Ferill 416. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 698 — 416. mál.
Skýrsla
Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES fyrir árið 2025.
Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) og Evrópska efnahagssvæðið (EES) gegna veigamiklu hlutverki sem grunnstoðir íslenskrar utanríkisverslunar. Með aðildinni að EES njóta Íslendingar að langmestu leyti sömu viðskiptakjara og 30 önnur Evrópuríki með rúmlega 460 milljóna manna markað. Auk þess að koma að rekstri EES-samningsins hefur EFTA byggt upp öflugt net fríverslunarsamninga við ríki utan ESB, svonefnd þriðju ríki.
Á árinu var staða alþjóðaviðskipta í kjölfar stjórnarskipta í Bandaríkjunum reglulega til umræðu. Í upphafi árs var óvissa um hvernig forseti Bandaríkjanna myndi beita sér með tilliti til tollahækkana. Á svokölluðum frelsisdegi, 2. apríl 2025, tilkynnti hann að tollar yrðu hækkaðir á allan innflutning til Bandaríkjanna. EFTA-ríkin fóru ekki varhluta af þessum hækkunum. Tollar á innflutning frá Íslandi hækkuðu minnst eða um 10% en tollar á hin EFTA-ríkin þrjú hækkuðu umtalsvert meira. Í kjölfar þessa hafa ríki heims unnið að því að ná samkomulagi við Bandaríkjastjórn um lækkun tollanna. EFTA hefur ekki átt sameiginlega í viðræðum af þessu tagi enda virðist Bandaríkjastjórn vilja semja á tvíhliða grundvelli við ríki. Ljóst er að þessar aðgerðir hafa sett hið alþjóðlega viðskiptaumhverfi og -regluverk í uppnám.
EFTA hefur verið í fararbroddi á heimsvísu í gerð fríverslunarsamninga og á árinu stækkaði fríverslunarnet þess með undirritun fjögurra nýrra fríverslunarsamninga; fríverslunarsamnings við Kósovó sem var undirritaður í Davos, Sviss, 22. janúar 2025, fríverslunarsamnings við Taíland sem var undirritaður í Davos, Sviss, 23. janúar 2025, fríverslunarsamnings við Malasíu sem var undirritaður í Tromsö, Noregi, 23. júní 2025 og fríverslunarsamnings við Mercosur-ríkin, sem undirritaður var í Rio de Janeiro, Brasilíu, 16. september 2025. Auk þessa var uppfærsla á fríverslunarsamningi EFTA og Úkraínu undirrituð í Kyív, Úkraínu, 8. apríl 2025. Einnig var undirritaður samningur við Singapúr um kafla á sviði stafræna hagkerfisins 25. september 2025. Eru gildir samningar nú 35 talsins og taka til 49 ríkja og eru þessi fríverslunarsamstarfsríki samanlagt næststærsti útflutningsmarkaður EFTA á eftir ESB. Fríverslunarsamningar fela í sér lækkun tolla og aukinn fyrirsjáanleika í alþjóðaviðskiptum, t.d. með ákvæðum um takmarkanir á beitingu tæknilegra viðskiptahindrana og um upprunareglur.
Þingmannanefnd EFTA hefur á undanförnum árum stutt dyggilega við gerð fríverslunarsamninga EFTA og beitir sendinefndum og þingmannaheimsóknum til þess að kynna slíka samninga og afla stuðnings við gerð þeirra. Farið var í slíka heimsókn til Malasíu í apríl 2025 þar sem sendinefnd EFTA-þingmanna átti fundi með þingnefndum, ráðherrum, stofnunum og hagsmunaaðilum um aukið efnahagslegt samstarf í ljósi nýundirritaðs fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Malasíu.
Á sviði Evrópumála var samkeppnishæfni Evrópusambandsins áberandi umfjöllunarefni líkt og árið á undan. Tillögur framkvæmdastjórnarinnar um einföldun regluverks, sem kynntar voru á árinu, voru reglulega til umræðu á fundum þingmannanefndar EFTA og þingmannanefndar EES. Þá hefur stefna ESB um að efla efnahagslegt öryggi verið til umræðu. ESB hyggst meðal annars beita innri markaðnum til að efla öryggi sitt að þessu leyti. Löggjöf þessi kann að vera áskorun fyrir EES EFTA-ríkin því hún getur að hluta fallið innan gildissviðs EES-samningsins og að hluta utan gildissviðs hans. Þarf því að finna lausnir á því hvernig EES EFTA-ríkin taka gerðir upp í EES-samninginn og síðar í landsrétt.
Þann 18. nóvember 2025 tók Evrópusambandið ákvörðun um verndarráðstafanir vegna kísilmálms. Þessar aðgerðir ná m.a. til innflutnings frá Íslandi og Noregi. Þessi ákvörðun var rædd á vettvangi þingmannanefndar EFTA, með fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB, með ráðherrum EFTA-ríkjanna og Evrópuþingmönnum á fundum í Brussel og í Strassborg í nóvember. Fulltrúar Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA og EES komu skýrt á framfæri andstöðu sinni við þessa ákvörðun ESB við fulltrúa Evrópusambandsins. EES EFTA-ríkin séu nánustu samstarfsríki ESB og ákvörðun af þessu tagi væri ekki bara í andstöðu við EES-samninginn heldur sendi slæm skilaboð til ríkjanna.
Þá voru varnar- og öryggismál og stuðningur við Úkraínu í kjölfar innrásar Rússlands reglulega til umræðu líkt og undanfarin ár. Rætt var um aðgerðir ESB til að styrkja varnariðnað sinn sem og öryggismál á norðurslóðum. Loks voru tillögur framkvæmdastjórnar ESB að fjárhagsramma fyrir árin 2028–2034 til umræðu. Þær eru nú til umræðu á vettvangi ESB en skipta EES EFTA-ríkin máli með tilliti til þátttöku í verkefnum ESB, svo sem Horizon Europe sem varðar rannsóknir og nýsköpun.
2. Almennt um þingmannanefnd EFTA, þingmannanefnd EES og sameiginlega þingmannanefnd Íslands og ESB.
Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES myndar sendinefnd Alþingis bæði í þingmannanefnd EFTA og þingmannanefnd EES. Þá myndar Íslandsdeildin ásamt fjórum þingmönnum úr utanríkismálanefnd sendinefnd Alþingis í sameiginlegri þingmannanefnd Íslands og ESB.
Þingmannanefnd EFTA.
Þingmannanefnd EFTA var stofnuð árið 1977 með það meginhlutverk að vera ráðgefandi fyrir ráðherraráð EFTA. Aðild að EFTA eiga nú Ísland, Noregur, Liechtenstein og Sviss. Þjóðkjörnir fulltrúar þessara ríkja sitja í þingmannanefndinni. Starfsemi nefndarinnar hefur aukist jafnt og þétt í samræmi við aukin umsvif EFTA, bæði hvað varðar samskipti við ESB og samstarf við svokölluð þriðju ríki, þ.e. ríki utan ESB. Starfssvið nefndarinnar jókst til muna með tilkomu EES-samningsins sem tók gildi 1. janúar 1994. Með gildistöku hans varð nefndin að formi til tvískipt þar sem Svisslendingar ákváðu að standa fyrir utan Evrópska efnahagssvæðið. Nefndin skiptist því annars vegar í fjögur ríki sem aðild eiga að EFTA og hins vegar í þau þrjú aðildarríki EFTA sem aðild eiga að EES. Þingmannanefnd EFTA fundar þó ávallt í einu lagi en Svisslendingar sitja fundi sem áheyrnarfulltrúar þegar málefni sem varða EES-samninginn eru tekin fyrir. Í eftirfarandi frásögnum af fundum verður fjallað um þessar tvær formlegu þingmannanefndir EFTA sem eina heild.
Ísland á fimm fulltrúa í þingmannanefnd EFTA líkt og önnur aðildarríki. Þingmannanefnd EFTA heldur fundi að jafnaði þrisvar til fjórum sinnum á ári og tvisvar fundar hún með ráðherraráði EFTA og utanríkisráðherrum EFTA-ríkjanna innan EES. Nefndin fjallar almennt um starfsemi EFTA, málefni EES og ESB, gerð og framkvæmd fríverslunarsamninga og viðskiptamál í víðu samhengi. Nefndin á einnig samstarf við þing þeirra ríkja sem EFTA hefur gert fríverslunar- eða samstarfssamninga við.
Framkvæmdastjórn þingmannanefndar EFTA undirbýr starf nefndarinnar og gefur álit á fjárhagsáætlun Eftirlitsstofnunar EFTA, auk þess sem hún fjallar um aðkallandi mál. Framkvæmdastjórnin kemur oft fram fyrir hönd þingmannanefndarinnar í samskiptum við þjóðþing þriðju ríkja. Í framkvæmdastjórn mega sitja tveir fulltrúar frá hverju EFTA-ríki en einungis annar þeirra hefur atkvæðisrétt á fundum.
