátttöku allra aðildarríkja. Í upphafi voru næstum engir fundir haldnir vegna stríðsins í Úkraínu en árið 2024 hófu vinnuhópar Norðurskautsráðsins aftur störf með þátttöku allra ríkjanna átta. Høglund sagði að í þeim skilningi hefði formennska Norðmanna verið árangursrík. Öll vinna starfshópa fer fram skriflega og allir fundir eru fjarfundir. Þótt þessi vinnuaðferð sé ekki ákjósanleg hefur tekist að nýta hana eins og best verður á kosið. Hann sagði aftur á móti að samstarf á diplómatískum og pólitískum vettvangi væri enn takmarkað.
    Arna Gerður Bang, framkvæmdastjóri þingmannanefndar um norðurslóðamál, skýrði frá fyrsta fundi vinnuhóps um breytingar á starfsreglum nefndarinnar sem haldinn var 13. janúar 2025. Vinnuhópinn skipa ritarar aðildarríkja (sjö þjóðríkja ásamt Evrópuþinginu) en framkvæmdastjóri nefndarinnar samhæfir vinnu. Vinnuhópurinn mun skoða mögulegar breytingar á reglum nefndarinnar sem eiga að tryggja að starf hennar fari fram innan ramma sem sé í samræmi við núverandi ástand. Starfsreglur eru skýrar. Í 8. lið 2. hluta segir: „Ákvarðanir í nefndinni eru teknar með samstöðu meðal nefndarmanna.“ Því er ekki mögulegt að breyta starfsreglum eins og nú háttar vegna þess að fulltrúum Rússlands er ekki boðið til funda vegna ólöglegrar innrásar landsins í Úkraínu.
    Starfshópurinn ræddi hvort unnt væri að breyta vinnubrögðum nefndarinnar án þess að fara í bága við gildandi starfsreglur. Tvær tillögur hlutu stuðning starfshópsins. Annars vegar var það tillaga Norðmanna, sem var sú að setja nýjar starfsreglur fyrir nefndina sem gilda eiga við núverandi aðstæður án þátttöku Rússlands. Nýjar reglur myndu vísa til upphaflegra reglna og kveða á um að við óbreytt ástand starfaði nefndin eftir nýjum reglum. Hins vegar var það tillaga Finna, sem var sú að aðhafast ekkert að svo stöddu þar sem starfsreglur takmörkuðu ekki starf nefndarinnar. Auk þess væru þær skýrar um það að ekki væri hægt að breyta þeim án þátttöku allra aðildarríkja. Formaður landsdeildar Svíþjóðar sagði að málið hefði verið rætt í landsdeildinni sem væri sammála þeirri tillögu Finna að ekki þyrfti að skoða málið frekar þar sem starfsreglur nefndarinnar takmörkuðu ekki starf hennar. Eftir miklar umræður var tekin ákvörðun um að starfshópurinn muni skoða tillögurnar tvær nánar og halda fjarfund í mars til að ræða þær frekar.
    Að lokum hélt Lars Haltbrekken erindi um rannsóknir og vinnslu auðlinda á djúpsævi í norskri lögsögu. Hann sagði að fyrirtæki og þjóðir leituðu í auknum mæli að nýjum málmauðlindum og því hefðu djúpsjávarrannsóknir aukist. Noregur væri vel í stakk búinn til að vera í fararbroddi í þessum nýja iðnaði. Þó væri brýnt að rannsaka og vernda vistkerfi djúpsjávar í ferlinu. Í janúar árið 2024 samþykkti Stórþingið umdeilda tillögu um að leyfa könnun á vinnslu steinefna á hafsbotni. Ákvörðunin var gagnrýnd af vísindamönnum, félagasamtökum og alþjóðlegum samstarfsaðilum.
    Næsti fundur nefndarinnar verður haldinn í Oulu í Finnlandi í september árið 2025. Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar þingmannanefndar um norðurskautsmál og á vefsvæðinu arcticparl.org.


Fylgiskjal II.


F R Á S Ö G N
af fundi þingmannanefndar um norðurslóðamál í Oulu 22.–23. september 2025.


    Fundur þingmannanefndar um norðurslóðamál (SCPAR) var haldinn í Oulu 22.–23. september 2025. Fyrir hönd Alþingis sótti fundinn Eiríkur Björn Björgvinsson, formaður Íslandsdeildar, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Um 30 þingmenn, fulltrúar frumbyggja og embættismenn frá Norðurlöndum, Bandaríkjunum, Kanada og Evrópuþinginu tóku þátt í fundinum. Helstu mál á dagskrá voru orkumál, fjarskiptatengingar og öryggisviðbúnaður á norðurslóðum.