Þingmannanefnd EES.
Þingmannanefnd EES var komið á fót skv. 95. gr. EES-samningsins og er nefndin hluti af stofnanakerfi samningsins. Í þingmannanefnd EES eru 24 þingmenn, 12 frá Evrópuþinginu og 12 frá EFTA-ríkjunum sem eiga aðild að EES (EFTA-hluta sameiginlegrar þingmannanefndar EES). Af þessum 12 fulltrúum á Ísland fjóra, Noregur sex og Liechtenstein tvo. Þingmannanefndin fylgist með framkvæmd og þróun EES-samningsins og gefur álit sitt á EES-málum. Nefndin heldur fundi tvisvar á ári en framkvæmdastjórn hennar hittist milli funda eftir þörfum. Í framkvæmdastjórninni sitja sex fulltrúar, einn frá hverju EES-aðildarríki EFTA og þrír frá Evrópuþinginu. EFTA-hluti hinnar sameiginlegu þingmannanefndar EES og Evrópuþingið skiptast á um formennsku í nefndinni milli ára.
Þingmannanefnd EES lætur til sín taka á öllum sviðum EES-samstarfsins. Hún tekur ákveðin málefni til skoðunar, skrifar um þau skýrslur og samþykkir ályktanir. Skýrslugerð um mál sem tekið er fyrir er í höndum tveggja framsögumanna, annars vegar úr hópi EFTA-þingmanna og hins vegar úr hópi Evrópuþingmanna. Skýrsla framsögumanna er alfarið á þeirra eigin ábyrgð en nefndin samþykkir venjulega ályktun þegar umfjöllun um málið er lokið. Ályktanir nefndarinnar eru sendar til ráðherraráðs EES, sameiginlegu EES-nefndarinnar, Evrópunefnda þjóðþinga ESB, Evrópuþingsins og þjóðþinga EFTA- og EES-ríkja. Þingmannanefndin fylgist náið með því hvernig mál sem hún hefur tekið fyrir þróast og þegar hún telur að framvinda mála sé ófullnægjandi tekur hún þau upp aftur. Nefndin beinir einnig sjónum sínum sérstaklega að áhrifum þjóðþinga EFTA-ríkjanna á EES-samninginn og lagasetningu í tengslum við hann. Fulltrúar ráðherraráðs EFTA og embættismenn stofnana EFTA og ESB mæta á fundi nefndarinnar til að skýra frá framvindu mála og svara spurningum nefndarmanna.
Sameiginleg þingmannanefnd Íslands og ESB.
Sameiginlegri þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins var komið á fót í október 2010 og er hún skipuð níu þingmönnum frá Evrópuþinginu og níu alþingismönnum. Af hálfu Alþingis sitja fimm nefndarmenn úr Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES og fjórir nefndarmenn úr utanríkismálanefnd í hinni sameiginlegu þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins.
Þegar sameiginlega þingmannanefndin var stofnuð í tengslum við aðildarviðræður Íslands og ESB leysti hún af hólmi tvíhliða fundi Alþingis og Evrópuþingsins sem haldnir höfðu verið árlega frá árinu 1987. Á fundi nefndarinnar 9. febrúar 2016 var gerð breyting á starfsreglum hennar og vísun í aðildarferlið tekin út. Eftir breytinguna er skilgreint hlutverk nefndarinnar að fjalla um samskipti Íslands og ESB á breiðum grunni.
Sameiginlega þingmannanefndin kom saman tvisvar á ári framan af, til skiptis á Íslandi og í starfsstöðvum Evrópuþingsins í Brussel eða Strassborg. Í kjölfar þess að aðildarviðræðum við ESB var hætt var fundum nefndarinnar fækkað í einn á ári líkt og tíðkaðist fyrir tíma aðildarumsóknar. Sameiginlega þingmannanefndin tekur fyrir einstök málefni sem varða samskipti Íslands og Evrópusambandsins og getur hún sent frá sér tilmæli þeim viðvíkjandi. Tilmæli verða aðeins samþykkt með því að meiri hluti fulltrúa jafnt Evrópuþingsins sem Alþingis veiti þeim stuðning. Tilmælum sameiginlegu þingmannanefndarinnar er beint til Evrópuþingsins, framkvæmdastjórnar og ráðs Evrópusambandsins, Alþingis og ríkisstjórnar Íslands. Alla jafna sitja fulltrúar ríkisstjórnar Íslands og framkvæmdastjórnar og ráðs Evrópusambandsins fundi sameiginlegu þingmannanefndarinnar. Á vettvangi nefndarinnar gefst alþingismönnum því kostur á að eiga formbundnar og milliliðalausar viðræður við Evrópuþingmenn auk fulltrúa framkvæmdastjórnar og ráðs ESB. Nefndin er því mikilvægur vettvangur fyrir alþingismenn til að fjalla um samskipti Íslands og Evrópusambandsins.
3. Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES.
Í byrjun árs 2025 hafði ný Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES ekki verið kosin eftir Alþingiskosningar 30. nóvember 2024. Ingibjörg Isaksen og Diljá Mist Einarsdóttir, sem setið höfðu í Íslandsdeildinni á fyrra kjörtímabili, sóttu fund þingmannanefndar EFTA í Genf 28.–29. janúar og var Ingibjörg Isaksen starfandi formaður. Á þingfundi 4. febrúar 2025 voru eftirfarandi aðalmenn kosnir í Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA og EES: Grímur Grímsson, formaður, þingflokki Viðreisnar, Diljá Mist Einarsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Ingibjörg Isaksen, þingflokki Framsóknarflokks, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingflokki Flokks fólksins, og Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingflokki Samfylkingarinnar. Eftirfarandi voru kosnir sem varamenn: Dagur B. Eggertsson, þingflokki Samfylkingarinnar, Ingvar Þóroddsson, þingflokki Viðreisnar, Sigurður Helgi Pálmason, þingflokki Flokks fólksins, Vilhjálmur Árnason, þingflokki Sjálfstæðisflokks, og Þórarinn Ingi Pétursson, þingflokki Framsóknarflokks. Á fundi Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA og EES 6. febrúar 2025 var Ingibjörg Isaksen kosin varaformaður. Á fundi Íslandsdeildarinnar 22. maí 2025 var Diljá Mist Einarsdóttir kosin varaformaður. Ritarar Íslandsdeildar voru Eggert Ólafsson, lögfræðingur EES-mála, og Stígur Stefánsson, deildarstjóri alþjóðadeildar skrifstofu Alþingis.
4. Fundir þingmannanefndar EFTA, þingmannanefndar EES og sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og ESB á árinu 2025.
Hér á eftir verður gerð stutt grein fyrir fundum þingmannanefnda EFTA og EES auk sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og ESB sem Íslandsdeildin sótti í tímaröð.
Fundur þingmannanefndar EFTA í Genf 28.–29. janúar 2025.
Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sóttu fundinn Ingibjörg Isaksen, formaður, og Diljá Mist Einarsdóttir, auk Stígs Stefánssonar ritara. Fundurinn var helgaður viðskiptamálum og var m.a. fjallað um stöðu fríverslunarsamninga og -viðræðna EFTA og horfur í alþjóðaviðskiptum. Þá voru höfuðstöðvar Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar heimsóttar og fundað með framkvæmdastjóranum Ngozi Okonjo-Iweala (sjá fylgiskjal I).
15. fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins í Brussel 7. apríl 2025.
Af hálfu Íslandsdeildar sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins sóttu fundinn Grímur Grímsson, formaður, Pawel Bartoszek, varaformaður, Dagbjört Hákonardóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Ingibjörg Isaksen, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, auk Eggerts Ólafssonar og Stígs Stefánssonar ritara. Fundurinn var helgaður samskiptum Íslands og ESB og var m.a. fjallað um öryggis- og varnarmál, tollahækkanir Bandaríkjanna, þverlægar EES-gerðir og þátttöku Íslands í verkefnum ESB (sjá fylgiskjal II).
Fundir framkvæmdastjórnar þingmannanefndar EFTA í Kútsíng og Kúala Lúmpúr 22.–25. apríl 2025.
Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA og EES sóttu fundina Grímur Grímsson, formaður, og Ingibjörg Isaksen, varaformaður, auk Stígs Stefánssonar ritara. Markmið heimsóknar þingmannanefndar EFTA til Malasíu var að eiga viðræður við þingmenn, ráðherra, stofnanir og hagsmunaaðila um fríverslunarmál og aukið efnahagslegt samstarf í ljósi nýgerðs fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Malasíu (sjá fylgiskjal III).
63. fundur þingmannanefndar EES á Akureyri 27. maí 2025.
Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sóttu fundinn Grímur Grímsson, formaður, Ingibjörg Isaksen, varaformaður, Dagbjört Hákonardóttir, Diljá Mist Einarsdóttir og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, auk Eggerts Ólafssonar ritara. Á fundinum var einkum fjallað um þróun og framkvæmd EES-samningsins, varnar- og öryggismál, norðurslóðamál og samkeppnishæfni innri markaðarins (sjá fylgiskjal IV).
Fundur þingmannanefndar og ráðherra EFTA í Tromsö 23. júní 2025.
Af hálfu Íslandsdeildar sóttu fundinn Diljá Mist Einarsdóttir, varaformaður, og Kristján Þórður Snæbjarnarson, auk Eggerts Ólafssonar ritara. Á fundinum var fjallað um stöðu alþjóðaviðskipta, stefnu EFTA til framtíðar litið og stöðu viðræðna (sjá fylgiskjal V).
Fundur þingmannanefndar og ráðherra EFTA í Brussel 20.–21. nóvember 2025.
Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA og EES sóttu fundinn Grímur Grímsson, formaður, Diljá Mist Einarsdóttir, varaformaður, Ingibjörg Isaksen, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Kristján Þórður Snæbjarnarson, auk Eggerts Ólafssonar ritara. Á fundinum var einkum fjallað um ákvörðun ESB 18. nóvember 2025 um að leggja á verndarráðstafanir á kísilmálm sem ná til Íslands og Noregs. Einnig var fjallað um stöðu fríverslunarviðræðna EFTA (sjá fylgiskjal VI).
64. fundur þingmannanefndar EES í Strassborg 26.–27. nóvember 2025.
Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA og EES sóttu Grímur Grímsson, formaður, Diljá Mist Einarsdóttir, varaformaður, Ingibjörg Isaksen, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Kristján Þórður Snæbjarnarson fundinn, auk Eggerts Ólafssonar ritara. Á fundinum var m.a. fjallað um þróun og framkvæmd EES-samningsins, samkeppnishæfni Evrópu og áætlun um að styrkja nýsköpun, stöðu alþjóðaviðskipta og fjármálatillögur Evrópusambandsins fyrir árin 2028–2034 (sjá fylgiskjal VII).
5. Ályktanir árið 2025.
Ályktun þingmannanefndar EES:
Ályktun um ársskýrslu um framkvæmd EES-samningsins árið 2024, samþykkt á fundi þingmannanefndar EES á Akureyri 27. maí 2025.
Alþingi, 3. febrúar 2026.
| Grímur Grímsson, form. |
Ingibjörg Isaksen, varaform. | Diljá Mist Einarsdóttir. | |
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. | Kristján Þórður Snæbjarnarson. | ||
Fylgiskjal I.
FRÁSÖGN
af fundi þingmannanefndar EFTA í Genf 28.–29. janúar 2025.
Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sóttu fundinn Ingibjörg Isaksen, formaður, og Diljá Mist Einarsdóttir, auk Stígs Stefánssonar, starfandi ritara. Ísland fer með formennsku í þingmannanefnd EFTA á árinu 2025 og stjórnaði Ingibjörg fundi nefndarinnar í Genf.
Þingmannanefnd EFTA hefur á undanförnum árum helgað fyrsta fund hvers starfsárs alþjóðlegum viðskiptamálum þar sem m.a. er farið yfir stöðu fríverslunarsamninga og -viðræðna EFTA, viðskiptastefnu ESB og þróun mála á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO). Að venju komu sendiherrar EFTA-ríkjanna og fjöldi embættismanna og sérfræðinga fyrir nefndina á fundinum.
Fundurinn fór fram í kjölfar undirritunar fríverslunarsamninga EFTA við Taíland og Kósovó viku áður en auk þess lauk samningaviðræðum við Indland á árinu 2024 og uppfærslu fyrri samninga við Síle og Úkraínu. Fríverslunarsamningar EFTA við ríki utan ESB, svonefnd þriðju ríki, eru þar með 32 talsins og taka til 43 ríkja. EFTA á að auki í fríverslunarviðræðum við Malasíu, Mercosur-ríkin (Argentínu, Brasilíu, Paragvæ og Úrúgvæ) og Víetnam.
Sérstök umfjöllun var um horfur í alþjóðaviðskiptum í kjölfar stjórnarskipta í Bandaríkjunum í ljósi ummæla Trumps forseta um viðskiptamál og mögulegar tollahækkanir. Ekki var gripið til slíkra aðgerða á fyrstu dögum nýrrar stjórnar en ýmsum stofnunum bandaríska stjórnkerfisins var með tilskipun falið að vinna tillögur að nýrri viðskiptastefnu sem stuðlar að fjárfestingu og framleiðni, eykur iðnaðar- og tæknilega yfirburði Bandaríkjanna og verndar þjóðar- og efnahagslegt öryggi Bandaríkjanna. Áherslan er á mögulegar tollahækkanir, endurskoðun viðskiptasamninga og tvíhliða viðskiptasambanda, viðskipti við Kína, Kanada og Mexíkó, efnahagslegt öryggi og þjóðaröryggi. Í tilskipuninni er sérstaklega kveðið á um að rannsaka orsakir viðvarandi viðskiptahalla Bandaríkjanna ásamt efnahags- og þjóðaröryggisáhættu sem af honum skapast og leggja til viðeigandi gagnaðgerðir af hálfu Bandaríkjanna. Tillögur viðeigandi stofnana eiga að liggja fyrir 1. apríl nk. Fjallað var um ólíkar sviðsmyndir mögulegra tollahækkana og viðskiptaátaka Bandaríkjanna við Kína annars vegar og ESB hins vegar og möguleg áhrif á EFTA-ríkin.
EFTA-ríkin fylgjast grannt með viðskiptastefnu ESB og fríverslunarsamningagerð á vegum sambandsins og var fjallað um hana á fundinum. Þegar ESB semur um betri viðskiptakjör á erlendum mörkuðum en EFTA-ríkin njóta skerðist samkeppnisstaða fyrirtækja í EFTA-ríkjunum á viðkomandi mörkuðum gagnvart fyrirtækjum innan ESB. Því leggur EFTA áherslu á að tryggja nýja samninga eða uppfærslu eldri samninga eftir því sem ESB útvíkkar og dýpkar fríverslunarsamninga sína. Auk þess er EFTA stundum fyrra til og lýkur fríverslunarsamningum við ríki sem ESB á í viðræðum við eins og raunin er um Indland, Taíland, Indónesíu og Filippseyjar. Auk umfjöllunar um viðskiptastefnu ESB var fjallað um hvernig forðast mætti að mögulegar mótvægisaðgerðir af hálfu ESB gegn mögulegum tollahækkunum Bandaríkjanna hefðu neikvæð áhrif á EFTA-ríkin.
Þingmannanefnd EFTA heimsótti höfuðstöðvar Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og fundaði með framkvæmdastjóranum Ngozi Okonjo-Iweala. Fjallað var um áskoranir alþjóðaviðskiptakerfisins og stöðu WTO. Áréttað var að þótt ríki og ríkjahópar hefðu brugðist við stöðnun í samningagerð á vettvangi WTO með því að gera tvíhliða og/eða svæðisbundna fríverslunarsamninga, líkt og EFTA hefur gert, þá væru slíkir samningar gerðir á grunni regluverks WTO. Hvatti Okonjo-Iweala EFTA-ríkin til þess að beita pólitísku afli sínu og þrýsta á samstarfsríki sín á sviði fríverslunar til þess að efla uppbyggilega þátttöku sína í WTO.
Loks var fjallað um stöðu fríverslunarviðræðna EFTA við Malasíu. Góður gangur hefur verið í viðræðunum og fóru tvær viðræðulotur fram á árinu 2024. Þingmannanefnd EFTA hefur á undanförnum árum stutt dyggilega við gerð fríverslunarsamninga samtakanna og hefur beitt sendinefndum og þingmannaheimsóknum til þess að kynna og afla stuðnings við slíka samninga. Í því skyni er ráðgert að sendinefnd þingmanna EFTA heimsæki Malasíu í apríl og eigi fundi með þingnefndum sem fara með utanríkisviðskipti, viðskiptaráðuneyti og hagaðilum.
Fylgiskjal II.
FRÁSÖGN
af 15. fundi sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins í Brussel 7. apríl 2025.
Fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins fór fram í Brussel 7. apríl sl. Af hálfu Alþingis sóttu fundinn Grímur Grímsson, formaður, Pawel Bartoszek, varaformaður, Dagbjört Hákonardóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Ingibjörg Isaksen, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Fyrir hönd Evrópuþingsins sátu fundinn þingmennirnir Andreas Schwab, Christel Schaldemose, Christophe Grudler, Anja Arndt, Dora David, Karin Karlsbro, Lukasz Kohut, Mika Aaltola, Rasmus Andresen, Charlie Weimers og Jüri Ratas. Helstu dagskrármál voru samskipti Íslands og ESB, öryggis- og varnarmál, tollahækkanir Bandaríkjastjórnar, þverlægar gerðir og þátttaka Íslands í áætlunum ESB.
Að loknum opnunarávörpum fundarstjóra var rætt um samskipti Íslands og ESB. Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands gagnvart Evrópusambandinu, fjallaði um samvinnu Íslands og ESB í gegnum EES og Uppbyggingarsjóð EES sem og á sviði loftslagsmála, norðurskautsmála og varnarmála. Pawel Bartoszek tók til máls og sagði að það væri stefna ríkisstjórnarinnar að stefna að frekari samvinnu við Evrópu, m.a. á sviði öryggis- og varnarmála. Þingmenn Evrópuþingsins lýstu yfir ánægju með hvað þessir tveir aðilar vinni þétt saman í málefnum Úkraínu. Þeir voru jafnframt áhugasamir um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið og hvort líklegt væri að þeim yrði haldið áfram. Kristján Þórður Snæbjarnarson svaraði því til að ríkisstjórnin væri ekki að halda í þessa vegferð nema hún teldi að það væru meiri líkur en minni á að útkoman yrði jákvæð. Dagbjört Hákonardóttir sagðist vona að í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu yrði umræðan um tækifærin sem felast í ESB-aðild.
Næst var rætt um samvinnu á sviði öryggis- og varnarmála. Pawel Bartoszek flutti framsögu og sagði varnarstefnu Íslands byggja á NATO-aðild og varnarsamningi við Bandaríkin frá 1951. Hann fjallaði jafnframt um hvernig Ísland, sem herlaus þjóð, styður við starfsemi NATO á Íslandi. Þá nefndi hann að ríkisstjórnin hygðist setja nýja öryggis- og varnarstefnu á yfirstandandi kjörtímabili og styrkja framlög til þessa málaflokks. Loks fjallaði hann um samvinnu Íslands og ESB á þessu sviði, m.a. með þátttöku í þvingunaraðgerðum ESB gegn Rússlandi og pólitísku samtali um þessi málefni innan EES-ráðsins. Utanríkisráðherra Íslands hafi lýst yfir áhuga á að dýpka þessa samvinnu með samstarfsyfirlýsingu af sama meiði og Noregur og ESB samþykktu árið 2024. Af hálfu ESB kom fram að jákvætt væri að það væri traust í samskiptum Íslands og ESB á þessu sviði. Voru siglingaöryggi og netvarnir nefnd meðal sviða þar sem Ísland hefði mikilvægu hlutverki að gegna. Var það nefnt að það væru tvær tilskipanir sem féllu undir gildissvið EES-samningsins að því er varðar mikilvæga innviði og netvarnir sem mikilvægt væri að Ísland innleiddi. Þá var nefnt að ESB sé með áætlun um öryggi sæstrengja og hvernig eigi að styrkja viðnámsþrótt sambandsins. Var Ísland hvatt til að skoða þátttöku í stafrænu setri ESB sem hýst er í Danmörku.
Því næst var rætt um afstöðu aðila til tollahækkana Bandaríkjanna sem tilkynntar höfðu verið vikuna áður, 2. apríl. Grímur Grímsson opnaði dagskrárliðinn og sagði að þessi fordæmalausa ákvörðun væri gagnrýniverð. Ísland hafi fengið á sig 10% toll. Þó að það væri ekki í líkingu við það sem margir aðrir, þar á meðal ESB, fengu þá hafi það neikvæð áhrif. Ljóst væri að ESB yrði að svara þeim miklu tollahækkunum sem tilkynntar voru en mikilvægt væri að horft væri til þess að það hefði ekki neikvæð áhrif á samstarfsríki eins og Ísland. Þá sagði Grímur að rétt væri að halda á lofti mikilvægi alþjóðaviðskipta. Bæði Ísland og ESB hafi náð árangri í að gera fríverslunarsamninga við þriðju ríki og ættu að halda því áfram. Það væri liður í að tryggja efnahagslegt öryggi. Andreas Schwab sagði að þessi ákvörðun Bandaríkjanna væri órökrétt og skemmdi fyrir samskiptum við ESB en myndi hafa hvað mestar afleiðingar á hlutabréfamörkuðum Bandaríkjanna. Bregðast þyrfti við en gæta meðalhófs. Það væri hægt að bregðast við af hörku en tillögur ESB væru til þess fallnar að lægja öldur. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sagði að það væri erfitt að eiga samskipti við Bandaríkin í dag því hringurinn utan um þá sem taka ákvarðanir sé svo lokaður. Schwab tók undir og sagði að innrimarkaðsnefnd Evrópuþingsins hafi verið í Bandaríkjunum og að stjórnmálamenn hafi ekki endilega vitað hvert stefndi.
Að þessu loknu var rætt um þverlægar gerðir. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hafði framsögu og sagði að sem þátttakandi á innri markaðnum skipti velgengni gerðanna máli fyrir Ísland. ESB hafi mætt áskorunum á alþjóðavettvangi m.a. með víðtækum löggjafartillögum sem ná þvert yfir málefnasvið. Þannig geti ein gerð snert viðskiptastefnu ESB sem og iðnaðarstefnu, stefnu um efnahagslegt öryggi og loftslagsstefnu. Lagasetning af þessu tagi skapi áskoranir með tilliti til EES-samningsins. Hlutar gerðanna geti fallið undir gildissvið EES-samningsins en aðrir ekki. Þeir þættir sem falli utan gildissviðsins geti samt sem áður haft áhrif á virkni innri markaðarins. Þannig að ef EES EFTA-ríkin taka ekki upp þann hluta gerðanna sem falla utan EES-samningsins sé hætta á gliðnun á innri markaðnum og þau gætu í einhverjum tilvikum verið talin til þriðju ríkja. Það sé von EES EFTA-ríkjanna að hægt verði að finna lausnir í framtíðinni þegar tillögur eru ræddar innan ESB. EFTA-ríkin muni áfram vakta löggjafarvinnu ESB og koma á framfæri ábendingum í tilvikum af þessu tagi. EES-samningurinn hafi reynst sveigjanlegur og lausnir hafi fundist þegar upp hafa komið áskoranir. Fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB sagði að einsleitni og jafnræði séu mikilvægar meginreglur á innri markaðnum. Hann var sammála um að finna yrði lausnir á þessum áskorunum en að EES EFTA-ríkin þyrftu að vera vakandi fyrir áskorunum fyrr í ferlinu þannig að hægt verði að bregðast við á meðan mál eru til skoðunar innan ESB. Erfitt geti reynst að taka þætti út úr þessum gerðum þannig að þær virki sem skyldi. Christophe Grudler bætti við að þegar bent er á að rétt sé að vísa til EES EFTA-ríkjanna þá reyni stofnanir ESB ávallt að bregðast við.
Loks var rætt um þátttöku Íslands í áætlunum ESB. Umræðan var í tengslum við tillögur framkvæmdastjórnar ESB um fjárhagsramma til margra ára en þær eru væntanlegar næsta sumar. Ingibjörg Isaksen hafði framsögu og sagði að Ísland hafi tekið þátt í áætlunum ESB í þrjá áratugi. Sú þátttaka byggðist á EES-samningnum sem segi að þegar Ísland er þátttakandi eigi það að hafa aðgang að öllum hlutum verkefnisins og bera sömu skyldur og aðildarríki ESB. Ísland leggi verkefninu til fjármagn fyrir slíka þátttöku. Þriðju ríki hafa einnig tekið þátt í þessum verkefnum og Ísland hefur orðið þess áskynja að EES EFTA-ríkin séu flokkuð með þessum ríkjum. Ísland hafi ákveðnar áhyggjur af því að þegar tillögur eru gerðar að nýjum verkefnum muni þátttöku Íslands verið settar skorður sem væru ekki í samræmi við EES-samninginn. Það sé því mikilvægt að í löggjöf sem skilgreinir verkefni sé greinarmunur gerður á EES EFTA-ríkjunum og þriðju ríkjum til að tryggja fyrirsjáanleika.
Íslandsdeildin heimsótti einnig sendiráð Íslands í Brussel, fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu, EFTA-skrifstofuna og Eftirlitsstofnun EFTA. 16. fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins er ráðgerður á Íslandi vorið 2026.
Fylgiskjal III.