    Fundinum stýrði öldungardeildarþingmaðurinn frá Alaska, Lisa Murkowski, sem jafnframt er varaformaður nefndarinnar. Í opnunarávarpi sínu lagði hún áherslu á sjálfbærni og sameiginlega hagsmuni ríkja á norðurslóðum. Þá lýsti hún því jafnframt yfir að pólitískt andrúmsloft í Washington væri um þessar mundir mjög klofið sem gerði það erfiðara fyrir að ná samstöðu um málefni. Þrátt fyrir það hefðu orðið umtalsverðar framfarir í uppbyggingu innviða á norðurslóðum, meðal annars með auknum fjárfestingum, svo sem í ísbrjótum. Hún ítrekaði einnig að skuldbinding við stuðning við Úkraínu væri óbreytt. Þá benti hún á að ríki norðurslóða væru bæði þau vestustu og austustu innan NATO, sem undirstrikaði mikilvægt hlutverk þeirra og þann sameiginlega grundvöll sem sameinaði þau.
    Olga Oinas-Panuma, formaður finnsku landsdeildarinnar, bauð fundargesti velkomna til Oulu, elstu borgar Finnlands, og vakti athygli á öflugu háskóla- og rannsóknasamfélagi borgarinnar. Hún lagði áherslu á mikilvægi þess að efla samstarf, rannsóknir og upplýsingamiðlun milli þinga og þingmanna ríkja á norðurslóðum. Jafnframt tók finnski Evrópuþingmaðurinn, Mika Aaltola, þátt fyrir hönd Evrópuþingsins en hann lagði áherslu á mikilvægi friðsamlegrar samvinnu á norðurslóðum fyrir starf nefndarinnar svo að meginmarkmiðum hennar, að bæta lífsskilyrði og stöðu íbúa norðurslóða, verði náð.
    Alexandra Anstrell, formaður sænsku landsdeildarinnar og skýrsluhöfundur nefndarinnar um loftslagsmál, hélt erindi um örplast á norðurslóðum. Þar kom m.a. fram að sænska þingið hefði óskað eftir samanburði á ríkjum Evrópusambandsins og að Norðurlöndin stæðu almennt vel í slíkum samanburði, einnig Ísland og Noregur sem aðilar að EES-samningnum. Þá sagði hún frá vel heppnuðu verkefni um hreinlæti sem bar yfirskriftina Keep Sweden Clean og hvatti nefndarmenn til að setja það á dagskrá í aðildarríkjunum.
    Lisa Murkowski vakti athygli á því að þegar COVID-19-faraldurinn skall á hefði notkun plasts aukist á ný, þar sem talið hefði verið að plast tryggði aukið hreinlæti. Hún spurði Anstrell hvort fyrir lægju rannsóknir á örplasti á norðurslóðum, til dæmis innan UArctic eða sambærilegs rannsóknasamstarfs. Ritari sænsku landsdeildarinnar mun kanna málið og upplýsa nefndina í framhaldinu.
    Lisa Murkowski var jafnframt með innlegg um alvarleg mistök bandarískra stjórnvalda gagnvart frumbyggjakonum, þar sem opinbera kerfið hafi brugðist ítrekað og ekki sinnt ábyrgð sinni með fullnægjandi hætti. Þá vék hún að arfleifð stefnu þar sem frumbyggjabörn voru tekin frá heimilum sínum og send í heimavistarskóla eða stofnanir fjarri fjölskyldum og samfélögum sínum. Skortur hefði verið á upplýsingagjöf og uppgjöri vegna afdrifa margra þessara barna og í mörgum tilvikum hefðu þau aldrei snúið aftur. Murkowski undirstrikaði mikilvægi þess að horfast í augu við þessa fortíð og tryggja ábyrgð, sannleika og réttlæti fyrir aðstandendur og samfélög frumbyggja.
    Eiríkur Björn Björgvinsson ávarpaði fundinn en þetta var í fyrsta sinn sem hann sat fund nefndarinnar og lýsti hann ánægju með að fá tækifæri til að leggja sitt af mörkum til starfsins. Eiríkur Björn rakti langa aðkomu sína að málefnum norðurslóða sem ná aftur til tíma hans sem bæjarstjóra Akureyrar. Þar hefði hann átt í víðtæku samstarfi við sveitarfélög og svæðisbundna aðila víða á norðurslóðum sem hefði veitt honum innsýn í sameiginlegar áskoranir og tækifæri samfélaga á svæðinu.