FRÁSÖGN
af fundum framkvæmdastjórnar þingmannanefndar EFTA í Kútsíng og Kúala Lúmpúr 22.–25. apríl 2025.
Markmið heimsóknar sendinefndar þingmanna EFTA-ríkjanna til Malasíu var að eiga viðræður við þingmenn, ráðherra, stofnanir og hagsmunaaðila um fríverslunarmál og aukið efnahagslegt samstarf í ljósi nýgerðs fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Malasíu. Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES áttu sæti í sendinefndinni Grímur Grímsson og Ingibjörg Isaksen, auk Stígs Stefánssonar, deildarstjóra alþjóðadeildar. Grímur Grímsson gegnir formennsku í þingmannanefnd EFTA á árinu 2025 og fór því fyrir sendinefndinni.
Fríverslunarsamningum hefur fjölgað á undanförnum árum og hafa samtök ríkja og einstök lönd í auknum mæli beint sjónum sínum að gerð tvíhliða eða marghliða fríverslunarsamninga. EFTA hefur verið í fararbroddi á þessu sviði og eru fríverslunarsamningar EFTA, að hinum nýja samningi meðtöldum, 34 talsins og ná til 42 ríkja. Þingmannanefnd EFTA hefur stutt dyggilega við gerð fríverslunarsamninga samtakanna og hefur beitt sendinefndum og þingmannaheimsóknum til þess að kynna fríverslunarsamninga við EFTA og afla stuðnings við gerð þeirra.
Fríverslunarviðræðum EFTA-ríkjanna og Malasíu lauk 11. apríl 2025 en þær höfðu staðið yfir með hléum frá árinu 2012. Samningurinn nær m.a. til vöru- og þjónustuviðskipta, hugverkaréttinda, upprunareglna, fjárfestinga, opinberra innkaupa og sjálfbærrar þróunar. Þá lýsa samningsaðilar yfir vilja til að auka samstarf sín á milli, m.a. á sviði orkuskipta og aðgerða í loftslagsmálum. Markaðsaðgengi sem Ísland veitir Malasíu fyrir landbúnaðarvörur er í samræmi við aðra fríverslunarsamninga sem Ísland hefur gert á vettvangi EFTA. Fríverslunarsamningurinn tekur gildi þegar hann hefur verið undirritaður og fullgiltur af hálfu samningsríkjanna.
Fundir sendinefndar þingmanna EFTA fóru annars vegar fram í Kútsíng, höfuðborg Sarawak-fylkis á eyjunni Borneó, þar sem fram fór þingmannafundur samtaka Suðaustur-Asíuríkja (ASEAN), og hins vegar í Kúala Lúmpúr. Í Kútsíng átti sendinefndin fundi með Johari bin Abdul, forseta fulltrúadeildar malasíska þingsins, Awang Bemee bin Awang Ali Basah, forseta öldungadeildar þingsins, og Abang Johari, forsætisráðherra Sarawak-fylkis. Í Kúala Lúmpúr fundaði sendinefndin með utanríkis- og viðskiptanefnd malasíska þingsins undir forystu Wong Chen, Steven Sim Chee Keong, ráðherra mannauðsmála, og Liew Chin Tong aðstoðarviðskiptaráðherra. Auk þess átti sendinefndin fundi með fulltrúum atvinnulífs, frjálsra félagasamtaka, hugveitu, sendiherra Bretlands og aðstoðarsendiherra ESB.
Grímur Grímsson hélt framsögu fyrir hönd sendinefndarinnar á öllum fundum. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að treysta og efla viðskiptatengsl EFTA-ríkjanna og Malasíu í ljósi vaxandi óvissu í alþjóðaviðskiptum, aukinnar verndarstefnu og röskunar á alþjóðlegum viðskiptatengslum. Þá lýsti hann ánægju sinni með að samningar hefðu tekist um víðtækan, metnaðarfullan og framsækinn samning sem tryggði rekstraröryggi, fyrirsjáanleika og aukið samkeppnisforskot með tollalækkunum og bættu markaðsaðgengi. Þá lagði Grímur áherslu á að samningurinn fæli í sér skuldbindingar á sviði mannréttinda, vinnumála og umhverfisverndar. Enn fremur benti hann á stefnu EFTA um aukið samstarf við Asíuríki og mikilvægi þess að stuðla að tækniþróun og sjálfbærri framtíð í slíku samstarfi. Að endingu áréttaði hann að endanlegt gildi samningsins væri háð samþykki þjóðþinganna og lagði áherslu á mikilvægi þess að efla gagnkvæman skilning og tengsl milli ríkjanna í því skyni.
Á fundum gafst einnig tækifæri til að fjalla um tvíhliða áherslur. Ingibjörg Isaksen dró fram þau tækifæri sem nýi samningurinn skapaði til að styrkja efnahagstengsl Íslands og Malasíu og undirstrikaði mikilvægi fjölbreyttra viðskiptatengsla fyrir opið og útflutningsmiðað hagkerfi Íslands. Ingibjörg benti á möguleika á samstarfi á sviði jarðhitaorku og sjálfbærrar sjávarútvegstækni og á það hvar hægt væri að skapa betra markaðsaðgengi fyrir íslenskar sjávarafurðir. Þá nefndi hún að samningurinn byði Malasíu upp á stöðugri viðskiptaramma og ný tækifæri í rafmagnstækjum, vélbúnaði, lækningatækjum og matvælavinnslu, en það væru svið sem samræmdust eftirspurn á Íslandi. Að lokum lýsti Ingibjörg yfir bjartsýni um að samningurinn yrði upphaf að nánara samstarfi milli ríkjanna sem yrði þeim báðum til hagsbóta.
Auk þess sem fjallað var um efnahagssamvinnu EFTA-ríkjanna og Malasíu var á fundum rætt um græn orkuskipti, umbætur á malasískum vinnumarkaði og horfur í alþjóðaviðskiptum, sér í lagi um stefnu Bandaríkjanna í tollamálum. Viðmælendur sendinefndar EFTA á fundum í Malasíu voru jákvæðir gagnvart aukinni samvinnu við EFTA. Stefnt er að því að fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna og Malasíu verði undirritaður formlega í júní.
Fylgiskjal IV.
FRÁSÖGN
af 63. fundi þingmannanefndar EES á Akureyri 27. maí 2025.
Fundur þingmannanefndar EES var haldinn í Menningarhúsinu Hofi. Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sóttu fundinn Grímur Grímsson, formaður, Ingibjörg Isaksen, varaformaður, Dagbjört Hákonardóttir, Diljá Mist Einarsdóttir og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, auk Eggerts Ólafssonar ritara. Grímur Grímsson stýrði fundinum fyrir hönd EFTA-ríkjanna ásamt Christophe Grudler Evrópuþingmanni. Helstu dagskrármál fundarins voru staða EES-samningsins, samvinna á norðurslóðum, samkeppnishæfni innri markaðarins, málefni norðurslóða o.fl.
Í umræðum um stöðu EES-samningsins voru frummælendur. Til máls tóku Pascal Schafhauser fyrir hönd formennsku EFTA í EES-ráðinu og sameiginlegu EES-nefndinni, Katarzyna Chajec fyrir hönd formennsku ESB í EES-ráðinu og Nicolas von Lingen fyrir hönd framkvæmdastjórnar ESB í sameiginlegu EES-nefndinni. Í máli þeirra kom fram að EES-samningurinn sé enn stöðugur og mikilvægur þrátt fyrir óstöðugleika á alþjóðavettvangi. Nýverið hafi árangur náðst í að taka mikilvæga sambandslöggjöf upp í EES-samninginn, sér í lagi á sviði matvælaöryggis og fjármálaþjónustu, og minnka upptökuhallann. Fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB lagði áherslu á mikilvægi þess að reglurnar væru innleiddar í landsrétt til að tryggja einsleitni á EES-svæðinu. EES EFTA-ríkin vöktu athygli á áskorunum sem leiða af svokölluðum þverlægum gerðum sem ná þvert yfir málefnasvið. Þá lýstu ríkin yfir áhyggjum af því að löggjöf ESB tæki ekki tillit til sérstöðu Íslands, Noregs og Liechtenstein. Ríkin væru ofin inn í virðiskeðju innri markaðarins og taka ætti tillit til þessarar stöðu. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir velti því upp í þessu sambandi hvort þingmenn hefðu ekki hlutverki að gegna við að tryggja betri framkvæmd samningsins, sér í lagi í málum sem væru mikilvæg í pólitísku tilliti.
Í umræðum um áherslu Evrópusambandsins á samkeppnishæfni voru frummælendur Pablo Fons frá framkvæmdastjórn ESB og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Pablo Fons sagði að mikilvægt væri að samþykkja einföldunarreglur hratt og hvatti EES-ríki til að taka þátt í vinnu sambandsins. Aðgerðir til að minnka kolefnislosun yrðu að vera í forgrunni en slíkar aðgerðir eru taldar veita ESB samkeppnisforskot. Á sama tíma yrði að leysa úr áskorunum sem leiða af háu orkuverði. Sigurður Hannesson sagði að iðnaðurinn styddi tillögur og markmið ESB en nauðsynlegar aðgerðir þyrftu að eiga sér stað. Innri markaðurinn væri mikilvægasta tól Evrópu en væri ekki nýttur sem skyldi. Þá væri brýn þörf á að efla nýsköpunargeirann í Evrópu. Diljá Mist Einarsdóttir spurði Sigurð hver skoðun iðnaðarins væri á stöðu Evrópu samanborið við Bandaríkin og Kína. Sigurður sagði að áhyggjur væru af stöðu Evrópu. Þótt Evrópa væri leiðandi í grænu umskiptunum þá væri áhyggjuefni að framlag svæðisins til rannsóknar og þróunar væri minna en í Kína og Bandaríkjunum.
Næsti dagskrárliður varðaði varnariðnað Evrópu og stuðning við Úkraínu þar sem Arunas Vinciunas frá varnar- og geimskrifstofu ESB og Trine Lise Sundnes, þingmaður á norska Stórþinginu, fluttu ræður. Rætt var um SAFE sem er ætlað að efla sameiginleg innkaup til að styrkja varnarviðbúnað Evrópu. ESB hvatti ríki til að hafa þarfir Úkraínu í huga þegar innkaup væru ákveðin. Norski þingmaðurinn sagði að norski varnariðnaðurinn væri dæmi um hvernig stækka mætti sviðið með iðnaði og langtímastefnumótun. Norski iðnaðurinn einbeitti sér að átta tæknilegum atriðum í varnariðnaði, til að mynda stýribúnaði, eldflaugatækni, sjálfvirkum kerfum og gervigreind. Nýsköpun væri gríðarlega mikilvæg í þessu tilliti. Þá var rætt um stuðning við Úkraínu. Grímur Grímsson sagði að horfa þyrfti til aðstæðna ríkja. Þótt framlag Íslands næmi ekki sama hlutfalli af þjóðarframleiðslu og í öðrum ríkjum þá væri Ísland herlaust land en aðrar fjárfestingar ættu að vera teknar með í reikninginn sem hefðu borgaralegt og varnartengt gildi. Öll EES EFTA-ríkin stæðu áfram heilshugar á bak við Úkraínu í stuðningi sínum.
Einnig var rætt um málefni norðurslóða og fluttu Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra norðurslóða, og Claude Veron-Reville, frá utanríkisskrifstofu framkvæmdastjórnar ESB, ræður. Í máli þeirra kom m.a. fram að róttæk breyting hefði orðið á þessu sviði í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Nú væru öryggismál ráðandi í tengslum við þetta viðfangsefni en áður hafi verið einblínt á loftslag, sjálfbærni og stöðu frumbyggja. Lögð var áhersla á að loftslagsbreytingar væru enn gríðarlega mikilvægt viðfangsefni og það ætti ekki eingöngu að horfa á málefni norðurslóða sem varnarmál. Þá var minnst á stöðu Grænlands og að virða ætti sjálfsákvörðunarrétt þess. Dagbjört Hákonardóttir sagði að EFTA-ríkin yrðu að gera sig meira gildandi í málefnum Grænlands og auka viðskipti og sýnileika þar. Evrópuríki yrðu einnig að sýna meiri stuðning við Grænland í formi fjárfestinga og diplómatískra samskipta.
Á fundinum var einnig rætt um stöðu alþjóðaviðskipta. Þau mótist nú af öðrum þáttum alþjóðastjórnmála, efnahagsöryggi og iðnaðarstefnu. Áhyggjur séu uppi varðandi röskun á virðiskeðjum og aðgengi að tækni. Grímur Grímsson sagði af þessu tilefni að mikilvægt væri að þingmannanefnd EES héldi áfram samtali um alþjóðaviðskipti sem takmarkist ekki við EES-samninginn.
Á fundinum var loks rætt um viðræður Sviss og ESB um samninga um aðgang Sviss að innri markaði ESB.
Nefndin samþykkti eina ályktun á 48. fundi sínum um ársskýrslu sameiginlegu EES-nefndarinnar um framkvæmd EES-samningsins árið 2024. Því var fagnað að miklvægar gerðir hefðu verið teknar upp í EES-samninginn en að þörf væri á að minnka upptökuhallann. Ályktunina og frekari upplýsingar er að finna á vefsíðunni www.efta.int. Næsti fundur nefndarinnar fer fram í Strassborg 26.–27. nóvember 2025.
Fylgiskjal V.
FRÁSÖGN
af fundi þingmannanefndar og ráðherra EFTA í Tromsö 23. júní 2025.
Hefðbundinn sumarfundur þingmannanefndar, ráðgjafanefndar og ráðherra EFTA fór fram í Tromsö í Noregi, auk þess sem þingmannanefndin hélt fund með ráðgjafanefnd EFTA og eiginlegan nefndarfund. Af hálfu Íslandsdeildar sóttu fundina Diljá Mist Einarsdóttir, varaformaður, og Kristján Þórður Snæbjarnarson, auk Eggerts Ólafssonar ritara.
Á fundi ráðherra EFTA með þingmannanefnd og ráðgjafanefnd samtakanna fjallaði fyrsti dagskrárliðurinn um framtíðarviðskiptastefnu EFTA í ljósi sviptinga á alþjóðavettvangi. Ráðherrar lögðu áherslu á að EFTA-ríkin vildu standa vörð um viðskiptaumhverfi sem virðir alþjóðalög. EFTA-ríkjunum væri treyst sem áreiðanlegum viðsemjanda og nýta ætti þennan styrkleika. EFTA horfi til þess að uppfæra fríverslunarsamninga við Kanada, Mexíkó og Suður-Kóreu. Þá sé horft til Afríku til lengri tíma. Þá er EFTA opið fyrir því að gera samninga sem nái eingöngu til þjónustuviðskipta og stafrænna mála. Loks lögðu ráðherrar áherslu á að unnið verði að því að horfa á áhrif fríverslunarsamninga á sjálfbæra þróun. Þá var rætt um samskipti við Bandaríkin í kjölfar ákvörðunar um tollahækkanir á hinum svokallaða frelsisdegi, 2. apríl 2025. Sögðu ráðherrar að ríkin ættu í samtali við Bandaríkin hvert fyrir sig en EFTA sem slíkt ætti ekki í viðræðum. EES-samningurinn væri mikilvægasti viðskiptasamningur EES EFTA-ríkjanna en ljóst væri að hann gæti sett skorður á sviðum sem Bandaríkin einblína á. Þegar horft væri á stefnu Bandaríkjanna í víðara samhengi þá væri líklegt að hún myndi leiða til breytinga í viðskiptastefnu þjóða heilt yfir. Undir þessum dagskrárlið voru ráðherrar spurðir út í fríverslunarsamning EFTA og Ísrael og hvort skoða ætti að stöðva tímabundið gildi samningsins. Ráðherrar sögðu að fylgst sé með gangi mála í Miðausturlöndum en að fríverslunarsamningurinn hafi ekki að geyma ákvæði um tímabundna stöðvun.
Næsti dagskrárliður varðaði stöðu viðræðna við Mercosur-ríkin, Víetnam og Singapúr. Ráðherrar greindu frá því að gangur væri í viðræðum við Mercosur-ríkin. Stefnt væri að því að ná samkomulagi í júlí 2025. EFTA-ríkin væru einhuga um að klára þennan samning sem gæti skapað ný tækifæri og styrkt virðiskeðjur ríkjanna. Leysa þyrfti tiltekin útistandandi atriði varðandi vernd hugverka þannig að einkaleyfi og nýsköpun væri varin. Það væri nauðsynlegt til að ríkin gætu fullgilt samninginn. Varðandi viðræður við Víetnam þá væri gert ráð fyrir að þær myndu hefjast að nýju eftir að Víetnam lýsti yfir áhuga á því í fyrra. Gert sé ráð fyrir að næsta umferð viðræðna fari fram í september á þessu ári. Loks varðandi Singapúr þá stæðu viðræður yfir um nýjan kafla um stafræn viðskipti í stað þess sem er í fríverslunarsamningnum frá 2003. Með hinum nýja kafla ætti að skapa bætt skilyrði fyrir viðskipti af þessu tagi, styrkja neytenda- og gagnavernd og stuðla að samvinnu á sviðum sem eru að verða meira áberandi, til að mynda gervigreind og stafrænt öryggi.