    Hann sagði stöðuna á norðurslóðum mótast af auknum pólitískum og umhverfislegum þrýstingi. Innrás Rússlands í Úkraínu hafi raskað alþjóðlegu samstarfi, en þrátt fyrir það væri brýnt að halda áfram vinnu á sviði loftslagsmála, réttinda frumbyggja og sjálfbærrar þróunar. Eiríkur Björn greindi jafnframt frá því að Íslandsdeild legði áherslu á að efla samfélög á norðurslóðum, stuðla að sjálfbærri þróun og tryggja jafnrétti. Þá sagði hann frá þátttöku sinni á ársfundi Vestnorræna ráðsins í Ilulissat í ágúst sl., þar sem hann sat fundinn sem fulltrúi þingmannanefndarinnar. Hann minnti á samstarfssamning nefndarinnar og Vestnorræna ráðsins frá árinu 2022 sem ætlað væri að efla tengsl og samstarf, meðal annars á sviðum lýðræðis, menningar og sjálfbærrar efnahagsþróunar.
    Að lokum ítrekaði Eiríkur Björn að Ísland stæði fast að baki friði og stöðugleika á heimskautasvæðinu, á grundvelli alþjóðalaga og reglubundins alþjóðlegs kerfis. Hann undirstrikaði jafnframt mikilvægi þess að vernda náttúruna, einkum hafið, og sagði loftslagsbreytingar, tap líffræðilegrar fjölbreytni og ósjálfbæra auðlindanýtingu ekki aðeins umhverfisáskoranir heldur einnig öryggismál sem snertu framtíð heimskautasvæðisins.
    Bob Zimmer, formaður kanadísku landsdeildarinnar, greindi frá umfangsmikilli námuvinnslu í Kanada sem væri mjög mikilvæg fyrir norðursvæði landsins, sérstaklega Labrador. Einnig vakti hann athygli á vaxandi mikilvægi varnar- og öryggismála á norðurslóðum og fagnaði aðild Finnlands og Svíþjóðar að NATO. Þá ræddi hann aukna uppbyggingu Rússlands á norðurslóðum, auk stríðsins í Úkraínu sem hafi áhrif á stöðu svæðisins. Brendan Hanley, varaformaður kanadísku landsdeildarinnar, tók einnig til máls og tók undir orð Zimmers um aukið mikilvægi þess að sjónum sé beint að norðurslóðum og málefnum þess á breiðum grunni.
    Lars Haltbrekken, formaður norsku landsdeildarinnar, greindi frá nýlegum þingkosningum í landinu. Hann minnti jafnframt á að í ágúst sl. hefði verið haldið upp á að Svalbarði hefði verið hluti af Noregi í 100 ár. Alexandra Anstrell greindi nefndarmönnum frá þeirri áskorun að sannfæra þingmenn frá suðurhluta landsins um að Svíþjóð væri hluti af norðurslóðum. Enn fremur sagði hún að þörf væri á að sænsk stjórnvöld keyptu nýjan ísbrjót, sem væri mikilvægur fyrir öryggi alls norðursvæðisins. Ríkisstjórn Svíþjóðar ynni um þessar mundir að nýrri stefnu um norðurslóðamál sem vonast væri til að yrði tilbúin fyrir lok árs 2025.
    Maria Stockhaus, varaforseti Norðurlandaráðs, sagði málefni norðurslóða alltaf á dagskrá ráðsins og að Grænland hefði ávallt verið mikilvægur samstarfsaðili. Þá greindi hún frá því að á næsta ársfundi ráðsins, sem haldinn yrði í Svíþjóð í október 2025, yrði rætt að veita Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum fasta stöðu í forsætisnefnd ráðsins til að tryggja þeim aukin áhrif og þátttöku í stefnumótun norræns samstarfs á sama grunni og aðildarríkin.
    Næst á dagskrá var umræða um næstu ráðstefnu þingmannanefndarinnar sem fyrirhugað er að halda í Fairbanks í Alaska 10.–12. apríl 2026. Rætt var um umræðuefni ráðstefnunnar og komist að niðurstöðu um að meginþemu tengdust varnarmálum, orkuöryggi og sjálfbærni. Þá var lögð áhersla á þátttöku ungs fólks og frumbyggja í ráðstefnunni. Næsti fundur nefndarinnar verður haldinn í Fairbanks í Alaska í tengslum við ráðstefnu nefndarinnar 10. apríl 2026. Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar þingmannanefndar um norðurskautsmál og á vefsvæðinu arcticparl.org.