Þá var rætt um útkomu viðræðna og samkomulag um fríverslunarsamning við Malasíu en ráðherrarnir höfðu þá nýlokið við að undirrita hann ásamt fjárfestingar-, viðskipta- og iðnaðarráðherra Malasíu, Tengku Zafrul bin Tengku Abdul Aziz. Ráðherrarnir fögnuðu samningnum og lýstu honum sem stórum áfanga í að dýpka samskipti ríkjanna, auka viðskipti og fjárfestingu og veita fyrirtækjum betra markaðsaðgengi. Þess var sérstaklega getið að samningurinn hefði að geyma ákvæði um ríkiskaup. Það sé nýmæli í samningum EFTA við Asíuríki. Einnig væru ákvæði um vinnuréttindi, mannréttindi, umhverfisvernd og sjálfbæra framleiðslu pálmaolíu.
Loks var rætt um viðskipti við Úkraínu og endurreisn þess. Fjallað var um uppfærðan fríverslunarsamning EFTA og Úkraínu sem var undirritaður 8. apríl 2025. Honum væri ætlað að vera liður í að styrkja viðnámsþrótt, hagvöxt og endurreisn Úkraínu. Samvinnu lyki þó ekki með þessum samningi og EFTA-ríkin myndu jafnframt halda áfram að styðja við Úkraínu á öðrum sviðum.
Fylgiskjal VI.
FRÁSÖGN
af fundi þingmannanefndar og ráðherra EFTA í Brussel 20.–21. nóvember 2025.
Fundur þingmannanefndar, ráðgjafanefndar og ráðherra EFTA fóru fram í Brussel, auk þess sem þingmannanefndin hélt fund með ráðgjafanefnd EFTA og eiginlegan nefndarfund. Af hálfu Íslandsdeildar sóttu fundina Grímur Grímsson, formaður, Diljá Mist Einarsdóttir, varaformaður, Ingibjörg Isaksen, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Kristján Þórður Snæbjarnarson, auk Eggerts Ólafssonar ritara. Grímur er formaður þingmannanefndar EFTA á árinu 2025 og stjórnaði fundunum, ýmist sjálfur eða með formanni ráðgjafarnefndar EFTA.
Þingmannanefnd EFTA hélt sameiginlegan fund með ráðgjafarnefnd EFTA (hér eftir „nefndirnar“). Þær fengu fyrst á sinn fund embættismann á skrifstofu framkvæmdastjóra alþjóðaviðskipta hjá framkvæmdastjórn ESB. Hann var fenginn til að ræða um viðskiptastefnu ESB á Atlantshafssvæðinu. Umræður snerust þó einkum um ákvörðun ESB 18. nóvember 2025 um að leggja á verndarráðstafanir á kísilmálm sem ná til Íslands og Noregs. Fulltrúi ESB fjallaði um hvernig Evrópusambandið hefur nálgast Bandaríkin í viðskiptalegu tilliti. Aðalmarkmiðið með viðskiptastefnu ESB sé að reyna að verða samkeppnishæfari og þróa innri markaðinn þannig að óþarfahindranir séu til staðar. Þar séu EES-ríkin mikilvægir samstarfsaðilar.
Varðandi verndarráðstafanir þá lýstu fundarmenn yfir áhyggjum af því að nú væru að verða til tveir innri markaðir, innan ESB og svo ytri innri markaðurinn þar sem EES EFTA-ríkin stæðu. Þá hefði þetta ekki þau áhrif að styrkja efnahagslegt sjálfstæði Evrópu heldur þvert á móti græfi það undan því að taka ákvörðun af þessu tagi gagnvart Íslandi og Noregi. Grímur Grímsson lýsti miklum vonbrigðum með þessa ákvörðun. Diljá Mist Einarsdóttir sagði að það væri ekki hægt að segja að Bandaríkin séu óábyrg þegar ESB tekur svona ákvarðanir. Hún féllist ekki á að það væri talað niður til EES EFTA-ríkjanna og þeim sagt að nálgast ákvarðanir af svona tagi af yfirvegun. Kristján Þórður Snæbjarnarson sagði að þetta væru ekki góð skilaboð þegar horft væri fram á við. Ef þetta væri dæmi um það sem koma skal þá sé komin upp slæm staða. Það verði að íhuga hvort ekki sé hægt að snúa þessu við. Fulltrúi ESB sagði að þessi ákvörðun væri ekki tekin af léttúð og ekki væri verið að reyna að grafa undan EES-samningnum. ESB sé meðvitað um hagsmuni Íslands og Noregs og reynt hafi verið að koma til móts við þá. 75% af innflutningi, miðað við besta ár þeirra í útflutningi, verði tollfrjáls. Sambandið sé meðvitað um að móttökurnar hafi ekki verið góðar á Íslandi og Noregi. ESB hafi þurft að gæta að því að ákvörðun þeirra væri í samræmi við reglur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Þetta eigi að nálgast af yfirvegun og sjá hverjar afleiðingarnar verði sem hann telur að verði ekki miklar þegar upp er staðið. Það verði vaktað af nákvæmni.
Auk þessa fengu nefndirnar á sinn fund gesti frá hugveitum sem ræddu stefnu ESB á sviði efnahagslegs öryggis annars vegar og hins vegar við að hraða grænu umskiptunum og efla samkeppnishæfni. Loks fengu nefndirnar gesti frá EFTA-skrifstofunni sem kynntu tillögur ESB að fjárhagsramma til margra ára (e. Multiannual Financial Framework). Undir þeim lið velti Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir upp hvort einföldunarstefna ESB gæti ekki haft þau jákvæðu áhrif að leiða til sparnaðar sem gæti haft áhrif á fjárhagsramma ESB. Loks var fjallað um aðkomu nefndanna að þverlægum stefnumótunartillögum Evrópusambandsins.
Því næst áttu nefndirnar fund með utanríkisráðherrum EES EFTA-ríkjanna, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, Sabine Monauni frá Liechtenstein og Espen Barth Eide frá Noregi. Fyrsta umræðuefni fundarins voru verndarráðstafanir ESB og ákvörðun þeirra að því er varðar járnblendi. Ráðherrarnir sögðu að Evrópusambandið væri að reyna að bregðast við breyttum aðstæðum í alþjóðaumhverfinu. Þessar ráðstafanir væru liður í að bregðast við áskorunum í framleiðslu í ESB. EES EFTA-ríkin séu ekki ósammála um að þetta sé vandamál sem leysa þurfi en að þau séu ekki hluti af vandamálinu heldur hluti af lausninni. Farið var yfir afstöðu að skilyrði fyrir beitingu 112. gr. EES væru ekki uppfyllt og hagsmunagæslu við að sannfæra ESB um að fara ekki þessa leið. Hafa þyrfti í huga að járnblendi væri ekki eina framleiðslan sem á undir högg að sækja í Evrópu. Í þessum aðstæðum þurfi ESB á bandamönnum að halda og þeir verði að skilja að það séu engir nánari bandamenn en Ísland. Leiðtogar ríkjanna hafi verið í sambandi við Ursulu von den Leyen vegna málsins sem hafi sagt að þetta væri einstök aðgerð og yrði ekki fordæmi til framtíðar. Í umræðum var því velt upp hvort þessar aðgerðir muni skila tilætluðum árangri og ef svo er ekki, hvort ekki væri hætta á að ESB gæfi í og að Ísland og Noregur ásamt öðrum yrðu fyrir frekari aðgerðum. Diljá Mist tók undir að mikilvægt væri að verja EES-samninginn og lagði áherslu á að þessi ákvörðun væri brot á EES-samningnum og gengi þvert á markmið Evrópusamstarfs. Kolbrún velti því fyrir sér hvort það væri hægt að finna jákvæðar hliðar á þessu, t.d. að verð hækki sem og bæti samkeppnisstöðu okkar fyrirtækja. Því var svarað til að þessi herferð Íslands og Noregs hafi þó leitt til þess að vitneskja allra ríkja í Evrópu um EES-samninginn hafi aldrei verið meiri. Sú vitneskja ein og sér komi ekki í veg fyrir frekari sambærilegar ákvarðanir. Áfram yrði að vinna ötullega að hagsmunagæslu en þessi aukna vitneskja væri jákvæð.
Nefndirnar áttu einnig fund með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, sem fer með formennsku í EFTA-ráðinu, um viðskipti við þriðju ríki. Á fundinum var rætt um viðskiptastefnu EFTA gagnvart þriðju ríkjum og stöðu viðræðna um gerð viðskiptasamninga, sér í lagi við Víetnam. Þá var rætt um ákvæði gildandi samninga um sjálfbæra þróun og eftirlit með þeim. Loks var rætt um hvernig stefna aðildarríkjanna ætti að þróast til framtíðar litið með hliðsjón af áskorunum á alþjóðavettvangi.
Fylgiskjal VII.
FRÁSÖGN
af 64. fundi þingmannanefndar EES í Strassborg 26.–27. nóvember 2025.
Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA og EES sóttu fundina Grímur Grímsson, formaður, Diljá Mist Einarsdóttir, varaformaður, Ingibjörg Isaksen, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Kristján Þórður Snæbjarnarson, auk Eggerts Ólafssonar ritara. Grímur er formaður þingmannanefndar EFTA á árinu 2025 og stjórnaði fundinum ásamt Andreas Schwab, þingmanni Evrópuþingsins.
Venju samkvæmt var fjallað um stöðu EES-samningsins. Anna A. Nilsson, formaður EFTA-vinnuhóps ráðsins, fjallaði um fund EES-ráðsins, mikilvægar gerðir sem hafa verið teknar upp í EES-samninginn og mikilvægar gerðir sem eru útistandandi. Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands, talaði fyrir hönd formennsku Íslands í EES-ráðinu. Hann fjallaði um mikilvægi þess að alþjóðaviðskipti byggðust á réttarreglum. Mikilvægt væri í þessu sambandi að reglur EES-samningsins væru virtar enda séu EES EFTA-ríkin samofin virðiskeðju innri markaðarins. Það væru því vonbrigði að verndarráðstafanir ESB varðandi kísilmálm tækju til Íslands og Noregs. Nicolas von Lingen, ESB-formaður sameiginlegu EES-nefndarinnar, sagði að það væri að nást árangur í upptöku gerða í EES-samninginn. Enn væri þó vinnu ólokið og ekki mætti handvelja hvaða gerðir ættu að fara inn í samninginn. 53 gerðir væru enn útistandandi sem eru eldri en fimm ára. Einnig væri árangur að nást í afléttingu stjórnskipulegs fyrirvara. Árni Páll Árnason, sem situr í stjórn Eftirlitsstofnunar EFTA, sagði að innleiðingarhalli færi minnkandi hjá EES EFTA-ríkjunum og væri í kringum meðaltal hjá ríkjum ESB. Allir þingmenn íslensku sendinefndarinnar lýstu yfir vonbrigðum með ákvörðun ESB um verndarráðstafanir sem væru ekki í samræmi við efni og markmið EES-samningsins. Það væri vilji Íslands að standa með EES-samningnum en þetta sendi neikvæð skilaboð til Íslands.
Því næst var rætt um samvinnu við að efla samkeppnishæfni ESB á sviði geimmála. Prófessor José Achache fjallaði um stöðu ESB á þessum markaði. Í heild væri þessi markaður um 60 milljarðar evra. Þar væri hlutur Bandaríkjanna um 45 milljarðar. Það horfði til betri vegar með áætlun Þýskalands en þörf væri á frekari fjárfestingu. Christophe Grudler, þingmaður á Evrópuþinginu, sagði að mikið hefði áunnist á þessu sviði en ljóst væri að þörf væri á frekari fjárfestingu. Samvinna við Noreg og Sviss á þessu sviði væri í mikilli þróun sem væri jákvætt.
Næst var rætt um stefnu ESB um að efla samkeppnishæfni, sér í lagi fyrir sprotafyrirtæki og getu þeirra til að stækka. Fjallað var um meginþætti þessarar stefnu og kom fram að þörf sé á að auka fjármagn til þessara mála sem verður gert með tilteknum sjóði. Honum hefur verið komið á laggirnar því ekki hafi verið hægt að bíða eftir nýju fjárhagstímabili ESB. Diljá Mist Einarsdóttir var með framsögu um málið. Sagði hún að þessar aðgerðir væru skref í rétta átt en að Evrópusambandið yrði að vera djarfara í aðgerðum sínum til að halda í við Kína og Bandaríkin. Það væri hagur EES EFTA-ríkjanna að innri markaðurinn héldi styrk sínum og drægist ekki aftur úr. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir spurði hversu hratt mætti reikna með að vinna við einföldunarpakka myndi ganga. Grudler svaraði því til að Evrópuþingið þyrfti að vinna með tillögur ESB. Það mætti ekki gefa afslátt af gæðum vinnunnar. Það væri klofningur innan þingsins varðandi sumar þessara tillagna.
Fjallað var um stöðu alþjóðaviðskipta og nálgun ESB og EFTA. Karin Karlsbro, þingmaður Evrópuþingsins, sagði að Evrópuþingið hefði mikið að segja um viðskiptastefnu sambandsins. Það þurfi grænt ljós þaðan til að hægt sé að gera samninga. Segja má að utanríkismál hefðu að ákveðnu leyti færst inn í nefnd þingsins um viðskipti. Eining sé um að Evrópa eigi að vera traustur aðili í viðskiptum og vera reiðubúin til að eiga viðskipti. Innan nefndar þingsins um viðskiptamál væri unnið að því að liðka fyrir viðskiptum við Úkraínu samhliða aðildarumsókn. Þá sé unnið að því að klára samning við Mercosur-ríkin. Einnig sé unnið með samkomulagið við Bandaríkin. Þetta sé samkomulag um að gera samkomulag en það þurfi að vinna að nánari útfærslu til að það geti tekið gildi. Það muni örugglega nást lausn en samningamaðurinn sé óútreiknanlegur. Trine Lise Sundnes, þingmaður á norska Stórþinginu, fjallaði um stefnu EFTA-ríkjanna á þessu sviði.
Því næst var rætt um stöðu samskipta ESB og Bretlands. Klára Dobrev og Mika Aaltola, þingmenn á Evrópuþinginu, sögðu frá því að samskipti milli aðilanna hafi verið stirð til að byrja með eftir Brexit en að það hafi verið að batna. Á nýloknum tvíhliða fundi Evrópuþingmanna og breskra þingmanna hafi aðilar verið sammála um að treysta betur samskipti og vinna nánar saman á sviði öryggis- og varnarmála. Þátttaka Bretlands í SAFE-áætluninni sé jákvætt skref í þessum efnum. Aðilar séu einhuga í stuðningi sínum við Úkraínu.
Því næst var rætt um áætlun ESB um styrkingu innri markaðarins (e. Single Market Strategy). Jeannette Baljeu, þingmaður Evrópuþingsins, kynnti meginefni skýrslu sem unnin hefur verið í þinginu um þessa áætlun. Áherslan sé á að styrkja stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja á svæðinu með einfaldari reglum. Stafvæðing sé einnig áherslumál til að hægt sé að auka samkeppnishæfnina. EFTA-ríkin fjölluðu um mikilvægi þessarar stefnumótunar fyrir EES EFTA-ríkin. Þau hafi áður kvartað yfir flóknu regluverki sem valdi litlum og meðalstórum fyrirtækjum erfiðleikum og veiti stórum fyrirtækjum betri stöðu. Það sé jákvætt að stefnt sé að einföldun sem efli nýsköpun. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir spurði um gullhúðun. Ísland hafi gullhúðað í talsverðum mæli sem væri hamlandi. Spurði hún hvort önnur ríki væru að stunda þetta í miklum mæli. Því var svarað til að þetta væri misjafnt milli ríkja. Það væri mikilvægt að ræða þetta því þetta væri hamlandi fyrir markaðinn ef ríki væru eftir reglusetningu að setja frekari reglur hver í sínu lagi.
Loks var rætt um fjármálatillögur Evrópusambandsins fyrir árin 2028–2034. Janusz Lewandowski, þingmaður Evrópuþingsins, fjallaði um tillögurnar. Hann sagði að áætlunin bæri með sér að framkvæmdastjórnin vildi frekar vera sveigjanleg en fyrirsjáanleg í áætlun sinni. Ljóst væri að samkeppnishæfni væri í forgrunni því hlutfall áætlunarinnar sem er eyrnamerkt þessu áherslumáli væri aukið. Sérfræðingur EFTA-skrifstofunnar fjallaði um framlög EES EFTA-ríkjanna til ESB í tengslum við þátttöku í áætlunum ESB. Grímur Grímsson tók þá til máls og lagði áherslu á að EES EFTA-ríkin ættu ekki að vera sett í hóp með þriðju ríkjum þegar kemur að þátttöku í áætlunum ESB. EES-samningurinn kveði á um rétt til þátttöku í áætlunum og ríkin hefðu aðra stöðu en þriðju ríkin og það ætti að virða það. Það gæti haft áhrif fyrir EES EFTA-ríkin varðandi þátttöku í áætlunum ef það væri ekki gert.
Þar að auki fengu þingmenn EES EFTA-ríkjanna kynningu á stöðu stækkunarmála hjá Evrópusambandinu. Loks hélt framkvæmdastjórn þingmannanefndarinnar fund þar sem starf nefndarinnar var skipulagt.